Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2003, Side 48
52 SMÁAUGLÝSINGAR S50 5000 LAUGARDAGUR25. OKTÓBER2003
Sægreifinn
auglýsir!
Til sótu reyktur rauómagt.
reykt ýsa. slósigmn iiskut.
siginn gráslepga. -
gellur. titvatnaður
salthskur. ýsulmkk,
tooaiegin loösktiia.
9kðtimtw OQ humr>
Sægreifinn
klikkar ekkl á verðinu.
Stmlnn er 867 3660.
Verbúð 8,
v/ smábatahöfnina.
• SÆGREIFINN - s. 867 3660. »
GÓÐIR SKÓR - GOTT VERÐ.
Spariskór, kuldaskór, götuskór,
stígvél, inniskór og sundskór.
Opið 12 til 18. Bónusskór, Hverfisgötu
76. _____________________________
GÓÐIR SKOR - GOTT VERÐ.
Herraskór og sportskór upp í stærð 49.
Kvenskór upp í st. 44. Opiö 12 til 18.
Bónusskór, Hverfisgötu 76.
Nú er Borgargrlll báðum megin viö Miklu-
braut. Bílalúgur, opið allan sólarhringinn
um helgar. Hamborgarar, bátar, veflur,
samlokur, pylsur, ís og sælgæti. Verið vel-
komln.
Þjónusta
&
Teppahreinsun
með "Truckmount "
lli« dmi satimi 'Mjii|>)m ínsim” mer n«t*» i
{H‘(»ai rtðrur rtiMmVir skilja efHr iilctlinn.
Fyrtr öH trppi,
Ncímiti
Skrtfttofur
StÍRuhtts.
Melra «tl
bctr« sk»l
^ Styttrt jiurrktmii.
SKUFUR
Kleppsvegi 1S2, 104 Rvik.
Stmi S68-8813 Gsm 663-0SS3
www.teppahralnsun.com
Teppahrelnsunln Skúfur
www.teppahrelnsun.com
Steiningarefni
Ýmsar tegundir.
Ma. Kvartz, marmari,
gabbró, granit,
ennfremur steiningarltm.
Mikið litaún/al.
Þvoum og blöndum efni eftir
öskum viðskiptavina.
Flytjum efni á byggingarstað.
Sjón er sögu ríkari.
Ffnpússning sf.
íshellu 2, Hafnarfirði.
Sími: 553 2500 - 898 3995
Fínpússning sf.
S. 553 2500 / 898 3995.
Tll lelgu sérútbúlnn 17 farþega hópferða-
bíll m. bílstjóra. Karaoke-kerfi, 3 sjón-
varpsskjáir, heyrnartól, lesljós og glasa-
haldari fyrir hvert sæti. Tölvu- og videot-
enging inn á skjái, 220 volta straumúttak
og geymsluhilla fyrir ofan sæti Uppl. í s.
8611277.
Sm áauglýsingar £
pv í,
550 5000 £
Þú auglýsir - ^
við birtum - ^
það ber órangur
V
Tökum að okkur allt almennt vlðhald.
Erum með málara, múrara og trésmiði.
Það er ykkar hagur að versla við fagmenn.
Múr og Mál, sími 587 5100,
www.murogmal.is
murogmal@murogmal.is
Afmenn þrif.
Tek að mér að ræsta, stigaganga, þrif á
fyrirtækjum, gluggaþvott o.fl. Vönduð
vinnubrögð. Tilboð/tímavinna. Nánari
uppl. gefur Alexander í síma 690 1974.
Dyrasímaþjónusta. Raflagnavinna.
Almenn dyrasíma- og raflagnaþjónusta.
Set upp ný dyrasímakerfi og geri viö
eldri.Endurnýja raflagnir í eldra húsnæði
ásamt viðgerðum og nýlögnum. Rjót og
góð þjónusta. Jón Jónsson, löggiltur raf-
verktaki.SImi 562 6645 og 893 1733.
Heimsins besta bílabón.Vlltu láta dekra
viö bílinn þinn? Tek hann frá felgum upp í
topp, allt hreinsað og bónað. Pottþétt
vinnubrögö. Þú er ánægð(ur), og bíllinn
eins og úr kassanum. Bónstöðin
Lakkvórn ehf., síml 6933730.___________
PGV ehf., s. 564 6080 & 699 2434,
Bæjarhrauni 6, 220 Hafnarfirði.
Viöhaldsfrttt -10 ára ábyrgð. PVC-u glugg-
ar, hurðir, sólstofur og svalalokanir. Há-
gæðaframleiösla og gott verð. www.pgv.ls
/ pgv@pgv.is___________________________
Skólphreinsun. Er stíflað? Fjarlægi stíflur
úr wc, vöskum, baðkerum og niðurföllum.
Nota ný og fullkomin tæki, rafmagns-
snigla, röramyndavél til að mynda frá-
rennslislagnir og staðsetja skemmdir. Ás-
geir Halldórsson. Sími 567 0530. Bílasími
892 7260.______________________________
Stífluþjónusta Bjarna, s. 899 6363 &
554 6199.
Fjarlægi stíflur úr WC, handlaugum,
baðkörum og frárennslislögnum.
Röramyndavél til að ástandsskoða lagnir.
Dælubíll til að losa þrær og hreinsa plön.
Er viðskiptamannaskráin þín með
gömul heimilisföng og jafnvel látna ein-
staklinga?
Greiningahúsiö ehf. - s. 551 9800,
www.greiningahusid.is__________________
Fagvirknl.ls Fyrir stór og smá verk. Fýrir-
tækiö er meö smiði - múrara - málara -
pípulm. - rafvirkja o. fl. að störfum. Áreiö-
anleiki og snyrtimennska. S. 568
2121/892 1270._________________________
Sjálfstæður hönnuður og Ijósmyndari. Tek
að mér auglýsingagerð fyrir lítil og meðal-
stór fýrirtækl. Firmamerki, auglýslnga-
bækilngar, auglýsingar o.fl. S. 694
8088/olath@fa.is.______________________
DALSMÍÐI EHF. Getum bætt við okkur
verkefnum. Glerisetningar og gluggavið-
geröir og allar almennar viögerðir. Tilboö
ykkur aö kostnaðarlausu. Uppl. í s. 893-
8370.__________________________________
Málnlngarvinna. www.malun.ls
Málarameistari getur bætt við sig verkefn-
um. Vönduð vinna. Tilboð eða tímavinna.
Sími 699 4776.________________________
Nuddstofan Laugardalslaug. Gott nudd -
betri líöan. Verðdæmi: 3500 kr. 60 mín.,
aðgangur aö laug innifalinn I veröi. Tímap.
I s. 553 4039. Nuddararfrá FÍN.
Rafbylgjumællngar og varnir. Höfuðverk-
ur, slþreyta, vöövabólga, exem, þurrkur I
húð út af tölvum og fótaverkir.Uppl. 892
3341 og 5811564._______________________
Er vírus I tölvunnl eða er hún biluð? Mæti
á staöinn, traust oggóð þjónusta. Verö frá
3500 kr. Sími 696 3436. Skoöið tilboðin
á www.simnet.is/togg___________________
BH sporttækni. Rlmur, bón, alþrif, möss-
un og lakkviðgerðir. Slmi 845 0807.
www.bhtaekni.com_______________________
Meindýraeyðlng. Holræsamyndun, stlflu-
þjónusta, loftstokkahreinsun og rakamæl-
ingar. Almenn fasteignaskoðun. S. 846
1919.__________________________________
Tek að mér viðgerðir á þvottavélum I
heimahúsum, fljót og ódýr þjónusta. Uppl.
I síma 848 2574._______________________
Verslaðu í USA Pantaðu af netinu eða
kauptu út úr búö I Bandaríkjunum. Nánari
uppl., sendu tölvupóst til
GJTH@MSN.COM
Ökukennsla
Frábær kennslubifreiö.
Glæsilegur Subaru Impreza 2,0 I, GX, 4
WD, árg. 2002. Góður ökuskóli og próf-
gögn. Æfingaakstur og akstursmat. Gylfi
Guöjónsson, sími 696 0042 og 566
6442.__________________________________
Reyklausir bílar. Okukennsla, aöstoð við
endurtökupróf og akstursmat. Kenni á
Benz 220 C og Legacy, sjálfskiptan.
Reyklausir bllar. S. 893 1560/587 0102.
Páll Andrésson.
Skák “j«T" fll Umsjón: Sævar Bjarnason *
íslandsmót skákfélaga:
Hrókurinn sigurstranglegastur
Um helgina hefst íslandsmót
skákfélaga og eftirfarandi pistil, sem
að hluta til er birtur hér, skrifaði
Gunnar Björnsson á skáksíðunni
skak.is. Helgina 24.-26. október fer
fram fyrri hluti íslandsmóts skákfé-
laga sem nú fer fram í 30. sinn og
ber nú nafnið Flugfélagsdeildin. fs-
landsmeistarar tveggja síðustu ára,
Skákfélagið Hrókurinn, undir for-
ystu skákfrömuðarins Hrafns Jök-
ulssonar, teljast langsigurstrangleg-
astir og gætu hæglega stillt upp
stigahæsta skákmanni landsins, Jó-
hanni Hjartarsyni, á 5. borði.
Á 6.-8. borði getur svo Hrókurinn
stillt upp mönnum eins Stefáni
Kristjánssyni, Róberti Harðarsyni,
Ingvari Þór Jóhannessyni, Páli Þór-
arinssyni, Tómasi Björnssyni og El-
vari Guðmundssyni, sem er fluttur
til landsins eftir langa fjarveru. Ekki
árennilegt lið sem ætti að sigra
nokkuð auðveldlega í keppninni að
öllu eðlilegu.
Hellismenn koma væntanlega
veikari til leiks nú en oft áður þar
sem Helgi Ólafsson er vant viðlát-
inn á meðan keppnin stendur -
verður staddur í Grikklandi sem
fararstjóri á heimsmeistaramóti
barna og unglinga. I raðir Hellis-
manna er nú kominn Sigurður
Daði Sigfússon sem styrkir liðið í
baráttunni við Taflfélag Reykjavík-
ur um annað sætið og tel ég að
Hellir nái 2. sæti fjórða árið í röð.
Hellismenn fá reyndar fremur
„auðvelda“ dagskrá í fyrri hlutan-
um, þ.e. b-liðin þrjú ogTV.
Ég spái Taflfélagi Reykjavíkur
þriðja sæti. Félagið hefur reyndar
orðið fyrir nokkrum áföllum því
Sigurður Daði Sigfússon er hættur í
klúbbnum og Magnús örn Úlfars-
son fluttur til Bandaríkjanna til að
stunda þar nám. Með Þröst Þór-
hallsson, Björgvin Jónsson og
Heiðrúnarpiltana, Jón Viktor
Gunnarsson, Braga Þorfinnsson og
Arnar E. Gunnarsson tel ég TR eiga
að geta varist ásókn SA og TV í 3.
sætið nokkuð auðveldlega. Þess má
geta að TR hefur aldrei lent neðar
en í 3. sæti.
Ritstjóri spáir Skákfélagi Akur-
eyrar fjórða sæti. Ég tel reyndar
ólíklegt að SA nái að blanda sér í
baráttuna um verðlaunasæti að
þessu sinni en félagið missti Jó-
hann Hjartarson yfir til Hróksins.
Aðrir eru þó til staðar og SA hefur
oft staðið sig vel, en fjórða sætið er
engu að síður líklegasta niðurstað-
an að mati ritstjóra.
Nokkuð auðvelt er að spá um
þessi fjögur efstu sæti en erfiðara er
að spá um hin sætin fjögur. Ég ætla
samt að spá Vestmannaeyingum
fimmta sætinu en tel þó töluverðan
vafa á að það gangi eftir. Það hefúr
komið fram að Eyjamenn stilli upp
þremur erlendum stórmeisturum
og á fjórða borði verður svo vænt-
anlega Sævar Bjarnason.
I 6. sæti spáir svo ritstjóri b-sveit
TR en hún gæti þó hæglega „stolið"
fimmta sætinu af TV. B-lið TR vinn-
ur því b-liðs-keppnina þriðja árið í
röð gangi spáin eftir. Reyndar hlýt-
ur fjarvera Magnúar Arnar og Sig-
urðar Daða úr a-liðinu að veikja b-
liðið, auk þess sem Dagur Arn-
grímsson og Guðmundur Kjartans-
son eru á HM í Grikklandi.
Ritstjóri spáir b-sveit Hellis 7. og
næstsíðasta sæti. Sú sveit er þó
„þétt“, enda teflir ritstjóri með
henni! Sveitin hefur verið nokkuð
misjöfn í gegnum árin og má þar
nefna 0-8 tap gegn b-sveit TR í
hittifyrra og 4,5-3,5 ?igur gegn a-
sveit TR í fyrra, en umferðina áður
hafði a-sveit TR unnið Hrókinn! B-
sveitin gæti hæglega stolið „b-
sveitar-bikarnum" af TR og einnig
hæglega fallið á vondum degi, enda
margir b-sveitarmanna í fremur
slakri æfingu. Það veikir svo sveit-
ina að Lenka Ptácníková teflir ekJd
með liðinu, en hún er einn farar-
stjóra á HM í GrikJdandi.
Einhverjir verða að falla og þessu
sinni spáir ritstjóri b-sveit SA þeim
örlögum. Ritstjóri hefur þó verið
einkar illa sannspár jtegar kemur að
fallliði úr 1. deild. Eg hafði iðulega
spáð Bolvíkingum þeim örlögum
þar til í fyrra, er ég spáði b-sveit SA
falli, en aldrei féllu Vestfirðingarnir
fyrr en í fyrra. Akureyringar geta því
harla vel við þessa spá unað!
Evrópukeppni landsliða
Rússar sigruðu á Evrópukeppni
landsliða sem lauk í Búlgaríu um
síðustu helgi. Skák dagsins er á
milli Frakka og Ungverja og það er
sá ungverski sem fer með sigur af
hólmi.
Hvítt: Joel Lautier (2666)
Svart: Peter Acs (2593)
Slavnesk vörn.
Plovdiv (6), 17.10. 2003.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. e3 e6
5. Rf3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5
8. Bd3 a6 9. e4 c5 10. e5 cxd4
Skákin teflist enn eftir hefð-
bundnum leiðum og nú fara
skemmtilegar sviptingar í hönd. 11.
Rxb5! axb512. exf6 grf613.0-0 Db6
14. De2 b4 15. Hdl Bc5 16. a4 bxa3
17. bxa3 Bb718. Be4 Ba6. Hér hefði
hvítur gert betur með að reyna að
þráleika með 19. Bd3 en Frakkinn
ofmetur stöðu sína og teflir ótrauð-
ur til vinnings. 19. Del Hd8 20. Bd2
Dd6 21. Ba5 Hb8 22. Bb4 d3! 23.
Dc3 Ke7
Hvítur afræður að skipta upp á
drottningu á óvenjulegan hátt. En
svartur, sem er með framsækið frí-
peð og sterkan kóng, hefur umtals-
verða yfirburði. Eftir 24. Habl Hhc8
stendur svartur eitthvað betur en
hvítur hefur þó von um að vinna
d3-peðið og hanga á jafntefli. 24.
Dd4 Bxd4 25. Bxd6+ Kxd6 26. Rxd4
Rc5 27. Bf3 Hhc8 28. Hacl Ra4 29.
h3 Rc3 30. Hd2
Eins og flestir skákmenn vita þá
er sterkur kóngur í endatafli gulls
ígildi. Svartur finnur nú skemmti-
legan leik sem einfaldar taflið og
ryður frípeðinu braut. 30. -Ke5! 31.
Rc6+ Hxc6 32. Bxc6 Re2+ 33. Hxe2+
dxe2 34. Bf3 Kd4 35. Hel Hb2 36.
Bh5 Kd3 37. f4 Ke3 38. Bxf7
Svartur nær nú að skipta upp á
síðustu hindrun frípeðsins, hvfta
hróknum. Og þar sem hvíti kóngur-
inn hefur aðeins verið áhorfandi að
atburðum skákarinnar kemur
svartur peði sínu í borð! 38. - Bd3.
0-1
Við erum ein fjölskylda
Hrókurinn efnir til skákhátíðar í
Vetrargarðinum í Smáralind um
helgina, undir kjörorðinu: Við erum
ein fjölskylda. Boðið verður upp á
fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
Meistarar Hróksins munu tefla
fjöltefli við börn og fullorðna og er
vonast eftir að sem allra flestir
spreyti sig. Þá mun Hrókurinn leggja
stöðupróf fyrir gesti til að kanna á
hvaða stigi skákkunnátta íslendinga
er. Landskunnir skemmtikraftar
munu stíga á svið, enda skemmti-
nefnd hátíðarinnar skipuð Stuð-
manninum Jakobi F. Magnússyni og
Geirfuglinum Frey Eyjólfssyni. Eld-
gleypar Hróksins leika listir sínar og
trúðar koma í heimsókn.
Mjólkurskákmótið 2003
Mjólkurskákmótið á Hótel Sel-
fossi 2003 verður haldið dagana 29.
október til 7. nóvember. Það verður
eitt sterkasta mót íslenskrar skák-
sögu en jafnframt er efnt til skák-
viðburða fyrir börn í öllum skólum
á Suðurlandi. Meðal keppenda
verða sumir af sterkustu skák-
mönnum heims, auk harðsnúins
heimavarnarliðs íslendinga. Friðrik
Ólafsson stórmeistari er verndari
mótsins og aðalskákskýrandi á
Hótel Selfossi verður Bent Larsen.
Margir snjallir kappar'mæta til
leiks á Hótel Selfossi. Keppt er í
meistaraflokki og áskorendaflokki
og eru tíu skákmenn í hvoru móti.
Meistaraflokkurinn verður sérlega
vel skipaður: Sigurvegararnir á
Mjólkurskákmótinu á Hótel Sel-
fossi 2002, Ivan Sokolov og Predrag
Nikolic, verða báðir með, en stiga-
hæstur er rússneski stórmeistarinn
Vladimir Malakhov, sem er aðeins
21 árs en kominn með tæplega
2700 Elo-stig. íslensku stórmeist-
ararnir Hannes Hlífar Stefánsson
og Þröstur Þórhallsson verða í eld-
línunni í meistaraflokki og fá sann-
arlega verðuga mótheija.
Larsen og Friðrik áLoftleiðum
KB-einvígi Larsens og Friðriks á
Loftleiðum 11. til 15. nóvember er
tíundi alþjóðlegi skákviðburðurinn
sem Hrókurinn skipuleggur á 20
mánuðum. Árið 1955 urðu Friðrik
Ólafsson og Bent Larsen efstir og
jafnir á Norðurlandamótinu í skák.
í ársbyrjun 1956 háðu þeir 8 skáka
einvígi í Sjómannaskólanum í
Reykjavík um titil Norðurlanda-
meistara. Báðir voru þeir tvítugir að
aldri og meðal efnilegustu skák-
manna heims. Einvígi Friðriks og
Larsens 1956 er einn af hápunktum
íslenskrar skáksögu. Öll þjóðin
fylgdist með hólmgöngu ungu
meistaranna.