Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 Fréttir 0V Ríkisendurskoðun á ekki að afhenda fjármálaráðuneytinu gögn um áfengiskaup i fimmtugsafmæli Bryndísar Schram. Hæstiréttur dæmdi í gær að einkaskjöl sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi Rikisendurskoðun væru ekki eign fjármála- eða utanrikisráðuneytisins og ættu því ekki heima i skjalasöfnum þeirra. Brennivínsreikningar ern Hæstiréttur dæmdi í gær að það væri engin lagaheimild fyrir því að Ríkisendurskoðun af-. henti fjármálaráðuneytinu gögn sem Jón Bald- vin sendi stofnuninni þegar hún gerði úttekt á veislukostnaði ráðherra árið 1989. Um er að ræða reikninga vegna áfengiskaupa í fimmtugs- afmæli Bryndísar Schram sem haldið var á Hót- el íslandi á meðan maður hennar var fjármála- ráðherra. Deilan snýst í stuttu máli um það hvort Jón Baldvin og Bryndís hafi látið fjármálaráðuneyt- ið borga fyrir sig áfengisveitingar í afmælisveisl- unni en vínið hafði verið fengið að láni hjá Veislusölum ríkisins í Rúgbrauðsgerðinni. Rík- isendurskoðun komst að því við athugun að allt hefði verið með eðlilegum hætti en Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður hefur efast um að svo hafi verið og kallað eftir því að öli gögn verði lögð á borðið. Þegar Jón var orðinn utanríkisráðherra kviknaði umræða í fjölmiðlum um að heimild ráðuneyta til að fá endurgreiddan áfengiskostn- að hefði verið nýtt vegna áfengisins sem keypt var í fimmtugsafmæli Bryndísar. Jón Baldvin sendi Ríkisendurskoðun gögn þar sem gerð var grein fyrir meðferð veislufanga og því, hvernig kostnaður vegna afmælisveislunnar var greidd- ur. Niðurstaða áfengisúttektar Ríkisendurskoð- unar var á sínum tíma að ekkert hafi komið fram sem gefi ástæðu til að tengja saman þau gögn sem Jón Baldvin telur einkagögn og út- tektarbeiðnir fjármálaráðuneytisins eða rengja sannleiksgildi gagna um að greiðsla fyrir veit- ingar hefði verið með eðlilegum hætti. Jón Steinar óskar eftir gögnum Það var svo rúmum áratug eftir þessa niður- stöðu Ríkisendurskoðunar að Jón Steinar óskaði eftir því við Ríkisendurskoðun að hún Jéti honum í té ljósrit af þeim gögnum sem stofnunin skoðaði við þessa athugun og vísaði til uppíýsingalaga. Ríkisendur- Jón Steinar Gunnlaugsson Óneitan- lega gaman að láta á það reyna hvort Rikisendurskoðun geti neitað að afhenda gögnin. Hafnfirskir skólar geta ekki borgað 12 þúsund fyrir hvert bráðgert barn: Hafa bara efni á einu gáfuðu barni skoðun taldi að sér væri það ekki heimilt enda telur stofnunin að upplýsingalög nái ekki yfir hana, nokkuð sem Jón Steinar telur rangt. Ríkisendurskoðun vísaði Jóni Steinari á að leita upplýsinga frá utanríkisráðuneytinu sem fann gögnin ekki hjá sér og vísaði á fjármála- ráðuneytið. Eftir nokkur bréfaskipti og úrskurði frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál um að Ríkisendurskoðun ætti að afhenda fjármála- ráðuneytinu gögnin, þar sem þau hefðu verið hluti opinberrar athugunar á veislukostnaði ráðuneyta, höfðuðu Jón Baldvin og Bryndís mál til að stöðva það að gögnin yrðu afhent. Þá tóku við málaferlin sem lauk í gær. Lögmaður hjónanna taldi að Bryndís hefði líka aðild að málinu enda varðaði það hana ekki síður en Jón Baldvin. Gögnin séu þeirra beggja og hún hafi að öllu leyti haft forgöngu um kaup á veitingum og afmælis veislan hafi verið hennar veisla. Héraðsdómur dæmdi í vor að Ríkis- endurskoðun mætti af- henda fjármálaráðu- neytinu gögnin sem Jón Baldvin afhenti henni á sínum tíma. Niðurstaðan hjá Hæstarétti er hins vegar önnur, eða að engin laga- .. heimild sé til þess að Ríkis- end urskoðun afliendi fjármálaráðuneytinu gögnin sem Jón Baldvin lagði fram. Gaman að láta á það reyna Jón Steinar segist ekki hafa ákveðið hvort hann láti hér staðar numið. Hann leggur áherslu á að hér hafi aðeins verið skorið úr um tæknilegt atriði, eða það hvort Ríkisendurskoðun afhendi fjármálaráðuneytinu gögnin. Hann segist telja að niðurstaða Hæstaréttar um þetta sé að öllum líkindum rétt. Eftir eigi að láta á það reyna á ný hvort Ríkisendurskoðun geti synjað um afhend- ingu á gögnum og hvort athugasemd við upplýs- ingalögin nægi til að stofnunin sé undanþegin þeim. Hann segist þó ekki hafa ákveðið hvort hann láti á það reyna. „Ég er nú orðinn prófess- or, og mér finnst gaman að prófa allskonar hluti, og það væri óneitanlega gaman að láta á það reyna en ég er satt að segja ekki bú- inn að ákveða hvort ég geri það,“ segir Jón Steinar. kgb@dv.is Jón Baldvin og Bryndís Vildu ekki að Ríkisendurskoðun afhenti gögn vegna áfengis- kaupa þeirra I fimmtugsafmdeli Bryndísar. Lækjarskóli í Hafnarfirði Maria Kristín Gylfadóttir, fulltrúi foreldra I fræðsluráði Hafnar- fjarðar, segir foreldra vilja vita hvers vegna aðeins eitt barn úr Hafnarfirði fær að taka þátt I sérstakri fræðslu fyrir bráðger börn I Háskóla Islands. Bærinn segir fjárskort aðalástæöuna. Kostnaðurinn fyrir bæinn er 12 þúsund krónur á önn fyrir barnið. Vetnisbílar á markað 2020 Margir hafa heimsótt Is- land vegna áhuga á tilraun- um Islendinga með vetni sem orkugjafa og hafa er- lendir fjölmiðlar og fag- menn mikinn áhuga á ís- lenska vetnisverkefninu. ís- lendingar tóku í gær þátt í því að stofna samstarfsvett- vang með þrettán öðrum ríkjum með það markmið að vetnisbílar verði komnir á markað á samkeppnis- hæfu verði árið 2020. Iðnaðarráðuneytið telur að vaxandi umfjöllun um vetnismál víða um heim hafi nýst Islandi beint og óbeint í ýmsum málaflokk- um og styrkt jákvæða ímynd Islendinga. Ástarlíf í molum Monica Lewinsky, fyrr- um lærlingur í Hvíta hús- inu, á í mesta basli með að ná sér í karlmann. Stefnu- mótin eru að sögn Monicu fá og ástarsam- böndin ætíð skammvinn. Monica greinir frá þessu í viðtali við tímaritið GQ. Eins og kunnugt er átti Monica í frægu sambandi við Bill Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Sam- bandið kostaði Clinton næstum forsetastólinn. Sagan af Monicu og Clinton virðist ekki ætla að falla í gleymskunnar dá eins og Monica hefði kosið. Hún segir karlmenn ekki líta sig réttum augum og fortíðin elti sig uppi þegar hún reyni að kynnast karl- mönnum. Af Monicu er það annars að frétta að hún hannar og framleiðir hand- töskur í New York auk þess að stjórna sjónvarpsþætti. Öryrkjar bíða borgunar Öryrkjar hafa enn ekki fengið borgaða leiðréttingu vegna dóms Hæstaréttar. Ekki er ljóst hversu há upp- hæðin sem Tryggingastofn- un reiðir af hendi verður en hún gæti numið allt að 1,5 milljarði króna. Karl Steinar Guðnason, forstjóri stofn- unarinnar, segir mikla vinnu felast í því að grand- skoða hvern einstakling fyrir sig. „Það þarf að taka hvern einasta einstakling og sjá hans feril í sambúð, hvort hann hefur skilið eða gifst. Við gefum okkur tíma til að vera örugg um að þetta sé gert rétt og við greiðum þetta út eins íljótlega og við getum." 18 prósenta dráttarvext- ir eru á greiðslunni og því hvetur það Tryggingastofn- un enn frekar til dáða. „Ég vil minna á að við höfðum fjóra mánuði árið 2000 þeg- ar síðasti dómur var. Ég bið menn um að sýna biðlund og við vonumst til áð ná þessu inn fyrir jólin," segir Karl. „Bærinn þarf að greiða 12 þús- und krónur með hverju barni á önn og foreldrarnir 9 þúsund. Það eru aðhaldsaðgerðir hjá bænum og ein- hvers staðar varð að skera niður," segir Magnús Baldursson, fræðslu- stjóri Hafnarfjarðar. Fræðsluráð Hafnarfjarðar segir mikinn kostnað meginástæðu fyrir því að aðeins eitt barn frá skólum bæjarins taki þátt í sérstöku verkefni samtaka Heimilis og skóla, Fræðslu- miðstöðvar Reykjavíkur og Háskóla Islands, fyrir bráðger börn, að þessu sinni. Verkefnið fer fram í Háskóla íslands þar sem bráðgeru börnin mæta á laugardögum og bæta við þekkingu sína. Að sögn Magnúsar er miðað við að um tvö prósent barna séu bráð- ger. Samkvæmt þvf myndu bráðger börn í fimmta til sjöunda bekk grunnskólans, sem verkefnið nær til, skipta mörgum tugum í Hafnarfirði. Raunin hafi einmitt verið sú tvö undanfarin ár að hópur af slíkri stærðargráðu hafi verið sendur í verkefnið. „Ég hef engar niðurstöður séð um árangurinn af þessu verkefni en ég held að börnin hafi almennt verið ánægð,“ segir Magnús. María Kristín Gylfadóttir, fulltrúi foreldra í fræðsluráði Hafnarfjarðar, segir foreldra hafa viljað vita ástæðuna fyrir fækkun þátttakenda í verkefninu. „Okkur finnst skjóta skökku við að það sé svona mikill munur milli ára. Er það vegna skorts á upplýsing- um, vegna peningaleysis eða vegna þess að skólastjórnendur hafa ekki trú á verkefninu? Vonandi fáum við nákvæmara svar við því á næsta fundi fræðsluráðs," segir María. gar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.