Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Page 13
UV Fréttir
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 75
Ásgerður Jóna Flosadóttir, fyrrverandi
formaður Mæðrastyrksnefndar fer með
rangt mál:
Sannleikur
oo sór reihi
Ásgerður Jóna Flosadóttir, fyrrver-
andi formaður Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur og núverandi forvígis-
maður Fjölskylduhjálpar íslands, hef-
ur fengið birtar í Morgunblaðinu
rangar fullyrðingar um fréttaflutning
DV.
Algerlega er vís-
að á bug fullyrðing-
um Ásgerðar um
að frétt DV mánu-
daginn 17. nóvem-
ber haft verið „röng
og villandi“ og
„ómerkilegur róg-
burður." DV stend-
ur við ffétt sína.
Ekki er rúm til
að rekja efnislega
aliar ávirðingar Ás-
gerðar Jónu Flosa-
dóttur í Morgunblaðsgrein-
inni sem ýmist er beint að DV eða
Þorbjörgu Ingu Jónsdóttur, lögmanni
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.
Aðeins skal vikið að einum alvarleg-
asta kaflanum í máli formannsins
fyrrverandi. Hún segir:
„Það er rangt sem haft er eftir Þor-
björgu Ingu að samkomulag hefði
verið gert um að ágóða af útgáfu
geisladisksins skyldi skipt í þrennt
milli Mæðrastyrksnefndar, Fjöl-
skylduhjálparinnar og André Bach-
man. Hið rétta er eins og að ofan
greinir að hagnaðurinn þegar allur
kostnaður er greiddur, skiptist ein-
göngu milli Mæðrastyrksnefndar og
Fjölskylduhjálparinnar. André Bach-
man leggur fram verulega vinnu og
gmnn að því að þessi hjálparstarf-
semi geti gengið og fær eingöngu
óverulega þóknun ogenga efverkefn-
ið skilar ekkihagnaði. Þaðerslæmtef
að sií óeigingjama vinna sem unnin
hefur verið, ekki síst af André Bach-
man, skilar ekki tilætluðum árangri
vegna rógburðar sem hafður er eftir
Þorbjörgu Ingu Jónsdóttur í DV. “
Við þetta er ýmislegt að athuga. í
frétt DV 17. nóvember segir um þetta
atriði:
Betri Tímar
Frábær lög og flvtjen
fjfcijadisi.ur u! sr> r»:j
M ceðrasíyr ksn efnctar i
bcjjjhvTur t!t' ;
?ii;yJíiuhjá]pár fsbruís
Sættir um
Betri tíma
„Málum hefur verið komið mjög vel af stað.
Ég geri ráð fyrir að aðilar sættist fljótlega," segir
Þorbjörg Inga Jónsdóttir, lögmaður Mæðrastyrks-
nefndar um óvissuna um framhald söfnunar-
átaksins Betri tíma.
Þorhjörg Inga hitti Andró Bachman verkefn-
isstjóra Betri tíma á fundi hjá Halldóri Backman,
lögmanni Andrós á miðvikudag. Fram kom i DV í
gær að Halldór telur grundvöll hafa verið lagðan
að sáttum á fundinum.
„Okkur vantaði upplýsingar um fjármálin og
kostnaðinn. Ég tek fram að við erum alls ekki að
gera athugasemdir við að Andró fái 14% hagnað-
arins eins og einhver hefur kannski haldið. Það er
ekkert óeðlilegt við það. Andró hefur ótvírætt
lagt fram mikla vinnu," segir Þorbjörg Inga.
Aðsögn Þorbjargará enneftiraðyfirfara
einhver gögn og hnýta lausa enda. „Við höfðum
engar upplýsingar i upphafi en þurftum þær til
að klára málið. Það er eðlilegt að við fáum að
hafa yfirsýn í svona stóru verkefni. Á fundinum
var farið yfir fjárhagsáætlunina og það er verið
að tina til kostnaðarreikninga. Það er alveg Ijóst
að hór eftir verður passað vel upp á þessu söfn-
un,"segir hún.
Aðspurð segist Þorbjörg Inga á þessu stigi
ekki vilja svara hörðum ávirðingum um rógburð
sem Ásgerður Jóna Flnsadóttir, fyrrverandi for-
maður Mæðrastyrksnefndar Reykjavikur, setur
fram á hendur henni i Morgunblaðinu i gær.
Samtök Ásgerðar, Fjölskylduhjálp fslands, er
aðili að söfnuninni Betri tímum ásamt Mæðra-
styrksnefnd.
Samningur um hljómdisk Íjúlíísumar
gerði Ásgerður Jóno Flosadóttir, fyrir hönd
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Fjöl-
skylduhjálparinnar, samning við André
Bachman tónlistarmann um hann hefði um-
sjón með gerð fjáröflunardisks sem nú er
orðinn að veruleika.
„Að sögn Þorbjargar gerði söngv-
arinn André Bachman í júlí sam-
komulag við Ásgerði um að Mæðra-
styrksnefnd Reykjavíkur, André sjálf-
ur og þá óstofnað félagÁsgerðar, Fjöl-
skylduhjálp Islands, myndu skipta
með sér ágóðanum af sölu geisla-
disksins Betri ú'ma. André átti að fá
16% en félögin tvö að skipta með sér
afganginum samkvæmt ákvörðun
söngvarans."
Strax skal tekið fram að í þessari
frétt misritaðist þóknun verkefnis-
stjórans Andrés Bachman. Hlutur
hans er 14% en ekki 16% af hagnaðin-
um.
f samningi sem gerður var 22. júlí í
sumar á milli Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur og Fjölskylduhjálparinn-
ar annars vegar og Andrés Bachman
hins vegar segir í 7. grein:
„Þegar allur kostnaður vegna verk-
efnisins hefúr verið greiddur að fúllu
skal sá hagnaður sem eftir stendur
skiptast þannig að André Bachman
skd fá 14% af hagnaði í sinn hlut og
Mæðrastyrksnefiid Reykjavíkur og
Fjölskyiduhjálpin 86%, samanber þó
14. grein."
Þetta ákvæði er afar skýrt hvað
snertir André Bachman. Það eina sem
upp á vantar er að skilgreina ná-
kvæmlega hver verður hlutur Mæðra-
styrksnefndar og hver verður hlutur
Fjölskylduhjálpar Ásgerðar Jónu
Flosadóttur. Á þessu mikilvæga atriði
er tekið í 14. grein samningsins. í
henni segir að þegar kostnaður hafi
verið greiddur skuli öðrum hagnaði
en áðurgreindum hluta Andrés
Bachman ráðstafað til skjólstæðinga
samtakanna tveggja. Sfðan segir:
„Endanlegt ákvörðunarvald um
ráðstöfun og innbyrðis skiptingu skal
vera á hendi Andrés Bachman og/ eða
þeirra sem hann leitar til.“
Þetta sérkennilega ákvæði þýðir
einfaldlega að skipting peninganna
milli Mæðrastyrksnefndar og Fjöl-
skylduhjálpar er háð geðþótta Andrés
Bachman.
Tekið skal fram að Ásgerður Jóna
Flosadóttir skrifar undir samninginn í
júlí bæði fyrir hönd Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur og Fjölskyldu-
hjálparinnar. Síðarnefnda félagið
fékk eigin kennitölu í september og
heitir nú Fjölskylduhjálp Islands.
TROCADERO
RESTAURANT
SUÐURLANDSBRAUT 1 2
VEITINGASTAÐU R
O Ð
ÍZ1 D /\ 3 "D ÆZ D 1—1| p
íf i \ . f \ D . r \ 1 í L... i
(aðeins sótt)
Stór pizza
m/4 áleggstegundum
kr. 998,-
Stór pizza
m/4 áleggstegundum,
brauðstongum og sosu
eöa
frönskum og sósu
kr. 1449,-
si m i
535 1400
Trocadero er reyklaus
veitingastaður sem býður upp á
fyrsta flokks veitingar á góðu verði
Eingöngu er notast við besta
mögulega hráefni, íslenskan ost
og ferskt grænmeti.