Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 1 7
I I
Heimsókn George W. Bush til Stóra-Bretlands er fyrsta opinbera heimsókn Bandaríkjaforseta í tíð Elísa-
betar II drottningar og hefur hún þó setið í hásætinu í 52 ár. Almenningur í Bretlandi er áberandi
andsnúinn veru forsetans í landinu og 1 gær var blásið til gríðarstórs mótmælafundar á Trafalgar-torgi.
Um það bil 500-600 manns mótmæltu
veru forsetans fyrir utan hlið Buckingham-
hallar á miðvikudag og voru lögreglumenn
talsvert fleiri. Mótmælin voru hávær en að
mestu leyti friðsamleg og hafa einungis 50
manns hingað til verið handteknir, aðallega
fyrir smáglæpi á borð við ölvun, þjófnað og
vörslu eiturlyfja. I miðbæ Lundúna var hins
vegar margt um manninn og mikið af litrík-
um mótmælum. Maður í herforingjabúningi
með Saddam Hussein-andlitsgrímu gekk um
götur borgarinnar og sagðist vera að leita að
George vini sínum. Kvaðst Saddam þessi hafa
verið í felum í London allan tímann sem
stríðið hefði verið í gangi. Víða um Lundúnir
hafa verið reistar - og svo rifnar niður -
pappamassa-styttur af forsetanum til að end-
urspegla þann atburð þegar stytturnar af
Saddam voru rifnar niður í upphafi íraks-
stríðsins. Þá eru Bretar hvattir til að fara inn á
síðuna www.stopwar.org.uk þar sem hægt er
að fá leiðbeiningar um hvernig þeir geti skil-
að inn kæru á hendur Tony Blair fyrir glæpi
gegn mannkyninu á næstu lögreglustöð.
Blaðamaður komst inn í höllina
öryggisgæslan í kringum heimsókn Banda-
ríkjaforseta til Stóra-Bretlands kostar rúmlega
600 milljónir íslenskra króna en þrátt fyrir það
tókst blaðamanninum Ryan Parry, frá dag-
blaðinu Daily Mirror, að tryggja sér starf sem
þjónn í Buckingham-höll tveimur mánuðum
fyrir heimsóknina, einungis með nokkur
fölsuð meðmælabréf upp á vasann. Hann var
enn í höllinni þegar Bush kom þangað. „Ég
hefði alveg eins getað verið hryðju-
verkamaður og þau hefðu'
aldrei fattað það,“
var haft eftir honum, en hann gekk út úr höll-
inni á þriðjudagskvöldið var og settist við
skriftir á nýjan leik hjá Daily Mirror. Málið er
hið vandræðalegasta fyrir bresk yfirvöld enda
almenningur ekki sáttur við gríðarlegan
kostnað öryggisgæslunnar, en Bucking-
ham-höll íhugar nú lögsókn á hendur
Daily.Mirror.
Breytt dagskrá
Mörgum viðburðum í
dagskrá Bush hefur verið
breytt eða aflýst vegna
mótmælanna og mun J$'
forsetinn ekki ávarpa
breska þingið því
talið er að fjölmargir
þingmenn muni
nota tækifærið og
sniðganga hann. Þá
var göngu forsetans
og drottningarinnar
niður Mall-breiðgöt-
una hjá Buckingham
höll aflýst vegna ótta við
að hryðjuverkamenn
myndu láta til skarar skríða
og myndatökur af þjóðar-
leiötogunum fóru fram í te
boði. I gær fór fram stærsta ein-
staka mótmælagangan, talið var
að 70.000 manns hefðu tekið þátt
í göngunni fram hjá híbýlum
Tonys Blair á Downing-stræti áður
en stoppað var á Trafalgar-torgi þar
sem enn ein Bush-styttan var látin
falla, viðstöddum til mikillar ánægju.
ari@dv.is
Mörgum viðburðum í
dagskrá Bush hefur verið
breytt eða aflýst vegna
mótmælanna og mun
v' forsetinn ekki ávarpa
breska þingið því
? talið er að fjölmargir
þingmenn muni
nota tækifærið og
sniðganga hann.
George Bush
Skiptar skoðanit og mikil
mótm.v H liafa einkemit
heimsokn lians til London.
Ólafur Elíasson myndlistarmaður sýnir í Tate Modern
Sólarverkið hans Ólafs notað
sem mótmæli gegn Bush
Ólafur Elíasson listamaður var
staddur á innsetningu sinni í Tate
Modern safninu í London í fyrra-
dag þegar hópur fóiks birtist hon-
um að óvörum og lagðist í gólfið.
Þannig stafaði það orðsendingu
sem unnt var að lesa úr gríðarstór-
um loftspegli sem er hluti af verki
Ólafs. Skilaboðin voru þau að Bush
Bandaríkjaforseta skyldi hypja sig
heim.
„Þetta var rosalega áhrifaríkt, al-
veg hreint magnað," segir Soffía
Karlsdóttir, kynningarstjóri Lista-
safns Reykjavíkur, en hún var með-
al gesta á sýningu Ólafs þegar mót-
mælin áttu sér stað. „Þessi salur er
kallaður túrbínusalurinn og er risa-
vaxinn, mörg hundruð fermetrar.
Uppi í loftinu er risastór spegill og
það er mjög algengt að gestir safns-
ins leggist í gólfið og virði fyrir sér
sýningarnar ofan frá og það gerðu
þeir einnig núna. Mótmælaverkið
tók á sig mynd smátt og smátt og
myndaði fólkið eitt orð í einu, fyrst
„Bush", svo „go“, þá „home“,
þannig að úr varð setningin; „Bush
go home“ og undir lokin bættist við
orðið „now." Þau gerðu alla stafina
öfuga út af spegluninni." Soffía
segíst hafa heyrt nokkra mótmæl-
endur tala um það eftir atburðinn
að upprunalega hafi staðið til að
allir yrðu naktir en svo hafi það ver-
ið blásið af. „Það hefði líka örugg-
lega dregið athyglina frá aðalboð-
skapnum.“,
Soffía Karlsdóttir og Ólafur Elíasson
„Þetta varrosalega áhrifarikt," segir Soffia
kynningarstjóri Listasafns Reykjavikur, en
hún var meðal gesta á sýningu Ólafs þegar
mótmælin táknrænu áttu sérstað. Þar var
Bush skipað að koma sér aftur heim til
Bandarikjanna.
Á
i
_______________L
t