Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Blaðsíða 22
- 22 FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003
Sport DV
Gunnarer á
eftir metum
Gunnar Einarsson,
^ fyrirliöi Keflvíkinga, á
möguleika á að bæta
nokkur met um helgina og
verða meðal annars sá
leikmaður sem hefur spilað
flesta leiki í keppni hinna
fjögurra fræknu. Gunnar er
sem stendur sá sem hefur
leikið flestar mínútur (287)
og fengið flestar villur (26)
en á góða möguleika á því
að vera sá sem hefur leikið
flesta leiki, stolið flestum
boltum og skorað flestar
þriggja stiga körfur.
Dómararnir
- eru klárir
Dómarar leikjanna í
Hópbílabikarnum eru klárir
og kemur það í hlut þeirra
Björgvins Rúnarssonar og
Aðalsteins Hjartarsonar að
dæma úrslitaleikinn á
laugardaginn. Leik
Njarðvíkur og Grindavíkur
munu dæma þeir Helgi
Bragason og Rögnvaldur
Hreiðarsson og leik
Keflavíkur og Tindastóls
dæma þeir Leifur
Garðarsson og Sigmundur
Már Herbertsson.
Friðrik hefur
aldrei unnið
Friðrik Ingi Rúnarsson,
fyrrverandi landsliðs-
*. þjálfari, þjálfari toppliðs
Grindavíkur í Intersport-
deildinni og einn sigur-
sælasti þjálfari íslenskar
körfuboltasögu á enn eftir
að stýra liði sínu til sigurs í
fyrirtækjabikar KKÍ. Friðrik
Ingi hefur stjórnað sínum
liðum í sex leikjum og
flmm þeirra hafa tapast,
fjórir undanúrslitaleikir og
svo úrslitaleikurinn með
Grindavík gegn Keflavík í
fyrra.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR-inga, spáir í spilin fyrir undanúrslit Hópbílabikars
Undanúrslit í Hópbilabikari karla
í körfuknattleik fara fram í
Laugardalshöllinni í kvöld. Njarðvík
og Grindavík mætast í fyrri leiknum
sem hefst kl. 18.30 en Keflavík og
Tindastóll í þeim síðari sem hefst kl.
20.15. Keflvíkingar eiga titil að verja
en þeir unnu Grindavík í úrslitum í
fyrra, 75-74, í æsispennandi leik í
Keflavík. DV Sport fékk Inga Þór
Steinþórsson, þjálfara KR-inga, til
að spá í spilin fyrir leikina tvö.
Ingi Þór sagði að hann byggist við
tveimur hörkuleikjum í Höllinni í
kvöld.
Von á jöfnum og spennandi leik
"Ég á von á mjög jöfnum og
spennandi leik á milíi Njarðvíkur og
Grindavíkur. Deildarleikurinn á
milli þessara liða var mjög
skemmtilegur, tvíframlengdur og ég
vona að þessi leikur gefi þeim leik
ekkert eftir. Grindvíkingar hafa verið
sterkari í deildinni í vetur, eru
taplausir og hafa spilað mjög vel.
Þeir eru með mjög gott lið og hafa
notið góðs af innkomu Dan
Trammells, sem hefur komið með
fráköst og ógnun inn í teig hjá liðinu,
en slíkt vantaði sárlega í fýrra. Páll
Axel Vilbergsson og Darrell Lewis
eru frábærir leikmenn og síðan
kemur Helgi Jónas Guðfinnsson inn
á nýjan leik. Hann styrkir liðið að
sjálfsögðu mikið en er þó ekki enn
kominn í sitt besta form.
Meiri breidd hjá Njarðvík
Njarðvíkingar eru með gífurlega
sterkt lið. Brandon Woudstra er
virkilega sterkur leikmaður og
mennirnir í kringum hann vinna vel
fyrir hann þannig hann nýtur sín
vel. Brenton Birmingham stjórnar
leik liðsins mjög vel þótt hann sé
ekki jafn áberandi og oft áður. Þeir
eru sterkir inni í teig þar sem Páll
Kristinsson og Friðrik Stefánsson
ráða ríkjum og taka mikið af
fráköstum. Auk þess hefur hinn ungi
Egill Jónasson komið sterkur inn og
skilað dýrmætum mínútum undir
körfunni. Það sem ég held þó að geri
gæfumuninn í þessum leik er að
Njarðvíkingar hafa ívið meiri breidd.
Þeir eru með sterkari bekk og það er
ekki ónýtt að vera með mann eins og
Guðmund Jónsson sem getur komið
inn af bekknum og skorað 20 stig
með lítilli fyrirhöfn. Það er eitthvað
Styrkleiki Keflavíkur
felst í því að liðið
getur spilað mjög
hratt og hefur
frábærar skyttur
innan sinna raða.
Ekki skemmir fyrir að
erlendu leikmennirnir
virðast vita
nákvæmlega hvert
þeirra hlutverk er.
sem segir mér að Njarðvíkingar
vinni þennan leik en helsta ástæðan
er eins og fyrr segir að þeir eru með
mun breidd," sagði Ingi Þór.
Öruggt hjá Keflavík
Ingi sagðist ekki búast við öðru
en að Keflvíkingar ynnu nokkuð
öruggan sigur á Tindastólsmönnum
í seinni leiknum í kvöld.
"Þessi lið spiluðu á þriðjudaginn
og þá vann Keflavík nokkuð
auðveldan sigur. Þeir lentu að vísu í
vandræðum í fyrri hálfleik en keyrðu
síðan upp hraðann í síðari hálfleik
og gerðu út um leikinn. Keflvíkingar
eru með betra lið og ef þeir ná keyra
upp hraðann í leiknum vinna þeir
leikinn örugglega. Styrkleiki
Keflavíkur felst í því að liðið getur
spilað mjög hratt og hefur frábærar
skyttur innan sinna raða. Ekki
skemmir fyrir að erlendu
leikmennirnir virðast vita
nákvæmlega hvert þeirra hlutverk
er. Gunnar Einarsson hefur spilað
mjög vel í vetur en Magnús Þór
Gunnarsson á mikið inni og gæti
hugsanlega sprungið út í kvöld. Þá
bætist í hópinn enn ein þriggja stiga
skyttan hjá Keflvíkingum. Svo má
ekki gleyma að Falur Harðarson
hefur spilað mjög vel og hreinlega
unnið suma leiki í vetur upp á eigin
spýtur.
Verða að halda hraðanum niðri
Tindastólsmenn verða að halda
hraðanum niðri ætli þeir sér að eiga
möguleika í kvöld. Þeir eru ekki með
stóra menn inni í teig þannig að það
Titli fagnað Keflvíkingar fagna hér sigri í Kjörísbikarnum í fyrra en þá lögöu þeir Grindvikinga í
úrslitum i Keflavik, 75-74.
er svipað komið fyrir liðunum þar
en þeir þurfa á því að halda að
Kristinn þjálfari Friðriksson verði í
stuði. Erlendu leikmennirnir þrír
hafa spilað stórt hlutverk í
sóknarleiknum en Kristinn og Axel
Kárason verða að vera meira með.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá tel
ég að Keflavík vinni þennan leik
örugglega. Þeir eru með svakalega
sterkt lið og einbeitingin ætti að vera
í toppi þar sem bikar er í húfi, titill
sem þeir unnu í fyrra og vilja
væntanlega vinna aftur," sagði Ingi
Þór Steinþórsson, þjálfari KR-inga
um leikina í kvöld.
oskar@dv.is
Sigmundur í KR
» Sigmundur Kristjánsson skrifaði í gær undir
tveggja ára samning við fslandsmeistara KR í
knattspyrnu. Sigmundur rifti á dögunum samningi
sínum við Utrecht í Hollandi og hélt í heimahagana á
ný. Flest lið í Landsbankadeildinni höfðu áhuga á
Sigmundi ásamt því sem hans gamla félag, Þróttur,
beið með opinn faðminn. Það heillaði Sigmund ekki
þar sem hann vildi leika í efstu deild og lýsti hann því
yfir fyrir helgi að valið stæði á milli ÍA og KR.
„Þetta var virkilega erfitt val,“ sagði Sigmundur í
samtali við DV Sport í gær. „Bæði voru mjög spennandi
valkostir en ég varð að ákveða eitthvað á endanum og
KR varð fyrir valinu,“ sagði Sigmundur og bætti við að
það hefði ekki verið neitt sérstakt sem réð því að hann
valdi KR frekar en ÍA.
„Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ég kem ekki til
með að ganga inn í byrjunarliðið hjá KR heldur þarf ég
». að hafa fyrir hlutunum ef ég ætla að fá að spila. Það þarf
reyndar alltaf að leggja hart að sér sama hvar maður
leikur," sagði Sigmundur sem hlakkar mikið til
sumarsins með KR. „Þetta verður mjög spennandi ár
þar sem liðið tekur þátt í Evrópukeppninni og er þar að
auki að verja titilinn," sagði Sigmundur sem mætti á
sínu fyrstu æfingu hjá KR í gærkveldi.
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, kannast aðeins við
Sigmund en hann var þjálfari meistaraflokks Þróttar
þegar Sigmundur var að byrja að gera vart við sig hjá
félaginu. „Þetta er mjög fjölhæfur leikmaður. Hann
hefur góða tækni, er jafnvígur á báða fætur ásamt því
sem hann er hraður á bolta,“ sagði Willum um
Sigmund en hann fjölhæfni hans opnar ýmsa
möguleika fyrir Willum því hann getur leikið á báðum
vængjum sem og inn á miðjunni.
Sigmundur er annar leikmaðurinn sem gengur í
raðir íslandsmeistaranna í vetur en áður hafði Agúst
Gylfason samið við Vesturbæinga og svo er Guðni
Rúnar Helgason einnig á leið til félagsins.
Sigmundur
Kristjánsson Valdi KR
frekaren ÍA og skrifaöi
undir tveggja ára
samning við
ísiandsmeistarana i gær.
i