Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003
Sport DV
Rétt að selja
Beckham
Sir Roy Gardner,
stjórnarformaður Man.
Utd, sagði við breska
fjölmiðla í gær að það hefði
verið rétt af félaginu að
selja David Beckham til
Real Madrid. Gardner segir
að ástæðan fyrir því að þeir
hafi selt Beckham sé
einfaldlega sú að hann hafi
ekki staðið sig nógu vel hjá
félaginu og því hafi
ákvörðunin að selja hann
verið auðveld. Gardner
segir enn fremur að Real
hafi verið öfundsjúkt út í
United þar sem þeir hafi
aðeins selt 250 þúsund
liðstreyjur áður en
Beckham kom til félagsins
á meðan United hafi selt
2,6 milljónir af treyjum.
Carlo svarar
fyrir sig
Carlo Ancelotti, þjálfari
AC Milan, svarar gagnrýni
brasilískra fjölmiðla fullum
hálsi en Brasilíumenn skilja
ekkert í því af hverju
Ancelotti getur ekki notað
mann eins og Rivaldo sem
er lykilmaður í brasilíska i
landsliðinu. „Þessi
gagnrýni hefur engin áhrif
á mig," sagði Anceiotti. „Ég
fer að hlæja þegar ég heyri
að Rivaldo og Kaka geti
leikið saman með brasilíska
landsliðinu en ekki AC
Milan. Það sem brasilíska
pressan þarf að muna er að
ég hef einnig leikmenn eins
og Shevchenko, fnzaghi og
Rui Costa. Ég hef ekkert á
móti Rivaldo. Það er bara
hörð keppni um stöður hjá
þessu félagi."
Markalaust
hjá íslandi og
Mexíkó
íslenska landsliðið í
knattspyrnu gerði
markalaust jafntefli gegn
Mexikó í vináttulandsleik í
San Fransisco í
Bandaríkjunum í fyrrinótt.
Þessi árangur íslenska
liðsins verður teljast ansi
góður því að marga
lykilmenn vantaði í
íslenska liðið á meðan
mexíkóska liðið stillti upp
nánast sínu sterkasta liði.
Helgi Sigurðsson komst
næst því að skora fyrir
íslenska liðið en
markvörður Mexíkóa varði
tvívegis frá honum.
Þrír leikmanna íslenska
liðsins, Kristján örn
Sigurðsson, Björgólfur
Takefusa og Olafur Ingi
Skúlason, spiluðu sinn
fyrsta landsleik.
Lettar í loft upp Leikmenn lettneska landsliðsins i knattspyrnu, sem tryggðu sér sæti iúrslitum EM i fyrsta sinn á miðvikudagskvöldið, tollera hérþjálfara sinn, Aleksandrs Starkovs, eftir leikinn
gegn Tyrkjum íIstanbúl.
ggjfek
Raðað í styrkleikaflokka fyrir EM í Portúgal á næsta ári
Öfliig liö í öðpum flokki
I gær var raðað í styrkleikaflokka
fyrir úrslitakeppni EM í Portúgal á
næsta ári en dregið verður í riðla 30.
nóvember næstkomandi.
Evrópumeistarar Frakka eru í
fyrsta styrkleikaflokki ásamt
gestgjöfum Portúgala, Svíum og
Tékkum.
Annar styrkfeikaflokkurinn er
mjög öflugur en þar eru
Englendingar, Italir, Spánverjar og
Þjóðverjar.
Það er óhætt að segja að ekkert
liðanna í fýrstu tveimur
styrkleikaflokkunum vilji lenda á
móti Hollendingum sem eru í þriðja
styrkleikaflokki ásamt Króötum,
Rússum og Dönum.
Liðin í fjórða styrkleikaflokki eru
síðan Búlgaría, Sviss, Grikkland og
Letdand.
Fimm lið, Spánn, Holland,
Lettland, Rússland og Króatía, voru
þau sfðustu til að tryggja sér sæti í
úrslitakeppninni en það gerðu þau á
miðvikudagskvöldið.
Lettar í úrslit í fyrsta sinn
Lettar eru í fyrsta sinn með í
úrslitum stórmóts og er óhætt að
segja að þjálfari liðsins, Afeksandrs
Starkovs, og leikmenn hans séu
þjóðhetjur í heimalandi sínu þessa
dagana.
Lettnesku dagblöðin spöruðu
ekki stóru orðin í gærmorgun.
Telegraf skrifaði að 19. nóvember
yrði skrifaður með gullstöfum í
lettnskar sögubækur sem dagurinn
þar sem tak Tyrkja losnaði.
Diena vísaði til nafngiftarinnar
sem Inonu-leikvangurinn í Istanbúl
hefur fengið en það hefur fengið
viðurnefnið „Helvíti."
„Með sigur út úr helvíti -
tyrknesku böðin voru ekkert svo
heit."
Með böggum hildar
Mark Hughes, þjálfari Wales, sem
tapaði fyrir Rússlandi á heimavelli,
1-0, og missti þar með af
möguleikanum á að komast í úrslit á
stórmóti í fyrsta sinn, var með
böggum hildar eftir leikinn.
„Lið eins og Wales fær ekki svona
tækifæri oft og því er grátlegt að hafa
ekki náð að nýta það betur. Ég
vorkenni sérstaklega leikmanni eins
og Ryan Giggs sem fær að öllum
líkindum ekki tækifæri til þess að
spila f úrslitum stórmóts. Hann
verður þrítugur í þessum mánuði og
tíminn er að renna út hjá honum,"
sagði Hughes sem sagði langt frá því
öruggt að hann yrði áfram með liðið
- tíminn yrði að leiða það í ljós.
oskar&dv.is