Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Síða 25
DV Sport FÖSTUDAGUR 21. NÚVEMBER 2003 25 Króatinn Dado Prso hefur farið á kostum undanfarnar vikur með Monaco og króatíska landsliðinu. Skoraði fjögur mörk í Meistaradeildinni með Monaco og kom Króötum svo á EM: Einn heitasti framherjinn í Evrópu þessa dagana er Króatinn Dado Prso. Lítið hefur farið fyrir honum í Evrópuboltanum undanfarin ár og þeir eru eflaust ekki margir sem þekkja mikið til verka hans. Aftur á móti hefur frammistaða hans síðustu vikur með Monaco og króatíska landsliðinu skotið honum upp á stjörnuhimininn á ljóshraða. Fyrst skráði hann sig í sögubækurnar þegar hann varð þriðji leikmaðurinn í sögu Meistaradeildarinnar sem skorar fjögur mörk í leik. Svo sá hann til þess að Króatar tryggðu sér sæti í lokakeppni á EM næsta sumar með mörkum í báðum leikjum Króata gegn Slóvenum í umspilinu. 5. nóvember 2003 er dagur sem rennur Dado Prso sennilega seint úr minni. Þá varð hann 29 ára og tók þátt í sögulegum leik sem breytti ferli hans til hins betra. Fyrir þann leik var hann varaskeifa í liði Monaco, hafði átt við erfið meiðsl að stríða í langan tíma og sá ekki fram á neitt sérstaklega spennandi tíma í boltanum. En á afmælisdeginum kom stóra tækifærið. Spænski landsliðsmaðurinn Fernando Morientes var meiddur sem varð þess valdandi að Prso fékk tækifæri í byrjunarliði Monaco gegn spænska liðinu Deportivo la Coruna í Meistaradeildinni. Það er skemmst frá því að segja að leikurinn varð sögulegur í meira lagi. Hann endaði 8-3 fyrir Monaco, sem eru hæstu tölur sem hafa sést í Meistaradeildinni. Prso skráði sig einnig í sögubækurnar því hann nýtti tækifærið til fulls og skoraði fjögur mörk í leiknum og jafnaði þar með met hollensku goðssagnarinnar Marco Van Basten og ítalska framherjans Simone Inzaghi. Van Basten átrúnaðargoðið „Þetta er klárlega minn besti leikur fyrir Monaco," sagði Prso eftir leikinn. „Ég hef skráð nafn mitt í sögubækurnar og það á afmælisdaginn minn. Þetta er alveg ótrúlegt. Ég vissi reyndar ekki hvað metið var. Ef ég hefði vitað að það væri fjögur mörk hefði ég spilað allan leikinn og reynt að eigna mér það einn.“ Prso sagði einnig að það væri lygilegt að vera kominn í sögubækurnar við hliðina á Marco Van Basten. I„Van Basten er átrúnaðargoðið mitt og ég hef alltaf haldið mikið upp á hann. Hann, ásamt Ruud Gullit og Frank Rijkaard, j mynduðu ótrúlegt tríó á ítalfu. Fyrir mér er ) Van Basten algert goð.“ Frammistaða hans fór ekki fram hjá þjálfara króatíska landsliðsins, Otto Baric, sem smellti Prso í framlínu króatíska landsliðsins fyrir umspilsleikina gegn Slóvenum. Prso brást ekki trausti Barics. Hann skoraði mark Króata í fyrri leiknum á heimavelli, sem endaði 1-1. Króatar áttu því erfitt verkefni fyrir höndum er þeir léku í Slóveníu á miðvikudaginn. Það blés ekki byrlega fyrir króatíska liðið framan af í Slóveníu því varnarmanninum Igor Tudor var vísað af velli þegar hálftími var eftir af leiknum. Þá steig Prso upp enn eina ferðina. Hann skoraði eina mark leiksins, aðeins tveim mínútum eftir að Tudor var vísað af velli, og skaut því Króötum á EM í Portúgal næsta sumar. Nýr Davor Suker? Prso hefur verið mikið hampað í heimalandinu eftir leikina og telja Króatar sig vera búna að finna arftaka Davors Sukers í Dada Prso og verða því miklar væntingar gerðar til hans í Portúgal næsta sumar. Miklar umræður eru einnig hafnar um framtíð leikmannsins en hann er með lausan samning næsta sumar. Franska stórliðið Paris Saint Germain og enska úrvalsdeildarliðið Fulham hafa bæði sýnt Prso áhuga undanfarið og má fastlega búast við að fleiri fylgi í kjölfarið á næstu dögum. Prso ætti því að geta gert sinn stærsta og besta samning á hárréttum aldri. Sjálfur segist hann helst vilja vera áfram hjá Monaco en neitar því þó ekki að það freisti hans að leika á Englandi. Heitur fyrir Englandi „Ég vil ekki yfirgefa herbúðir Monaco því þar líður mér vel og ég hef sagt forráðamönnum liðsins frá því. Ég sagði við formanninn að ég vildi gjarnan fá eitt ár í viðbót til þess að sanna mig. En ef ég þarf að fara þá vildi ég helst enda með titli og við höfum sett stefnuna alla leið í vetur. Ég hef heyrt af áhuga þessara liða. Ég er ekkert sérstaklega spenntur fyrir PSG því ef ég spila í Frakklandi þá vil ég bara spila með Monaco en "Van Basten er átrúnaðargoðið mitt og ég hef alltafhaldið það væri gaman að reyna fyrir sér á Englandi. Deildin þar er mjög áhugaverð og mikið af sterkum leikmönnum sem hafa farið þangað síðustu ár. Ef ég verð ekki með Monaco þá myndi ég helst kjósa að spila þar,“ sagði Prso og hver veit nema við sjáum þennan magnaða framherja í enska boltanum strax eftir áramót. henry@idv.is FERILL DADO PRSO Fæddur (bænum Zadar í Króatiu 5. nóvember 1974. Hann er 187 sentimetrar á hæð og 87 kg. Án Félag: Leikir. Mörlc 97/98 Ajaccio 23 8 98/99 Ajaccio 30 13 99/00 Monaco 20 2 00/01 Monaco 21 4 01/02 Monaco 11 2 02/03 Monaco 20 12 mikið upp á hann. Hann, ásamt Ruud Gullit og Frank Rijkaard, mynduðu ótrúlegt tríó á Ítalíu. Fyrir mér er Van Basten algert goð."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.