Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Qupperneq 29
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 29 *
Nói albínói hefur sigrað hug og hjörtu íslendinga og virðist í þann mund að gera það sama erlendis. En
albínóar hafa ekki alltaf hlotið jafn jákvæða meðferð í kvikmyndum. Á tjaldinu er albínóinn oftar enn
ekki bæði yfirnáttúrlegur og morðóður, en helstu undantekningarnar eru hinir hugrökku álfar sem
leika stórt hlutverk í Hringadróttinssögu. Hugmyndin um álfana er augljóslega innblásin af albínóum,
þar sem þeir eru ljósir yfirlitum.
Albinóar voru áður fyrr oft kall- .
aðir börn tunglsins, því fyrir tíma
sólgleraugna og sólaráburðar gátu
þeir lítið verið utandyra á daginn.
Albínismi er til kominn vegna skorts
á melaníni í líkamanum og eitt ein-
kenni albínisma er að þeir hafa
slæma sjón og eru viðkvæmir fyrir
sólarljósi. Meðal ættbálka í Ameríku
og Kyrrahafinu hefur oft verið litið á
þá sem heilagar verur, en afstaða
Vesturlandabúa hefur verið blendn-
ari. Lengi framan af var það í tísku
að vera sem ijósastur á hörund, sem
var til marks um að maður þurfti
ekki að vinna ökrunum. Hefðarkon-
ur helltu jafnvel arseniki á húðina til
að lýsa hana upp. Afbínóum var vel
tekið á þessum tíma föla fólksins, en
með iðnbyltingunni versnaði hlutur
þeirra. Almenningur færðist inn í
verksmiðjur og sá ekki til sólar leng-
ur, og nú þótti h'nt að vera sólbrúnn
til að sýna fram á að maður gæti ver-
ið úti þegar maður vildi. A tímum
ljósabekkja og sólarlandaferða er
sólbrúnka vísbending um velmeg-
un, og þeir sem eru fölir eru litnir
hornauga. Albínóar hafa því hlotið
frekar slæma meðferð á hvíta tjald-
inu.
1. Ósýnilegi maðurinn (1933)
Ósýnilegi maðurinn er svo fölur að
hann er alveg gegnsær. Reyndar
kemur fram í bók HG Wells að hann
sé albínói, en rannsóknir á litarhætti
hans gera það að verkum að hann
uppgvötvar ósýnileikann. Á endan-
um verður hann svo morðóður geð-
sjúklingur, að minnsta kosti sam-
kvæmt fyrstu myndgerðinni sem
gerð var af Frankenstein og
Drakúlaleikstjóranum James Whale.
2. MobyDick(1956)
Yfirleitt fer iOa fyrir albínóum í
kvikmyndum, og er Moby Dick gott
dæmi um það. Albínóinn hér er
hundelt-
ur af
brjáluð-
um skip-
stjóra að
nafni
Ahab sem reynir allt hvað hann get-
ur til að koma honum fyrir kattar-
nef með skutli. En sá hvíti er að
sjálfsögðu ekki saklaus hér, frekar
en í öðrum bíómyndum, þar sem
hann í grimmdaræði hafði áður
étið fót skipstjórans. Þekktasta
kvikmyndin er eftir John Houston,
þar sem Gregory Peck fer með hlut-
verk skipstjórans.
„Die, chalkfaced skum,“ segir
Hómer og keyrir yfir albínósku tón-
listarmennina Johnny og Edgar
Winter, þar sem hann heldur að þeir
tilheyri fyrrnefnda hópnum. Einnig
er minnst á albínisma þegar Hómer
tekur við skiptinema frá Albaníu, og
spyr þá hvort hann verði fölur með
ljóst hár.
7. End of Days (1999)
Satan er að losna úr helvíti og hinstu
dagar eru í nánd. Til að spádómarn-
ir megi ganga eftir þarf kölski að
frójvga mennska konu eins og
kollegi hans í efra. Sá sem færir
henni tíðindin er maður með ljóst
hár sem í kreditlistanum kallast ein-
ungis „Albino."
8. Me, myself and Irene (2000)
Skopast er að albínóum og sjóngöll-
um þeirra, en margir albfnóar nota
linsu festa á
gleraugu til að
bæta sjónina. Er
mikið grín hent
að þessu í
myndinni, auk
þess sem gant-
ast er með geð-
fatlaða.
■
Álfarnir i Hringadróttins-
sögu eru eitt af fáum
dæmum um kvikmynda-
persónur byggðar á al-
bínóunr sem eru ekki geð-
brenglaðir glæpamenn og
fjöldamorðingjar.
3. The Eiger Sanction (1975)
Glæpaforinginn Dragon er svo við-
kvæmur fyrir sólarljósi að húð hans
brennur ef hann fer út úr rauðlýstu
■ herbergi sínu. Hann þarf
líka reglulega að láta
skipta um blóð í sér, sem
ku ekki vera neitt algeng-
ara meðal albínóa en
annara þjóðfélagshópa,
og mun sjaldgæfara
heldur en t.d. meðal rokkstjarna.
Blóðgjöf er þó ekki nóg til að bjarga
albínóanum eftir að hann lendir f
Clint Eastwood.
9. The Time Machine (2002)
Albínóarnir hafa hér hækkað í tign.
Yfirleitt eru þeir hjálparhellur
vondra manna, en hér fá þeir loksins
að ráða,
enda ger-
ist mynd-
in
800.000
ár inni í
framtíðinni. Að sjálfsögðu hefur allt
farið á versta veg undir stjórn al-
bínóans (leikinn af Jeremy Irons), en
Guy Pierce kippir því í liðinn, breyt-
ir honum í duft og allt verður gott
aftur.
10. The Matrix Reloaded (2003)
í ffamtíðarsýn Wachowski-bræðra
eru albínóamir þó enn aðstoðar-
menn og heiminum stjórnað af tölv-
um, eða það er að
minnsta kosti það sem
þeir vilja að við höldum.
Albínóa-tvíburunum
tekst þó ekki að koma Ke-
anu og co. fyrir kattarnef,
og áhorfendur þurfa að
sitja í gegnum eina mynd í viðbót.
valur@dv.is
4. Lethal Weapon (1987)
Maður sem kallar sig „hershöfðingj-
ann“ er eiturlyfjasmyglari og morð-
ingi sem hefúr það sem sérstakt
áhugamál að henda
uppdópuðum ungum
stúlkum fram af þökum.
En hann vantar aðstoð-
armann til að koma
hlutunum í framkvæmd
og ræður að sjálfsögðu
albínóa til verksins. Gary Busey,
með aflitað hár, leikur hinn illa
hjálparkokk Mr. Joshua, og svo að
við þurfum ekki að vera í neinum
vafa um hvað hann eigi að fyrirstilla
þá kallar Mel Gibson hann meðal
annars albínóa þegar hann úthúðar
honum með runu blótsyrða.
5. The Firm (1993)
Það er undarlegt hvað albínóar eru
gjarnir á að verða leigumorðingjar í
kvikmyndaheimum, þar sem slæm
sjón ætti að vera mikill
ókostur í starfsgreininni.
Við eigum ef til vill eftir
að sjá hvort Nói leggur
þetta fyrir sig í Nóa 2, og
hvort hann fer þá að
vinna fyrir „Fyrirtækið",
en þegar lögfræðingar þurfa að
fremja illvirki sem eru jafnvel þeim
ofviða er hér leitað á náðir leigu-
morðingja sém er jafnframt albínói.
Sá er reyndar seinna skotinn af að-
stoðarmanni sínum. Ef til vill sá
hann líka illa.
6. The Simpsons (sjónvarpsþættir)
Hómer kemur óvart af stað kjarn-
orkuhörmungum sem gera það að
verkum að bæjarbúar verða að föl-
um illyrmum sem búa neðanjarðar.
ný skáldsaga eftir vi'gdísí grímsddttur
Sannkölluð spennusaga
„Ungum manni skolaði á land um nótt í
nóvember. Þaö bar enginn kennsl á beinin
svona fyrst í stað og þaö sváfu allir fuglar."
Með þessum upphafsorðum bókarinnarer spennandi
atburöarás hrint af stað, þar sem enginn veit hver
kann að leynast í dulargervi og tefla lífi förunauta
sinna í tvísýnu.
„Sannkölluð spennusaga."
Soffía Auöur Birgisdóttir / MORGUNBLAÐIÐ
Páll Baldvin Baldvinsson
STÖÐ2
„Lesandi er
ofurseldur valdi
mikillar sagnakonu...
náttúrulega fremst
sagnaskálda afsinni
kynslóð og þó víðar
væri farið í skálda-
hópi á íslandi."