Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003 Fréttir 0V Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson, ábm. Ritstjórar. Illugi Jökulsson Mikael Torfason Fréttastjórar Kristinn Hrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - Aðrar deildin 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setning og umbrot Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Unnu Popppunkt Það voru strákamir í Ensími sem unnu Popppunkt 2003. Unnu þeir Vínyl í úrslitum en það kom mest á óvart að fullorðnu hljdm- sveitirnar gátu minna en við var búist. Fyrir framvoru miklar vonir bundnar við Stein Ármann og Jakob Bjarnar íKát- um piltum, enda komust þeir í fjögurra Uða úrslit. Hins vegar komust gömlu kemp- urnar í Brimklö, með Björgvin HaUddrsson fremstan í flokki, ekki áfram úr fyrstu umferð því þeir töpuðu fyrir Pöpum. f kvöld eru það svo atvinnukverúlantar og poppspekúlantar sem mæta frfstunda- spekingum á Skjá ein- um kl. 21. Tveir fyrir einn fsdlfur Gylfi Pálmason, fyrrum alþingismaður, hefur slegið f gegn sem nýr sveitarstjdri á Flúðum. Hafa íbúar tekið honum fagn- andi og þa scrstaklega um jölin þeg- ar í ljós kom að sveitar- stjdrinn er ekki einungis laginn við stjdmsýslu heldur einnig Uðtækur gítarleikari og söngvari. Hefur ísólfúr Gyfi komið fram á skemmtunum hjá bæði bömum og fuU- orðnum á Flúðum og tekið lagið. Hafa menn á orði að þarna hafi Flúða- menn fengið tvo fyrir einn - sveitarstjdra og skemmtikraft sem alltaf er tUtækur. Logandi Höfði fbúar Raufarhafnar hafa verið ólatir við að safna í áramótabrennu sem kveikt verður í stundvís- lega klukk- an21 á gamlárs- kvöld. Brennan er eins og áður á Höfða og fer ekki framhjá neinum í þorp- inu. Brennuvörður er Smári Vals en hann mun einnig sjá um fiugelda- sýningu á staðnum sem hefst korteri seinna. Höfðinn mun þá loga og varpa sérstæðri birtu yfir bæinn við ysta haf þar sem Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri stjdmar öUu nema brennunni. *o £ fO E 'O «o JSC ai Lengjum jólin Það er alkunna að með hækkandi aldri líð- ur tíminn hraðar. Sá sem hér heldur á fjaður- staf man tU þess að í æsku hans voru jólin tU dæmis lengi að líða. í fyrsta lagi ætluðu þau aldrei að koma, svo löng var biðin eftir þeim, en eftir að þau komu loksins, þá stóðu þau notalega lengi. Það var eitthvað tU að njóta. Nú á seinni árum hafa jólin styst svo að ástæða er tíl að hafa áhyggjur. I fyrsta lagi rumskar maður venjulega einmitt þegar jólin em um það bil að hellast yfir og man það þá síðast að maður hélt að það væri enn mjög langt tU jóla. Og nógur tími tU að undirbúa aUt það sem þurfd að undirbúa. En jólin sjálf eru líka orðin óttalega stutt. Aðfangadagskvöld líður hjá á fuUri ferð og allt í einu er komin nótt og maður fer bara að sofa. Jóladagminn og annar í jólum - sem í æsku vom langir dagar - þeir blússa líka hjá, nánast án þess að maður taki eftir þeim. Og svo eru hinir formlegu jóladagar Uðnir og maður er kominn aftur í vinnuna. Hvunndagurinn tekinn við í öUu sínu veldi. Það er að sumu leyti ekkert slæmt. Sé maður sáttur við sinn hvunndag, þá hefur maður varla undan miklu að kvarta. En samt er þetta allt saman eitthvað svo skelfilega stutt. Maður fer að hafa áhyggjur af því að blessuðum börnunum þyki þau hafa verið svikin, nú þegar strax hillir undir að jól- in verði búin. Og þau búin að bíða svo lengi og hlakka svo mikið tU. Að sönnu kvarta þau ekki, ekki þau yngri að minnsta kosti. Hjá þeirn líður tíminn enn hægt og rólega, eins og hann á að gera. Svo þetta stórkosdega „vandamál" háir þeim ekki að ráði. Ekki ennþá. Að hluta til stafa áhyggjur þess sem hér párar með sjálfblekungi einfaldlega af fyrr- nefndri staðreynd - að tíminn líður hraðar efdr því sem maður eldist. En þróunin í há- tíðahaldinu hefur líka sitt að segja. Eftir því sem hátíðisdögunum svipar meira til venju- legra sunnudaga - allar búðir opnar enda- laust, allir skemmtistaðir galopnir, allt eins og venjulega - þá styttist líka hátíðin sjálf. Hátíðleikinn verður að minnsta kostí minni - eða kannski öllu heldur framandleikinn sem hlýtur að fylgja hverri hátíð. Því hátíð má ekki vera bara eins og hver annar sunnudagur. Þó það sé gott og praktískt að hafa allt opið á annan jólum eins og nú er orðið, og ekki leng- ur neinn vandi að finna opnar búðir á jóla- dag. Með auknum kröfum um meira „frjáls- ræði“ í opnunartíma á alla enda og kanta, þá mun smátt og smátt enn draga úr „hátíðleik- anum“ uns jólahald verður í litíu frábrugðið hverjum öðrum sunnudegi. Enda frí ótrúlega stutt hjá flestum þegar jólin raðast ekki upp jafn heppilega og nú í ár. Til að vinna bug á þessu hafa menn stundum látið sér detta í hug undanfarið, hvort ekki mætti færa einn frídag í viðbót til jólanna. Taka einhvern af þeim skrýtnu frídögum sem virðast orðið lít- inn tilgang hafa - sumardaginn fyrsta, upp- stigningardag og svo framvegis - og færa til „þriðja í jólum". Hinir einstöku frídagar hingað og þang- að um árið eru sumum þyrnir í augum og alls konar fimmtudagar þegar frí er nýtast í rauninni fáum. Það yrði svo miklu heppi- legra ef einn þeirra félli niður en við fengj- um þriðja í jólum sem opinberan frídag í staðinn. En þótt stundum sé talað um þetta er aldrei gert í málinu. Yfirleitt bara rokið upp nokkrum dögum fyrir jól þegar breyting af þessu tagi er ómöguleg. Má sá sem hér hamr- ar á ritvél stinga upp á því að einhyer knár þingmaður taki nú málið upp á sína arma og hreyfi því eftír áramót, svo hugsanlega mættí ganga í málið í vor? Kannski einhver af nýlið- unum, sem með þessu gætí stímplað sig prýðilega inn. Illugi Jökulsson Megabeioið á Alþingi Síst skortír á að Katrín hafi verið áberandi. Reyndar liggur við að hún hafi verið í fjölmiðlum upp á hvern ein- asta dag allar götur síðan hún var kjörin á þing síðasta vor. - v '• 9. í Morgunblaðinu í gær var viðtal við Katrínu Júlíusdóttur, alþingis- mann SamfyUdngarinnar. Þar kom fram að Katrín eldar sjaldan kartöfl- ur og finnst ekki skemmtilegt að vaska upp. Enn fremur kemur fram að Katrín tárast oft í bíó: „Já vá! Tár- ast mjög oft í bíó yfir ótrúlegustu at- riðum og finnst það gott og los- andi.“ Einnig upplýsir Katrín að ís- bjamarkjöt sé furðulegasti matur sem hún hefúr borðað og aö hún er hræddari við Grýiu en Leppalúða. ,Aldrei litist neitt sérstaklega á hana en fundist Leppalúði vera frekar meinlaus í samanburðin- nm “ Ekki vitum við hvort heimfæra megi þessar hugleiðingar hins unga þingmanns upp á ástandið í Sam- fylkingunni. Sem sagt, hvort Katrín sé hér undir rós - og ef til vill óafvit- andi - að fjalla um hina ört dýpkandi formannskrísu milli þeirra Ingi- hjargar Sólrúnar Gísladóttur og öss- urar Skarphéðinssonar. Og hvort Katrín sé með þessum orðum að skipa sér tryggilega í flokk með hin- um meinlausa össuri (les=LeppaIúða) gegn hinni „skelfí- legu"Ingibjörgu Sólrúnu eða Grýlu. Astæðan fýrir því að við vitum þetta ekki er sú að við gerum okkur ekki grein fyrir hvar í flokki for- mannsefna SamfyUdngarinnar Katrín stendur, eða hvort hún hefúr yfirleitt skipað sér einhvers staðar í flokk. Þó reynum við að fylgjast vel með póUtík og kortleggj- um meðal annars eftir bestu getu tendensana í þing- flokki Samfylkingar- innar. En Katrín hef- ur vafist fyrir okkur hingað til og ekki bara hvað snertir álit hennar á össuri eða Ingibjörgu Sólrúnu. Pólitík Katrínar JúÚusdóttur hefur reyndar verið okkur nokkuð lokuð bók fram að þessu. Fyrst og fremst Ogþó skortir síst á að Katrín hafí veríð áberandi. Reyndar liggur við að Katrín Júlíusdóttir hafí verið i Ijölmiðlum upp á hvern einasta dag allargötur síðan hún var kjörin á þing sfð- asta vor. Undanfarn- ar vikur hefur að minnsta kosti varla liðið svo dagurinn að ekki sé viðtal við Katrínu einhvers staðar. Ef ekki í Mogganum, þá í Fréttablaðinu eða héríDV- eða þá íVikunni eða Nýju lífí eða hvað þau heita öll tímaritin. Gallinn er sá... og orðið „galli“ not- um við vegna þess að Katrín er jú stjórnmálamaður, meira að segja þingmaður ... gallinn er sá að öll þessi viðtöl snúast aldrei um pólitík. Við munum eftir viðtölum við Katrínu um móðurhlutverkið og hlutskipti einstæðrar móður. Við munum eftir viðtali við Katrínu um þann viðburð þegar hún mætti á Al- þingi í kúrekastígvélum. Við munum eftir viðtali við Katrínu um þann við - burð þegar hún mætti á Alþingi í engum sokkum. Við munum eftir fiölmörgum viðtölum við Katrínu um ýmislegt sem tengist mat og matargerðarlist - við munum til dæmis eftir sjónvarpsþætti þar sem hún bauð vinum sínum til kvöld- verðar. Viö munum eftír fullt af við- tölum við Katrínu um jólaundirbún- ing og bara um daginn og veginn. En hvemig sem við brjótum heilann, þá munum við ekki eftir viðtali við Katrínu um pólitík. Við erum hreint ekki að amast við því að fjölmiðlar taki viðtöl við þing- menn um annað en harðsvíraða pólitík. Annaðhvort væri nú - nokk- ur af þessum viðtölum við Katrínu hafa birst hér í DV og við erum hæstánægð með þau. Og eins og a11- ir aðrir erum við lika hæstánægð með Katrínu yfírleitt og teljum mikla prýði að henni á Alþingi. En er þetta samt ekki að verða svolítið einkenni- legt? Við erum farin að hafa áhyggj- ur afþví að Katrín hafí varla tíma til að sinna skyldustörfum sínum á Al- þingi af því að hún sé svo umsetin fjölmiðlum sem vilja tala við hana um eitthvað allt ann- að en stjómmál. Reyndar munum við ekki betur en hún hafí verið ansi neðar- lega á lista sem birtur var nýlega um ræðu- tíma þingmanna - ef við munum rétt reyndist hún hafa talað í níu mínútur á yfírstandandi þingi. Nú vitum við vel að „gæði þing- starfa“ fara alls ekki saman við mín- útufjöldann í ræðustóL Sumir myndu meira að segja halda því fram að þeim mun minna sem þing- menn tala, þeim mun betra, en við erum ekki þeirrar skoðunar. Við telj- um að það sé heilbrigt og gott fyrir þingmenn að láta nokkuð að sér kveða í pontunni og höfum áhyggjur af því að ágangur okkar sjálfra og ann- arra fjölmiðla um að tala við Katrínu um til dæmis skófatnað hennar hafi komið í veg fyrir að hún fengi tjáð sig um - óneit- anlega - mikilvægari mál, þau sem hún er kosin til að sinna. Sömuleiðis sjáum við á vefeíðu Alþingis að Katrín hefur lagt fram óvenju fáar fyrirspumir af stjómarandstöðu- þingmanni að vera - en fyrirspumir em oft helsta leið þeirra tfi að láta tfi sín taka. Katrín hefur aðeins lagt fram eina fyrirspum um vexti og út- lánakjör og svo fiórar mjög svipaðs eðlis um fjármagn tfi rannsókna við ýmsa skóla. Við erum líka ansi smeyk um að öll sú matargerð og matarinnkaup sem Katrín hefur þurft að stunda til að fullnægja áhuga fjölmiðla á henni hafí trufíað hana frá þingstörfunum - svona eins oghún sé einhvers kon- ar megabeib Alþingis en ekki alvar- legur stjórnmálamaður. Það er því eitt af áramótaheitum okkar að tala eftirleiðis helst bara við Katrínu um pólitík héðan í frá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.