Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Blaðsíða 19
DV Fókus MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003 19 finningu makalaust skýr og heil. Leikur Hörpu er verðlauna virði en er verðlaun í sjálfum sér, eitthvað sem maður verður að sjá og gleymist ekki langa lengi eins og reyndar flest sem hún hefur gert á síðustu misser- urn en aldrei fyrr á þessum skala, í þessum stærðarhlutföllum. Og í samræmingu atgervis og æðis verða til atriði þar sem áhorfanda hrýs hugur og er svo höggvinn djúpum stungum. Þetta er sem sagt fjári góð sýning, áhrifamikil og æðisleg, hamslaus í tif- finningum og djúp í sorg. Hér losnar líka um þá pattstöðu sem sviðsetn- ingar á Nýja sviði hafa einhverra hluta vegna lent í, upphrópaðar sem nýmæli sem þær voru ekki, lofaðar umfram gæði og heldur slælega sótt- ar. Og um leið gefst Leikfélaginu nú sóknarfæri inn á almennan markað því sýningin er ákall til áhorfenda: Sjáiði! Hér eru kaunin. Hér er máttur- inn og eymdin. Takið á! Stefáni Jónssyni og liði hans er þakkað fyrir djarfmannlega og sanna leiksýningu. Sviðsetning þeirra nær þvi máli að teljast listrænn viðburður sem er orðið ærið sjaldgæft á þessum tímum samhæfðrar meðalmennsku. Sjáiði til. Páll Baldvin Baldvinsson Leikfélag Reykjavíkur sýnir á Nýja sviði Borgarleikhúss: Sporvagn- inn Girnd eftirTennessee Wiliiams í þýðingu Örnólfs Árnasonar og Jóns Atla Jónssonar. Leikendur: Sigrún Edda Björnsdóttir, Harpa Arnardóttir, Björn ingi Hilmars- son, Pétur Einarsson, Katla IVIar- grét Þorgeirsdóttir og ÞórTulini- us. Lýsing: Kári Gíslason. Búning- ar: Stefanía Adolfsdóttir. Leik- gervi: Sóley Björt Guðmundsdótt- ir. Leikmynd: Snorri Freyr Hilm- arsson/Haukur Karlsson. Hljóð- mynd: Jón Hallur Stefánsson. Tón- list: Lestir frá Reykjavík. Leik- stjóri: Stefán Jónsson. Frumsýn- ing: 27. desember 2003. Ágúst Guðmundsson er leikstjóri og einn handritshöfunda áramótaskaupsins. Hann segir skaupið hefðbundið að þessu sinni en árið hafi verið spaugilegt og handritshöfundarnir hafi haft úr nógu að moða. Handritshöfundurinn Ágúst Guðmundsson er leikstjóri og einn höfunda óramótaskaupsins i ór. Ágúst segir skaupið hefð- bundið og oð dhorfendur verði ekki sviknir afað sjá Örn Árnason i hiutverki Davíðs Oddssonar. aö lá ser í glas þegar þetta byrjar" „Ég skil sjálfur ekki hvers vegna þetta er svona vinsælt,“ segir Ágúst Guðmundsson, leikstjóri og einn handritshöfunda Áramótaskaups- ins. Byrjað var á gerð þess í septem- ber, en handritið er skrifað af Jóni Erni Marinóssyni, Gunnari Helga- syni og Guðmundi Steingrímssyni, ásamt Ágústi, en Vilhjálmur Guð- mundsson semur tónlistina. „Handritið var samið í sex vikna áhlaupi, en síðan var bætt inn atrið- um eftir því sem atburðir gerðust." Efnistök segir Ágúst fyrst og fremst vera innlend að vanda. „Þetta er fremur hefðbundið áramótaskaup þar sem fram koma 29 leikarar. En þetta var spaugilegt ár og af mörgu að taka. Það er svolítið skrýtið að gera áramótaskaup þau ár sem Spaugstofan er í gangi. Þeir eru með miniskaup í hverri viku, þannig að við slepptum sumum málefnum sem þeir hafa gert góð skil.“ Ágúst segir að margir þjóðþekktir einstaklingar komi fyrir og sumu í hlutverkavali sé erfitt að breyta. Til dæmis muni örn Árnason fara með hlutverk Davíðs Oddssonar og Edda Heiðrún Backman með hlutverk Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. En verður skaupið rætið? „Ég þori ekki að segja til um hvort við erum andstyggileg, en mér finnst ekki. Annars vona ég bara að sem flestir verði búnir að fá sér í glas þeg- ar þetta byrjar." Lord of the Rings „Ég er náttúrlega búinn að sjá Lord of the Rings: The Return of the King nokkrum sinnum og finnst hún hreinlega alveg stórkostleg. Þetta er í raun bara önnur tegund af kvik- myndagerð og er langtum betra en flest sem maður hefur séð á síðustu árum og þess vegna eru allar myndirnar skref! framar en allt annað. Leikarar, leikstjórn, tæknibrellur, myndataka og um- hverfið smellur allt saman og sem aðdáandi bókanna er ég líka mjög sáttur við hvernig farið er með sög- una. Ég held að ég geti fullyrt að The Return of the King sé samt best af þessum frábæru myndum." Jón Gunnar Geirdal, kvikmyndasviði Norðurljósa Lord of the Rings „Mér finnst hún geðveik. Æðis- leg. Framar vonum. Ég er mikill að- dáandi bókanna og myndanna og finnst þær allar jafn góðar. Arven sem Liv Tyler leikur er líklega uppá- haldskarakterinn minn, og hefur verið það síðan ég las bækurnar. Ég fór á Skífusýningu rétt fyrir jól og varð ekki fyrir vonbrigðum." Svala Björgvinsdóttir söngkona Borg Guðs „Þetta er besta mynd sem ég hef séð lengi. Hún er fremur íslend- ingasöguleg. „Maður er nefndur Gonzales," og svo fylgir maður honum um stund. Eini gall- inn er að hún er textuð á einhverja gangsta rapp ensku. Hverfið er kallað „The Hood," og að- algaurinn er kallað- ur Shaggy. Mér finnst að við ættum að geta fengið þetta milliliðalaust, án íhlutunar Shaggy." Andri SnærMagnason rithöfundur Borg Guðs „Eg hef bara verið svo upptekinn með mína eigin sýningu að ég hef lítið annað getað gert en stefni þó að því að sjá sem mest af leiksýn- ingum í janúar. Ég talaði inn á myndina Álf og finnst hún mjög skemmtileg, og stefni að því að sjá Leitina að Nemó og Hringadróttins- sögu. Síðasta myndin sem ég sá var Borg Guðs og bíóáhugamenn ættu alls ekki að láta hana fram hjá sér fara. Hún er einn af þessum sjald- gæfu gullmolum." Felix Bergsson leikari Björk okkar Guðmundsdóttír var á Apótekinu annan í jólum með Haraldi Jónssyni myndlistar- manni en þar sást einnig til Richards Scobie tónlistar- manns. Á bamum á 101 hótel á laugardags- kvöldið var Sigurður G. Guðjónsson, for- Hverjir voru hvar stjóri Norðurljósa, og sömuleiðis Birg- ir Leifúr Hafþórsson golfari. Kafflbarinn var þétt setinn alla helgina. Þar mátti meðal annarra sjá Magga legó úr Gus Gus, söngvarann Richard Scobie og plötusnúðana Jóa B. og Kristin Gunnar Blöndal sem einnig er í Ensími. Baltasar Kormákur var auðvitað á svæð- inu og þá glitti í leik- listamemann Óla Stein og leikarann og leikstjórann Ólaf Egil Egilsson. Leikarapar- ið Steinunn Ólína Þorsteinsdóttír og Stefán Karl Stefáns- son vom í miklu stuði, þeir Addi og Kiddi í Vínyl drekktu sorgum sínum eftir að sveitin tapaði úrslitaviðureign- inni í Popppunkti, Álfrún ömólfcdótt- ir leikkona var htress og sömuleiðis þeir Egill Sæbjömsson borgarlista- maður og Gunnar Páfl Olafcson myndbandagerðarmaður. Tviburabræðumir Amar og Bjarid Gunnlaugssynir vom að vanda á Hverfisbarnum en þar vom líka Man- úela Ósk Harðardóttir fegurðardrottning og Indriði Sigurðsson fótboltamaður. Eins sást til Gumma Jóns úr Sálinni og Þóqóns Péturssonar sam- lokulöggu. Hljómsveitimar Úlpa, Kimono og Jan Mayen spiluðu á tónleikum á Grand Rokk annan í jól- um. Mætingin var góð og á meðal gesta vom Búgir öm Steinarsson í Maus, Bogi Ágústsson, íréttastjóri á RÚV, og Indriði Sigurðsson, atvinnu- maður í knattspymu. Baltasar Kormákur leikstjóri var á ölstofúnni en þar vom líka kunnugleg andlit á borð við Friðrik Þór Friðriks- son kvikmyndaleikstjóra, Skúli Malmqvist, Ari Alexander, Þórhallur Gunnarsson sjónvarpsmaður, Skjöld- ur Sigurjónsson og Kormákur Geir- harðsson veitingamenn, Haflgrímur Helgason rithöfúndur og Silja Hauks- dóttir leikstjóri Dísar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.