Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003 Sport rxv Webberekki væntanlegur Framherjinn öflugi Chris Webber, sem leikur með Sacramento Kings í NBA- deildinni í körfuknattleik, veit ekki hvenær hann get- ur byrjað spila með liðinu á nýjan leik en hann hefur ekkert spilað síðan hann meiddist illa á hné í leik gegn Dallas Mavericks í úr- sltiakeppninni síðasta vor. Webber, sem var skorinn upp í sumar, hefur ekkert getað æft að ráði til þessa en hann sagöist samt vera á batavegi. „Eg má fara að auka álagið á hnéið en læknarnir hafa ekki enn gefið mér leyfi til að mæta á æfingar. Þessi meiðsli voru alvarlegri heldur en haldið var og því mun ég fara eftir því sem læknarnir segja í einu og öllu,“ sagði Webber. Vince Carter er vinsælastur Framherjinn Vince Cart- er, sem leikur með Toronto Raptors, hefur fengið flest atkvæði allra leikmanna NBA-deildarinnar fyrir 53. Stjörnuleik deildarinnar sem fram fer í Staples-höll- inni í Los Angeles sunnu- daginn 15. febrúar. Stuðn- ingsmenn víðs vegar um heiminn geta kosið á heim- síðu NBA-deildarinnar, nba.com, og er Carter eini leikmaðurinn sem hefur fengið meira en milljón at- kvæði. Næstur honum kemur bakvörður Los Ang- eles Lakers, Kobe Bryant, en hann er jafnframt með flest atkvæði allra leik- manna í vesturdeildinni. Palios erstol- tur afmáli Rio Mark Palios, fram- kvæmdastjóri enska knatt- spyrnusambandsins, segir að sambandið hafi gert rétt þegar það dæmdi varnar- manninn Rio Ferdinand í átta mánaða bann fyrir að missa af lyfjaprófl. Palios segir að sambandið hafi þurft að setja fordæmi og það hafl það gert. „Ég sé ekki fyrir mér að félög leyfi leikmönnum sfn- um að missa af lyfjaprófi framvegis," sagði Palios og bætti við að ef hann yrði fyrir strætisvagni á morgun þá væri hann í það minnsta stoltur af því að hafa náð að koma þessu máli í gegn San Antonio Spurs og New Jersey Nets spiluðu til úrslita í NBA-deildinni síðasta sumar en áttu bæði undir högg að sækja í upphafi nýs tímabils. Á síðustu vikum hafa bæði lið tekið við sér á ný ekki síst fyrir frábæran leik þeirra Tims Duncan og Jasons Kidd. Kidd og Duncan minna aflur á sig Fyrir réttum mánuði síðan var San Antonio í neðsta sæti miðvesturriðilsins í Vesturdeild NBA-deildarinnar í körfubolta og New Jersey Nets hafði tapað 11 af fyrstu 18 leikjum sínum austan megin. Þetta eru núverandi NBA-meistarar í Spurs og Nets, sigurvegarar Austurdeildarinnar tvö síðustu árin og þótti mörgum spekingnum sem svo að tími annarra liða væri nú runninn upp. Tveir menn, Tim Duncan hjá Spurs, og Jason Kidd, voru að sjálfsögðu ekki á sama máli og sýndu enn einu sinni hversu megnugir þeir eru, ekki sfst þegar illa gengur. Nú tæpum mánuði síðar, hafa Spurs unnið 12 leiki í röð og Nets hafa unnið 9 af sfðustu 11 leikjum og bæði liðin eru komin á topp sinna riðla og bæði komin af alvöru inn í umræðina á ný. Það er ekkert nýtt hjá Tim Duncan og félögum hans í San Antonio að byrja tímabilið illa. Þegar Spurs varð meistari 1999, töpuðu þeir 8 af fyrstu 14 leikjum sínum (unnu 31 af síðustu 37) og í fyrra töpuðu þeir 11 af fyrstu 30 leikjum sínum en töpuðu jafnframt aðeins 11 af síðustu 52 leikjunum. í ár töpuðust 10 af fyrstu 18 leikjunum en síðan 5. desember hefur liðið ekki tapað leik. „Við erum að spila vel þessa dagana og erum nákvæmlega þar sem við viljum vera,“ sagði Duncan eftir tólfta sigurleikinn í röð sem kom á heimavelli gegn Orlando Magic. Duncan var með 27 stig, 16 fráköst, 5 varin skot, 4 stoðsendingar og 3 stolna bolta í leiknum og hefur nú náð 25 tvennum í 27 leikjum. „Við erum að reyna að koma í veg fýrir að fyllast of miklu sjálfstrausti en ef við höldum áfram að spila svona eigum við möguleika á að vinna alla leiki," sagði Duncan sem hefur verið kosinn besti leikmaður deildarinnar tvö síðustu tímabil. Líkt og Duncan sjálfur leggur liðið áherslu á varnarleik og liðsheild og með það tvennt í góðu lagi eru meistararnir áffam líklegir í tilvöminni. En að öðmm kappa sem var nærri því orðinn liðsfélagi Duncan í sumar. Jason Kidd sá eflaust eftir ákvörðun sinni þegar ekkert gekk í upphafi og það varð mikU fjölmiðlamatur úr því þegar hann las samherjum sínum pistilinn eftir 37 stiga tap, 63-100, gegn Memphis 13. desember síðastliðinn. Síðan þá hefur liðið vaknað upp við vondan draum, eða góða ræðu og fimm af síðustu sex leikjum hafa unnist. Kidd var með þrefalda tvennu tvö kvöld í röð um jólin og varð fyrstur til að ná því afreki síðan að hann sjálfur gerði það fyrir fjórum ámm. Kidd var með 24 stig, 12 stoðsendingar og 11 fráköst í sigurleik gegn Detroit og kvöldið eftir skoraði hann 16 stig, gaf 14 stoðsendingar og tók 10 fráköst í sigurleik á Indiana en því er einmitt spáð að þessi tvö lið verði helstu keppinautar Nets í baráttunni í Austurdeildinni. Kidd hefur náð fimm þrennum á tímabilinu og alls 56 á ferlinum en „Við erum að reyna að koma í veg fyrir að fyllast ofmikiu sjálfs- trausti en efvið höld- um áfram að spila svona eigum við möguleika á að vinna allaleiki." enginn annar leikmaður hefur náð fleiri en einni þrennu í vetur. Þjálfari Nets, Byron Scott, sem á tímabUi var orðinn mjög valtur í sessi sagði sigurinn á Indiana tákn um það að hans lið væri enn þá liðið sem þarf að komast í gegnum í austrinu og það er ljóst að úrslitalið síðasta árs em ekki búin að segja sitt síðasta orð í baráttunni um NBA-titilinn. ooj@dv.is i j/ %, . / 11 , ; . - ; . BK: ' 1 g|; vL f 1 Tveir sem kunna NBA-leikinn betur en flestir Þeir Tim Duncan, til vinstri, og Jason Kidd, að ofan hafa risið með sinum liðum upp úr öskustónni eftir dapra byrjun og áttu báðir stórleiki með Spurs og Nets um jólin. Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.