Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Blaðsíða 9
1 DV Frétth MÁNUDAOUR 29. DESEMBER 2003 9 Menntun Hannesar 1972 Stúdent frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1979 B.A. í sögu og heim- speki frá heimspekideild Háskóla íslands 1982 Cand. mag. í sögu frá heimspekideild Háskóla íslands 1985 D.Phil. í stjórn- málafræði (Politics) frá fé- lagsvísindadeild (Faculty of Social Studies) Oxford-há- skóla Starfsferill Hannesar 1986 Lektor í sögu í Heimspekideild 1988- 1992 Lektor í stjórnmálafræði í Félagsvís- indadeild 1992- 1996 Dósent í stjórnmálafræði í Félagsvís- indadeild 1996- Prófessor í stjórn- málafræði í Félagsvísinda- deild 1973-1979 Stundakenn- ari í Menntaskólanum í Reykjavík 1989- 1993 Stundakenn- ari íVerslunarskóla fslands 1983- Framkvæmda- stjóri Stofnunar Jóns Þor- lákssonar 1980-1985 Ritstjóri tíma- ritsins FRELSISINS 1993- 1994 Ritstjóri tíma- ritins EFSTÁBAUGI 1976- 1994 og frá 1997 Þáttagerðamaður og pistla- höfundur á Ríkisútvarpinu 1977- 1993 Dálkahöfund- ur í Morgunblaðinu, DV og Pressunni 1994- 1996 Umsjónar- maður vikulegs íréttaskýr- ingarþáttar á Stöð 2 1997- í stjórn For- skningsprogrammet Nor- den og Europa 1998- í stjórn The Nordic Institute for Asian Studies 1998- í stjórn Mont Pelerin samtakanna 2000- Einn af ritstjórum sjónvarpsþáttanna Maður er nefndur Bækur Hannesar 1989 Sjálfstæðis- flokkurinn í sextíu ár. Útgefandi: Sjálfstæð- isflokkurinn. 1990 Fiskistofn- arnir við ísland: Þjóð- areign eða ríkiseign? Útgef- andi: Stofnun Jóns Þörláks- sonar. 1992 Jón Þorlá^s- son forsætisráðherra. Útgefandi: Almenna bókafélagið. 1994 Hvar á mað- urinn heima? Fimm kaflar í sögu stjórn- málakenninga. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafé- lag. 1996 Benjamín Ei- ríksson í stormum sinna tíða. Útgefandi: Bókafélagið. 1997 Hádegisverð- urinn er aldrei ókeypis. Ut- gefandi: Hið íslenska bók- menntafélag. 1999 Stjórnmála- heimspeki. Hið ís- lenska bókmenntafé- lag. 2000 Overfishing. The Icelandic Solution. Útgefandi: Institute of Economic Af- fairs. 2001 Fiskar undir ________ steini. Sex ritgerðir í pisKAR stjórnmálaheimspeki. n m d i r Útgefandi: Félagsvís- indastofnun og Há- skólaútgáfan, Reykja- vík. 2001 Hvernig getur ís- land orðið ríkasta land í heimi? Útgefandi: Nýja bókafélagið. ; Heimild: Heima- síða Hannesar, http://www.hi.is/ -hannesgi/ STEINI Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er sagður hafa þverbrotið allar reglur um höfundarrétt og sæmdarrétt í bók sinni um Halldór Laxness. Háskólarektor segir of snemmt að segja til um viðbrögð skólans. Hannes neitar öllum ásökunum en gagnrýnandi segir Hannes enga vörn eiga í málinu. Fræðimannsferill Hannesar í hættu Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er af þremur öðrum fræðimönnum borinn þungum sökum um ritstuld í bók sinni um Halldór Lax- ness. „Ég ætla ekki að ræða þetta fyrr en ég er kom- ihn heim,“ segir Hannes Hólmsteinn sem er á Sri Lanka þar sem hann segist sækja ráðstefnu al- þjóðlegra samtaka fræðimanna sem hann eigi að- ild að. í yfirlýsingu frá Hannesi segir að hann muni hrekja allar ásakanir á hendur sér um óheiðarleg vinnubrögð þegar hann komi aftur til íslands um miðjan janúar. Aðjunkt segir Hannes án málsbóta Páll Baldvin Baldvinsson leikhúsfræðingur og bókmenntafræðingarnir Gauti Kristmannsson og Helga Kress segja öll að Hannes hafí gert texta annarra manna að sínum. Þetta gildi meðal ann- ars um texta frá Halldóri Laxness sjálfúm og Sví- anum Peter Hallberg sem mikið hefur skrifað um Laxness, til dæmis ævisögu Nóbelskáldsins. Páll Baldvin og Gauti settu gagnrýni sína fram mánudaginn 22. desember. Páll Baldvin á Stöð 2 og Gauti í Ríkisútvarpinu. Grein Helgu Kress var birt á Morgunblaðinu á laugardag. Helga hafði þegar um miðjan mánuðinn viðrað við aðra fræðimenn efasemdir sínar um vinnubrögð Hannesar í bókinni. Ekki reyndist unnt að ná sambandi við Pál Baldvin og Helgu í gær. Gauti, sem er aðjunkt við bókmenntafræðiskor Háskóla fslands, segir hins vegar að Hannes eigi sér enga vöm í málinu. Hólmsteins Gissurarsonar prófessors til sérstakr- ar skoðunar. Páll segir Háskólann „að sjálfsögðu" fylgjast með störfum kennara sinna jafnvel þó þau séu ekki á vettvangi skólans sjálfs. Hann hafi þó enn ekki rætt við Hannes um deiluna og ekki haft tækifæri til að kynna sér málið umfram það sem fram hefur komið í fjölmiðlum yflr jólin. „Til að byrja með er þetta mál viðkomandi deildar. En á þessu stigi er ekki hægt að segja til um hvernig það verður," segir háskólarektor. Ekki náðist í Ólaf Þ. Harðarson prófessor, deildarstjóra félagsvísindadeildar og samstarfs- mann Hannesar í Háskóla íslands. Svo vill til að Ólafur sat einnig í neftiidinni sem til- nefndi bók Hannesar til^íslensku bók- menntaverðlaunanna í flokki fræðirita. gar@dv.is „Háskóiaprófessor sem er ásakaður um svona og kemur ekki fyrr en eftirþrjár vikur til að verja sig getur ekki verið annt um heiður sinn." Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur verið umdeildasti háskólamaður landsins í áraraðir. í júní 1988 var hann skipaður lektor í stjómmálafræði við Háskóla íslánds og olli sú skipun miklum deilum því deildarfundur félagsvísindadeildar mælti með Ólafi Þ. Harðarsyni en ekki Hannesi. Bigir ísleifur Gunnarsson, þáverandi menntamálaráð- herra, skipaði Hannes samt í stöðuna og sagði ráðninguna faglega. Síðar varð Hannes dósent og lokst prófessor við Háskólann og olli það ekki síður deilum. Hann hefur þó ávallt þótt vinsæll kennari við Háskólann og talað er um suma tímana hans sem hreina skemmtun. Kannski reynt að fela sporin „Hannes brýtur allar fræðireglur sem hugsast getur. Hann notar texta Halldórs og annarra fræðimanna án þess að auðkenna þá. Menn vita því ekki nema að samlesa hver á hvað. Það er ekkert samræmi í því hvemig hann notar heimildirnar. Stundum vísar hann til heimildar og stundum ekki. Þannig er ekki alltaf hægt að treysta því að texti sem virðist vera eftir Hannes sé það í raun. Þá breytir hann textanum sem hann notar, kannski til að fela sporin," segir Gauti. Gauti segir Hannes til dæmis hafa tekið orðrétt upp úr skáldsögunni Inn- ansveitarkronika eftir Laxness. „Hann sleppir aðeins því sem er of lax- nesískt. Höfundarréttur Gauti Kristmanns Hannes braut allar reglur, segir aðjunkt við Háskóla íslands um bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Halldór Laxness. vemdar hugverk fyrir því með svokölluðum sæmd- arrétti að menn breyta texta annarra manna. Það má ekki breyta hugverki og nota það sem sína eign,“ segir Gauti. Einnig segir Gauti það vera algerlega út í hött hjá Hannesi að nota endur- minningarbækur Hall- dórs Laxness sem ævi- sögu því þær séu í raun skáldverk og skilgreindar sem slíkar af Laxness sjálfum. Sagður sinnulaus um fræðimannsheiður Að sögn Gauta er hann undrandi á Hannesi að svara ekki hinni alvarlegu gagnrýni strax. „Háskólaprófessor sem er ásakaður um svona og kemur ekki fyrr en eftir þrjár vikur til að verja sig getur ekki verið annt um heiður sinn. Þetta er gmndvallarmál fyrir fræðimann," segir Gauti. Bjarni Þorsteinsson, útgáfustjóri Almenna bókafélagsins, sem gefur út bók Hannesar, vísar í yfirlýsingu á bug ásökunum um að forlagið hafi ekki staðið sig í stykkinu. Bæði Hannes sjálfur og Almenna bókafélagið hafi leitað til sérfræðinga með yfirlestur á handritinu að fyrsta bindi Hann- esar um Halldór Laxness. Tekið hafi verið tillit til athugasemda þeirra sem engar hafi snúist um þau atriði sem Hannesi er nú borin á brýn. Hannes Hólm- steinn Gissurar- son Allar ásakanir eru rangar og ég skýri mitt mál um miðjan janúar, segir höfund- ur bókarinnar um Halldór Laxness. Helstu viðurkenningar Hannesar 1972 Gullpenni Menntaskólans í Reykjavík 1983- Visiting Scholar, Hoover Institution at Stanford University 1984 Penni ársins, DV 1984 Fyrstu verðlaun í ritgerðasamkeppni Mont Pélerin-samtakanna 1984 og 1985 R.G. Collingwood Scholar, Pembroke College, 1984- Summer Fellow, Institute for Huma- ne Studies, George Mason University 1984 Dómur fyrir að reka útvarpsstöð í verk- falli opinberra starfsmanna 1992 Gullmerki Heimdallar (ásamt Má Jó- hannssyni, Davíð Oddssyni og Friðrik Sophussyni) 1993 Verðlaun úr gjöf Jóns Sigurðssonar 2003 Tilnefndur til Bókmenntaverðlauna íslands í flokki fræðirita fyrir fyrsta bindi ævisögu Halldórs Laxness. Umdeildur Hannes Háskólarektor vísar á deildarforseta , „Það er ekki tíma- bært að segja til um það. Það hefur ekki verið tími til að skoða málið," segir Páll Skúla- son, rektor Há- skóla íslands, aðspurður hvort yfirstjórn skól- ans taki mál Hannesar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.