Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Síða 3
DV Fréttír
MÁNUDAQUR 29. DESEMBER 2003 3
Fleiri konur
Spurning dagsins
Hverjir eru timburmenn jólanna?
í haust voru kynntar heldur dap-
urlegar niðurstöður rannsóknar þar
sem þátttaka kvenna í stjórnum íyr-
irtækja var meðal annars könnuð.
Rannsóknina vann Bryndís ísfold
Hlöðversdóttir og tók rannsóknin til
fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöll
íslands. Það hefur svo sem löngum
verið vitað að mun færri konur en
karlar gegni störfum er lúta að
stjórnun fyrirtækja en þó kom
nokkuð á óvart að staðan skyldi ekki
vera betri en þetta. Niðurstöður
rannsóknarinnar leiddu nefnilega í
Ijós að á meðan 330 karlar eru
stjórnarmenn í fyrirtækjum skráð-
um í Kauphöllinni eru konurnar að-
eins 12, sem er innan við 5%. Þegar
farið er yfir kynjahlutföll þar sem
stjórnarformenn eru annars vegar
kemur í ljós að þar eru karlarnir 73
talsins en konurnar einungis 2, eða
2,7%. Hlutfallið er aðeins skárra þar
sem varamenn eiga í hlut en þar eru
karlarnir 157 talsins en konurnar 17,
sem er 9%.
Skortur á konum engin
afsökun
Þegar aukin völd og áhrif kvenna
á ýmsum sviðum þjóðlífsins eru
rædd hefur því oft verið borið við að
konurnar sjálfar geti ekki, vilji ekki
og þori ekki að axla aukna ábyrgð.
Hressilega var slegið á þessa mýtu
fyrr í þessum mánuði þegar 7 konur
sem allar starfa við Háskólann í
Reykjavík gengu fram fyrir skjöldu
og buðu fram krafta sína í stjórnir
þeirra fyrirtækja sem skráð eru á
Aðallista Kauphallar íslands. Þetta
eru þær Þóranna Jónsdóttir, Hanna
Katrín Friðriksson, Halla Tómas-
dóttir, Þórdís Sigurðardóttir, Ásta
Bjarnadóttir, Anna Margrét Marin-
ósdóttir og Guðfinna S. Bjarnadóttir.
Allar þessar konur eru með fram-
haldsmenntun í alþjóðlegum há-
skólum og mikla reynslu á sviði við-
skipta og stjórnunar fyrirtækja og er
frekar upplýsingar um þær að finna
á heimasíðu Háskólans í Reykjavík,
www.ru.is.
Flugeldar á himni Um hver áramót verða
nokkurslys tengd flugeldum á landinu.
Gætum varúðar.
Áramót og
flugeldaslys
Valgeir Elfasson, upplýsinga-
fulltrúi Slysavamafélagsins Lands-
bjargar, skrifar: Áramótin geta
breyst í harmleik ef ekki er farið
eftir öllum leiðbeiningum og
fyllsta öryggis gætt í meðferð flug-
Lesendur
elda. Um hver einustu áramót
verða nokkur slys tengd flugeldum.
Augnslysum, sem áður voru allt of
algeng hefur fækkað til muna. Síð-
ustu áramót hafa ekki orðið nein
alvarleg augnslys. Það má þakka
almennri notkun flugeldagler-
augna. Handarslys eru algengust,
en þau verða helst vegna þess að
ekki er farið eftir leiðbeiningum.
Slys af völdum flugelda sem
verða bæði um áramótin og að þeim
loknum eru flest í aldurshópnum 15
ára og yngri. Strákar eru í meiri-
hluta. Stærsta vandamálið hjá þeim
er heimatilbúnu sprengjurnar, þar
sem púður er tekið úr flugeldum og
sett til dæmis í sultukrukkur eða
rörabúta. Slys tengd þessum
TinnaTraustadóttir
skrifar um konur við
stjórn fyrirtækja.
Kjallari
Þessu til viðbótar var kvenna-
gagnabankinn, www.kvennaslóð-
ir.is, settur á laggirnar fyrir skömmu
en sams konar gagnabankar eru
reknir á hinum Norðurlöndunum.
Hugmyndin með þessu framtaki er
að þangað geti fjölmiðlafólk, sem oft
er legið á hálsi að fyrir að leita í
meira mæli til karla en kvenna, farið
til þess að leita eftir viðmælendum.
Einnig að ríki og sveitarfélög geti afl-
að sér þar upplýsinga um sérfræð-
inga til setu í ýmsum nefndum og
ráðum en konur eru sem kunnugt er
oftar en ekki í minnihluta þar. Þá er
kvennagagnabankinn einnig ætlað-
ur stjórnendum fyrirtækja til þess að
auðvelda þeim leit að hæfum ein-
staklingum til ráðgjafarstarfa eða
stjórnarsetu. Enda gefa breskar og
norskar rannsóknir til kynna að fyr-
irtæki þar sem konur eru í stjórn nái
bttri árangri en þau fyrirtæki sem
einungis karlar sitja við stjórnvöl-
inn.
Fæðingarorlof, sveigjanlegur
vinnutími og Au-pair
í pistli sem birtist 17. nóvember
síðastliðinn á www.tikin.is tekur
Hulda Þórisdóttir púlsinn á stöðu
kvenna á vinnumarkaði í Bandaríkj-
unum. En þrátt fyrir að konum þar
hafi íjölgað mjög í menntastofnun-
um og séu nú um helmingur útskrif-
aðra nemenda í mörgum greinum
hefur þróunin orðið sú að þegar
kemur að barneignum hafa konurn-
ar oft séð sig knúnar til þess að gefa
starfsframann upp á bátinn til þess
að geta einbeitt sér að fjölskyldunni.
Kannski er það ekki nema von þar
sem fæðingarorlof þar er ekki nema
12 vikur án launa, nær óþekkt er að
sprengjum hafa verið mjög alvarleg
þar sem einstaklingar hafa jafnvel
misst hluta af útlim, fengið ævilangt
lýti eða tapað sjón.
Til að fyrirbyggja slys er mikil-
vægt að gera hlutina rétt. Geyma
þarf flugelda á öruggum stað, ekki
þar sem börn hafa aðgang að þeim.
Umgangast skal flugelda með varúð.
Ekki á að vera með leikaraskap og
læti þar sem þeir eru notaðir og
muna að áfengi og flugeldar eiga
ekki samleið.
Ekki má gleyma dýrunum sem
eiga oft erfitt um áramótin eins og
margir aldraðir og sjúkir sem bregð-
ur við óvæntar sprengingar og ljós á
himni. Búpeningur er einnig við-
kvæmur fyrir flugeldasprengingum
og þess eru dæmi að til dæmis hross
hafi flúið upp til fjalla þegar þau
hafa tryllst af þessum sökum.
Versti tíminn er eftir áramótin
þegar fólk er að sprengja öllum að
óvörum. Það á ekki að sprengja flug-
elda fyrir eða eftir þann tíma sem
það er leyfilegt, enda getum við ekki
séð að það sé einhverjum til ánægju
að vera með flugeldasprengingar allt
árið um kring.
Áfram Haukur
Guðmundur Sigurðsson sjómað-
ur skrifar. Ég verð að lýsa yfir
óánægju minni með að búið sé að
taka Hauk Hauksson, ekkifrétta-
mann, af dagskrá Rásar 2 vegna
sparnaðarráðstafana þarna hjá
RÚV. Þetta er einn skemmtilegasti
þáttur í íslensku. útvarpi og ég veit
um marga atvinnubílstjóra sem
skipta sérstaklega yfir á Rás 2 kl.
17:05 þegar Haukurinn er á dagskrá.
Þetta er líka mjög lýðræðislegur
þáttur að hægt sé að taka ráðamenn
þjóðarinnar í karphúsið eins og
Haukurinn gerir svo meistaralega.
Þannig að ég segi fyrir margra
munn: áfram Haukur Hauksson!
feður taki sér þar fæðingarorlof og
samræming atvinnu og einkalífs er
skammt á veg komin.
Hér á íslandi horfa þessu mál
töluvert öðruvísi við þar sem íslend-
ingar hafa fyrstir þjóða gefið foreldr-
um kost á jafn löngu fæðingarorlofi.
Feður hafa tekið þessari nýbreytni
fagnandi þar sem 90% þeirra nýta
sér nú réttinn til þess að taka fæð-
ingarorlof. Þar með hefur þátttaka
þeirra í umönnun barna og heimilis-
störfum aukist til muna, sem er for-
senda þess að konur geti sinnt störf-
um utan heimilis til jafns við karla.
Auk þess hafa fjölmörg fyrirtæki hér-
lendis leitað leiða til þess að auð-
velda starfsmönnum sínum að sam-
ræma starfið og einkalífið. Þá færist
sífellt í vöxt að fólk sem er önnum
kafið starfs síns vegna fái sér heimil-
ishjálp til þess að sjá um þrif á heim-
ilinu. Fyrir vikið gefst foreldrum
meiri tími með bömum sínum en
ella og hægt er að nota frístundimar
í að hlaða batteríin fremur en að
skúra, skrúbba og bóna. Enn aðrir
hafa brugðið á það ráð að fá au-pair
á heimilið til þess að aðstoða við
barnapössun og létt heimilisverk.
Slík aðstoð getur komið að góðum
notum á heimilum þar sem vinnu-
tími foreldra er óreglulegur og þeir
sinna kreijandi störfum.
Að ofansögðu ætti að vera ljóst að
konum sem þora, geta og vilja er
ekkert að vanbúnaði að láta til sín
taka og að sama skapi er fyrirtækjum
ekkert því til fyrirstöðu að ljá fleiri
konum brautargengi og auka þannig
hlut kvenna í stjómum fyrirtækja.
DV tekur við lesendabréfum og
ábendingum á tölvupóstfanginu
lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að
stytta allt það efni sem berst til blaðsins
og birta það í stafrænu formi og (
gagnabönkum án endurgjalds.
Átakað vakna
„Efmaður hefur gengið hægt um
gleðinnar dyr og kunnað sér hófí
mat og drykk ættu eftirmálarnir
engir að vera. Kannski er stærsta
átakið fyrir flesta að vakna á
skaplegum tíma á morgnana eft-
iraðhafa getað sofið útnú yfir
hátíðarnar."
Dísa í World Class.
„Flestir þjást af
hreyfingarleysi
eftir allt
matarsukk síð-
ustu daga. Þá
er gottað
skella sér í
gönguferðir
eða leikfimi. Og titþess að láta heilann
virka aftur ætti fólk að lesa, nóg er víst í
boði eftir umgengið bókaflóð."
Ari Gísli Bragason fornbókasali.
Jmínu tilviki
er það að
koma sólar-
hringnum aft-
ur á rétt ról. Ég
er búin að sofa
vel - en
kannski of
lengi. Yfirleitt
fram að kaffi.
Hins vegar
passa ég upp á fjárhaginn. Missi mig
alltafí gjafakaupum, en á þó alltaffyrir
þeim."
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjón-
varpskona
„Sjálfsagt reyn-
ist VISA-reikn-
ingurinn
mörgum erfið-
ur, því margir
eyða um efni
fram. En það er
vissulega gott
geri fólk vel við
sig, á hvern
hátt sem það
er. Mínir timburmenn eru helstir að ég
borða ofmikið, en reyni hins vegar að
halda í við mig peningalega."
Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn á Akureyri.
„Timburmenn
jólanna eru
sérstakir að því
leyti að þeir
hafa langan
aðdraganda
hjá flestum og
koma ekki í Ijós
fyrr en í byrjun
febrúar með
kortareikningnum. En blessunarlega
kann ég sjálfur fótum mínum forráð og
býst ekki við timburmönnum."
Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi.
Jólin eru ekki eindóm sæla, sérstaklega eftir á.
FISKIKÓNGURINN MÆLIR MEÐ
í ÁRAMÓTAFAG NAÐIN N:
.990
990
1990
1490
1990
1490
1290
Það keppir enginn við Kónginn
FISKBÚÐIN VÖR • Höfðabakka 1
Sími 587 5070
Túnfisksteik T
Glæný öðulskel
Tailenskar risarækjur
Sverðfisksteik
Steiktum saltfisksteikum
Victroiusteik
Konungsmarineruðum lax