Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Aukið eftirlit
með flugi
Yfirvöld í Englandi hafa
hert allt eftirlit með flugi til
og frá landinu í samræmi
við aðgerðir Bandaríkja-
manna en þeir telja sterkar
líkur á hryðjuverkum
næstu daga og vikur. Hafa
þeir rökstuddan grun að
fyrir dyrum standi hryðju-
verk af einhverjum toga.
Munu óeinkennis-
klæddir lögreglumenn ferð-
ast með breskum flugvél-
um og allar aðrar aðgerðir
hertar til muna. Hefur þetta
valdið flugfélögum áhyggj-
um þar sem ekki eru allir á
einu máli um að vopnaðir
löggæslumenn um borð í
vélunum sé góð hugmynd.
Aðgerðir breskra yfir-
valda koma í kjölfar stór-
hertra aðgerða bandarískra
yfirvalda og stóraukin vakt
er einnig með allri flugum-
ferð í Ástralfu.
Eru Vestfirð-
ingar að
deyja út?
Finnbogi Hermannsson út-
varpsmaður á fsafirði.
„Á þessu ári hefur Vestfirðing-
um fækkað um 95 talsins
sem er að einhverju leyti til
dæmis afleiðing þeirrar þró-
unar sem hefur átt sér stað í
fiskvinnslu. Samkvæmt tölum
Hagstofunnar hefur störfum í
þeirri grein fækkað um 30%
síðasta árið. Svo sem vegna
tæknivæðingar og sam-
þjöppunar í eignarhaldi. Við
því er raunar lítið að segja.
Uppgangurinn í þjóðfélaginu
ergreiniiega ekki hér fyrir
vestan, en taka ber fram að
þegar á þenslusvæðin kemur
standa Vestfirðingar sig
ágætlega. Enda er upplagið
gott."
Lilja Magnúsdóttir, banka-
maður á Tálknafirði.
„Nei, það er víst lítil hætta á
því, enda eru Vestfirðingar
fjandanum lífsseigari. Spurn-
ingin snýst um það eitt hvar
á landinu þeir búa. Vandinn
sem við hér fyrir vestan
glímum við er einhæft at-
vinnulífog takmarkaðir
tekjumöguleikar sem fólk
hefur. Með öðrum orðum þá
vantar tilfinnanlega meiri
peninga inn íþetta samfélag
svo það geti vaxið og dafnað
og möguleikar séu til að
sporna gegn fólksflóttanum
héðan."
Tveimur viðhaldsdeildum hersins á Keflavíkurflugvelli verður lokað en þær hafa
þjónustað fjórar P-3 Orion eftirlitsvélar. 85 hermenn verða fluttir annað. Orion
vélarnar hafa haft litla viðveru á íslandi undanfarið en talsmenn hersins neita
að staðfesta að þær séu verði í reynd ekki lengur staðsettar í Keflavík.
Varnarlio hættir
að bjonusta Orion
Þjónusta við P - 3 Orion eftirlitsflugvélar flot-
ans á Keflavíkurflugvelli verður á næstu mánuð-
um flutt frá íslandi til Sikileyjar. Hálf flugsveit eða
fjórar Orion vélar hafa verið staðsettar á Islandi
síðan 1995 en áður voru vélarnar fleiri og sinntu
einkum kafbátarleit. Orion vélarnar eru nú alhliða
eftirlitsvélar og hafa meðai annars verið útbúnar
til eftirlitsmyndatöku úr lofti. Þrátt fyrir að form-
lega eigi að heita svo að hér eigi að vera fjórar
Orion vélar staðsettar hefur lítið borið á þeim á
Kelfavíkurflugvelli síðustu mánuði. Hafa heimild-
armenn DV bent á að í þessu felist mikil stefnu-
breyting. Friðþór Eydal, blaðafulltrúi Varnarliðs-
ins staðfesti í gær að viðhaldsdeildinni yrði lokað
í Keflavík en að þetta fæli ekki í sér vísbendingu
um að Orion vélarnar hyrfu héðan alfarið. „Það
hefur engin ákvörðun verið tekin, formleg eða
óformleg um framtíð Orion vélanna, Það hefur
ekkert verið skorið úr um það enn þá hvert fram-
halHiö vprönr “ sagði Friðþór. Heimildarmenn DV
hafa bent á að viðvera þessara
véla í Keflavík hafi verið afar lítil
síðustu mánuði og staðfestir
Friðþór það, „það má segja að
þær hafi verið mikið á faralds-
fæti síðustu mánuðum vegna
tilfallandi verkefna annars stað-
ar.“ Þessi breyting á ekki að
koma íslenskum stjórnvöldum
á óvart því Friðþór segir að þau
Friðþór Eydal hafi fulla vitneskju um það
Visarþviá bug að hvernig þessum málum sé hátt-
Orion vélarnar séu .
farnar. að'
Hagræðing eða stefnubreyting
Kveikjan að eftirgrennslan DV um málið var
minnisblað sem dreift var á Keflavíkurflugvelli til
yfirmanna þar sem bent er á að viðhaldsdeildir
Orion vélanna verði leystar upp. Þetta eru deildir
sem skammstafaðar eru AIMD (Aircraft
Intermediate Maintenance) og ASD (Aviation
Supply Detachments). Jafnframt er þess getið að
þetta muni þýða allnokkra fækkun starfsmanna
en tæplega hundrað manns hafa starfað við þetta
viðhald - allt bandarískir hermenn. Friðþór stað-
festi þessa fækkun. „Það eru 85 manns sem hverfa
á brott vegna þessa þegar fer að líða á árið.“ Hann
þvertekur þó fyrir að lokun viðhaldsdeildanna
þýði sjálfkrafa að Orion vélarnar verði ekki stað-
settar hér en bendir á að það þurfi ef til vill að
skipta vélunum út örar. Fram til þessa hafa flug-
vélarnar verið sendar hingað til lands í sex mán-
uði í senn en óljóst er hver viðvera þeirra verður
eftir þessa breytingu. Þessi breyting kallar ekki
sjálfkrafa á fækkun í hópi íslenskra starfsmanna.
Leggur Friðþór Eydal áherslu á að þessi breyting
sé í fullu samræmi við aðrar áherslubreytingar
innan hersins. „Þetta er sama hagræðingarráð-
stöfunin og er í gangi á öllum sviðum varðandi
þennan rekstur. Þetta er flotastjórnin í Evrópu
sem er að hagræða í sínum rekstri."
Yfirlýsing
DV barst undir kvöld í gær, í kjölfar spurninga
blaðsins yfirlýsing frá Varnarliðinu þar sem
staðfest er að rekstri viðhaldsdeildanna verði
hætt. Jafnframt að starfsemin flytjist til Sigonella
á Sikiley. Ljóst er að allar breytingar á umsvifum
Varnarliðsins eru viðkvæmt mál og í
yfirlýsingunni er reynt að draga úr þýðingu
þessara breytinga. í yfirlýsingunni segir:
„Engin ákvörðun hefiir verið tekin um breyt-
ingar á starfsemi Orion eftirlitsflugvéla á Keflavik-
urflugvelli. Sögusagnir af þeim toga eru byggðar á
getgátum."
Department Head Meeting
18 Deeember 03
Minnisblað frá Varnarliðinu
Tilkynnt að tveimur viðhaldsdeildum Orion véla verði lokað.
Sjálfstæðismenn segja Qármálastjórn Árborgar vera broslega
Árborg ákallar
félagsmálaráðherra
„öll fyrirheit um örugga og
ábyrga fjármálastjórn verða í besta
falli næsta brosleg í ljósi þessarar
fjárhagsáætlunar," segja sjálfstæðis-
menn í bæjarstjórn Árborgar um
nýja íjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi kom
fram hjá fulltrúum meirihluta Sam-
fylkingar og Framsóknarflokks að
þrátt fyrir það að eiginfjárstaða Ár-
borgar væri sterk eigi sveitarfélagið
við vanda að stríða. Eins og hjá mjög
mörgum sveitarfélögum felist vand-
inn í því að tekjurnar fara að stærst-
um hluta í rekstur. Framkvæmdir
verði að fjármagna með lánsfé.
Heildarskatttekjur Árborgar eru
áætlaðar 1.727 milljónir á næsta ári.
Rekstur málaflokka ásamt eigna-
sjóði taki til sín 1.713 milljónir.
Meirihlutinn segist ákveðinn í því að
auka rekstarafgang án þess að þjón-
usta við lögbundin verkefni versni.
Til þess sé óhjákvæmilegt að leið-
rétta tekjustofna sveitarfélaga. „Því
skorar bæjarstjórn Árborgar á fé-
lagsmálaráðherra og stjórn Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga að
ganga af krafti í þá vinnu að endur-
skipuleggja tekjustofna sveitarfélaga
og skapa þeim grundvöll til að sinna
lögboðnum verkefnum," segir f bók-
un meirihlutans.
Sjálfstæðismenn sögðu þá að Ár-
borg byggi við sömu rekstrarlegu
skilyrði og önnur sveitarfélög.
Ábyrgðarleysi væri að láta rúmlega
99% af tekjum sveitarfélagsins fara í
daglega rekstur og auka íántökur um
nær 200 miljónir króna:
„Með sambærilegri fjármála-
stjórn og á þessu ári sem er að líða
má reikna með því að sveitarfélagið
þurfi á haustmánuðum að taka lán
til þess að standa undir rekstri. Komi
Einar Njálsson BæjarstjóriÁrborgar skorar
á rikið að lagfæra tekjugrundvöll sveitarfé-
laga en minnihluti sjáifstæðismanna segir
fjármálastjórn Framsóknarflokks og Sam-
fylkingar ábyrgðarlausa.
til þess er það grafalvarlegt mál,“
sögðu sjálfstæðismenn.
gar@dv.is