Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Page 8
8 MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003 Frittlr 0V Jómfrúr- vetrarferð Norrænu „Það er allt til reiðu hér ef einhverjir ferðamenn sjá ástæðu til að koma," segir Aðalheiður Borgþórsdóttir hjá menningarmiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði. Far- þegaskipið Norræna leggst að bryggju á Seyðisfirði þann 13. janúar í sinni fyrstu vetrarferð til íslands. „Það er aldeilis ómögu- legt að spá fyrir um hversu margir koma í þessari ferð. En þeir sem láta sjá sig þurfa ekki að hafa áhyggj- ur. Hér verður allt meira og minna opið og nóg við að vera. Það heyrir til undan- tekninga ef ófært er héðan þannig að lítið mál verður að komast leiðar sinnar ef það er á óskalistanum." 65 milljónir í skólahúsin Seltjamarnesbær ædar að verja um 65 millj. kr. á næsta ári til nýfjárfestinga og viðhalds á skólum bæj- arins. í áætíuninni kemur fram að um 9 milljónum á að verja til viðhalds og framkvæmda við Valhúsa- skóla, en að þeim afstöðn- um verður búið að endur- nýja alla skólabygginguna. Tæplega 30 milljónum á að verja í áframhaldandi við- hald Mýrarhúsaskóla, auk þess sem taka á bæði tón- listarskóla bæjarins og leik- skóla í gegn. Þá verður áfram unnið við fræðasetr- ið í Gróttu. Bullandi upp- gangurá öllum sviðum Landsíminn Árið sem er að líða hefur verið eitt hið besta fyrir íbúa Fjarða- byggðar og ákaflega spenn- andi hlutir eru fram undan hjá sveitarfélaginu," segir Smári Geirsson, kennari og fomaður bæjarráðs Fjarðabyggðar. „Hér er uppgangur á öllum sviðum og fyrir- séð að hann heldur áfram. Undirbúningur er kominn vel á veg vegna átversins sem hér rís í framtíðinni. Miklar og margvíslegar framkvæmdir hefjast vegna þess innan skamms. Fiskeldi hér um slóðir er í mikilli sókn og gengur framar vonum. Okkar áætlanir benda til að hér gætu starfað yfir hundrað manns við lax- og þorskeldi innan nokkurra ára. Sjávarútvegsfyrirtækjum hér hefur einnig gengið mjög vel og óhætt er að fullyrða að íbúar hér hafa sjaldan eða aldrei verið eins fullir bjartsýni ognú ríkir." Mikhail Khodorkovsky, ríkasti maður Rússlands, verður áfram í gæsluvarðhaldi fram yfir forsetakosningarnar í Rússlandi í mars. Þrátt fyrir mótbyr var hann, ásamt íslandsvininum Abramovich, valinn maður ársins af rússnesku vikuriti. Khodorkovsky áfram í varðhaldi Rússneski auðjöfurinn Mikhail Khodorkovsky kom fyrir rétt (Moskvu rétt fyrir jól þar sem hann var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í þrjá mánuði eða fram yfir forsetakosningarnar um miðjan mars. Khodorkovsky hefur ekki sést opinberlega síðan hann var handtekinn og hnepptur í varðhald i október. Þegar vopnaðir verðir fylgdu Khodorkovsky inn í réttarsalinn gaf hann sér tíma til að brosa sínu breiðasta til fjöl- miðlamanna sem biðu fyrir utan dómhúsið. Skattsvik og fjársvik Khodorkovsky er geflð að sök að hafa stundað bæði skattsvik og íjársvik hjá olíufélaginu Yukos. Khodorkovsky var ekki einasta stærsti hluthafl ol- íufélagsins heldur einnig forstjóri þess. Khodor- kovsky er ríkasti maður Rússlands og hefur Forbes-tímaritið talið að eignir hans nemi 8 millj- örðum Bandaríkjadala. Skattayflrvöld segja Yukos hafa vangreitt skatta að upphæð sem nemur fimm milljörðum dala eða tæpum 390 milljörðum íslenskra króna. Stuðningsmenn Khodorkovskys segja málið gegn honum af pólitískum toga. Harðlínumenn í Kreml haldi um alla þræði málsins en Khodorkov- sky hefur veitt andstæðingum Pútíns forseta stuðning. Pútín forseti hefur vísað því á bug að rannsókn á auðjöfrinum sé sprottin af stuðningi hans við stjórnarandstæðinga. Forsetinn segir að hvergi verði hvikað frá einkavæðingarstefnunni í landinu en lét þess getið að fleiri rússneskir auð- menn gætu þurft að sæta rannsókn og refsingu ef í ljós kæmi að þeir hefðu farið á svig við lög í einkavæðingarferlinu í landinu. Menn ársins Khodorkovsky og Roman Abramovich voru valdir menn ársins afrússneska vikuritinu Expert en það fjallar aðallega um viðskipti og stjórnmál. Khodorkovsky og Abramovich heiðraðir Ekki eru allir á því að Khodorkovsky sé misind- ismaður. Tímaritið Ex- pert kaus hann og ís- landsvininn Roman Abramovich menn ársins í árlegri úttekt blaðsins. Ástæðan er snilli beggja manna við að koma á nú- tímalegum viðskiptahátt- um í Rússlandi. Khodor- kovsky safnaði um sig einvalafólki úr olíubrans- anum og kom olíufyrir- tæki sínu á kortið á undraskömmum ú'ma. Abramovich gerði slíkt hið sama en án þess að styggja æðstu forystu landsins. Báðir þykja framúrskarandi dæmi um hinn nýja ffamsækna Rússa. Abramovich keypti fýrir nokkrum misserum enska knattspyrnuliðið Chel- sea, lið Eiðs Smára Guðjohnsen. Abramovich bauð Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Islands, á knatt- spymuleik Chelsea nýverið í kjölfar þess að forset- inn hafði verið gestur rússneska auðjöfursins í hans heimalandi. Skattayfirvöld segja Yukos hafa vangreitt skatta að upphæð sem nemur fimm milljörðum dala eða tæpum 390 milljörðum íslenskra króna. Einar yfirgefur Siv: Aftur í veðrið „Ég ákvað að slá til og fara aftur á Veðurstofuna úr því þar bauðst, skemmtilegt starf og spennandi verk- efni," segir Einar Sveinbjömsson, veðurfræðingur og fráfarandi aðstoð- armaður umhverflsráðherra. Einar hefúr verið hægri hönd Sivjar Frið- leifsdóttur síðan hún tók við ráð- herradómi vorið 1999 - en hverfur nú til starfa á fyrri vettvangi. Eins og fram hefur komið í DV er nú verið að breyta skipuriti Veðurstof- unnar, sem meðal annars gengur út á að aðskilja þá þætti í starfseminni sem reknir em fyrir opinbert fé ann- ars vegar og hins vegar útselda þjón- ustu. Einar Sveinbjörnsson mun sam- kvæmt nýja skipuritinu stýra sérþjón- ustudeild. Verkefni þessu em ýmiss konar þjónusta og ráðgjöf, svo sem fyrir Ofanflóðasjóð, en einnig koma veðurfræðingar nú að mati á um- hverfisáhrifum framkvæmda. Þá sér „Þettaer búinn að vera góður tími í ráðuneytinu og ég hef átt þess kost að sinna mörgum skemmtUeg- um verkefnum." deildin einnig um veðurspár sem seldar em til fjölmiðla. “Þetta er búinn að vera góður tími í ráðuneytinu og ég hef átt þess kost að sinna mörgum skemmtilegum verkefnum," segir Einar. Hann verður þrátt fyrir brotthvarfið úr ráðuneytínu áfram á kafl í stjórnmálavafstri, m.a. sem bæjarfulltrúi í Garðabæ, auk þess sem hann sinnir trúnaðarstörfum fyr- ir Framsóknarflokkinn. sigbogi@dv.is Einar Sveinbjörnsson Úr ráðuneytinu á Veðurstofuna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.