Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Side 15
J3V Fréttir
MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003 15
,
inni og enn er talsvert verk eftir.
Forseti fslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sendi írönsku þjóðinni
samúðarkveðjur frá íslendingum. í
skeyti sínu áréttaði forsetinn
nauðsyn þess að þjóðir heims
stæðu saman á slíkum neyðar-
stundum og að hjálp bærist nauð-
stöddu fólki sem fyrst.
íslendingar sendu ekki mann-
skap til hjálparstarfa
þar sem talið var að sú aðstoð bær-
ist of seint til að hafa nokkur áhrif.
Flestar aðrar þjóðir létu það ekki
aftra sér og hefur talsvert af nauð-
synlegum búnaði og gögnum
borist til landsins nú þegar. Meðal
þeirra þjóða eru Bandaríkjamenn
en fyrsta bandaríska flugvélin í
áratug lenti með 70 tonn af hjálp-
argögn-
„Fólkið stendur nán-
ast nakið á götum úti,
skjálfandi afkulda."
um í gærmorgun. Söfnun fyrir
fórnarlömb skjálftans er hafin hjá
Rauða krossi íslands. Hægt er að
hringja í söfnunarsíma samtak-
anna 907 2020 og renna þá þúsund
krónur til hjálparstarfsins.
Borgin Bam er ein af vinsælustu
ferðamannastöðum írans og innan
borgarmarkanna er að finna stór
svæði sem eru friðuð og á
heimsminjaskrá Sameinuðu þjóð-
anna. Þar á meðal er 2000 ára
borgarvirki en það skemmdist
illa í jarðskjálftanum. Sérfræð-
ingar hafa þegar verið sendir á
vettvang til að meta tjónið og gera
ráðstafanir til að bjarga því sem
bjargað verður.
„Borgina verður að byggja aftur
alveg frá grunni," sagði Ali Shafiee,
borgarstjóri Bam, eftir að hafa
skoðað skemmdirnar. „Uppbygg-
ingarstarfið mun taka langan
tíma."
albert@dv.is