Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2003, Side 30
* «“ rr'/>r mru nr ni
30 MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2003
Siðast en ekki síst DV
Söng af sér 8 kíló
Birgitta Haukdal segist hafa
sungið af sér 8 kíló. Hún hafi verið
þybbnari áður en frægðin
bankaði upp á enda sæl-
keri og mikið matargat. Stressið
sem fylgi stöðugu tónleikahaldi,
hljómplötuupptökum og því að
sinna og svara aðdáendum sínum
endurspeglist í holdafarinu.
Birgitta viðurkennir þó í samtali
við tímaritið Ský að hún þyngist
alltaf um nokkur kíló þegar hún
fari norður til Húsavíkur og setjist
að í eldhúsinu hjá móður sinni.
Fátt finnst henni betra þar en djúsí
steik og súkkulaði og annað sæl-
gæti í desert.
En lífl sínu lifir hún ekki í eld-
húsinu hjá mömmu heldur í hring-
iðu stórborgarlífsins í Reykjavík.
Þar grípur hún eina og eina pylsu
og notar fáar frístundir til að stinga
upp í sig skyndibita. Þó á hún sér
sínar stundir á frídögum á mánu-
dögum þegar hún fer helst ekki úr
rúmi og pantar kínamat á Ning’s
sem hún borðar uppi í rúmi:
„En ég á eftir að fá mín brjóst og
mjúkar mjaðmir þegar látunum
linnir og það er ekkert að hræðast.
Mér finnst bara fallegt að hafa
hold,“ segir Birgitta Haukdal í
tímaritinu Ský.
Birgitta Haukdal Elskar djúslsteik ieldhús-
inu heima hjá mömmu á Húsavík. Ætlar að
fitna seinna og fá þá brjóst og mjúkar
mjaðmir.
Ha?
Ævintýraleg
taflmennska
Skák
Árlega er haldið minningarmót
um Carlos Torre, sem var fremstur
skákmanna í Mexíkó.
Hrannar Baldursson,
sem búsettur er í landinu, er oftast
með og fékk 4 v. af 9. En úrslitin urðu
óvænt, Yuniesky Quezada frá Kúbu
vann mótið og hér sjáum við hann
máta Rússann Valerij Filippov sem
varð í öðru sæti. Með ævintýralegri
taflmennsku er hægt að ná langt, að-
alatriðið er að halda haus og síðan
að höggva í knérunn þegar við á!
Hvítur á leik!
Hvítt: Yuniesky Quezada (2475)
Svart: Valerij Filippov (2630)
Minningarmót um Carlos Torre
Merida, Mexíkó (4.2), 20.12.2003
46.De7+ 1-0
• Óvissa ríkir um hvort Davíð
Oddsson forsætisráðherra taki
þátt í Kryddsíldarveislu Stöðvar 2
Síðast en ekki síst
sem send verður
út á gamlársdag
eins og venja
segir til um.
Hingað til hefur
Davíð mætt;
reyndar yfirleitt
of seint vegna
anna, en nú gæti
svo farið að
hann mætti alls ekki. Tengja
menn það umræðunni um sam-
þjöppun á eignarhaldi fjölmiðla
sem Davíð hefur áhyggjur af. Þeg-
ar honum mislíkaði við bankana
tók hann peninga sína út. Þegar
honum mislíkar við fjölmiðla
mætir hann ekki. Spennan
eykst...
• Fréttahauk-
arnir af Stöð 2,
þau Brynhildur
Ólafsdóttir og
Róbert Mars-
hall, fjölguðu
um einn á
heimili sínu yfir
hátíðarnar þeg-
ar lítið jólabarn
leit dagsins ljós. Samkvæmt
heimildum DV heilsaðist móður
og barni vel að lokinni fæðingu
en nýbakaður
faðirinn vildi
ekkert tjá sig um
barneignir sínar
við DV þegar
blaðamaður
náði tali af hon-
um í gær...
„Ég fæddist þann 10. nóvember
1973 í Reykjavík, en ólst upp á Sauð-
árkróki. Það var mjög ánægjulegt að
alast upp á „Króknum," við félag-
arnir lékum okkur í fjörunni og á
bryggjunni og fómm í indíánaleik í
Litla-Skógi. Ég held ég hafi oftar vilj-
að vera Indíáni, kannski vegna þess
að þeir em meira andlega sinnaðir.
Einna eftirminnilegast var þegar við
„hoppuðum í hengslunum," eins og
það var kallað. Það myndast snjó-
hengsli þarna í kring á veturna, og ef
maður prflaði upp á þau og hoppaði
hrundu þau og maður sökk á
bólakaf í snjónum. Það slasaðist nú
aldrei neinn þó að við höfum oft ver-
ið heldur svalir, en ég myndi lfldega
harðbanna krökkum þetta ef ég sæi
þá gera þetta í dag.
Ég útskrifaðist úr gagnfræðaskól-
anum á Sauðárkróki árið 1989, og
fór þá í skólaferðalag til Vestmanna-
eyja. Það hvarflaði ekki að mér þá að
ég kæmi til með að vera prestur þar í
framtíðinni. Ég fór svo í mennta-
skólann á Sauðárkróki, og var í rokk-
hljómsveit sem hét Vinir vors og
blóma, sem var þó ekkert skyld
þeirri hljómsveit sem gaf út plötu
hér um árið. Við höfðum keypt okk-
ur hljóðfæri fyrir fermingarpening-
ana, og spiluðum meðal annars á
Ólafsfirði, Blönduósi og Miðgarði.
Ég hætti í hljómsveitinni undir lok
menntaskóla, og ég held að foreldr-
arnir hafl þá verið fremur fegnir. Ég
var ákveðinn að fara í háskólann, og
byrjaði í lögfræði en skipti síðan yfir
í guðfræði og fór að taka þátt í æsku-
lýðsstarfi samfara því.
Trúin óx með tímanum, en ég
kem ekki frá neitt sérlega trúarleg-
um bakgrunni og var ekki skírður
fyrr en rétt áður en ég fermdist.
Náminu lauk ég 2000 og flutti þá
til Vestfjarða þar sem ég var að vinna
verkefni fyrir ísafjarðarbæ, og
kenndi í Menntaskólanum samhliða
því. Báðir foreldrar, eiginkona mín
og tengdaforeldrar eru kennarar,
þannig að það er mikið rætt um
kennslumál í fjölskylduboðum. Ég
hef lært kennslufræði og það hvarfl-
aði að mér að leggja það fýrir mig, en
haustið 2002 fór presturinn á Sauð-
árkróki í barnseignarleyfi, og var
mér þá boðið að gerast afleysinga-
prestur þar. Það hefur sína kosti og
galla að vera prestur í sínum heima-
bæ, en kostirnir eru þó mun fleirí.
Það er gott að vera prestur.
Síðasta haust gerðist ég svo af-
leysingaprestur í Vestmannaeyjum.
Það er mikill kraftur í Eyjamönnum,
og það framkvæmt sem ákveðið er
að framkvæma.
Ég hef verið í Eyjum um jólin að
sinna mínum sóknarbörnum, og
helgihald er mikið og gott. Þó gerð-
ist það í miðnæturmessunni á jóla-
nótt að meðan ég stend upp í púlt-
inu sé ég að eiginkonu minni eru
færð skilaboð, og hún hleypur út.
Ég klára messuna en ímynda mér
allt það versta, eins og að eitthvað
hafi komið fyrir heima. Um leið og
hún er búin flýti ég mér heim, og þá
Lárétt: 1 þjark, 4 áforma,
7 blæja, 8 valsa, 10 velt-
ingur, 12 spil, 13 ær, 14
fuglinn, 15 sefa, 16 tuska,
18 skaði, 21 tryllast, 22
tæmi, 23 hjara.
Lóðrétt: 1 kjarkur, 2
hestur, 3 flækingur, 4
djarft,5 þvottur,6deila,9
töldu, 11 sindur, 16
leynd, 17 lesandi, 19
hlóðir, 20 svelgur.
Lausn á krossgátu
•BQ! oz 'Ois 61 'sæ| l l '|np 91 '||b(6 11 'nme 6 '66e 9
'nej s 'jsne|njQæ y'uejpueg £ 'ssa z 'Jocj lujajQgn -uoj££'!so| zzTseiæ t2'!|sn8L
'e|np 91 'eoj g t 'ueo| y l 'pu!>| £ t 'mu z 1 '66m 01 'esej 8'egæ|s l 'epæ y jajcj t TiaJBi
Ævisaga Séra Fjölnis Ásbjörnssonar Eg útskrif-
aðist úr gagnfræðaskólanum á Sauðarkróki árið
1989, ag fór þá i skólaferðalag til Vestmannaeyja.
kemur í ljós að kviknað hafði í.
Barnapíunni hafði þó tekist að
slökkva eldinn áður en slökkviliðið
kom. Það urðu sem betur fer litlar
skemmdir, og engin slys á fólki, en
þetta rninnir mann á hversu dauðir
hlutir eru lítils virði miðað við fólk
og heilsu.
Veðrið
£4
— w '8 6olaT
Allhvasst d/H,
-7 Nokkur o Nokkur Gola
vindur vindur f
1—‘12V
C. . . JStrakkinaur
„B * * t--\ Allhvasst
5 c jsj-degis
^ -13* ***—
Gola.
Q
3§»
„3 Strekkingur
o
-8
,—
'ij.vtA JMokkur
.5 * * vindur
-2
**■
Allhvasst