Helgarblaðið - 05.06.1992, Qupperneq 9
.mrsttæti
Vonarstrœti
TJðmin
———----
Með bættri leguaðstöðu á Miðbakka mun
stór hluti skemmtiferðaskipa geta lagst að
í gömlu höfninni og þúsundir ferðamanna
stíga ó land í sjólfum miðbænum. Stærri
frystitogarar komast einnig beint að Faxa-
markaði.
Önnur hugmynd um lagningu stofnbraut-
ar er að fara með hana á brú yfir hafn-
armynnið og beina þyngri umferð þann-
ig framhjá miðbænum. Geirsgatan
myndi þá þjóna sem venjuleg miöbæjar-
gata með rólegri umferð.
Gamla höfnin getur rúmað
ýmsa starfsemi. Smábátaút-
gerö, bæði fiskibáta og
skemmtibáta. Útsýnissiglingar
um sundin og Viðeyjarferja
gætu haft aðsetur í gömlu
höfninni í miðbænum. A hafn-
arbakkanum hefur fólk látið
sig dreyma um markaði,
ýmsa þjónustu og jafnvel söfn.
Geirsgatan umdeilda. Stofnbrautin frá Sætúni og vestur Mýrar-
götu sem á að hefja framkvæmdir við á næstunni. Deilt er um
hvort hraðbrautin skeri gömlu höfnina frá miðbænum þar hún
liggur ofanjarðar eftir hafnarbakkanum. Eldri hugmyndum um
að leggja hana i göngum var hafnað vegna kostnaðar.
Skemma Ríkisskipa er til sölu svo ekki er Ijóst
hvaða starfsemi mun fara fram þar.
Yfirbyggð göngubrú frá þriðju hæð Hafnar-
húss, yfir Geirsgötu og niður á Miðbakka á að
tengja miðbæjarstarfsemina og höfnina.
Hafnarhús á að nýta undir miðbæjarstarfsemi
svo sem verslanir, veitingarekstur og gallerí.
Hugmyndir eru um að byggja glerþak yfir
garð hússins.
Grófartorg og Borgartorg gætu orðið
skjólsæl og sólrík torg sem tengdu
göngusvæði og torg miðbæjarins að
Hafnarhúsi og gömlu höfninni.
Hafnar eru framkvæmdir við
að færa Miðbakka út og fá
stóraukið athafnasvæði um
leið og leguaðstaða er bætt.
Strætisvagna- og umferðar-
miðstöð á að rísa austan við
Tollhúsið.
.............................
Jarðhæð Tollhúss gæti nýst
undir ýmsa miðbæjarstarfsemi
í tengslum við höfnina.
Höfn og bær: Pósthússtrætib, Dómkirkjan, Tollhúsiö og gamla höfnin. Nú er deilt um áhrifin sem
stofnbraut þvert yfir hafnarsvæöiö hefur á áætlanir umlifandi tengsl hafnar og mióbæjar og ýmiss
konar miöbæjarstarfsemi á hafnarsvæöinu. Mynd: Kristinn.
Þar með væri sú strönd einnig
vörðuð hraðbraut og Öskjuhlíðin
afkróuð með umferðargötum.
Yfir brú eba
undir jöröu
Á fúndi skipulagsnefndar þann 6.
nóvember 1989 var lögð fram sú
tillaga að Geirsgatan yrði lögð í
jörðu þannig að umferðin frá Sæt-
úni að Mýrargötu um Miðbakka
færi um undirgöng framan við
Hafiiarhús og Tollstöð. Þessi lausn
var samþykkt, þótt kostnaðarsöm
væri, þar eð hún þótti nauðsynleg
til að hægt væri að tengja miðbæj-
arstarfsemi við Austurhöfnina. I
hverfaskipulagi fyrir miðbæinn frá
1990 er hugmyndin um göngin
kynnt sem Hður í tengslum hafhar
og miðbæjar.
En fleiri hugmyndir hafa verið
uppi um legu Geirsgötunnar. Sam-
tökin Gamli miðbærinn lögðu til að
stofhbrautin til vesturs frá Sæbraut
lægju á brú yfir hafharmynnið svo
að hafnarsvæðið sjálft yrði óskert
af völdum umferðar. Gert var ráð
fyrir að brúin lægi á Ingólfsgarði
og yfir í Örfirisey. Þaðan myndi
vegurinn svo tengjast stofnbrautum
vestur á Seltjamames og Hring-
braut. Á leiðinni yfir hafnarmynnið
kæmu hvorki umferðarljós né
hringtorg.
Báðar þessar hugmyndir hafa
verið lagðar til hliðar og samþykkt
að leggja Geirsgötuna ofanjarðar
yfir Miðbakka en að sögn Þorvalds
S. Þorvaldssonar hjá Borgarskipu-
lagi var jafhframt samþykkt að gera
ekkert sem spillti fyrir því að síðar
yrði hægt að setja Geirsgötuna í
jörðu. Guðrún Jónsdóttir arkitekt
telur að brú yfir hafnarmynnið væri
ákjósanlegasta lausnin. Hún bendir
á að þungaflutningar frá atvinnu-
svæðum í Örfirisey fæm þá utan
við miðbæinn og kæmu ekki inn í
íbúðabyggð. Geirsgatan yrði ein-
ungis venjuleg miðbæjargata og
umferð um hana fremur hæg. Guð-
rún vill einnig skoða þessa hug-
mynd í tengslum við áform um
miklar uppfyllingar vestan við
Örfirisey og fyrirhugaða ibúða-
byggð þar. Sú byggð gæti nýtt
stofnbrautina yfir hafnarmynnið til
að komast fram hjá miðbænum.
Brú yfir hafnarmynnið leysir
ekki þann vanda sem Geirsgötunni
er ætlað að leysa að mati Þorvalds
hjá Borgarskipulagi. Hann sagði að
Geirsgatan bæri umferð sem væri á
leið inn í miðbæinn og aðeins lítill
hluti af þeirri umferð væri á leið
hjá. Þorvaldur taldi hins vegar að
brúargerð gæti orðið timabær þegar
búið væri að gera landfyllingar á
grynningunum og skeijunum út ffá
Orfiriseynni og þar risið nýtt íbúð-
arhverfi. „Þá gæti umferð þessa
leiðina orðið áhugaverð," sagði
Þorvaldur.
í svari borgarverkfræðings við
fyrirspum Guðrúnar Jónsdóttur um
brú yfír hafharmynnið segir að
Föstudagurinn 5. júnl
kostnaður yrði mun meiri en við að
leggja Geirsgötuna í göng. Auk
þess er talið að aðdráttaraflið yrði
lítið þar eð leiðin yrði rúmlega ein-
um kílómetra lengri en Geirsgötu-
leiðin. í svarinu segir að þessi lausn
sé augljóslega mun lakari kostur en
Geirsgata í göngum. Því vaknar sú
spuming hví hætt sé við göngin?
Hví ekki göng?
„Það er bara peningamál,“ sagði
Þorvaldur S. Þorvaldsson, „göngin
kosta miklu meira en þessi kynslóð
hefur efhi á að borga svona ofan á
allt annað.“ Hann sagði það einnig
sína persónulegu skoðun að gjámar
sem hlytu að myndast sitt hvom
megin við þessi stuttu göng yrðu
mjög ljótar. „Aðkeyrslan veldur
umhverfisáhrifum sem þarf að at-
huga,“ sagði Þorvaldur.
Guðrún Jónsdóttir telur göngin
mun betri kost en að leggja braut-
ina á hafnarbakkann þar sem hún
skeri þá ekki á tengsl miðbæjar og
hafhar. Hins vegar er Guðrún sam-
mála Þorvaldi um að athuga þurfi
vel hvemig göngin koma upp. Hún
hefúr einkum áhyggjur af því
hvemig göngin gætu komið upp
við Mýrargötuna.
Sjálf hugmyndin um tengsl hafh-
ar og miðbæjar nýtur víðtæks
stuðnings og jafhvel þeir sem tala
fyrir lagningu stofhbrautarinnar eft-
ir Miðbakka telja að tengslin séu
tryggð með göngubrú og þremur
umferðarljósum á svæðinu. Hags-
munaaðilar í miðbæ líta það hýru
auga að fá skemmtiferðaskipin og
aukið líf í tengslum við hafhar-
svæðið. Spumingin er bara hvemig
stofnbraut kemur inn í þessa heild-
armynd: Höfn - hraðbraut - bær.
Lifandi tengsl miðbæjar og hafn-
ar og aðgangur borgarbúa að
strandlengjunni er eitt af verðmæt-
um Reykjavíkurborgar að mati
Guðrúnar Jónsdóttur. Hún vill
halda í þessi verðmæti og óttast að
stofnbrautin á hafnarbakkanum
spilli aðdráttarafli hafnar og mið-
bæjar og skemmi þá möguleika
sem tengslin þama á milli skapa
fyrir endurlífgun miðbæjarins.
Amar Guðmundsson
f * Gisting * Veitingar * Ferðamannaverslun * Bensín og olíur
Mitt á milli Reykjavíkur og Akureyrár
I
Það stansa flestir í Staðarskála. ■ . ■ i 'r
,;S/rAt>Ami\
vSÍ/' Staðarskáli, Hrútafirði, 8-23.30 Tel. (95)11150, Fax (95)11107