Helgarblaðið - 05.06.1992, Síða 12
Helgar
12
blaðið
Allir íslendingar þekkja Eddu-
hótelin þótt ekki hafi allir gist þar
að sumri til. Margir hafa hinsveg-
ar búið þar í heimavist því að hót-
elin 17 eru skólahús á veturna. í
dag, fbstudag, verður 17. hótelið
tekið í notkun cn það er Hótel
Edda á Þelamðrk sem er rétt fyrír
utan Akureyri.
Að sögn Tryggva Guðmundssonar,
forstöðumanns Edduhótelanna, hefur
mikil uppbygging átt sér stað undan-
farin ár þótt hótelunum hafí ekki
fjölgað fyrr en nú. Undanfarin tvö ár
hefur til dæmis verið lög áhersla á að
endumýja 300 rúm. Þar eð flest hót-
elin eru heimavistir og hafa verið
lengi, hafa mörg rúmin verið í styttra
lagi, hönnuð fyrir böm, sagði
Edda á Þelamörk opnuð í dag
Tryggvi. Nú ættu allir að geta teygt
úr sér á Edduhótelunum.
í fyrra gistu 64.000 manns á Eddu-
hótelunum í um 650 gistiherbergjum.
Töluvcrð aukning hefur átt sér stað
undanfarin ár. Flest herbergin eru án
baðs og em stiluð uppá fjölskyldur
að mestu leyti, sérstaklega í verð-
lagningu. Meirihluti gesta cr útlend-
ingar en um 35 prósent em íslending-
ar, sagði Tryggvi.
í sumar verða allskyns ný tilboð í
gangi fyrir íslendinga sérstaklega.
Boðið verður upp á fimmtu nóttina
fría. Þannig að þegar gestur kemur á
hótelið fær hann passa sem hann læt-
ur stimpla í og einnig næstu nótt,
hvort sem það er á sama stað eða á
öðm Edduhóteli. Fyrir fímmtu nótt-
ina greiðir hann ekkcrt. Tryggvi
sagði að þetta væri til dæmis hugsað
fyrir þá sem vildu ferðast lengra og
hentar ágætleg fyrir þá sem fara
hringinn. Venjulega gista menn ekki
lengur en 1 -2 nætur í senn.
Þá er einnig fjölskylduafsláttur af
matseðli en böm upp að fimm ára
aldri fá frítt að borða með foreldrun-
um og böm á aldrinum 6-12 ára
greiða hálft verð. Þá geta foreldrar
tekið böm sín með sér i tveggja
manna herbergi og fengið dýnu undir
þau. Sofi þau í eigin svefnpoka er
þessi þjónusta ókeypis. Uppbúið
aukarúm kostar hinsvegar 800 krón-
ur.
Tryggvi sagði að íslendingar nýttu
sér hótelin betur með árunum enda
Edduhótelin verfta sifellt vinsælli
meóal íslendinga. Hótelib ab
Skógum undir Eyjafiöllum er við
Skógafoss.
lærðu menn það í útlöndum að búa á
hótelum. Það getur verið betra að
bóka herbergi fyrirfram þótt ekki
væri nema daginn sem lagt er af stað.
Það er stundum fullt á vii
hótelunum þar sem útlendingar'
sig og gera það langt ffarn í tiinahna.
Best getur verið að ferðast í júni þvi
mest ásókn er í hótelin í júlí og firam-
an af ágúst.
Tveggja manna herbergi með
handlaug kostar 4.000 kr. nóttin og
fylgi bað herberginu kostar það 5.800
la. Fyrir einsmannsherbergi er gjald-
ið að sama skapi 3.000 og 4.200 kr.
Þriggja manna herbergi kostar 4.800
kr. Svefhpokapláss kostar frá 700 kr.
og uppí 1.200. Og fyrir morgunverð
þarf að greiða 700 kr.
Ferðaskrifstofa íslands rekur
Edduhótelin en fyrirtækið er að
tveimur þriðju hlutum í eigu starfs-
manna sem keyptu hlutinn af ríkinu
þegar Ferðaskrifstofu ríkisns var
breytt í hlutafélag árið 1988.
Valkyrjur og andapollur
Fólk villist stundum af
þjóðvegi 1 inná þjóðveg 97
og hafnar þá gjaman á
Reyðarfirði. Þar geta ferða-
mennimir veitt í Andapoll-
inum og síðan heimsótt val-
kyrjumar sem reka Val-
kyrjukrána á staðnum. Hún
verður reyndar ekld opnuð
fyrr en 13. júní - en það
styttist nú óðiun í það.
Reyðarfjörður er að komast á
ferðamannakortið og það má
þakka frægð Andapollsins. Að
sögn Gunnars Jónssonar, sem
starfar á skrifstofu hreppsins, var
laxaseiðum sleppt í lænu fyrir utan
bæinn og í fyrra var farið að selja
veiðileyfi á stað sem er kallaður
Andapollurinn. Þetta varð óhemju
vinsælt meðal innlendra ferða-
manna en á Reyðarfirði er ferða-
mannaþjónustan stíluð upp á ís-
lendinga. Andapollurinn kom
staðnum sem sagt á kortið.
Við stefnum að því að fólk
dvelji hér í 5-6 tíma á daginn en
ekki bara rétt yfír blánóttina, sagði
Elísabet Benediktsdóttir, ein Val-
kyijanna í bænum. Ein forsenda
þess að menn staldri við í bænum
er að þar sé fyrir hendi veitinga-
sala en einsog í flestum þorpum
hringinn í kringum landið er tjald-
stæði á staðnum.
Ur þeirri brýnu þörf ferðamanna
að næra sig ætla Valkyrjumar að
bæta. Þær opna á laugardaginn eft-
ir viku Valkyrjukrána þar sem
verður hægt að kaupa sér mat og
vín. Þetta verður fyrsti staðurinn
sinnar tegundar á Reyðarfirði.
Þjónustan er hugsuð jafnt fyrir
ferðamenn sem heimafólk. Það eru
fjórar konur sem standa að þessum
veitingarekstri: Valkyijur hf.
Eklci nauðugt
ánægt
Einnig verður farið af stað með
matsölu og jafnframt annarskonar
upplyflingu.það er að segja dans-
leikjahald með hljómsveitinni
Upplyftingu á opnunarkvöldinu.
Sem sagt alhliða skemmtun í Val-
kyrjukránni.
Elísabet sagði að hingað til hefði
ekkert verið gert fyrir ferðamenn
sem hefðu slæðst til bæjarins.
Fyrsta skrefið er þetta sem gert
hefiir verið en auðvitað er ætlunin
að halda fólki enn lengur á staðn-
um en 5-6 tíma, það er bara byij-
unin. Það er heldur ekki ætlunin að
halda fólki nauðugu, heldur
ánægðu.
í sumar verður einnig bryggju-
hátíð á Reyðarfirði en það er
tveggja daga hátíð og mjög
skemmtilegt fyrirbæri, sagði Elísa-
bet. Fengnir verða trúbadúrar úr
Reykjavík og hljómsveitir auk inn-
fæddra skemmtikrafta. Boðið
verður uppá harmónikutónlist og
það verður dansað á bryggjunni.
Elísabet sagði að það hefði verið
mikil vakning í bænum undanfarið
um að gera eitthvað í ferðamálum.
Þar væri veitingasala og gisting
forsendan áframhaldandi starfs.
Valkyrjumar spruttu upp úr at-
vinnuátaki á staðnum. Astæðuna
fyrir þessari vakningu sagði Elísa-
bet vera margt fólk á aldrinum 30-
50 ára auk þess sem fyrirtæki á
staðnum þörfnuðust menntaðs
fólks. Því fylgir ýmis önnur starf-
semi. Þá sagði Elísabet að bærinn
væri í rífandi vexti, síðastliðið ár
fjölgaði bæjarbúum um 2,5 prósent
og eitthvað svipað árið áður.
Valkyrjur
Það er ekki að ástæðulausu sem
konumar fjórar taka upp Valkyiju-
nafnið. Þær minna á upprunalegt
hlutverk valkyijanna og ætla sér
ekki að verða eftirbátar þeirra.
Valkyijumar vora í þjónustu Oð-
ins og þær réðu úrslitum á vígvell-
inum, sagði Elísabet. Þær völdu þá
sem dóu, fóra með þá til Valhallar
og þjónuðu víkingunum þar. Val-
höll er paradís fólks með víkinga-
blóð í æðum þannig að þær fjórar á
Reyðarfirði ætla sér ekki lítið hlut-
verk.
Ferðir ferða-
félaganna um helgina
Um hvítasunnuhelgina
verður Ferðafélag íslands
með ferðir á Snæfellsnes, á
Öræfajökul, í Skaftafell og
Þórsmörk. Utivist verður
með ferðir í Bása og á Ör-
æfajökul líka.
FI minnist þess um helg-
ina að 60 ár era liðin ffá því
félagið skipulagði sína
fyrstu ferð á Snæfellsnes og
á jökulinn. Gist verður að
Görðum í Staðarsveit. í
ferðinni Öræfajökull- Krist-
ínartindar-Morsárdalur verð-
ur gengið á Hvannadals-
hnjúk. Gist verður á Hofi
(svefnpokapláss) eða í tjöld-
um. Þá verður einnig ferð í
Þórsmörk er vinsæl og þrátt fyrir að Húsadalur sé
lokaður má tjalda i Langadal einsog þessi stúlka hefur
gert. Hvaá er islenskara en tjaldútilega?
Skaftafell þar sem gengið
verður um þjóðgarðinn,
einnig gist að Hofi. í Þórs-
merkurferð félagsins verður
gist í Skagfjörðsskála í
Langadal og farið í göngu-
ferðir um Mörkina. Hægt
verður að fara heim hvort-
tveggja á sunnudag eða
mánudag. Einnig er i boði
einsdagsferð á hvítasunnu-
dag.
Utivist verður með ferð í
Bása í Þórsmörk og verður
gist í skála félagsins þar. Þá
verður ferð á Öræfajökul og
geta menn tekið með sér
gönguskíði ef menn eiga.
Þar verður gist í tjöldum.
Báðar ferðimar standa frá
föstudegi ffam á mánudag.
Básaferðin kostar kr. 5.900
fyrir félagsmenn en 6.500
fyrir aðra. Þetta er sama
verð og um venjulega helgi.
Öræfajökulsferðin kostar
8.900 fyrir félagsmenn og
9.800 fýrir hina. Því er lofað
að gönguhraðinn á jökulinn
verði ekki meiri en svo að
allt venjulegt fólk geti tekið
þátt göngunni.
Áferd um
Suðurland kynnastferdcunenn einhverri
margbrotnustnfegurd landsins í Þjórsárdal
HEKLA - GJÁIN - HÁIFOSS - HJÁLP
Gönguleið um LAXÁRGLJUFUR
LANDNÁMSBÆRINN STÖNG - BÚRFELLSVIRKJUN
Stutt er til LANDMANNALAUGA og VEIÐIVATNA
FÉLAGSHEIMILIÐ ÁRNESI
Býður ykkur velkomin til að njóta alls þessa. Vekjum
athygli á góðri staðsetningu, aðstöðu og þjónustu.
* Nýtt gistiheimili með 10 tveggja manna herbergjum
* Uppbúin rúm, hreinlætis- og eldunaraðstaða
* Svefnpokapláss íyrir allt að 40 manns
* Tjaldstæði
* Heitir pottar og góð snyrtiaðstaða
* Leiktæki og íþróttaaðstaða
* Nýlenduvöruverslun og bílaverkstæði
* Breytt fyrirkomulag á veitingum. Aðeins opið fyrir
hópa sem hafa pantað.
FÉLAGSHEIMILIÐ ÁRNESI
Síðasti áningastaðurfyrir Sprengisandsleið
Símar 98-66044 og 98-66048
NJÓTTU ÞESS AÐ VERA TIL!
Komdu á Selfoss um hvítasunnuna og taktu þátt í Sunnusœlunni með okkur!
*Við bjóðum gistingu í sumarhúsum, þrjór nœtur í 2 m. stúdíóíbúðum með uppbúnum rúmum....
‘Fjölskyldutilboð d tjaldsvœðinu
‘Morgunverðarhlaðborð ‘Hestaferð í sveitinni ó laugardag, 2 klst 600 kr. á mann
*Grillveisla ó laugardagskvöld
‘Dansleikur með "Skrlðjöklum" eftir miðnœtti ó sunnudagskvöld 1.500 kr. á mann . Fordrykkur innifalinn
*Frítt í sundlaugina og heitu pottana!
hóPet SELFOS5 Eyrarvegi 2 Sími 98-22500 v/Engjaveg sími 98-22999
4