Helgarblaðið - 05.06.1992, Qupperneq 18
Helgar 18 blaðið
Garðrunnar sem gefast vel
t síðasta pistli gat ég nokkurra
trjátegunda sem þola vel ís-
lenska veðráttu. Nú held ég
áfram á sömu braut og tíni til
runnagróður sem búinn er
sama þoli. Garðar byggjast
ekld upp af trjánum einum
saman. Það þarf lægri trjágróð-
ur til að mynda þá umgjörð og
það skjól sem við viljum hafa
við hús okkar. Listinn er ekki
tæmandi en þetta er góð byrj-
un. Síðar er hægt að velja við-
kvæmari og ef til vill stásslegri
tegundir.
Kínakvistur Spiraea gemmata
Hávaxinn og spengilegur runni
með fínlegu laufi og sveigðum
greinum sem þaktar verða hvítum
blómsveipum á miðju sumri.
Blómgast á ársgamlar greinar.
Harðgerður runni sem vel getur
hentað við sumarbústaði ekki síður
en í heimagörðum.
Loðkvistur Spiraea mollifolia
Loðkvistur er afar nettur og form-
fagur runni með fagurlega sveigðum,
allt að tveggja metra háum greinum
sem þekjast hvítum blómasveipum
um mitt sumarið. Laufin eru fremur
smá með silfurglitrandi silkiló báð-
um megin. Loðkvistur er harðgerður
og dafnar vel í ræktaðri, vel fram-
ræstri garðmold á sólríkum stað i
garðinum.
Rósakvistur ‘Alpina’
Spiraea x japonica var. alpina
Dvergvaxinn smárunni. Afar blað-
fallegur, blómsæll og harðger. Blóm-
in fjólurauð í sveipum á nýjum
greinum. Nýr vöxtur eflist ef runninn
er klipptur niður snemma á vor-
Léttu
þér störfin
6 manna ELFA-DELCA uppþvottavélin
kostar aðeins 33.155,- stgr.
Tekur borðbúnað fyrir 6 - þurrkar, skammtar
sjálf þvottaefni. 7 kerfi. Getur staðið á borði,
má einnig byggja inn í skáp.
íslenskar leiðbeiningar.
Greiðslukjör.
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, símar: (91) 622900 og 622901 - Næg bílastæði
Áætlun Hríseyjar-
ferjunnar Sævars
Hrísey - Árskógssandur - alla daga.
Frá Hrísey: Frá Árskógssandi:
kl. 09:00
11:00
13:00
15:00
17:00
19:00
21:00
23:00
kl. 09:30
11:30
13:30
15:30
17:30
19:30
21:30
23:30
Áætlun Sævars er á Árskógssand sem er við leið
82, 35 km. norðan Akureyrar. Sigling tekur 15
mínútur. Yerið velkomin.
Farsímanúmer Sævars er 985-22211.
Upplýsingar um áætlun í síma 96-61797.
in.Dafnar best i sendnum, frjóum
jarðvegi á sólríkum stað. Borgar vel
fýrir létta áburðargjöf og ríkulegan
búfjáráburð.
Sigurkvistur Spiraea x
sigurkvistur
Laglegur runni með útsveigðum
greinum. Ber hvít bióm á ársgamlar
Hafsteinn
Hafliðason
greinar í júní. Harðger og blaðfalleg-
ur. Dafnar best í vel ræktaðri mold á
sólrikum stað en þolir samt nokkum
skugga af öðrum trjágróðri.
Birkikvistur Spiraea x
birkikvistur
Gamalkunnur og vinsæll kvistur
sem dafnar prýðisvel um allt land.
Lágvaxinn og þéttur með fagur-
grænu laufi og hvítum blómsveipum
á ársgömlum greinum. Haustlitir
einkar fjölbreyttir og fallegir. Dafnar
best í góðri garðmold á sólríkum
stað. Launar vel fyrir búfjáráburð ár-
lega og skiptingu fimmta til sjötta
hvert ár.
Bogsýrena Syringa reflexa
Allt að þriggja metra hár runni
með útsveigðar, gráleitar greinar.
Blöðin eru aflöng og oddhvöss,
dökkgræn að ofan en grágræn og ló-
hærð neðantil. Blómin eru í skúfum,
rauðleit að utan en allt að því hvít að
innan með daufri sýrenuangan.Dafn-
ar sæmilega og blómgast bærilega
víða um land ef ekki skortir vætu,
kalk og kalíum í jarðveginn. Skelja-
sandur og ríflegir skammtar af sauð-
ataði í kring um runnana ávaxta sig
ríkulega þegar bogsýrena á í hlut.
Gljásýrena Syringa josikaea
Stórvaxinn runni, oft 4-5 metra
hár, með sterklegum greinum. Blöð-
in eru gróf og giansandi dökkgræn.
Blómgast upp úr miðju sumri með
stórum rauðfjólubláum blómskúfúm
á öllum greinaendum. Afar tilkomu-
mikil þegar hún er í blóma. Harð-
gerð og þolin planta sem dafnar best
í djúpum, vel ræktuðum jarðvegi
sem ekki má skorta kalk.
Skógartoppur Lonicera
periclymenum
Skógartoppur er klifúrrunni með
gagnstæðum, tungulaga, blágrænum
laufblöðum og gulleitum ilmsætum
blómum í stórum klösum þegar líður
á sumarið. Þarf lóðrétta vírþræði til
að klifra upp eftir. Notið ekki gam
eða grindur sem burðarás fyrir skóg-
artopp. Einungis vírstrengir sem
strekktir em tryggilega með 20 sm
millibili og um 15sm frá veggjum
em nægilega traustir fyrir þunga
hans. Skógartoppur getur líka klifrað
upp eftir öðmm trjám og blómstrað í
krónum þeirra, trjánum að meina-
lausu. En til þess þarf að leiða grein-
ar skógartoppsins upp eftir trjábolun-
um þar til þær hafa náð taki á tijá-
greinunum af sjálfsdáðum. Skógar-
toppur blómgast aðeins á greinar
sem orðnar em tveggja ára eða eldri.
Þess vegna verður að klippa þær
með varúð fyrstu árin.
Skógartoppur er harðgerður og
dafnar vel í frjórri garðmold. Hann
þolir skugga en kemur sér oftastnær
sjálfúr upp í sólskinið. Fallegur og
blómsæll mnni sem verðskuldar alla
fyrirhöfn.
Dúntoppur Lonicera
xylosteum
Skuggþolinn, allhraðsprottinn, gi-
sinn og grófvaxinn mnni með
gróskumiklu laufi og gulleitum smá-
blómum.Stundum koma rauð ber á
runnana þegar haustar. Þau era
einskis nýt til manneldis og ögn eitr-
uð en vinsæl af þröstunum.
Dúntoppur er afar harðgerður og
nýtist vel sem undirgróður í skjól-
belti og skógarlundi með stálpuðum
tijám. Hann þrífst vel í allskonar
þurrlendi en miður þar sem jörð er
deig. Agætur til að fylla leiðinleg,
skuggaskot í görðum.
Blátoppur Lonicera caerulea
Rúmlega eins metra hár mnni með
mörgum grönnum greinum. Afar
þéttvaxinn og nettur sé honum hald-
ið við með klippingu reglulega, en
getur annars orðið gisinn og gleiður
með aldrinum. Laufið er frísklega
dökkgrænt og oftast örlar fyrir blá-
leitri slikju á því. Blómin em ljós,
lítil og óvemleg, berin em smá og
blá.
VESTNORRÆNT KVENNAÞING 1992
F0ROYAR • ÍSLAND • KALAALLIT NUNAAT
Á EGILSSTÖÐUM
20. - 23. ÁGÚST
Yfírskrift þingsins er
Vinnumarkaðurinn,
en jafnframt hefur hver þingdagur sérstakt þema:
Föstudagur: Vinnumarkaðurinn og menntun.
Laugardagur: Hafið - Umhverfismál.
Sunnudagur: Konur og möguleikar þeirra til áhrifa.
Auk hefðbundinna þingstarfa verða fyrirlestrar og kynningarbásar
frá ýmsum félagasamtökum, menningardagskrá, íþróttir fyrir alla
og margt fleira.
Þátttökueyðublöð liggja frammi hjá Jafnréttisráði, Laugavegi 13,
101 Reykjavík, ASÍ, Grensásvegi 16a, BSRB, Grettisgötu 89,
Ferðamiðstöð Austurlands á Egilsstöðum, auk bæjarskrifstofa á
eftirtöldum stöðum: Keflavik, Akranesi, ísafirði, Blönduósi,
Akureyri, Neskaupsstað, Höfn Hornafirði, Vestmannaeyjum,
Selfossi.
Hægt er að fá nánari upplýsingar og eyðublöð send frá
Jafnréttisráði, símar 91-27877 og 91-27420.