Helgarblaðið - 05.06.1992, Qupperneq 19
Helgar 19 blaðið
Otrúlegur en sætur sigur
„Fótboltinn er skrítin íþrótt,“ sagði Ás-
geir Elíasson, þjálfari íslenska landsliðs-
ins, eftir að liðið hafði borið sigurorð af
því ungverska í forkeppni HM i Búdapest
í íyrradag, 2:1.
Þrátt fyrir aragrúa færa tókst Ungveij-
um ekki að nýta sér nema eitt á sama tíma
og landinn nýtti sín og uppskar óvæntan
sigur fyrir vikið og það á útivelli. Slíkt
mun ekki hafa gerst siðan 1980 þegar
leikið var ytra gegn Tyrkjum. Sigurinn
gegn Ungveijum var því kærkominn og
hlýtur að efla landsliðsmennina til enn
frekari dáða. Mörk íslands skoruðu þeir
Þorvaldur Örlygsson og Hörður Magnús-
son sem kom inná sem varamaður í stað
fyrirliðans Sigurðar Grétarssonar, þegar
um hálftími var eftir af leiknum.
Sannast sagna var upphaf leiksins ekki
beysið af Islands hálfú og var alveg ótrú-
legt að sjá til leikmannanna á vellinum.
Sendingar rötuðu ekki rétta leið og sjálfs-
traustið virtist lítið sem ekkei:. Ur því
rættist þó í seinni hálfleik þótt hurð skylli
oft nærri hælum við íslenska markið. Áð
öðrum leikmönnum ólöstuðum var Birkir
Kristinsson markvörður hetja liðsins og
sannaði það og sýndi að hann er besti
markmaður landsins.
Næstu leikir íslands í forkeppni HM
verða ekki fyrr en í byijun október þegar
Grikkimir koma og ytra viku seinna gegn
Samveldi sjálfstæðra ríkja. Samkvæmt
mótaskránni áttu Islendingar heimaleik
gegn Júgóslövum í byijun september en
vegna refsiaðgerða Öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna gegn Serbum og útilokun
þeirra á alþjóðlegum mótum, virðist sá
leikur vera úr sögunni.
Markahrók-
urinn Hörö-
ur Magnús-
son var
ekkert að
tvinóna vió
hlutina þeg-
ar hann
fékk tæki-
færi til a&
sýna sig og
sanna ó
Nep-leik-
vanginum i
Búdapest.
Mynd: Kristinn.
Knattspyrnuveisla sumarsins
Landslió Frakka og Englendinga ver&a í sviósljósinu ósamt landslióum sex annarra þjóóa ó Evrópu-
móti landslióa sem fram fer í Sviþjóó dagana 10. - 26. júni næstkomandi.
Þessa og næstu daga flykkj-
ast evrópskir knattspymu-
áhugamenn tíl Svíþjóðar því
næstkomandi miðvikudag,
10. júní, hefst þar Evrópu-
mót landsliða í knattspymu.
Opmmarleikur mótsins verð-
ur viðureign Svía og Frakka í
Stokkhólmi.
Alls taka átta landslið þátt í mót-
inu og verður leikið í tveimur riðl-
um. Auk Svía og Frakka em i fyrsta
riðli Englendingar og Danir, en þeir
síðastnefhdu tóku sæti Júgóslava
sem var vikið úr keppninni. í hinum
riðlinum em Hollendingar, Þjóð-
veijar, Samveldi sjálfstæðra ríkja og
Skotar. Liðin í fyrsta riðli leika í
Stokkhólmi og í Malmö en í hinum
riðlinum verður leikið í Gautaborg
og Norrköping. Undanúrslitaleikim-
ir verða síðan spilaðir í Stokkhólmi
og Gautaborg. I síðastnefhdu borg-
inni fer svo fram sjálfúr úrslitaleik-
urinn. Eins og sjá má af þessu verða
þama samankomin helstu landslið
álfúnnar þótt einhveijir kunni að
sakna landsliða Italíu, Spánar og
Belgíu, sem ekki náðu að tryggja sér
þátttökurétt í forkeppninni.
Á Evrópumótinu verða leiknir alls
fimmtán leikir og þar af verða þrett-
án sýndir í beinni útsendingu í Sjón-
varpinu og upptökur frá tveimur
leikjum. Það verður því af nógu að
taka á skjánum þann rúma hálfa
mánuð sem keppnin varir, en henni
lýkur fostudaginn 26. júní.
Jöfn keppni
Við fyrstu sýn mætti ætla að
Frakkland og England ættu greiða
leið í undanúrslitin úr sínum riðli
þar sem fyrirfram er ekki búist við
miklu af heimamönnum og Dönum
sem mæta til leiks án mikils undir-
búnings. Hins vegar er aldrei hægt
að afskrifa Svíana sem hafa það um-
fram hin liðin að þeir leika á heima-
velli. Frakkamir verða að teljast sig-
urstranglegastir í riðlinum og nægir
í því sambandi að minna á gengi
þeirra í forkeppninni þar sem þeir
unnu í sínum riðli með fúllu húsi
stiga. Þá eiga Englendingar einnig
að hafa alla burði til að ná langt.
Hvað hinn riðilinn varðar er það
nokkum veginn morgunljóst að nú-
verandi Evrópumeistarar, Hollend-
ingar, og núverandi heimsmeistarar,
Þjóðveijar, munu komast áffarn í
undanúrslitin. Annað teldist til
meiriháttar tíðinda í knattspymu-
heiminum og verulegt áfall fyrir
þessar þjóðir. Þótt landsliði fyrrum
Sovétrikjanna hafi vegnað vel á
knattspymuvellinum hafa miklar
breytingar orðið þar eystra og líklegt
að það muni hafa einhver áhrif á
getu þess liðs sem nú leikur undir
nafni Samveldis sjálfstæðra ríkja.
Fyrir Skota er það áfangi út fyrir sig
að hafa komist til Svíþjóðar en ekki
er búist við því að þeir verði öðrum
liðum fjötur um fót. Engu að síður
þykir nokkuð ljóst að Evrópumótið
verður keppni mjög jafnra liða þar
sem ekkert má útaf bera ef ekki á
illa að fara. Þar mun því reyna á út-
sjónarsemi og reynslu leikmanna
með það í huga að enginn leikur er
tapaður fyrr en flautað er til leiks-
loka.
Við undirbúning liðanna hefur
það háð þjálfúrum sumra þeirra
hvað þeir hafa haft skamman tíma
til að stilla saman strengina. Þar
vegur þyngst að margir af máttar-
stólpum landsliðanna átta em ný-
búnir eða rétt að ljúka erfiðu keppn-
istímabili með sínum félagsliðum.
Mörgum er það kannski enn í fersku
minni hvað hollensku snillingamir,
Marco van Basten, Rijkaard, Gullit
og Koeman virkuðu þreyttir og
þungir í síðustu heimsmeistara-
keppni og svo var um fleiri máttar-
stólpa í öðrum liðum.
Þótt flestir knattspymuáhuga-
menn séu seinþreyttir til vandræða
hafa sænsk stjómvöld mikinn við-
búnað vegna keppninnar til að
tryggja að allt fari eftir settum regl-
um, jafnt innan vallar sem utan.
Meðal annars verða leikmenn lyfja-
prófaðir eftir hvem leik og verða
tveir leikmenn úr hveiju liði prófað-
ir. Jafnframt hafa sænsk stjómvöld
haft nána samvinnu við ensk, þýsk
og hollensk yfirvöld til að koma í
veg fyrir að þarlendir óeirðaseggir
komist til Svíþjóðar.
Þessi viðbúnaður og margt annað
sem huga þarf að við undirbúning
Evrópumótsins, sem og sjálft móts-
haldið, kostar auðvitað dijúgan
skildinginn. Engu að síður er það
mat heimamanna að sá kostnaður
muni skila sér til baka og gott betur.
Þá binda sænsk ferðamálayfirvöld
miklar vonir við Evrópumótið og
sérstaklega við þá auglýsingu sem
Svíþjóð mun fá i umfjöllun evr-
ópslö'a fjölmiðla um keppnina. Enda
hafa Svíar lagt metnað sinn i að gera
mótshaldið sem veglegast og að það
gangi eins hnökralaust fyrir sig og
kostur er.
-grh
Toppliðin nyrðra
Þvert ofan í allar spár tróna
Akureyrarliðin Þór og KA á
toppi 1. deildar karla í knatt-
spymu eflir að leiknar hafa
verið tvær umferðir af átján.
En eins og kunnugt er þá
var þessum liðum spáð falli
í upphafi mótsins.
í þriðju umferð, sem hefst á
mánudaginn, annan í hvítasunnu,
verður stórleikur nyrðra þegar topp-
liðin Þór og KA mætast. Þar mætast
án efa stálin stinn því fátt þykir
betra í röðum beggja en að vinna
sigur i innbyrðis viðureign.
Af öðrum leikjum í þriðju umferð
má nefna að Skagamenn fá Framara
í heimsókn. Þetta verður fyrsti
heimaleikur þeirra gulklæddu í 1.
deildinni í sumar og því mjá búast
við mikilli stemmningu á Skagan-
um, þótt það skyggi eitthvað á gleði
heimamanna að Sigurður Jónsson
verður í leikbanni. Eflir háðulega
útreið gegn Þór Ak. i fyrstu umferð,
1:0, tóku Framarar sig saman í and-
litinu gegn KR á dögunum og rúll-
uðu yfir Vesturbæjarliðið í Laugar-
dalnum, 3:1.
Á mánudaginn mætast einnig
Víkingar og Valsmenn í Stjömu-
grófinni og trúlega vilja Víkingar
hefha ófaranna frá því síðast þegar
þessi lið mættust í Meistarakeppni
KSI. Þá léku Valsmenn sér að Is-
landsmeisturunum og unnu verð-
í fyrstu tveimur umfer&um
1. deildarinnar i knattspymu
hafa veriB skoruB 29 mörk
sem lofar gó&u fyrir fram-
haldiö. Mynd: Kristinn.
skuldaðan sigur. Þá fá
FH-ingar ÍBV í heimsókn
í Kaplakrika. Þar er að
duga eða drepast fyrir
Eyjamenn sem em enn án
stiga þrátt fyrir að hafa
leikið fyrstu tvo leiki sína
heima í Eyjum. Þriðju
umferð lýkur svo þriðju-
daginn 9. júní þegar KR-
ingar fá Breiðablik í
Frostaskjólið. Vesturbæj-
arliðið hefur aðeins fengið
eitt stig úr fyrstu tveimur
leikjunum en Breiðablik
ekkert.
Þá hefst þriðja umferð í
2. deild á morgun, laugar-
dag, með leik Víðis í Garði og BÍ.
Umferðinni lýkur svo á annan í
hvítasunnu með leikjum Sjömunnar
og Fylkis, Grindavíkur og Selfoss,
Leifturs og Þróttar R. og ÍR og
Keflvíkinga. Fyrir umferðina er
Fylkir og Þróttur R efst í deildinni
með sex stig og hafa unnið báðar
sínar viðureignir til þessa.
1. DEILD
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ÞÓR 2 2 0 0 2:0 6
KA 2 1 1 0 5:3 4
FH 2 1 1 0 5:4 4
VALUR 2 1 1 0 3:2 4
FRAM 2 1 0 1 3:2 3
VÍKINGUR 2 I 0 1 2:3 3
ÍA 2 0 2 0 3:3 2
KR 2 0 1 1 3:5 1
ÍBV 2 0 0 2 2:4 0
UBK 2 0 0 2 1:3 0
Föstudagurinn 5. júní