Dagblaðið - 09.09.1975, Síða 2
2
Dagblaðiö. Þriðjudagur 9. september 1975
Spurning
dagsins
Hvernig lizt þér á nýja blaðið?
Halldór Ormsson starfsm.
Reykjavikurborgar: Var nú að fá
það og er ekki farinn að spekúlera
mikið i þvi. Lizt samt nokkuð vel
á það.
Páll Agúst Ásgeirsson skólanem-
andi:Ekki alveg byrjaöur að lesa
það þvi ég er nýbúinn að kaupa
það og er að lesa i þvi. Er samt
nokkuð spennandi blað.
Ilólmfriður Gisladóttir, i skóla:
Ég er nú ekki búin að lesa mikið i
þvi, en mér finnst það dálitið likt
Visi.
Agnes Þórólfsdóttir, vinnur á
Hressingarskálanum: Mér lizt
nokkuö vel á blaðið þaö sem að ég
hef séð af þvi. Uppsetningin góð
og annaö.
Jónas Bjarnason, háskólanemi:
Minnir mig dálitið á gamla Visi,
t.d. formið. Er samt ekki farinn
til að lesa það.
Gestur Fanndal, Siglufirði: Bara
séð öftustu siðurnar og virðist
mér það i heildina engar breyt-
ingar frá öðrum blöðum og mjög
svipað. Gaman að sjá sem mest
og mikið af fréttum. En gætið
þess að verða aldrei hræddir við
valdið.
AUKINN STUÐNING VIÐ
Byrgið brunninn, óður
en barnið dettur
í hann!
gætu borgaryfirvöld, að gera
eitthvað i sambandi við þetta
hús. Nú er tækifæri til að byrgja
brunninn, áður en barnið dettur
i hann!
Að lokum vil ég lýsa ánægju
IÞROTTAHREYFINGUNA
minni með DAGBLAÐIÐ. Það
var kominn timi til, að frjálst og
óháð fréttablað liti dagsins ljós.
Knattspyrnuunnandi skrifar: landsliðsins i knattspyrnu hefur kitlar alltaf stolt landans, þegar
Frábær frammistaða islenzka verið öllum ánægjuefni. Það okkur gengur vel i keppni við
stórþjóðir. Menn verða að gera
sér grein fyrir þeirri miklu
vinnu, sem liggur að baki. Þrot-
lausar æfingar, vinnutap, að
ekki sé minnzt á konur þessara
manna, sem verða að láta sér
nægja að sitja heima, meðan
mennirnir eru á æfingum eða i
keppni.
öllu þessu fórna þeir fynr
ánægjuna af iþrótt sinni.
Þess vegna verður hið opin-
bera að koma miklu meir til
móts við iþróttahreyfinguna en
hingað til. Og forystumenn
þjóðarinnar ættu að gera sér
grein fyrir, að þessi stuðningur
skilar sér aftur. Allir þekkja
máltækið, „Heilbrigð sál i
hraustum likama.”
Með auknum hróðri islenzka
landsliðsins i knattspyrnu hefur
átt sér stað þróun, sem verður
að sporna við. Nú þegar hafa
þrir islenzkir iandsliðsmenn
gerzt atvinnumenn. Fleiri hafa
hug á að fara út i atvinnu-
mennsku. Þess vegna verðum
við að styðja betur við bakið á
þeim, a.m.k. svo þeir freistist
siðurúti atvinnumennsku. Allir
þekkja reynslu Dana, hins veg-
ar hefur Svium tekist betur að
halda i sina menn. Við megum
ekki láta ræna öllum okkar
beztu knattspyrnumönnum.
Styðjum við bakið á þeim!
Frá landsleik Belgiu og tslands. Elmar Geirsson I baráttu við varnarmenn Belga.
Raddir
lesenda
Enga lykkju!
Kona i vesturbænum simaði:
Aldeilis er það furðulegt, að
litla húsið vestur á Hringbraut,
rétt hjá Jóni Loftssyni, skuli
ekki hafa verið fjarlægt fyrir
löngu. Húsið er stórkostleg
slysagildra, þar sem það trónir
út i miðja Hringbrautina. Það
gjörsamlega byrgir allt útsýni.
Um daginn var ég að keyra
austur Hringbraut, ásamt dótt-
ur minni, þegar allt í einu svin-
aði fyrir mig stór vörubill.
Skipti engum togum, ég lenti
upp á eyjunni. Til allrar mildi
varð ekkert slys, né skemmdist
billinn.en þarna hefði getað far-
iö illa, jafnvel orðið stórslys. Ég
vil eindregið hvetja okkar á-
Lesandi hringdi:
A að svikja loforðið um Foss-
vogsbraut? A að senda Breið-
hyltinga suður fyrir Kópavog, ef
þeir ætla að fara vestur á Sel-
tjarnarnes? Þvi verður ekki
trúað að óreyndu að ráðamenn
séu svo blindir, að þeir geri
slika vitleysu.
Nýleg könnun F.f.B. sýndi að
það kostar 30 kr. að aka hvern
kilómetra, og sé farið suður
fyrir Kópavog eykst vegalengd-
in um þrjá km. Nú skulu þessir
háu herrar byrja að reikna, ég
læt þeim það eftir. Það þarf ekki
lærðan mann til að sjá aö Foss-
vogsbrautin er arðbær fram-
kvæmd. Maður hlýtur að velta
þvi fyrir sér, hvort ráðamenn
Hti á Breiðhyltinga sem eins-
hvers konar annars flokks borg-
ara. Ég er a.m.k. viss um, að
Birgir fsleifur og Geir væru ekki
hressir yfir slikum krók. Það
hlýtur að vera lágmarkskrafa
ibúa Breiðholts, að vegur verði
lagður upp i Hólahverfi, sem
tengist fyrirhugaðri Fossvogs-
braut.
RADDIR LESENDA
BLABID
Hringið, skrifið eða komið! Þeir lesendur
okkar, sem vilja notfæra sér þjónustu Radda
lesenda, ættu að athuga eftirfarandi: Lesenda-
dálkurinn hefur opna simalinu daglega milli
3-4, nema laugardaga og sunnudaga. Rit-
stjórnin er í Siðumúla 12 á 2. hæð. Þá er hægt
að senda okkur linu á sama heimilisfang með
póstinum. Munið að láta nafnið fylgja, jafnvel
þótt óskað sé eftir að þvi verði haldið leyndu i
blaðinu.
MUNIÐ SÍMA 83322
MILLI 3 OG 4
V
ÁSKRIFTARBEIÐNI
VINSAMLEGAST SKRIFIÐ MED PRENTSToFUM
13
HEIMILI KAUPANDA