Dagblaðið - 09.09.1975, Qupperneq 10
Dagblaðið. Þriðjudagur 9. september 1975
10
Orþreyttir — Jim Carroll (til vinstri) og Doug Nassif eftir að hafa
sett maraþonmetið i tennisleik — leikið I 75 klukkustundir sam-
fleytt.
Hendur þeirra
voru eins
og hróir
hamborgorar..
— eftir að hafa leikið tennis
75 klukkustundir samfleytt,
sett maraþonmet og þar
með komizt í metabók Guinness
„Viö höfum greitt
hroöalegt gjald fyrir
þann árangur, sem við
náöum. Kannski var hann
þess viröi — aö fá nöfn
okkar i metabók
Guinness, og þó. Ég
glataöi æsku minni þarna
á tennisvellinum — skildi
eitthvað eftir af sjálfum
mér þar," sagöi Doug
Nassif, ungur Kaliforníu-
búi, tveimur árum eftir
að hann og félagi hans,
Jim Carroll, höföu sett
heimsmet —
ma ra þonhei msmet i
tenniskeppni: leikið
samfleytt í 75 klukku-
stundir — og það keppnis-
tennis. „Þetta reynum
viö aldrei aftur," bætti
Nassif viö og brosti
hörkulega.
Tennis i rúmlega þrjá sólar-
hringa, og Carroll bætti við.
,,Ég vona að ég lendi aldrei aft-
ur i öðru eins kvalræði. Eftir
keppnina féll ég meðvitundar-
laus niður i rúm mitt — vissi
ekkert af mér næstu vikuna.”
Þessir ungu piltar frá Garden
Grove i Kaliforniu — æskuvinir
og báðir 21 árs að aldri —
reyndu fyrir tveimur árum við
maraþonmetið i tennis. bað
tókst, og i ár er það viðurkennt i
metabók Guinness. Sagt frá þvi
með þremur linum.
,,Við erum ósköp venjulegir
strákar og hafði ekki tekizt að
ná umtalsverðum árangri i
iþróttum,” sagði Nassif. „En
þarna var tækifæri okkar til að
verða eitthvað. Það tókst — við
börðumst við hitann i Suður-
Kaliforniu og þokuna á daginn
— við eyðimerkurkuldann á
næturnar. Fyrsta klukkustundin
var erfiðust — og þá áttum við
eftir sjötiu og fjórar.”
Og Caroll tekur upp
söguþráðinn. „Þetta virtist
óframkvæmanlegt. bað er að
segja, þegar okkur leið sem
verst. En viljastyrkurinn var
fyrir hendi - við hvöttum hvor
annan sem nest við gátum.
Særingará þann sem fyrr gæf
ist upp. Blöðrurnar létu ekki á
sér standa — fæturnir hræðileg
ir og hendurnar eins og hráir
hamborgarar. Bakverkir, harð-
sperrur — en samt gátum við
hlaupið.
Lokadagurinn rann upp og
alls konar ofskynjanir. Erfitt að
greina rétt frá röngu — tennis
spaðarnir virtust stundum
stefna á okkur, netið teygðist
fram og aftur. En við héldum
áfram að leika. Fóikið sem
fylgdist með okkur, tók á sig
hinar furðulegustu myndir —
eins og i spéspeglasal. Ljós og
myrkur rann saman.”
Eldra heimsmetið var 73
klukkustundir og 25 minútur. Til
þess að bæta það léku Nassif og
Carroll saman i tviliðaleik gegn
hinum og þessum — sjálfboða-
liðum, sem gáfu sig fram og
virtust óþreyttir og afar erfiðir
tvimenningunum. Samkvæmt
reglunum fengu félagarnir
fimm minútna hvild á hverri
klukkustund — fimm minútur
fyrir hverjar fimmtiu og fimm,
sem þeir léku.
Q Utvarp
13.30 i léttum dúr. Jón B.
Gunnlaugsson sér um þátt
með blönduðu efni.
14.30 Miðdegissagan:
„Dagbók Þcódórakis”
Málfriður Einarsdóttir
þýddi. Nanna Olafsdóttir les
(8). Einnig flutt tónlist eftir
Þeódórakis.
Jónsson syngur lög eftir Pál
Isólfsson, Árna Thorsteins-
son, Björgvin Guðmundsson
og Sigfús Einarsson.
Sinfóniuhljómsveit Islands
leikur með;Páll P. Pálsson
stjórnar. e. Sinfóniuhljóm-
sveit l^lands leikur „Upp til
fjalla”, hljómsveitarsvitu
eftir Árna Björnsson-, Páll
P. Pálsson stjórnar.
16.25 Popphorn.
17.10 Tónleikar.
þriðja og siðasta erindi sitt.
20.00 Lög unga fólksins.Sverr-
ir Sverrisson kynnir.
21.00 Úr erlendum blöðum.
Ólafur Sigurðsson frétta-
maður tekur saman þáttinn.
21.25 Serenata nr. 2 i A-dúr eft-
ir Johannes Brahms.
Filharmóniusveit Slóvakiu
leikur; Carlo Zecchi stjórn-
ar.
22.00 Fréttir.
15.00 Miðdegistónleikar:
islensk tónlist a. Siguröur
Ingi Snorrason og Guðrún
Kristinsdóttir leika
klarinettusónötu eftir Jón
Þórarinsson. b. Sigriður E.
Magnúsdóttir syngur lög
eftir Þórarin Jónsson. Ólaf-
ur Vignir Albertsson leikur
á pianó. c. Pétur Þorvalds-
son og Ólafur Vignir
Albertsson leika á selló og
pianó lög eftir Sigfús
Einarsson. d. ólafur Þ.
17.30 Sagan: „Ævintýri
Pickwicks” eftir Charles
Dickens. Bogi Ólafsson
þýddi. Kjartan Ragnarsson
leikari les (8).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Asatrú.Jón Hnefill Aðal-
steinsson fil. lic. flytur
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Rúbrúk” eftir Poul
Vad úlfur Hjörvar les þýð-
ingu sina (12).
22.35 Harmonikulög.Franconi
leikur.
22.50 A hljóðbergi„,Myndin af
Dorian Greý” eftir Oscar
Wilde; Hurd Hatfield les.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Útvarp kl. 19,35:
Arabiskar heimildir
um
Ásatrú
Guðsdýrkun blót og trúarsiðir
Ásatrúarmanna til forna verður
efni þriðja erindis Jóns Hnefils
Aðalsteinssonar, fil. lic„ um
Asatrú i útvarpinu í kvöld.' Fyrri
erindi fjölluðu um flokkun trú-
arbragðanna mcð hliðsjón af
öðrum trúarbrögðum og um
heimildir um Asatrú, guði og
ýmsar kenningar um tengsl
guða Ásatrúarmanna við aðra
guði þeirra tima á indó-
evrópska menningarsvæðinu.
„Þessi erindi eru einvörðungu
út frá trúarbragðasögulegu
sjónarmiði,” sagði Jón Hnefill i
samtali við Dagblaðið um helg-
ina. „Ég kem hvergi inn á þann
söfnuð Asatrúarmanna, sem nú
hefur verið löggiltur hér og
þekki ekki mikið til hans. Að
visu kom Sveinbjörn Beinteins-
son, forstöðumaður safnaðar-
ins, ásamt tveimur öðrum eitt
sinn i tima i Háskólanum, þar
sem ég hef kennt trúarbragða-
sögu litillega, og svöruðu spurn-
ingum stúdenta og veittu upp-
lýsingar um söfnuð sinn. Það
voru fróðlegar tveggja tima
samræður, sem við áttum þar.”
Jón Hnefill sagðist byggja er-
indi sin að nokkru leyti á sam-
timaheimildum úr arabiskum
ritum. Arabiskir ferða- og
fræðimenn komust i kynni við
Asatrúarmenn á Norðurlöndum
á timum Ásatrúar og rituðu
talsvert um siði þeirra og trúar-
brögð. „Eins hef ég aflað mér
heimilda i kveðskap frá þessum
tima, svo sem Hávamálum,”
sagði Jón.
Að baki þessum þremur er-
indum liggur mikil vinna, sem
staðið hefur með hléum i nokkur
ár. Jón sagðist siðan hafa i sum-
ar tekið einn mánuð i að vinna
endanlega úr þeim gögnum,
sem hann hefði aflað sér.
Ekki kvað hann ákveðið,
hvort erindin kæmu út i bókar-
formi, en neitaði þvi hisnvegar
ekki, að hann hefði hug á að
taka saman bók um þessi efni.
„Það er ekki það langt komið,”
sagði Jón Hnefill, „að það taki
þvi að tala mikið um það, enda
er geysileg vinna, til að svo
megi verða, óunnin. Þessi erindi
gætu þó hugsanlega orðið stofn i
slikri bók.”
•
Jón Hnefill flytur erindi sitt i
útvarpi kl. 19.35.
—óv.
Útvarp kl. 17,30:
LEIKARI MA EKKI
LEIKA OF MIKIÐ"
„Það er eiginlega hægt að
byrja að hlusta á „Ævintýri
Pickwicks” hvar sem er i sög-
unni, þvi hún cr tiltölulega
sunduriaus og kaflarnir meira
og minna sjálfstæðir”.
Svo fórust Kjartani Ragnars-
syni, leikara orð, þegar Dag-
blaðið ræddi við hann um lestur
hans á þessari frægu sögu
Charles Dickens. „Sagan er
annars dálitið erfið i lestri”,
hélt Kjártan áfram, „þvi hún er
að miklu leyti samtöl og þvi hef
ég reynt að lyfta svolitið undir
persónurnar, allavega þær, sem
eru gegnumgangandi i allri sög-
unni. Maður verður náttúrlega
að passa sig á sliku, þvi fátt er
eins v.ont og leikari, sem leikur
of mikið”.
„Ævintýri Pickwicks” var
önnur bók Dickens og bar hróð-
ur hans um viða veröld. Ævin-
týrin birtust fyrst i greinaformi
i brezka blaðinu Morning
Chronicle, sem Dickens var
blaðamaður við. Greinir þar frá
Pickwick og félögum hans og
ýmsum ævintýrum, sem þeir
lenda i. Kimni sögunnar er mjög
sérstæð og leynist i henni all-
snörp ádeila á lifið i Bretlandi á
þeim tima, sem sagan var skrif-
uð, 1835-1840.
Bogi Ólafsson þýddi söguna,
sem lesin er allmikið stytt. I dag
les Kjartan 8. lestur, en alls
verða þeir 16.
—ÓV.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Lifandi myndir. Þýskur
fræðslumyndaflokkur um
upphaf kvikmyndagerðar i
Berlin. 6. þáttur. Þýðandi
Auður Gestsdóttir. Þulur
Ólafur Guðmundsson.
20.50 Svona er ástinBandarisk
gamanmyndasyrpa. Þýð-
andi Jón O. Edwald.
21.40 Dauðadæmd borg (A
City that Waits to Die).
Fræðslumynd frá BBC um
jarðskjálftarannsóknir og
tilraunir til að varast slikar
hamfarir. í myndinni er
fjallað um stórborgina San
Fransiskó, sem stendur á
hættulegu jarðskjálfta-
svæði. og möguleikana á að
forða borginni og ibúum
hennar frá tortimingu. Þýð-
andi og þulur Jón Skaftason.
22.40 Dagskrárlok.