Dagblaðið - 09.09.1975, Síða 19
Dagblaðiö. Þriðjudagur 9. september 1975
19
„Ef þú ert svo leið, af hverju ferðu þá ekki fram I
eldhús og eldar eitthvað gott í matinn.”
Apótek___
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varzla vikuna 5,—11. september
eri Garðsapóteki og Lyfjaböðinni
Iðunni.
Það apótek, sem fyrr er nefnt,
annast eitt vörzluna á sunnudög-
um, helgidögum og almennum
fridögum. Einnig næturvörziu frá
kl. 22 að kvöldi til 9 að morgni
virka daga en kl. 10 á sunnudög-
um, helgidögum og almennum
fridögum.
Reykjavik: Lögreglan simi 11166,
slökkvilið og sjúkrabifreið simi
11100
Kópavogur: Lögreglan sími
41200, slökkvilið og sjúkrabifreið
simi 11100.
Hafnarfjorður: Lögreglan simi
51166, slökkvilið og sjúkrabifreið
simi 51100.
Köpavogs Apóteker opið öll kvöld
til kl. 19, nema laugardaga er opið
kl. 9—12 og sunnudaga er lokað.
Slysavarðstofan: simi 81200
Sjúkrabifreið: Reykjavík og
Kópavogur simi 11100, Hafnar-
fjörður simi 51100.
Tannlæknavakt er í Heilsu-
verndarstöðinni við Barónsstig
alla laugardaga og sunnudaga kl.
17—18. Simi 22411.
Reykjavik — Kópavogur
Dagvakt:K1.8—17
mánud.—föstud., ef ekki næst i
heimilislækni, simi 11510
Kvöld- og næturvakt: Kl. 17—08
mánud.—fimmtud., simi 21230.
Hafnarfjörður — Garðahreppur
Nætur- og helgidagavarzla, upp-
lýsingar i lögregluvaröstofunni,.
simi 51166.
Á laugardögum og helgidögum
eru læknastofur lokaðar, en lækn-
ir er til viðtals á göngudeild
Landspitalans, simi 21230.
Upplýsingar um lækna- og lyfja-
búðaþjðnustu eru gefnar i sim-
svara 18888.
Rafmagn: t Reykjavik og Kópa-
vogi simi 18230. 1 Hafnarfirði i
sima 51336.
Hitaveitubiianir: Simi 25524.
Vatnsveitubilanir: Sími 85477.
Simabiianir: Slmi 05.
Sýtttngar
Kjarvalsstaðir. Ljós ’75. Stendur
til 16. september.
Norræna húsið, kjallari. Septem
’75. Niu listamenn sýna. Stendur
til 14. september.
Loftið.Kjartan Guðjónsson sýnir.
Stendur til 19. september. Opið á
verzlunartima.
Galleri output.Helgi Friðjðnsson
synir.
Korp úlfsstaðir. Hallsteinn
Sigurðsson myndhöggvari sýnir.'
Stendur til 14. september. Opiö
14—22.
Bogasalur. Hringur Jóhannesson
sýnir. Stendur til sunnudagsins
14. september.
Mokka. Gunnar Geir sýnir til 27.
september.
Klausturhólar. Dönsk kona,
Kirsten Rose, sýnir. Stendur
fram til næstu helgar.
„Mig varðar ekkert um þessa ást og umhyggju,
ég vil fá mat minn og engar refjar.”
Ensku spilararnir, Reese og
Schapiro, voru um langt skeið
taldir sterkasta par heims —
og vissulega sýndu þeir marga
frábæra hluti. Hér er
skemmtilegt varnarspii
þeirra gegn USA á Olympiu-
mötinu 1960. Reese i norður
spilaði út hjartafjarka i þrem-
ur gröndum vesturs — gegn
hinum heimsfræga spilara
Sam Stayman. A G73 V 943 + AD3 4> KD73 A A6 4 K985
V AKD5 V G108
♦ K962 ♦ G75
* A42 4> G105
A D1042
V 762 ♦ 1084 * 986 Stayman átti fyrsta slag
heima og byrjaði vel - - spilaði
litlum tigli á gosa austurs,
sem átti slaginn. Þá spilaði
hann tigli frá blindum og
Schapiro varðist vel — lét
tiuna, kóngur, ás. Reese skipti
yfir i spaðagosa — góð vörn —
Stayman tók á ásinn og spilaði
strax spaða á niu blinds.
Schapiro drap á drottningu og
skipti yfir i lauf — litið, kóngur
hjá Reese og hjarta spilað. En
hafði Stayman ti'ma til að spila
tiglinum, en hann var greini-
iega á þvi, að liturinn skiptist
4-2 hjá mótherjunum, og betri
möguleiki væri annað hvort að
fella spaðatiu eða svina laufi.
Hann reyndi fyrst spaðakóng,
en ekki kom tian — og þá svin-
aði Stayman laufagosa. Reese
fékk á drottningu — og upplagt
spil tapaðist vegna hug-
kvæmni varnarspilaranna.
A sovézka meistaramótinu
1957 kom þessi staða upp i
skákSpasskys, sem hafði hvftt
og átti leik, gegn Bronstein.
16. g4!! — fxg4 17. 0-0-0 —
Re5 18. Bxe5 — Bxe5 19. Rxe4!
— Rxe4 20. Dc2 — Df6 21.
Hhel! og Spassky vann auð-
veldlega.
Sjújkrahús
Borgarspitalinn:
Mánud.—föstud. kl. 18.30—19.30.
La u g a r d . —s u n n u d . kl.
13.30— 14.30 og 18.30—19.
Grensásdeiid: kl. 18.30—19.30 alla
daga og kl. 13—17 á laugard. og
sunnud.
Heilsuverndarstöðin: kl. 15—16
og kl. 18.30—19.30.
Hvitabandið: Mánud.—föstud. kl.
19—19.30, laugard. og sunnud. á
sama tima og kl. 15—16.
Kópavogshæiið: Eftir umtali og
kl. 15—17 á helgum dögum.
Sólvangur Hafnarfirði: Mánu-
dag — laugard. kl. 15 — 16 og kl.
19.30— 20. Sunnudaga og aðra
helgidaga kl. 15—16.30.
Landspitalinn: Alla daga kl.
15—16 og 19—19.30. Fæðingar-
deild: kl. 15—16 og 19.30—20.
Barnaspitali Hringsins: kl. 15—16
alla daga.
Hvað segja stjörnurnar?
Spáin giidir fyrir miðvikudaginn 10. sept-
ember.
Vatnsberinn (21. janúar—19. febrúar):
Venjubundin störf taka upp megnið af
tlma þlnum. Hegðun vinar kann að valda
þér furðu i dag. Siðar kemstu að þvi að þú
hefðir áttað sýna umhyggju i stað þess að
gagnrýna.
Fiskarnir (20. feb.—20. marz):Þarfir ein-
hverrar eldri manneskju heima krefjast
mikillar þolinmæði. Sértu með erfitt
verkefni, þá er þetta dagurinn til að ná ár-
angri. Þú hefur ærið að starfa.
Hrúturinn (21. marz—20. april): Það
mundi verða til góðs ef þú breyttir um
umhverfi i kvöld. Taktu til við áhugamál-
in og forðastu eftir megni að láta leiðann
ná yfirhöndinni eftir annasaman dag.
Nautið (21. aprfl—21. mai): Einhver, sem
þú hefur treyst, kann að svikja þig i dag.
Gerðu þér grein fyrir þvi, — þú dæmdir
ranglega. Peningamál ættu að vera i
stakasta lagi.
Tviburarnir (22. mai—21. júnl): Takstu á
við erfið verkefni i dag, þvi Ihygli þin á að
vera upp á það allra bezta. Litil en óvænt
gjöf gleður þig e.t.v. i dag. Þetta er ekki
dagur sem færir þér neitt I aðra hönd i
viðskiptum.
Krabbinn (22. júni—23. júli): Þú skalt
ekki gefast upp við að framfylgja nýjum
hugmyndum heima fyrir. Haltu áfram og
senn opnast augu fólks fyrir þvi að það
hagnast á framtaki þinu og það mun að-
stoða þig.
Ljónið (24. júli—23. ágúst) :Sé fólk að rök-
ræða i þinum hópi, taktu þá ekki afstöðu,
annars kann svo að fara að aðilar álasi
þér fyrir niðurstöðurnar. Liklega er þetta
rólegur dagur og þú hittir sennilega vini.
Meyjan (?4. ágúst—23. sept.): Þú ættir að
fá tækifæri til að kynnast betur áhuga-
verðri persónu úr þinum vinahópi. Bréf
verður þér liklega ærið umhugsunarefni,
betra að svara þvi strax.
Vogin (24. sept.—23. okt.): Betra að um-
gangast ekki um of persónu, sem þér
finnst að hafi ekki verið þér sem hliðholl-
ust. Agætur dagur til að rápa I búðir og
gera góð kaup til heimilisins.
Sporðdrekinn (24. okt.—22. nóv): Einhver
virðist meta þig mikils fyrir gáfur þinar
og e.t.v. færðu senn ágætis tækifæri. En
varastu afbrýðisemi og öfund fólks i
kringum þig.
Bogmaðurinn (23. nóv.—20. des.): Góður
dagur fyrir nýjar hugmyndiri einkalifinu.
Óvæntur gestur, einhver tengdur nýrri
viðskiptahugmynd, kann að fanga hug
þinn i dag.
Steingeitin (21. des.—20. jan.): Ef einhver
þér eldri i fjölskyldunni byrjar að gagn-
rýna þig, þá er eins gott að leiða slikt hjá
sér. Stjörnurnar eru ekki hagstæöar þér
varðandi skoðanaskipti og umræður.
AFMÆLISBÖRN DAGSINS: Þetta ár munu málefni unga fólksins
veröa mikið i sviðsljósinu. Viðskipti eru hagstæð á miðju árinu.
Varastu samt gróðabrall á fyrri hluta næsta afmælisárs. Astin mun
verða I bakgrunninum, en vináttan er mikilvæg.