Dagblaðið - 09.09.1975, Qupperneq 24
HMEBIAÐIÐ
frfálst, úháð dagblað
ÞriOjudagur 9. september 1975
TAYLOR
ÍSVÉLAR
Eiríkur
Ketiisson
Smáauglýsingar
Dagblaðsins hafa
þegar tekið forystu.
— símamóttaka
S. 23472
— 19155
83322
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SIMI: 26660
RAflÐJAN SIMI: 19294
HVER TEKUR AF SKARIÐ?
ASÍ EÐA RÍKISSTJÓRNIN?
Þýzku njósn-
ararnir senn
án íslenzkra
vista:______________
Afgreiðslubann á þýzku
eftirlits- eða frekar
njósnaskipin var til um-
ræðu hjá rikisstjórninni,
þegar blaðið fór í prentun í
morgun. Margt benti til
þess, að annaðhvort ríkis-
stjórnin eða alþýðusam-
tökin mundu grípa til þess-
ara aðgerða, þótt ekkert
hefði enn verið endanlega
ákveðið.
„Þaö er vissulega sjálfsagt aö
athuga, hvaö viö getum gert i
þessu striöi,” sagöi Björn Jóns-
son, forseti ASl I morgun i viðtali
viö Dagblaöið.
Björn sagði, aö vel kæmi til
greina, að islenzka verkalýös-
hreyfingin gripi til aðgerða gegn
þýzku eftirlitsskipunum, til
dæmis meö þvi að koma i veg fyr-
ir, aö þau fengju afgreiðslu i höfn-
um.
Það voru þýzk verkalýðsíélög,
sem hófu aögeröir gegn islenzk-
um skipum með löndunarbanni.
Þetta var gert með vitund þýzku
stjórnarinnar og óbeinu sam-
þykki.
Björn taldi ekki ósennilegt, að
máliö yröi tekið fyrir á miö-
stjórnarfundi Alþýðusambands-
ins á miðvikudaginn.
Slikar aögerðir væru „engan
veginn út úr kortinii.”
Uppivöðslusemi þýzku eftirlits-
skipanna fer vaxandi.
—HH
Móðir og 4 börn í bílslysi:
Húsið rifnaði af jeppanum — engan sakaði
Fjögur börn á aldrinum 6-16 ára
voru með móður sinni i kraft-
miklum jeppa, sem hvolfdi á
þjóðveginum fyrir austan
Markarfljótsbrú klukkan 16.30 á
laugardaginn var. Við veltuna
skekktist toppurinn svo, að hann
losnaði af bilhúsinu, þegar bif-
reiðin rann á þakinu nokkurn spöl
eftir veginum. Varð toppurinn
loks alveg laus og i honum þrjú
barnanna. Slösuðust þau ekkert.
Fjórða barnið sat I framsæti við
hlið móður sinnar sem ók bilnum.
Voru bæði i bilbeltum. Slapp
barnið ómeitt, en konan skarst
nokkuð, og var óttazt, að hún
hefði skaddazt eitthvað meira.
Var hún flutt á Borgarspitalann i
Reykjavik, þar sem hún liggur
enn. Liður henni vel eftir atvik-
um.
„Þetta var ljót aðkoma”, sagði
Guðjón Einarsson, lögreglu-
maður á Hvolsvelli, i viðtali við
DAGBLAÐIÐ. Kvað Guðjón það
ganga kraftaverki næst, að þarna
skyldi ekki verða alvarlegt slys,
en sennilegt mætti teljast, að bil-
beltin hafi að minnsta kosti
bjargað þeim, sem fram i sátu.
Óhappið virðist hafa orðið með
þeim hætti, að konan á jeppanum,
sem er Chevrolet-Blazer frá Þor-
lákshöfn, hafi ætlað að fara fram
úr bil, sem á undan var. Hafi þá
jeppinn farið svo út I végarkamb-
inn, að konan hafi snarsveigt inn
á veginn aftur með þeim af-
leiðingum, sem að framan
greinir.
—BS
FJÓRIR STRIPLINGAR Á
— ökumaður kappklœdd stúlka
Um verzlunarmannahelgina
bauð Lionsklúbburinn á
Reyðarfirði gömlu fólki i ferða-
lag upp á Héraö. 1 bakaleiðinni
var numið staðar við sæluhúsiö
á Fagradal. Þá mætti bæði ljón-
um og öldruðum óvenjuleg s jón:
Fjórir ungir menn voru þar að
leik gersamlega kviknaktir.
Piltar þessir höfðu komið
niður á Reyðarfjörð og opin-
berað þar nekt sina, meðal
annars haldið til verzlunar i
sjoppu á staðnum. Að sögn
Sigurjóns Scheving, lögreglu-
þjóns á Reyðarfirði, höfðu þeir
komið þangað i bil, sem stúlka
ók. Hún var þó kappklædd,
FERÐ
meira að segja i lopapeysu.
Fólkinu var visað frá Reyöar-
firði og hélt þá upp á Fagradal,
þar sem það geröi hinum
öldruðu hverft við, sem fyrr
segir. Seinna hélt það áfram för
sinni um Austurland og lyktaði
með þvi, að einn piltanna var
tekinn ölvaður við akstur. Hann
var þá að visu i fötum.
Fólkið er úr Reykjavik.
ANNA MARÍA, KONSTANTIN OG JUAN
BALLI HJÁ INGIMAR EYDAL
CARLOS Á
Þá höfum við Islend-
ingar eignazt okkar
konunglegu hljómsveit.
Á föstudaginn gerðist
það i klúbbi hljóm-
sveitarinnar Los
Valldemosa i Palma á
Majorku, að Konstant-
in fyrrum Grikklands-
konungur og Anna
Maria drottning hans
ásamt Juan Carlos,
rikiserfingja Spánar,
sóttu dansleik hljóm-
sveitar Ingimars Ey-
dals.
Ingimar og fólk hans var að
ljúka klukkustundar dagskrá,
þegar hið eðalborna lið gekk i
salinn. Varð hljómsveitin að
leika I aðra klukkustund til og
lauk því þannig, að konungurinn
útlægi þakkaði Ingimar sér-
staklega með handabandi. Anna
Marla fékk sinn skerf, danslag,
sem Helena Eyjólfsdóttir söng á
dönsku. Troðfullt var I klúbbn-
um og var að sögn gerður góður
rómur að leik hljómsveitarinn-
ar — svo ekki sé minnzt á nær-
veru kóngafólksins.
-ÓV.
Landhelgisgœzlan
um Þjóðverjana:
„NÆR
ENGRI
ÁTT"
„Þetta nær engri átt. Við von-
um, að eitthvað verði gert á rikis-
stjómarfundinum i dag, þar sem
fjallað verður um hugsanlegar
aðgerðir gegn eftirlitsskipunum
þýzku,” sagði Hálfdán Henrýsson
stýrimaður, starfsmaður Land-
helgisgæzlunnar, i morgun i við-
tali við Dagblaðið.
Eftirlitsskipih gefa stöðugt upp,
hvar varðskipin eru.
Sautján þýzkir togarar voru við
landið I gær. Þar af voru sjö fyrir
innan mörkin, og fóru varðskip á
stúfana og stugguðu þeim út
fyrir.
A stjórnarfundinum i dag
verður fjallað um, hvort grlpa
eigi til aðgerða gegn þýzku eftir-
litsskipunum, til dæmis með þvi
að neita þeim um afgreiðslu i is-
lenzkum höfnum.
—HH
Jafnvel
stjörn-
urnar
okkur
í hag
Nýtt dagblað er fætt. Hver
skyldi stjörnuspáin vera
fyrir gærdaginn. Jú, hún er
svona: „Framfarir á þessu
ári verða góðar. Kæruleysi I
peningamálum virðist liggja
i loftinu i árslokin. Varastu
öll áform um að verða ríkur
„á einni nóttu”. Tákn eru á
lofti um stórkostlega vináttu
við þig.”
Jú, við væntum framfara
og þeirra mikiila. Ekki mun
okkur verða brigzlað um
kæruleysi i fjármáium, og
við vitum vei að við verðum
ekki rikir á einni nóttu. Vin-
áttan er vonandi sú vinátta,
sem við bindum vonir við að
eiga við lesendur okkar. Sú
vinátta og það samband sem
verður milli okkar og les-
enda er frumforsenda þess
að biaðið okkar verði gott
blað.