Dagblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 4
4 Dagblaðiö. Föstudagur 31. október 1975. Stórt sjónvarp Kvik myndir ÞORSTEINN OLFAR BJÖRNSSON leikstjóri hjá BBC 1959 og á þeim 10 árum, sem hann var þar, gerði hann um það bil 40 kvikmyndir fyrir sjónvarp. Og það er greinilegt að hann hefur fengið þjálfun j sjónvarþi. Myndir hans hafa löngum einkennzt af sjónvarpsvinnu- brögðum og er Tommy þar engin undantekning. Mynda- vélinni er beitt eins og um sjón- varpsmynd væri að ræða, þ.e. að myndin ætti að sýnast á litlum sjónvarpsskermi en ekki á stóru tjaldi. Annar áberandi galli er uppbygging hinnar dramatisku spennu. Myndin er svo full af dramatiskum hápunktum að þegar loksins hápunkturinn kemur og Tommy verður frjáls, þá virkar hann full flatur og áhorfandinn missir hálfgert áhugann sem haldið hefur verið alla myndina út. Áhorfandinn hefur ekkert eftir af tilfinningum, það er búið að nota allar tilfinningar hans. En hvað um það. Það er margt skolli gott við Tommy. Það koma kaflar þar sem áhorfand- inn er hrifinn með i bylgju myndar og tóna og má i þvi sambandi minnast á upphafs- atriðið og atriðið með „Acid- queen.” En atriðiö, sem mér persónulega finnst bezt, er ,,1 dag rigndi kampavini”. Þar fær Ann-Margret ýmsa skemmti- lega hluti út úr sjónvarpinu sinu. Þetta atriðið sýnir okkur fánýti hinna veraldlegu gæða þegar andlega vellliðan vantar. 1 heild má segja að Tommy sé i rauninni margar stuttar myndir eða atriði tengd saman með tónlist og sem slik er myndin góð. Annað, sem gott er við Tommy, er leikmynd og búningar. Þar á Shirley Russell, kona Kens, allan heiðurinn. Hún hefur áður gert búninga fyrir mann sinn, t.d. i þeirri mynd sem ég mundi telja beztu og heilsteyptustu mynd hans, Mahler. Shirley Russell hefur greinilega gott auga og góðar gáfur sem búningateiknari. Vafalaust á hún meira i myndum manns sins en gefið er upp. Leikurinn er yfirleitt mjög góður þótt Oliver Reed beri að sjálfsögðu af. Það er aðeins einn aðili sem er hreint út sagt skemmd á þvi atriði sem hann er i. Það er Eric Clapton. Hann er álika atkvæöamikill og engill i helviti. Roger Daltrey stendur sig stórvel sem aðalpersóna myndarinnar. Það er engin furða þótt Russell' hafi fengið hann til aö leika aðalhlutverkið i nýjustu mynd sinni um Franz Lisszt. Það verður fróðlegt að sjá hann i þeirri mynd. Þvi miður er Jack Nicholson aðeins i smáhlutverki sem hann skilar stórkostlega vel. Það hefði verið gaman að sjá hann i veigameiri rullu. Ann-Margret sannaði ágæti sitt sem leikkona i Carnal Knowledge og hér færir hún aftur sönnur á ótviræða leik- hæfileika sina. Eiton John skilar sinu hlutverki með prýði þótt reyndar megi segja að það geri ekki beint miklar kröfur til leiks. Robert Powell kemur enn einu sinni ákaflega vel út þótt i þetta sinn þurfi hann ekki að segja orð. Ég get vel mælt með Tommy, bæði sem dægradvöl og lista- verki. Að visu hefur myndin nokkra áberandi galla en spurningin er hvort það, sem vel er gert, vegi ekki svo mörgum sinnum upp á móti að gallarnir verði léttvægir. Kannski má segja að myndin sé bæði ,,trip og happening” og get ég ekki annað en játað að mér datt i hug eftir sýningu: „Hvernig skyldi það vera að sjá þessa mynd grýttur?” Góð spurning en ekkert svar. Ann-Margret, Barry VVinch (litli Tommy) og Oliver Reed. Takiö el'tir l'ötum Heeds. Tónabíó: TOMMY Brezk 1975, litir og breiötjald Leikstjóri: Ken Russell Það er að bera i bakkafullan lækinn að fara að rekja sögu- þráð þessarar myndar. Tommy er það þekkt verk að ég býst við að flestum sé kunnugt um hvað það fjallar. Tommy var gefinn út á plötu 1969 af hljómsveitinni Who og er verkið fyrsta popp óperan sem fram kemur. Hins vegar hafa tvær aðrar popp óperur, sem á eftir komu, báðar verið kvikmyndaðar en það eru Jesus Christ Superstar og Godspell. Það er þvi vonum seinna sem Tommy birtist á hvita tjaldinu. Biðin hefur þó greiniiega verið þess virði þar sem Ken Russell er potturinn og pannán i framleiðslunni sem áhorfendur njóta i Tónabiói þessa dagana. Russell hefur með þessari niundu mynd sinni enn einu sinni sannað að hann á ekki sinn lika i kvikmyndaleik- stjórn, a.m.k. ekki hvað iburð og ýkjur snertir. Það furðulega er þó að það sem Russell kemst upp með væri engum öðrum liðið. Það þýðir aö maðurinn er annað tveggja snillingur eða idjót. Mér hefur virzt af skrifum um Russell og myndir hans i erlendum blöðum að fólk sé ekki á eitt sátt hvort heldur hann sé. Hér verður þó idjótaháttur Russels ekki til umræðu heldur snilligáfa hans að svo miklu leyti sem viðkemur Tommy. Ken Russell byrjaði sem Ken Hussell og Ann-Margret gera klárt fyrir atriöiö meö bökuöu baununum. Tommy (Roger Paltrey) á „trippi” hjá eituriyfjadrottningunni. 1 musteri Sánkti Marlynar (Monroe) Eric Clapton, John Entwistle og Pete Townshend. Ernie frændi (Keith Moon) passar Tommy. V ✓

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.