Dagblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 14
14
/*
MagblaðiA. Föstudagur 31. október 1975.
•tg
*;'.
Kignir ekkjunnar: Kfst til liægri er ibúðin viö Fifth Avcnue i New York. Þá er mynd af eyjunni
Skorpios og neðst er snekkjan Christina. Efst til vinstri er húsið í Hvannis Port. 1 miðjunni er mvnd af
einu al' skartgripadjásnum frú Onassis, en hún á þrettán slik að verðmæti rúmlega einn milljaröur.
Neðst er mynd al' liúsinu i New Jersey.
ÁÆTLAÐAR TEKJUR 1976:
Skattfrjálsar tekjur af sjóði, sem
Aristoteles Onassis stofnaði....................... 16.500.000
Skattskyldar tekjur, sem Onassis
ánafnaði konu sinni i erfðaskránni ................ 16.500.000
Likleg viðbótargreiðsla af eignum
Onassis, ef Jacqueline fer ekki i mál
vegna erfðaskrárinnar ............................. 16.500.000
Skattfrjálsar tekjur af sjóöi John F. Kennedy........6.100.000
Erfðafé frá föður Jacqueline, John
Vernou Bouvier III.....................................690.000
Samtals: ca. 56.290.000
ÁÆTLUÐ GJÖLD ÁRSINS 1976:
Tekjuskattur........................................ 16.500.000
Starfsfólk og þjónar (a.m.k. 6 fastráðnir
þjónar auk lausráðins fólks)....................... 14.000.000
Innréttingar og endurnýjun húseigna ................ 8.200.000
Fatnaður ........................................... 5.000.000
Viðhald við Fifth Avenue i New York...................5.000.000
Matar- og húshaldskostnaður........................ 4,000.000
Flugferðir .......................................... 1.600.000
Listaverkakaup...................................... 1.600.000
Skemmtanir (leikhúsmiðar, veizlur, matarboð)......... 1.600.000
Tryggingar .......................................... 1.200.000
Vatn, rafmagn o.þ.h.................................. 1.000.000
Eignaskattar ...:.......................................950.000
Hárgreiðsla og fegrun...................................750.000
Gjafir .................................................400.000
Frjáls framlög........................................ 300.000
Kostnaður vegna hesta...................................200.000
Timarit og bækur.........................................80.000
Áætlaður lækna- og tannlæknakostnaður....................80.000
Samtals: ca. 62.500.000
EIGNIR:
Skartgripir (meiri háttar) ........................... 1.160.000.000
25% hlutur i listaverkum og öðrum
verðmætum i snekkjunni Christinu...................... 1.035.000.000
Eignir i sjóði, sem John F. Kennedy
stofnaði með erfðaskrá sinni..............................94.000.000
íbúðiNew York.............................................33.000.000
Hús i New Jersey....................................... 33.000.000
Hús i Hyannis Port....................................... 19.000.000
Erfðafé frá John Bouvier III............................. 10.600.000
Samtals:...................................................2.351.600.000
Fjárhagserfiðleikar
Jacqueline Onassis
Almenningur i Banda-
rikjunum, og yfirleitt um allan
heim, er mjög áhugasamur um
Jacqueline Bouvier Kennedy
Onassis, svo áhugasamur að
konugreyið á ekki lengur neitt
sem getur kallazt einkalif. Hún
má varla hreyfa sig án þess að
blöðin séu búin að slá þvi upp i
slúðurdálkum sinum. Og þegar
hún sést með karlmanni þá er
það öruggt vitni þess aö hún sé
enn á ný i giftingarhugleiðing-
um, ekki siztef karlmaðurinn er
vel stæður.
Þegar Aristoteles Onassis dó
voru blaðamenn fljótir til að slá
upp sinum stærstu fyrirsögnum
um að Jacqueline væri nú orðin
ein af rikustu konum heimsins.
En erfðaskrá ka.rlsins sýndi svo
sannarlega allt annað. Þegar
allir skilmálar hennar ganga i
gildi virðast útgjöld frú Onassis
verða meiri en tekjurnar, —
nema henni takist að minnka
eyðsluna eða koma einhverju af
eignum sinum yfir i fjárfest-
ingafyrirtæki.
Heildartekjur frú Onassis
fyrir árið 1976 eru taldar verða
um 40 milljónir islenzkra króna.
En sú upphæð er engan veginn
nægileg og stendur hún i stappi
við að fá 16 milljónir i viðbót,
gegn þvi að hún hætti við að fara
i mál út af erfðaskránni. Ef hún
fær þessa viðbót verða tekjur
hennar um 56 milljónir króna
eða 40 milljónir eftir að skattar
hafa verið greiddir. En ef þess-
ar tölur eru réttar þá vantar um
6 milljónir króna til að endar nái
saman.
Flest venjulegt fólk ætti að
geta lifað góðu lifi með 56
milljón króna árstekjur, en
Jacqueline Onassis er óvön öðru
en mur.aði og rikmannlegu lifi.
Faðir Jacqueline, John
Vernou Bouvier III, var
auðugur maður og þegar for-
eldrar hennar skildu fluttu
dæturnar með móður sinni til
Hugh D. Auchincloss, barna-
barns annars af stofnendum
Standard Oil Co., svo að ekki
hefur peningaleysi rikt á þvi
heimili. Seinna giftist
Jacqueline að sjálfsögðu rikum
manni og enn seinna forrikum
og þeir kepptust báðir við að
ala upp i henni eyðslusemina
með gjöfum og peningaútlátum.
En nú virðist vera að þvi
komið að Jacqueline Onassis
verði að draga saman seglin þó
henni sé það áreiðanlega óljúft.
I rammanum má sjá
áætlaðar tölur yfir tekjur og
gjöld frú Onassis lyrir árið 1967.
Einnig fylgir með listi yfir meiri
háttar eignir hennar á þvi verð-
gildi sem þær voru reiknaðar á i
september 1975.
SOVÉZK BÓT VIÐ FLOGAVEIKI
Natalja Bekjtereva útskýrir notkun rafskautsins gegn floga-
veiki.
Sevkabelverksmiðjan i Lenin-
grad, sem framleiðir vira og
kapla af ýmsum gildleika og til
margra nota. fékk beiðni um að
gerao.l millimetra gildan gull-
leiði. Gullþráðurinn, sem settur
var i örþunnt glerhylki, var
fyrsta rafskautið sem komið var
fyrir i mannsheila. Það var
Natalia Bekjtereva, doktor i
læknisfræði, sem beðiö hafði um
rafskautið.
Jafnvel i fornum ritum, sem
fornleifafræðingar hafa grafið
upp, má finna lýsingar á hræði-
legum sjúkdómi, kynlegum og
ægilegum sem er likastur bölv-
un. Maður, sem virðist heil-
brigður, fellur allt i einu um koll
með taugateygjum og krampa-
flogum, froða myndast á vitum
hans og augun stara æðislega.
Hið skelfilega við þennan
sjúkdóm er. að hann er arfgeng-
ur. Nýfætt barn er dæmt frá
fæðingu. Hvernig er unnt að
lækna mann af þessum sjúk-
dómi? Hvernig má likna hon-
um? Þúsundir visinda-
manna um allan heim
brutu heilann um þenn-
an leyndardóm. Eitt atriði
var þó augljóst: Orsaka sjúk-
dómsins var að leita djupt inni i
heilanum, sem þá var þeim lok-
uð bók. Bregðum upp annarri
mynd: Flogaveikur maður, sem
linnur að hræðilegt kast er að
koma, stingur hendinni i vasa
sinn og kveikir á rafhlöðu sem
þar er geymd. Rafleiðir flytur
rafstraum til hinna sjúku héila-
fruma og lostið kemur i veg
fyrir kastið. Raftækið, sem
stöðugt er tengt hinum sýkta
hluta heilans, eyðileggur þannig
hið fasta mót sjúkdómsins og
gerir það að verkum að hann
liggur lengi niðri eða hverfur
jafnvel alveg. Þannig hefur
flogaveikin verið læknuð.
A einu af sjúkrahúsum Lenin-
grad eru sjúklingar sem fengið
hafa meðferð með hjálp þessa
töfratækis, sem komið er fyrir i
heilanum og verkar á hann með
hjálp gullleiöanna. Tækið var
fundið upp á rannsóknarstofu
undir stjórn prófessors Nataliu
Bekjterevu. Með hjálp djúpt-
liggjandi örþunnra rafskauta
finnur hún þá staði i heilanum
sem tengdir eru sjúkdómnum.
Með þvi að örva eða eyðileggja
frumurnar með rafstraumi
kemur hún i veg fyrir afleiðing-
ar sjúkdómsins, þ.e. ósjálfráð-
an skjálfta og kippi i útlimun-
um. Með þvi að skrá lifraf-
straum heilans (rafstraum frá
taugafrumum og frumuhópum)
ræður hún i hvaða frumur eða
hlutar heilans stjórni þessari
eða hinni starfsemi likámans.
Með öðrum orðum, hún fær
vitneskju um gerð heilans, ekki
aðeins almennt heldur i ná-
kvæmnustu smáatriðum. i
flestum tilfellum fær hún alger-
lega nýjar upplýsingar með þvi
að nota nýjar aðferðir og fær ný
svör við gömlum óleystum ráð-
gátum.
Bekjtereva hefur gert ýmsar
mikilsverðar uppgötvanir á
sviði heilalifeðiisfræði, sem
hafa gert hana heimsfræga.