Dagblaðið - 31.10.1975, Page 18
18
Pagblaðið. Föstudagur 31. október 1975.
Liberzon og Ribli
leiða með
6 vinningq
Friðrik fylgir fast á
eftir með 4V2 og
biðskák og Parma
með 4V2 vinning
Friðrik og Hamann gerðu
annað af tveim jafnteflum i 8.
umferð svæðismótsins i gær-
kvöldi. Hitt var á milli Ribli og
Liberzon. Björn Þorsteinsson
tapaði sinni skák gegn Jansa.
Orslit 8. umferðarinnar urðu
þessi:
Bjöm — Jansa: 0-1
Laine — Ostermeyer: 0-1
VanDen Broeck — Murray: 1-0
Ribli — Liberzon: 1/2-1/2
Poutiainen — Timman: 1-0
Hartston — Zwaig: 1-0
Hamann — Friðrik: 1/2-1/2
Björn barðist hetjulegri bar-
áttu við tékkneska stórmeistar-
ann, en ekki að sama skapi
árangursrikri varðandi þessa
skák. Björn gengur ekki heill til
skógar i þessu móti. Hann hefur
verið sárlasinn nærri allt mótið.
Hann teflir sinar skákir af til-
litssemi við aðra keppendur og
áhorfendur fremur en til vinn-
ings. Það dregur alltaf úr eðli-
legri spennuog stigandi keppni,
þegar ævinlega eru fleiri eða
færri frestaðir leikir og
geymdir. Vonandi hressist
Björn og sýnir okkur gott við-
bragð áður en lýkur. 1 skák
Björns og Jansa kom upp Sikil-
eyjarvörn og var Jansa með
gjörunnið tafl, þegar Björn gaf
eftir 39 leiki.
Laine og Ostermeyer tefldu
drottningarbragð, sem svartur
tefldi jafnt og þétt af öryggi til
vinnings eftir 31 leik.
Van Den Broeck hafði hvitt á
móti Murray. Þeir tefldu
drottningarbragð og hafði Belg-
BRAGI
SIGURÐSSON
inn fljótlega betra tafl að mati
kunnáttumanna. Skákin varð
aldrei spennandi og Murray gaf
eftir 39 leiki.
Ribli hafði hvitt gegn Liber-
zon. Upp kom enski leikurinn og
það var ekkert ævintýralegt við
jafntefli stórmeistaranna eftir
31 leik.
Poutiainen sigraði Timman
eftir gullfallega fórnarfléttu.
Skákin átti hug áhorfenda allan.
Skemmra komnir stóðu á önd-
inni, þegar Finninn fórnaði
manni og siðan skiptamun, en
Hollendingurinn átti ekki nema
tvo leiki i óverjandi mát, þegar
hann gaf eftir 33 leiki. Þeir
Poutiainen og Timman tefldi
Pirc-vörn.
Hartston hafði hvitt gegn
Zwaig. Þeir tefldu fjögurra
riddara tafl. Virtist Hartston
eiga alls kostar við Zwaig, sem
gaf skákina eftir 19 leiki.
Friðrik hafði svart á móti Ha-
mann. Þeir tefldu hollenzka
vörn, sem hvorugum nýttist til
vinnings. Helgi Ólafsson skýrði
þessa skák i hliðarsölum. Taldi
hann, að Friðrik kæmi út úr
byrjuninni með heldur lakara
tafl.sem jafnaðist þó þannig, að
það var kalt mat en ekki hug-
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15.
1. Ribli | / / 72 / / '/? 6
2. Poutiainen o ■ / o o / / / 7>
3. Hartston o O i i i 3 + li'Ð
4. Hamann o 1 'k / 'A i H * bio
5. Friírik /2 i 'h 0 / i 'k h-'/í’* QV
í. Zwaig 0 0 0 / 'A 'A 1 / 4
7. Timman 0 o / A 'A i o / 4-
8. Liberzon '/2 / '/2 'U 'A 1 i / 6
9. Murray o 'k 0 'A i o 2
10. Ostermeyer o 'k 'h 'k 'Æ 1 1 4
11. Jansa 0 'k 'k l 'A 1 4
12. Parma l 'k 'A h i 'A 'A 4'A.
13. Björn O 0 '/2 o o 'h 0 o /
14. Laine 0 ‘k o 0 i o 0 0 r/z
15. VandenBroeck o o o '/z 0 0 0 i 1 r/z
leysiDanans að semja um jafn-
tefli eftir 25 leiki.
Fastagestir mótsins voru
meðal áhorfenda, sem voru
margir. Nýjum andlitum fer
fjölgandi en af kunnugum má
nefna dr. Hallgrim Helgason og
frú, Kristin Bergþórsson, stór-
kaupmann, Isleif Runólfsson,
vöruflutningaforstjóra, Harald
Blöndal, lögfræðing, Jón Þor-
steinsson, lögfræðing, Sigurjón
Jóhannsson, blaðamann, Einar
Þorfinnsson, Kristján Oddsson,
bankastjóra, Árna Jakobsson,
Inga G. Ingimundarson, lög-
fræðing, Jakob Hafstein, Yngva
ólafsson, deildarstjóra, Jón
Sigurbjörnsson. leikara, Ólaf
Helgason, bankaeftirlitsmann,
Ásgeir Þór Asgeirsson, verk-
fræðing, Reyni Þórðarson,
verkamann.Garðar Sigurðsson,
veit.þjón, Pál Jónsson, fram-
kvæmdastj., Magnús V. Péturs-
son og Val Benediktsson,
iþróttadómara, Berg Bjarnason
lögfræðing, Sverri Einarsson,
tannlækni, Einar S. Einarsson,
bankamann, Ingvar Ásmunds-
son, Þóri Ólafsson, auk margra
ónefndra.
Hartston á biðskákir við bæði
Friðrik og Hamann. Verða þær
tefldar á laugardaginn.
9 . umferðin verður tefld i
kvöld. Þá eigast við:
Zwaig — Hamann
Hartston — Timman
Liberzon — Poutiainen
Murray — Ribli
Ostermayer — Van Den Broeck
Jansa — Laine
Parma — Björn
Friðrik situr yfir i þessari um-
ferð.
Guðmundur efstur
— við fjórða mann
Guðmundur Sigurjónsson er
enn i efsta sæti með 4 vinninga
ásamt Ermenkov, Matanovic,
Matulovic og Georgihu. Radu-
lov og Ree hafa 3 1/2 vinning, en
Duball, Wirtensohn, Netskar og
Bednarsky hafa 3 vinninga
hver.
Þetta er staðan eftir 6 um-
ferðir, þegar öllum biðskákum
er lokið. Næsta umferð verður á
laugardaginn. Þá hefur Guð-
mundur svart á móti Mata-
novic.
Sérstœð listsýning í Norrœna húsinu
Björgvin Sigurgeir
Haraldsson opnar á morgun
sýningu i Norræna húsinu, sem
standa mun til 9. nóvember. Þar
sýnir listamaðurinn 14 túss-
myndir, 14 túss- og vatnslita-
myndir, 5 kolmyndir, 25 oliu-
málverk og 9 skúlptúr og lág-
myndir eða alls 67 verk.
Björgvin Sigurgeir er 41 árs,
og fjölhæfur iistamaður og hag-
leiksmaður hinn mesti. Hann
lagði i fyrstu stund á búfræði og
lauk framhaldsmenntum i
þeirri grein. Tvo vetur var hann
við nám i Handiða- og mynd-
listarskólanum og sömuleiðis i
Myndlistaskólanum. Hann nam
i Hamborg 1960 og 61, lauk siðan
smiðakennaranámi við
Kennaraskólann en 1970-71 nam
hann og lauk kennaraprófi i
myndlistum fyrir framhalds-
skóla i Noregi. Hann er nú
fastakennari við Myndlista- og
handiðaskólann.
Einkasýningu hélt Björgvin
Sigurgeir 1968 aðallega á
teikningum með koli og kolkrit.
Sýninguna nú og þá tengir hann
saman með sýningu á nokkrum
verkum frá þeim tima. 1 milli-
tiðinni hefur hann öðru hvoru
tekiö þátt i haustsýningum FIM
og sýnt ásamt öðrum i Reykja-
vik, á ísafirði, Akureyri og á
Húsavik og á samsýningu FIM
1975.
Um 1970 tók Björgvin Sigur-
geir að mála með oliulitum og
eftir Noregsdvölina einnig með
tússi. Jafnframt þessu hefur
hann unnið að skúlptúrverkum
og lágmyndum. Meðal verka
sem eftir hann liggja er stórt
myndverk úr steinsteypu sem
Reykjavikurborg keypti og lét
reisa við Háaleitisbraut.
Sýning Björgvins i Norræna
húsinu er með sérstæðum og
óvenjulegum svip, mikil
tilbreyting frá fjölda annarra
sýninga. -ASt.
Röðull: Haukar. Opið frá 8—1.
Tónabær: Paradis. Opið frá 9—1.
Sesar: Diskótek. Opið til kl. 1.
Klúbburinn: Dögg Og Kaktus. Op-
ið frá 8—1.
Sigtún: Pónik og Einar. Opið til
kl. 1.
Tjarnarbúð: Pelican. Opið frá
9—1.
óðal: Diskótek. Opið til kl. 1.
Glæsibær: Asar. Opið til kl. 1.
LeikhúskjalIarinn:Skuggar. Opið
til kl. 1.
Hótel Saga: Lúdó og Stefán i
Átthagasal. Opið til kl. 1.
Hótel Borg: Kvartett Árna ísleifs
og Linda Walker. Opið til kl. 1.
Kvenfélag Lúðrasveitar
Reykjavíkur
heldur flóamarkað og happdrætti
i Hljómskálanum á laugardag, 31.
október, klukkan 2. Góðir vinn-
ingar, engin núll.
Fresturtilað tilkynna um þátt-
töku i bikarkeppni KKt rennur út
1. nóvember.
Dómaranámskeið verður hald-
ið næstkomandi laugardag i
KR-heimilinu kl. 13. KKt
Frjálsiþróttasamband Islands
hefur ákveðið að efna til dómara-
námskeiðs f kastgreinum. Nám-
skeiðið fer fram i tR-húsinu við
Túngötu og hefst nk. mánudags-
kvöld 3. nóvember kl. 20.30. Vænt-
anlegir þátttakendur eru beðnir
að skrá sig á skrifstofu ISl fyrir
mánudagskvöld. FRI.
Ljósmæðrafélag
islands
Fjölbreyttur kökubasar verður
á Hallveigarstöðum laugar-
daginn 1. nóvember kl. 14 —
Ljósmæðrafélag islands.
Skrifstofa félags
einstæðra foreldra
Traðarkotssundi 6, er opin mánu-
daga og fimmtudaga kl. 3—7 e.h.,
þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 1—5. Simi 11822. A
fimmtudögum kl. 3—5 er lögfræð-
ingur FEF til viðtals á skrifstof-
unr.i fyrir félagsmenn.
Frá iþróttafélagi fatlaðra,
Reykjavlk:
Vegna tímabundins húsnæðis-
leysis falla æfingar niður um óá-
kveðinn tima. Bréf veröa send út
er æfingarnar hefjast aftur.
Stjórnin.
Ingólfur örn Ásbjörnsson,
kennari, Sólheimum Grimsnesi,
lézt 23. október sl. og fer útför
hans fram frá Fossvogskirkju i
dag kl. 13.30. Ingólfur var fæddur
30. april 1944, sonur hjónanna As-
disar Guðmundsdóttúr og As-
björns Stefánss., læknis. Hann
lauk kennaraprófi árið 1970 og
stúdentsprófi ári siðar. Hann
kenndi við Armúlaskólann i
Reykjavik, en i haust tók hann að
sér, ásamt konu sinni, Arnþrúði
Sæmundsdóttur, að sjá um
barnaheimilið að Sólheimum i
Grimsnesi.
Asta Sigurjónsdóttir,
frá Vik i Lóni, lézt 18. október sl.
og fór útför hennar fram frá
Stafafellskirkju i Lóni 25. októ-
ber.
Ásta var fædd i Vik i Lóni 28.
mai 1903, dóttir hjónanna Guð-
rúnar Gisladóttur og Sigurjóns
Sigurðssonar. Árið 1926 giftist
hún Einari Þorsteinssyni kenn-
ara, en hann lézt skömmu siðar.
Þá flutti hún til Akureyrar og
skömmu siðar til Reykjavikur.
Þar vann hún við heimilisstörf og
einnig á saumastofum.
Gisiina Sigurveig Gisladóttir,
Hverfisgötu 25, Hafnarfirði, lézt i
Landsspitalanum 26. október.
Hún verður jarðsungin frá Hafn-
arfjarðarkirkju á morgun kl. 11
f.h.
Loftur Árnason,
járnsmiðameistari, lézt i Borgar-
spitalanum 29. október.
Jónina Þorsteinsdóttir,
frá Brekku, Leifsgötu 21, lézt i
Heilsuverndarstöðinni 30. októ-
ber.
Aðalfundur KKR verður haldinn
á laugardaginn 1. nóvember kl.
13.30 i ráðstefnusal Hótels Loft-
leiða. KKR
Kvenfélag Eyfirðingafélagsins i
Reykjavik heldur sinn árlega
kaffidag i Súlnasal Hótel Sögu á
sunnudaginn 2. nóvember kl. 15.
Þær konur, sem myndu vilja
gefa kökur, eru vinsamlega beðn-
ar að hringja i Birnu i sima 38456
eða i Hörpu i sima 40363.
Nokkrar Flugbjörgunarsveitarkonur við undirbúning basarsins,
sem verður á sunnudaginn á Hótel Loftleiðum.
Kaffisala og basar — safnað
fyrir Flugbjörgunarsveitina
Þær vinna af kappi konurnar i
Flugbjörgunarsveitinni enda er
hin árlega kaffisala og basar
framundan. Það er bakað og
smurt, saumað, prjónað ogsett i
lukkupoka.
Flugbjörgunarsveitin verður
hvorki meira né minna en 25 ára
á næstu dögum og merki sveit-
arinnar, sem seld verða, eru af
þvi tilefni mjög vönduð.
Það er ekkert sérstakt sem
safna á fyrir þetta árið hjá þeim
Flugbjörgunarsveitarkonum,
en i fyrra voru þær svo stórtæk-
ar að þær gáfu sveitinni heilan
bil. Aður höfðu Lionsmenn gefið
tvobila,svoóhætt eraðsegja að
bilakosturinn hafi stórbatnað.
Var ekki vanþörf á þvi fyrir
voru i eigu sveitarinnar eld-
gamlir skrjóðar, sem þörfn-
uðust óþrjótandi viðgerða i fri-
timum félagsmanna.
Merkjasalan er á laugardag-
inn, en kaffisalan er á Hótel
Loftleiðum kl. 3 til 5 á sunnu-
daginn.