Dagblaðið - 02.03.1976, Qupperneq 9
Dagblaðið. Þriðjudagur 2. marz 1976.
9
Ingimar á spítala:
„Fimm brot eru eins
fljót að gróa og eitt"
„Ég hef aldrei komið á sjúkrahús
en þetta verður allt í lagi, fimm brot
eru cins fljót að groa og eitt,” sagði
Ingimar Eydal, hinn kunni og vin-
sæli hljómsveitarstjóri, í viðtali við
fréttaritara Dagblaðsins á Akureyri.
Ingimar varð fvrir því óhappi að
lenda í bifrciðaárekstri og slasaðist
hann illa, m.a. er hann fimmbrotinn
á mjaðmargrind.
,,Það á að skera mig upp núna í
vikunni og fóturinn er í strekkingu
eins og sjá má,” sagði Ingimar.
Sagðist hann ekki vita hversu lengi
hann vrði að liggja. Kunningjar Ingi-
mars segja að sennilega verði erfitt
fyrir hann að liggja lengi því atorka
Ingimars er alkunn á Akureyri og
þótt víðar væri leitað.
,,Hér er búinn að vera stanzlaus
straumur af fólki að heimsækja mig
— sjúkrastofan er bara heldur í
þrengra lagi,” sagði Ingimar hinn
hressasti. „Flest hefur verið hér í einu
um tuttugu manns og þá er nú
heldur farið að þrengjast.” Vildi
Ingimar líka þakka blóm og góðar
óskir til sín.
Þess ber að geta að hljómsveit.
Ingimars leikur áfram í Sjálfstæðis-
húsinu „á öllu útopnuðu”, eins og
þeir segja fyrir norðan, og er það
kannski örlítil sárabót.
Dagblaðið sendir Ingimar góðar
kveðjur með von um góðan bata.
—HHans/— HP.
Ingimar Eydal, hinn vinsæli hljómsveitarstjóri, liggur nú á sjúkrahúsinu á
Akureyri eftir umferðarslys (Ljósmynd Har. Hansen)
Geir vildi hindranirnar burt
Vegunum að radarstöðinni í Rock-
ville og varnarstöðinni í Grindavík var
lokað í fyrri viku, — ekki með bifreið-
unum heldur stórgrýti sem ekið var á
staðinn á vörubifreiðum og sturtað á
götuna svo að varla var öðrum farar-
tækjum en skriðdrckum fært að komast
yfir þcssar „gildrur.” Samkvæmt ósk
Gcirs Hallgrímssonar forsætisráðherra
fjarlægðu sjómenn hindranirnar á
laugardaginn, en hann taldi að þær
þjónuðu cngum tilgangi í sambandi við
landhelgisdeiluna við Breta. Myndin
erírá Grindavík og sýnir hún glögglega
stærðina á grjótinu sem ekið var á
veginn.
Möi sturtað ó veginn
- UMFERÐ TIL STOKKSNESS STÖÐVUÐ
í RÚMA TVO SÓLARHRINGA
Átta bílhlössum af möl var sturtað á
veginn frá Höfn í Hornafirði út að
radarstöð varnarliðsins á Stokksnesi.
Með því var honum lokað fyrir allri
bílaumferð. Gcrðist þctta á fimmtu-
dagsmorgun og mætti fjöldi fólks við
upphaf mótmælaaðgerðarinnar, Til-
kvnnt var að þetta væri gert til að
mótmæla aðgerðaleysi NATO í deilum
íslendinga og Breta um landhelgina.
Mótn\ælaaðgerðum lauk síðdegis á
laugardag, var þá rutt af veginum og
eðlileg umferð fiófst á ný.
Friðjón Guðröðarson, lögreglustjóri á
Höfn, sagði í viðtali við Dagblaðið að
hér hefði verið um sams konar aðgerðir
að ræða og á Suðurnesjum.
Umferð gangandi fólks til og frá
stöðinni var ekki hindruð en bílaumferð
stöðvuð. í stöðinni á Stokksnesi vinna
10 manns er heimili eiga á Höfn. Féklc
það fólk óhindrað að fara þangað og
þaðan fótgangandi.
—ASt.
Akureyri:
ÞÝFIÐ FYLLTITVO
LÖGREGLUBÍLA
Þrjú innbrot voru framin á Akur-
eyri fyrir helgina, svo ekki virðist
hald í þeim vonum manna að inn-
brotafaraldrinum þar væri að
linna.
Aðfaranótt föstudags var farið inn
á skrifstofur Dags í Hafnarstræti 90.
Þjófarnir höfðu um 5 þús. krónur
upp úr krafsinu. Hurðir voru hins
vegar brotnar og rótað til svo
skemmdir eru meiri en þýfinu nam.
Á sömu hæð er Kurt Sonnenfeld
tannlæknir með stofu. Var brotin
upp hurð þar á milli og rótað til hjá
tannlækninum, sem er þýzkur
konsúll á Akureyri. Var þaðan stolið
gjaldeyri, dönskum krónum, belg-
ískum frönkum og dollurum, en
mjög litlu magni af hverju. Sonnen-
feld tekur rafmagn af húsnæði sínu í
heilu lagi, þá er hann yfirgefur
staðinn. Voru gólf eldspýtum stráð
sem þjófarnir hafa notað við leit
sína. Geta menn gert sér í hugar-
lund eldhættuna í gömlu timbur-
húsi.
Þá var farið í gamla togarann
Harðbak við Torfunessbryggju og
þar mikið rótað.
Margir hafa verið yfirheyrðir.
Upplýst er um þjófnaðinn í togaran-
um. Var þýfið sótt heim til þjófanna
og þurfti tvo lögreglubíla til. Voru
þetta m.a. hlutar úr talstöð o-g
heyrnartæki og margt fleira. Voru
þarna að verki „kunningjar” lög-
reglunnar úr fyrri innbrotup og
eitthvað af nýliðum. Þeir viður-
kenndu ekki tvö fyrrnefndu innbrot-
in. ASt.
Þorskurinn veiddur undir herskipaverndinni
fer í skepnuf óður
Mikill hluti af afla brezkra togara
á íslandsmiðum, eða a.m.k. 200 tonn
af afla síðustu viku, er seldur í
Grimsby og Hull til skepnufóðurs.
Síðasta vika hefur verið fyrir
brezka togaraútgerð vægast sagt
ömurleg. Enginn togaranna, sem
gerður er út á íslandsmið, hefur verið
gerður út með gróða. Tapið á útgerð
nokkurra þeirra aðcins einn túr hefur
numið allt að 3,5 milljónum króna.
Fyrsta flokks íslands-þorskur selst nú
í Bretlandi á ekki nema nítján pund
•stæðan (63 kíló) en þyrfti að seljast á
'tuttugu og eitt til að standa undir
útgerðinni við ísland. Við þessar töl-
ur má svo e.t.v. bæta að útgerð flota
henar hátignar á íslandsmið er
heldur ekki rekin með gróða svo að
öllu samanlögðu er hvert þorskgrey
komið á borð Bretans fjári dýrt.
—BH
ÖSKUDAGURINN FJÁRÖFLUNARDAGUR RKÍ
Nýi sjúkrabíllinn kostar ó fimmtu
milljón kr. ón
„Vinsælasti þátturinn í starfsemi
okþar hefur alla tíð verið rekstur
sumardvalarheimilanna fyrir börn,”
sagði Ragnheiður Guðmundsdóttir
læknir en hún er formaður Reykja-
víkurdeildar Rauða krossins. „Einnig
önnumst við alla sjúkraflutninga á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Á morg-
un, öskudag, efnum við að venju til
merkjasölu og verða merkin afhent
sölubörnum í skólum borgarinnar.”
Ekki veitir af að bæta fjárhaginn
því mikldr framkvæmdir eru á döf-
inni hjá Reykjavíkurdeildinni. Ber
þar einna hæst kaup á nýjum og
mjög fullkomnum sjúkraflutningabíl
sem væntanlegur er til landsins með
fyrstu ferð eins og Ragnheiður orðaði
það.
„Bíllinn er mjög fullkominn,
kostaði á fimmtu milljón króna, og er
þá eftir að greiða <jll aðflutningsgjöld
af honum.
Rckin úefur verið fræðslustarfsemi
á okkar vegum, nýlokið er námskeiði
í skyndihjálp fyrir skólafólk. Einnig
höfum við haldið námskeið um að-
hlynningu sjúkra í heimahúsum,
bæði fyric almenning og einnig fyrir
fólk sem vinnur við heimilishjálp
Reykjavíkurborgar.
Þá hefur Reykjavíkurdeildin á sín-
um vegum útlán á ýmiss konar
sjúkragögnum fyrir almenning, t.d.
sjúkrarúmum. Er sú þjónusta veitt
gegn læknisvottorði og er endur-
gjaldslaus.
Ekki má gleyma starfsemi kvenna-
deildarinnar, en hún hefur unnið
mjög gott starf. Deildin sér um sölu-
búðir fyrir sjúklinga á Landakots-
spítala og Grensásdeildinni og einnig
um bókasöfn sjúklinga. Það starf er
unnið endurgjaldslaust eins og önnur
störf á vcgum deildarinnar. Einnig
hefur kvcnnadeildin haft á sínum
vegum heimsendingu matar til
aldraðra og öryrkja.
tolla
Sú starfsemi hefur mælzt mjög vel
fyrir en hefur verið rekin í eins konar
tilraunaskyni, aðallega til íbúa í
Norðurbrún og Austurbrún.
Loks langar mig til þess að nefna
sumardvalarheimilin að Jaðri og
Silungapolli. Við það $tarf njótum
við fjárhagsaðstoðar borgarsjóðs því
að öðrum kosti væri ekki mögulegt að
halda gjöldunum í lágmarki. Við
reynum að gera miklar kröfur til
okkar sjálfra og sjá um að uppfylla
allar hugsanlegar kröfur. Til skamms
tíma held ég t.d. að ekki hafi verið
vökukona á öðrum heimilum en hjá
okkur. Verðinu er stillt mjög í hóf til
þess að sem fiest börn gcti notið
dvalarinnar. Hver hópur getur verið
í fjórar vikur og eru 50 börn í hverj-
um”.
— Hve lengi hefur Rauði krossinn
séð um sumardvalir Reykjavíkur-
barna?
„Þessi starfsemi hófst á stríðsár-
unum og var upphaflega ætluð til
þess að koma börnum og mæðrum úr
Reykjavík. Eftir að stríðinu lauk kom
í ljós hve þörfin var brýn fyrir sumar-
dvalarheimilin fyrir börn af höfuð-
borgarsvæðinu og var því starfsem-
inni haldið áfram.
Lengi vel rákum við myndarlegt
sumardvalarheimili að Laugarási í
Biskupstungum en húsakynni þar
eru öll orðin úr sér gengin og upj>
fylla engan veginn bær kröfur sem
gerðar eru til slíkra húsakynna. En
við höfum landið sem er sérstaklega
vel til starfseminnar fallið með góð-
um jarðhita. Við vonumst til þess að
geta komið upp nýjum húsakynnum
í Laugarási sem allra fyrst.
öskudagurinn hefur verið íjáröfi-
unardagur okkar í fjöldamörg ár og
vonumst við eftir sem flestum sölu-
börnum,” sagði Ragnheiður Guð-
mundsdóttir læknir.
—A.Bj.
öllum er Ijós nauðsyn þess að borgarbörn fái notið útivistar „á grasi.” Þarna
eru kát Reykjavíkurbörn að leik á Silungapolli sumarið 1975.