Dagblaðið - 03.03.1976, Page 3

Dagblaðið - 03.03.1976, Page 3
Dagblaðið. MLðvikudagur 3. marz 1976. NATO ó að styrkja Breta til að hœtta veiðunum MAGNUS V. FINNBOGASON menntaskólakennari skrifar: Ef Atlantshafsbandalagið telur sér nauðsvnlegt að halda núverandi aðstöðu sinni á Miðnesheiði verður það að finna einhverja leið til að stöðva hernað Breta á íslandsmiðum, og það sem allra fyrst. Vegna ofbeldis Breta og ósannindavaðals þeirra í fjölmiðlum víðs vegar um heim fjölgar þeim Islendingum dag- lega sem efast um að íslenzka þjóðin eigi heima í hópi þeirra þjóða sem standa að Atlantshafsbandalaginu. Auðvitað hef ég engar tölur til að styðjast við um þessi breyttu viðhorf manná en drcg ályktanir mínar af umgengni og samtölum við allstóran hóp manna hér í borg. Þessi viðhorfs- breyting til Atlantshafsbandalagsins er staðrevnd, því miður. Fólk segir sem svo: Hvað eiga íslendingar að gera í félagi við þjóðir sem láta sér lynda að ein þjóð bandalagsins, ein minnsta dvergþjóð heims sé beitt vopnuðu ofbeldi og rænd auðlindum sínum af annarri þjóð sama banda- lags? Allri heimsbyggðinni er kunnugt að Bandaríkjamenn, voldugasta þjóð Mlantshafsbandalagsins, verja milljörðum dala árlega til hjálpar vanþróuðum og fátækum þjóðum. Getur ekki Atlantshafsbandalagið beitt sér fyrir því að Bandaríkjamenn láti ofurlítinn hluta þessa hjálparfjár ganga til Breta? Verði upphæð fjárins miðuð við að Bretar verði skaðlausir þótt þeir hætti veiðum á íslandsmiðum. Þessi hjálp til Breta yrði auðvitað að halda áfram þar til er Bretar hefðu rétt svo við efnahags- lega að þeir væru sjálfbjarga. Ef Bandaríkjamenn telja sér henta að hafa varnarliðið á íslandi ættu þeir að vera fúsir til að gera þessa ráðstöfun Bretum til hjálpar og til tryggingar aðstöðu sinni á íslandi. Fram að þessu hafa, fáir aðrir en róttækir vinstrimenn amazt við her- itöð Bandaríkjanna á Miðnes- heiði. En nú eykst þeirri stefnu Hvernig var það með landbúnaðar- mólin, DB? HÖFUÐBORGARI SKRIFAR: ..Dagblaðið (DB) varð til eftir heiftúðugar deilur við fjölskyldu eina hér í bæ sem hafði þá hagsmuni að selja bændum tæki ýmisskonar — og gefa út dagblað. Þegar dagblaðið fór réttilega að benda bændum á sitt- hvað sem betur mætti fara í land- búnaðarmálum urðu bændur æfir. Þeir neituðu að hlusta á efascmdir uni eigið ága-ti, enda þótt þar væri deilt á þá rétlilcga. Þá varð sprengingin. annaðhvort keyptu baridur landbúnaðarvélarnar sínar hjá heildsalanum, ciganda dag- blaðsinsjmeð litlum staf), áfram eða færu annað. þ.e. ef ritstjórinn „illyrmislegi” léti ekki af starfi. Jæja, það varð nú, sem bctur fer. Upp úr því kom mun betra DAGBLAÐ, eins og sala og vinsældir tnunu sanna. En, kæra Dagblað — gleymdu ekki rótunum að því tré, sem þið eruð orðnir. Gleymið ekki að skrifa um landbúnaðarmálin. 'Fakið þau nú fvrir, bæði í leiðurum og grcinum. Og hættið ekki fvri eri cðlilegt mat- viiruverð er á markaði hér.” fylgi með hverri viku sem líður að íslendingar eigi að segja sig úr Atlantshafsbandalaginu og láta varnarliðið hverfa á brott. Ef Bretar halda áfram hernaði sínum og veiðiskap á íslandsmiðum, má fullvíst telja að íslendingar segi sig úr bandalaginu strax eftir næstu al- þingiskosningar, ef þeir hafa ekki gert það áður. Þetta ættu Banda- ríkjamenn að hugleiða og raunar allar þær þjóðir, sem standa að bandalaginu, ef þær álíta aðstöðuna á íslandi einhvers virði. En ef svo fer, sem líklegast er, að átökin haldi áfram á íslandsmiðum, verður auðvitað að efla gæzluna til muna, hvað sem það kostar. Væri fráleitt að fá leigða ísbrjóta, ef unnt væri, t.d. frá Noregi eða Kanada? Þeir ættu að geta verndað íslenzku varðskipin. Að minnsta kosti hefðu skipherrar brezku freigátnanna varla mikinn áhuga á að stofna til árekstra við öfluga ísbrjóta, þótt leikur þeirra við íslenzku varðskipin sé helzt til of ójafn. Aldregi mat hann fjór lœkning sína hefur lesandi eftir Hrafni Sveinbjarnarsyni oghvetur lœkna til að meta starf sitt ekki um of til fjór Sigurður Sigurðsson skrifar: „Grein Þorsteins Thorarensen í Dagblaðinu um laun og aukalaun lækna voru orð í tíma töluð. A margra vitorði cr að laun lækna hafa verið há, geigvænlega há fyrir lítið þjóðfélag eins og hið íslenzka. Miklum erfiðleikum hefur verið bundið að fá lækna til starfa úti á landi. Rcykjavík og nokkrir hinna stærri kaupstaðanna hafa setið að læknunum. Þetta hefur orðið þess valdandi að dreifbýlið býr við öryggisleysi í hcilbrigðisþjónustu. Einstaklingar innan stéttarinnar hafa skrifað fjálglega um sveitasæl- una og dýrðir dreifbýlisins. Um leið hafa þeir lýst sjálfum sér scm hinum mestu góðmennum og hugsjóna- mönnum, vammlausum og víta- lausum. En um leið og þeim, sem hafa starfað úti á landi, hefur boðizt starf í Revkjavík hafa þeir þotið. Launamál læknastéttarinnar hefur borið hátt, enda kaupið hátt. í því sambandi vil ég nefna eitt dæmi, vafalaust ekki einsdæmi. Ungur læknanemi — takið cftir læknancmi — fór um ftmm vikna skcið út á land í sumar til afleysinga og fékk í laun frá ríki, sjúkrahúsi, héraði og fyrir „praksis” nær fjögur hundruð þúsund krónur. Þá er eins da*mið um tannlækninn sem fór úr bvggðarlagi einu fvrir norðan með á þriðju milljón króna eftir fárra vikna vinnu, fra*gt. Er nú furða |)ó fólki bliiskri |>egar ein stétt er oflaunuð fram úr hófi? Allt heilbrigðis- og almannatr>fgg- ingakerfi landsins riðar nú til falls vegna óhóflegs kostnaðar. í inngangi að bók sinni Læknar á íslandi, segir hinn ritsnjalli gáfu- maður, Vilmundur heitinn Jónsson landlæknir, að Hrafn Sveinbjarnar- son læknir á Eyri við Arnarfjörð (1170-1213) hafi „tekið læknisstarfið þeim tökum er mega vera til fyrir- myndar læknum á öllum tímum.” En í Hrafns sögu Sveinbjarnarson - ar segir svo um hann: „Aldregi mat hann fjár lækning sína.” Mættu íslenzkir læknar nú draga af nokkurn lærdóm, það er: meta ekki starf sitt um of til fjár.” Raddir lesenda Spurning dagsins Hvaða vörur skorti þig. helzt á meðan á verkfalli stóð? ELÍNBORG ASMUNDSDÓTTIR húsmóðir: Mig skorti engar vörur nema mjólk og það kom sér nú ekki mjög illa, vegna þess að ég á ekki það ung börn. JÓHANNES HANNESSON vörubíl- stjóri: Það var aðallega mjólkina sem skorti á mínu heimili. Auðvitað var bensínið einnig af skornum skammti en það urðu ekki nein teljandi vandræði vegna þess. SIGRÚN SIGTRYGGSDÓTTIR hús- móðir: Það vantaði ekki neitt á mínu heimili og þess vegna hefði verkfallið mátt vera lengur. Að vísu gerðum við innkaup fyrir verkfall og þá meiri en venjulega. JÓN GÚSTAFSSON bóndi: Ég var nú gestkomandi hér í bænum og það sem vantaði mest þar sem ég þekki til var mjólkin. Fólk reyndi að fara sem minnst á milli til að spara bensínið svo þetta var ekki eins slæmt og það hefði getað orðið. SJÖFN JÓHANNSDÓTTIR af- greiðslustúlka: Það voru mjólkurvör- urnar sem vantaði á mínu heimili og svo var revnt að spara bensínið. Það var ágætt að Afengisverzlunum var lokað, það er vara sem hægt er að vera án. SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR hús- móðir. Aldeilis ekki neitt. Ég cr frá Akranesi og þar fórum við.út í svcitina og fengum mjólk.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.