Dagblaðið - 03.03.1976, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 03.03.1976, Blaðsíða 10
10 Dagblaðið. Miðvikudagur 3. marz 1976. MMBIABW frjálst, úháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri; Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason fþróttir: Hallur Símonarson Hönnun: Jóhannes Reykdal Blaðamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi. Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdottir, Gissur Sigurðsson, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Katrín Palsdóttir, Ólafur Jónsson, Ómar V aldimarsson. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson, Ragnar Th. Sigurðsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorlcifsson Dreifingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakið. Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar, áskriftir og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022. Setning og umbrot: Dagblaðið hf. og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Fyrirmyndarsamningar Kjarasamningarnir um helgina voru góðir og skynsamlegir, til sóma öllum þeim, sem að stóðu. Þeir verða á marg- an hátt taldir til fyrirmyndar, þótt ekki tækist að hindra, að verkfall stæði í tæpar tvær vikur. Samningarnir drógust á langinn af þremur meginástæðum. I fyrsta lagi sjálfstæðir aðilar þátt í þeim, til dæmis nærri þrjátíu samtök launþega. Svo umfangsmiklir samningar hljóta að dragast á langinn. I öðru lagi voru veigamiklar kerfisbreytingar meðal helztu þátta samninganna. Sett var upp alveg nýtt lífeyriskerfi, sem á að brúa bilið, unz gegnumstreymis- kerfi getur endanlega tekið við af uppsöfnunarkerfi. Og uppskurðurinn á sjóðakerfi sjávarútvegsins olli miklum erfiðleikum í samningunum um hlutaskipti sjómanna. Loks var í þriðja lagi ekki um neitt að semja, því að ríkið hefur hirt allar umfrarhkrónur í þjóðfélaginu og ríkisstjórnin hunzað tillögur samningsaðila um sam- drátt ríkisbáknsins og lækkun skatta. Launþegar þurftu miklar kjarabætur, sem atvinnuvegirnir gátu engar veitt. Slíkt ástand gerir kjarasamninga að sjálfsögðu einkar erfiða. Samningarnir voru til fyrirmyndar að því leyti, að deiluaðilar gengu að þeim eins og hverju öðru verkefni, sem leysa þyrfti. Flokkapólitík hljóp ekki í spilið. Báðir aðilar notfærðu sér vel hagfræðilega þekkingu og voru ekki með nein mannalæti út í bláinn. Ennfremur voru þeir til fyrirmyndar að því leyti, að þeir spanna yfir öll mikilvægustu svið atvinnulífsins. Flestir sérhópar voru teknir með í samningunum og verulegt samræmi var haft milli kjarabreytinga ein- stakra hópa. Slíkir heildarsamningar eru betri en sérsamningar, þótt þeir taki lengri tíma. Þá voru samningarnir til fyrirmyndar að því leyti, að allar sérkröfur voru metnar til fjár og ákveðið, hve langt mætti ganga í afgreiðslu þeirra. Fyrir bragðið gátu ákveðnustu þrýstihóparnir ekki hlaupið út undan sér og urðu að halda sér innan ramma heildarinnar. Loks voru samningarnir til fyrirmyndar að því leyti, að þeir leysa þann vanda, sem verðbólgan hefur skapað ellilífeyrisfólki. I framtíðinni verður vafalaust litið á þetta sem veigamesta atriði samninganna og eitt af hinum stóru skrefum þjóðarinnar í átt til félagslegs réttlætis. En samningarnir hafa sína galla, sem ekki eru deiluaðilunum að kenna. Þeir auka ekki kaupmátt almennings, heldur vernda hann aðeins. Þeir gera samt gífurlegar kröfur til greiðslugetu atvinnuveganna, sem eru óvenju illa stæðir um þessar mundir. Samningarnir hljóta að leiða til nýrrar verðbólguhrinu á árinu, ekki sízt vegna rauðu strikanna, sem eru eins konar sjálfvirk vísitala. Þessi vandamál eru fyrst og fremst á verksviði ríkisstjórnarinnar, sem hingað til hefur látið undir höfuð leggjast að stjórna efnahagsmálum þjóðarinnar og fjármálum ríkisins. Það sem aðilar vinnumarkaðsins geta lagað í náinni framtíð eru vinnuaðferðirnar við gerð kjarasamninga. Síðan samningar urðu jafn umfangsmiklir og raun ber vitni, þarf að ski])uleggja vinnubrögð á alveg nýjan hátt, svo að framvegis verði búið að semja, áður en ve rkfall skellur á. tóku margir Þjóðarbúskapur Argentínu er eitt skuldafen Milljónir Argentínumanna eru þessa dagana að koma úr sumarleyf- um sínum og komast þá að því að vinnuveitendur þeirra liggja á hnján- um fyrir framan stjórnvöld og biðja um lán til að greiða starfsmönnum laun. Meðal þeirra, sem hafa fengið fréttir af þessu tagi, eru hundrað og fimmtíu þúsund starfsmenn í bíla- iðnaði, þrjú hundruð þúsund Buenos Aires-búa í vefnaðariðnaði og þús- undir sykurskurðarmanna í Tucu- man-héraði í norðurhluta landsins. Atvinnuöryggi úr sögunni Þessir launþegar eru aðeins hluti þeirra, sem vita nú af því að atvinnu- öryggi þeirra er stefnt í verulega hættu vegna grafalvarlegs efnahags- ástands, bullandi verðbólgu og stöðug s kreppuástands. Miðstéttarfólkið, sem margt hefur orðið að láta af árlegum orlofsferðum sínum til úrúgvæsku strandborgar- innar Punta del Este, hefur fengið sömu slæmu fréttirnar að undan- förnu. Hœkkandi verð og versnandi þjónusta í miðjum sumarleyfisundir- búningnum bárust þær fregnir, að rafmagnsveitur, járnbrautarfelög og símafyrirtæki ríkisins hefðu tvöfaldað verðlag á sífellt versnandi þjónustu sinni. Jafnframt hafði matarreikn- ingur argentínsku vísitölufjölskyld- unnar hækkað tvöfalt. 403% verðbólka í fyrra Er þar að verki gífurleg óðaverð- vólga, — hún hefur orðið 403 prósent á síðasta ári og iðnframleiðsla hefur minnkað um fjögur prósent miðað við sama tíma í fyrra Segja hagfræð- ingar að jafnvel ríkisskuldabréf og önnur heimatilbúin lán geti ekki bjargað við efnahagslífinu. Raungildi launa er nú talið hafa minnkað um 30 prósent, miðað við verðgildi launa mánuði eftir að Perónistar tóku við völdum eftir síðustu herforingjastjórnina. Minnkandi eftirspurn hefur dregið úr sölu bifreiða um 41 prósent á B§1 * Verkalýðsforingjar hafa verið tíðir gestir hjá Peron forseta, en stuðningur þeirra við hana er ekki nægilegur til þess að bjarga Argentínu frá augljósu gjaldþroti. Velt milli tannanna Á þessum erfiðu tímum, sem þjóðin gengur nú í gegnum, er mikil nauðsvn að gera skvnsamlegar og vel unnar áætlanir um það hvernig tak- . ast megi að lyfta þjc'íðinni úr þeim öldudal sem hún er nú komin í. Þótt við séum smáþjóð, aðeins 200.000 lengst norður á hjara verald- ar, er efnahagsleg velmegun einstakl- inga í þcssu landi allgóð í saman- burði við efnahag almennings í ná- grannalöndum okkar. Við látum okkur eigi að síður hafa það að bvggja upp fjárhagslega afkomu okk- ar með hreinni happa- og glappaað- ferð. Eini atvinnuvegurinn hér á landi, sem býr við skipulega uppbyggingu og nokkurt framtíðaröryggi, er land- búnaðurinn. í sjávarútvcgi ríkir enn veiðimannahugsunarháttur og ger- samlega skipulagslaus uppbygging fiskiskipaflota á sér stað svo og næst- um skipulagslaus uppbygging fisk- vinnslu. Fiskiskip eru bvggð í stórum . slumpum og á tíu til fimmtán ára fresti og ekkert þcss á milli. í iðnaði ríkir enn verra ástand cn í sjávarút- vegi. Iðnaður cr mjög sundurleitur atvinnuvegur miðað við sjávarútveg - og jandbúnað. Samstaða -og sam- vinna innan þessa atvinnuvegar um hagsmunamál atvinnuvegarins scm heildar er mögulcg í mun minna mæli en innan sjávarútvegs og land- búnaðar. Öllum er það að sjálfsögðu ljóst að við byggjum lífsafkomu okkar á höfuðfrumframléiðslugreinunum, landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði, en allt of sjaldan er reynt að gera grein fyrir því hvaða valkostir séu fyrir hendi um skipulega uppbygg- ingu þessara frumframleiðslugreina. Árið 1974 voru brúttóþjóðartekjur u.þ.b. 130 milljarðar kr. Af þeim var varið sem svarar 2,4 milljörðum til uppbyggingar iðnaðar, 2.8 milljörð- um til uppbyggingar landbúnaðar og 4.9 milljörðum til uppbyggingar sjávarútvegs. Setja mætti fram markmið sem væri til dæmis í því tólgið að ákveða fyrirfram ár hvert hve stór hluti brúttóþjóðartekna skuli fara til upp- byggingar atvinnuveganna og skipt- inguna milli þeirra. Augljóst er að ekki er mögulegt að byggja upp mörg mjög öflug iðn- fyrirtæki fvrir það litla fjármagn sem fór til fjármunamvndunar í iðnaði 1974. Uppbvggingin svarar til þess að keyptir hefðu verið fjórir skuttog- arar til landsins til viðbótar þeim sem fyrir hendi eru og sjá allir að lítið munar um þá uppbyggingu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.