Dagblaðið - 03.03.1976, Page 4

Dagblaðið - 03.03.1976, Page 4
4 Dagblaðið. Miðvikudagur 3. marz 1976. Verkföllin og spaugilega hliðin: „Já, ég sé að það er allt í lagi með Lenín kallinn" Farþegarnir létu verkfallsverðina heyra sitt af hverju við komuna til Keflavíkur- flugvallar. Launþegasamtökin á Suðurnesjum höfðu vakandi auga með verzlunum og vinnustöðum á meðan á verkfall- inu stóð. í bækistöðvum tveggja stærstu félaganna, Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur og nágrennis og Verzlunarmannafélags Suður- nesja voru jafnan margir til taks, ef grunur lék á að einhvers staðar væri verið að vinna. Þeir héldu þegar á vettvang og stöðvuðu þá sem þeir töldu brotlega. Ekki gekk það alveg árekstralaust, sérstaklega hjá verzl- unarmönnum. Kaupmenn freistuð- ust til, — enda uppgripatími fyrir þá, þar sem kaupfélagið var lokað, — að setja aðra en sína fjölskyldumenn, í störf sem félagar í VS, sem voru í verkfalli, voru ráðnir til að gegna. Kom tíðum til orðaskaks og jafn- vel stimpinga þegar verkfallsverðir reyndu að hindra viðskipti kaup- manna með því að raða sér fyrir inngöngudyr verzlananna. Ekki voru væntanlegir viðskiptavinir ávallt hrifnir þegar þeir urðu frá að hverfa án þess að verzla en sumir höfðu þó hugrekki til að brjóta sér leið gegn- um verkfallsvarðavegginn, þar á meðal drottins þjónar. Ýmis spaugi- leg atvik gerðust líka eins og þegar Hér er verið að gantast við verzlunina Nonna og Bubba í Keflavík, — allt í mesta gamni (Ljósmyndir Emm) tvíbreiða konan áræddi ekki fram hjá verkfallsvörðunum en tautaði um leið og hún sneri frá ,,maður á víst að verða hungurmorða.v „Varla stend ur nú verkfallið svo lengi,” varð þá einum verði að orði. í verzlun einni, sem stendur á sjávarbakkanum við Hafnar- götuna, hófðu VS menn grun um ólögmætan starfskraft. Héldu þeir strangan vörð um bygginguna fram eftir nóttu, en enginn yfirgaf bygginguna utan annar eigandinn, sem var kona. Þegar birti af degi kom í ljós, að verkfallsbrjóturinn hafði látið sig síga í reipi út um bakglugga og niður í fjöruna og sloppið þaðan óséður, — spor í snjónum sönnuðu það, svo að varla var um að villast. Verkfallsverðir VFSK höfðu strangar gætur á öllu sem þeim við- vék, sérstaklega á Keflavíkurflugvelli. Þeir áræddu að leggja til atlögu við eitt þjónustufyrirtæki varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, bensínstöð sem afgreiddi eldsneyti og aðrar nauðsyn- legar vörur fyrir einkabifreiðir varnarliðsmanna. Stöðvuðu þeir af- greiðslu og héldu þar vörð unz verk- falli lauk, á þeim forsendum að um 15% þeirra sem þarna keyptu bensín væru búandi í Keflavík og þeir hefðu engan rétt umfram aðra Keflvíkinga til að kaupa bensín.... í flugstöðina vantaði verkfallsverð- ina ekki ef eitthvað var á seyði, — hvort heldur var undanþága fyrir Loftleiðavél til eldsneytistöku við áhafnaskipti, eða íslendinga með heimþrá, sem verkfallið hafði tafið úti í löndum í nær hálfan mánuð. Hvorki harmagrátur fransks flug- manns, sem óvart hafði lent í Kefla- vík og vantaði aðeins 2000 pund af bensíni til að komast heim, né köpur- yrði „útlaganna”, sem loksins komust heim, höfðu minnstu áhrif á verkfallsverðina. Þeir gegndu skyld- um sínum ákveðnir og einbeittir en gátu þó ekki stillt sig um að brosa, þegar einn farþeginn, kona, — heldur völt á fótunum, vatt sér að einum þeirra og pírði augunum á málmmynd, sem hann bar í kraga- horninu, og hrópaði, ,,já, ég sé að það er allt í lagi með Lenin kallinn”. — emm — INFLÚENSAN ER KOMIN — bóluefni við stofninum hefur enn ekki verið framleitt „Við höfum látið taka inflúensu- sýni en ekki fengið neina niðurstöðu vegna þeirra ennþá. Hins vegar bendir allt til þess að veiki af svo- nefndum Victoríustofni sé farin að stinga sér niður hérna,” sagði Skúli G. Johnsen borgarlæknir í samtali við Dagblaðið. Victoríuinflúensan tók að ganga í Evrópj í nóvember á síðasta ári og hefur verið að breiðast út þar og í Bandaríkjunum síðan. Hún lýsir sér með háum hita í byrjun og fylgja honuin höfuð- og beinverkir og slæmur hósti. Hitinn stendur í um það bil þrjá daga. Fólki er þó ekki óhætt að fara út fyrr en það hefur verið hitalaust í að minnsta kosti 2-3 daga. Að sögn borgarlæknis er Victoríu- inflúensa hvorki betri né verri en þeir stofnar sem hafa gengið hér á iandi undanfarin ár. Fólk' verður samt að fara vcl með sig er það veikist. — Bóluefni við þessum stofni hefur enn ekki verið framleitt. Spánska veikin í Bandaríkjunum hættuminni én 1918 Borgarlæknir var ennfremur spurður álits á fréttum þess efnis að Spánska veikin væri farin að ganga í Bandaríkjunum. ,JÚ, ég hef fengið upplýsingar um Spönsku veikina,” svaraði Skúli. ,,Það hafa farið fram mjög víðtækar rannsóknir á henni í New Jersey í Bandaríkjunum. Vitað er um að ellefu manns hafa veikst í Bandaríkj- unum, en hins vegar hefur hún ekki leitt til nema eins dauðsfalls.” Að stofni til er Spánska veikin talin vera vírus sem sagður er fylgja svínum, enda er-hún oft nefnd svína- inflúensa. Hún er skyld þeirri spönsku veiki sem gekk hér árið 1918, en þó sennilega ekki af nákvæmlega sömu gerð, þar eð hún virðist ekki mannskæðari en venjuleg inflúensa. Einnig þarf að taka með í reikning- inn, að fólk er ekki eins næmt fyrir sjúkdómum og það var í byrjun aldarinnar, þar eð næringarástand er almennt mun betra. Þá er þess að geta að fólk sem komið er vel yfir fimmtugt hefur enn í sér mótefni gegn Spönsku vcikinni. —ÁT — Fiskkaupendur! Eigendur 11 tonna færabáts óska eftir við- skiptum við fiskverkun á Suðurnesjum. Ein- hver fyrirgreiðsla skilyrði. Sími 28676. sem er 19 ára og afgreiðslustúlka hjá Hans Petersen. ,,Þetta er fyrsta karnivalhátíðin á opinberum skemmtistað sem haldin hefur verið hér á landi, svo ég viti til,” sagði Ingólfur Guðbrandsson forstjóri Útsýnar. Hann sagði frá sögu karnival- hátíðar erlendis um kvöldið. Slíkar hátíðir eru aldagömul hefð í flestum löndum Evrópu og raunar beggja megin Atlantshafsins. Þær fara fram með miklum glæsibrag og gáska. Fólk fer á grímudansleiki og í skrúðgöngur með tilheyrandi léttri tónlist, söng og dansi, og hvers konar uppátækjum. „Ég ætla að reyna að innleiða þetta hér. Útsýn ráðgerir að halda karnivalhátíð á hverju ári. Almanna- rómur var að mjög vel hefði tekizt með þessa fyrstu. Yfir sjö hundruð manns voru mættir til leiks. Brvddað var upp á ýmsum nýjungum í skemmtanalífinu. Hátíðin hófst með pompi og pragt kl. 7.30 í fvrrakvöld og er mér ekki kunnugt um að matreitt hafi verið inni í salnum eins og gert var á Sögu í þetta skipti. Var kjöt steikt á teini yfir eldi. Á meðan á því stóð spilaði 20 manna lúðrasveit Hafnarfjarðar undir stjórn Hans Ploder létt lög. Dansflokkur úr Dans- skóla Heiðars Ástvaldssonar sýndi einnig poppdans,” sagði Ingólfur. Frægustu karnivalhátíðirnar eru ákaflega mikill segull fyrir ferða- mannastrauminn, en þær eru t.d. haldnar í Köln, Feneyjum, Róm, Nice og Rio de Janeiro. Það er siðúr erlendis að kjósa karnival að kjósa karnivaldrottninguna og jafnvel karnivalprins líka. Við hér heima létum okkur nægja drottningu að þessu sinni, hvað sem seinna verður. Þátttakendur í keppninni um titilinn karnivaldrottningin eru jafn- framt þátttakendur í keppninni um ungfrú Útsýnar titilinn. Sú sem hann hreppir er valinn Ijósmyndafyjirsæta fyrirtækisins á þessu ári. Sú keppni heldur áfram á næstu tveim Útsýnar- kvöldum. -EVI. Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar, er augsýnilega mjög ánægður með valið á hinni . nýkjörnu karni valdrottningu, Sigurveigu HalJ. DB-mynd Björgvin. Nú er það ekki fegurðardrottning heldur KARNIVALDROTINING „Jú, það kom mér skcmmtilega á óvart að ég skvldi vinna,” sagði nýkrýnd karnival-drottning, Sigur- vcig Hall. Hún cr fyrsta karnival- drottning á íslandi, valin á Útsýnar- kvöldi á Hótel Sögu. Sigurvcig var þarna bara stödd til þcss að skcmmta scr. Einhvcr hafði svo skrifað nafn hcnnar ásamt tíu öðrum og hún varð hlutskörpust í kcppninni,* vann tvcggja vikna ferð annaðhvort til ftalíu.cða Spánar mcð Útsýn. „Það cr stórfínt að bregða sér á ball og fá svona óvæntan hciður og fcrðalag í þokkabót,” sagði Sigur\cig,

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.