Dagblaðið - 03.03.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 03.03.1976, Blaðsíða 7
Dagblaðið. Miðvikudagur 3. marz 1976. Danmörk og Svíþjóð: NÝR KYNSJÚKDÓMUR ItGGST Á UNGBÖRN Ný tegund kynsjúkdóms hefur komið í Ijós í Danmörku og breiðist hann út til nálægra landa. Sjúkdóm- urinn er krankleiki sem hingað til hefur gengið undir nafninu trakom, eða hin egypzka augnveiki. Hefur þessi sannieikur komið í ljós eftir bráðum 15 ára rannsóknir, sem Carl H. Mordhurst yfirlæknir hefur staðið fvrir. „Sjúkdómurinn lýsir sér sem bólg- ur í þvagrásum, sár í leghálsi, eða bólgur í augum,” segir Mordhurst, „og einkennin eru þau sömu og við lekanda, sviði við þvaglát eða útferð. Menn hafa álitið að trakom sem bólgur í augum, augnsjúkdómur, hafi verið útrýmt á Norðurlöndum fyrir 30—40 árum. Mordhurst álítur hins vegar að alltaf hafi verið um einstök tilfelli að ræða og að trakom sem kynsjúkdómur hafi alltaf verið til en menn ekki álitið sjúkdóminn vera af þeirri gerð fyrr en nú. Það sem alvarlegast er í þessu sambandi er að nokkuð stór hluti nýfæddra barna fær þennan sjúkdóm við fæðingu. Er jafnvel álitið að allt að t\ ö próscnt nýfæddra barna á Kaupmannahafnarsvæðinu hafi feng- ið þennan sjúkdóm. 185 af 1000 sjúklingum, sem Carl Mordhurst rannsakaði, gengu með þennan sjúk- dóm, sem fyrst og fremst er kynsjúk-. dómur, sem smitar út frá sér við samfarir eða önnur kynferðisleg at- lot, eða berst með fingrum frá auga til auga, t.d. ef notaður er sami þvottapoki. NIX0N SENDIR KISSINGER SKÝRSLU UM KÍNAFÖRINA Richard Nixon, fyrrum Bandaríkja- forseti, hefur gefið í skyn við Hvíta húsið, að hann muni senda utanríkis- ráðuneytinu skriflega skýrslu um ferð sína til Kína, að því er Ron Nessen, blaðafulltrúi Hvíta hússins, skýrði frá í gærkvöld. Nessen sagðist reikna með að skýrslan. eða að minnsta kosti hlutar hennar, vrðu sendcr Eord forseta ef utanríkis- ráðunevtið teldi það nauðsvnlegt. Nixon kom heim til Bandaríkjanna á sunnudaginn eftir átta daga heimsókn til Kína. Heimsóknin hefur valdið töluverðum áhyggjum í Hvíta húsinu, enda er talið að hún geti skaðað sigur- möguleika Fords forseta í forseta- kosningunum í haust. Nessen sagði að Nixon hefði hvorki talað við Ford forseta né nokkum annan háttsettan embættismann Hvíta hússins vegna fararinnar. Aftur á móti hefði hann haft samband við „starfsmann”, sem Nessen vildi ekki nafngreina, og boðum komið þannig áleiðis. Blaðafulltrúinn vissi ekki hvort Nixon sjálfur eða einhver aðstoðar- manna hans hefði átt frumkvasði að því að hafa samband við Hvíta húsið. Ford forseti hefur verið í hinum mestu vandræðum végna Kínafarar Nixons og ekki vitað hvernig hann ætti að veiða fyrirrennara sinn um ferðina. Bandarískir skopteiknarar hafa ekki látið þetta fram hjá sér fara. STÁLU HEILA Þjófar brutust inn í grafhvelfingu Benito Mussolinis, fyrrum einræðis- herra Ítalíu, skömmu fyrir helgi og stálu þaðan hluta af heila fasistaleið- togans. Þjofnaður þessi cr framinn tíu ár- um eftir að eiginkona Mussolinis, Rachele, sem nú er 86 ára, hafði eftir tuttugu ára málaferli fengið heila- hlutann afhentan úr herspítala í Washington en þangað var hann fluttur til læknisfræðilegra athug- anna eftir að Mussolini hafði verið tekinn af lífi af ítölskum skæruliðum árið 1945. Engin stjórnmálasamtök eða hópar hafa enn lýst sig ábyrg fyrir innbrotinu. Að sögn lögreglunnar var töluvert tjón unnið á grafhvelf- ingunni sem er sú eina yfirráða- MUSS0LINIS manni möndluveldanna. Auk heilahlutans var marskálks- hatti einræðisherrans einnig stolið og gler brotið í sýningargluggum, sem geyma persónulega muni Mussolinis. Árið 1971 varð öflug sprenging í grafhvelFingunni og þá skemmdist inngangur hennar veru- lega, auk þess sem loftið innan dyra fór illa. Verður Teng látimi fara? Búizt er við að aðstoðarráðherra Kína, Teng Hisao-Ping, verði að segja af sér, eftir herferð þeirri að dæma sem nú er beint gegn honum af Mao formanni og fylgismönnum hans innan æðsta ráðs Kína, ef marka má útvarpið í Peking. I fréttum hefur Teng ekki verið nefndur á nafn en talað var um „þann okkar, sem vill halda braut kapitalismans innan flokksins”. Bólusótt ótrýmt íár? Yfirmaður alþjóða heilbrigðis-. stofnunarinnar hefur sagt að á þessu ári muni verða hægt að komast fyrir bólusótt fyrir fullt og allt. Hefur hann dvalizt í Austurlönd- um undanfarin 11 ár, þar sem bólu- isóttin hefur verið landlæg, og fylgztf gjörla með framvindu mála. „Þetta er síðasta ár bólusóttarinnar”, sagði hann ,,og ég er tilbúinn að veðja um það við hvern sem er”. Sendir í geð- rannsókn Réttarhöldum yfir tíu fylgis- mönnum sovézkrar stefnu í Júgó- slavíu hefur verið frestað. Hinir tím eru ákærðir, ásamt nokkrum öðrum, fyrir tilraun til að steypa ríkjandi stjórnvöldum og auka áhrif Sovét- ríkjanna í Júgóslavíu. Réttarhöldunum var frestað til þess að hægt væri að geðrannsaka tímenningana. STÓR-BINGÓ ÁRSINS í Sigtúni nk. fimmtndagskvöld. Spiloðar verða 18 umferðir Vinningar: 4 utanlandsferðir eftir eigin vali, t.d. til Chicago, New Yoric, Evrópu eða sólarlanda. i ' _ -■ Einnig fjöldi onnarra vinninga s.s.: ísskópar, kaffivébr, krœrivélar o.m.fl. Stjórnendur Ragnar Bjarnason og Geir Hallsteinsson Heildarverðmœti vinninga 600.000.00. Ath. Húsið opnað kl. 7,30. Bingóið hefst kl. 8,30.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.