Dagblaðið - 03.03.1976, Side 9
Dagblaðið. Miðvikudagur 3. marz 1976.
9
< ROWIN
CROWIN
Andstœðingar sjómannasamninganna
segja:
„Samið um
Samningar Sóknarkvenna samþykktir:
Kvenfólkið orðið óhrœdd-
ora við rœðustólana
Khushendra heitir Ármann hér:
SELUR ÍSLENZKUM
AUSTURLENZKA GRIPI
„Við héldum afar fjölmennan
fund í fyrrakvöld, þar sem samningar
Sóknarkvenna voru samþykktir með
öllum greiddum atkvæðum gegn
þrem,” sagði Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir, formaður starfsstúlknafélags-
ins Sóknar. Fundurinn var haldinn í
Lindarbæ og var þar fullt út úr
dyrum. Miklar og fjörugar umræður
urðu.
Aðalheiður sagði.að áberandi væri
hversu miklu meiri fundarsókn hefði
verið í félaginu í vetur en áður og
sérstaklega væri það almennara að
konur kæmu upp í ræðustól og tjáðu
sig hispurslaust og einart um málefni
þau sem væru á dagskrá. Hún sagði
einnig, að hjá Iðju, félagi verksrtiiðju-
fólks, væru konur í æ ríkari mæli
farnar að láta til sín heyra úr ræðu-
stól. Vafalaust ætti þetta mikið rætur
sínar að rckja til hinnar miklu sam-
stöðu sem konur sýndu á
kvennaárinu margumrædda.
—EVI
Ungur Indverji frá Singapore
flutti hingað til lands fyrir rúmum 10
árum ásamt ungri íslenzkri stúlku.
Þau höfðu kynnzt í Englandi, cn
þaðan kom Khushendra Desai með
háskólagráðu í hagfræði. Ekki liðu
nema nokkrir mánuðir þar til hann
hafði ásamt eiginkonu sinni komið á
fót nýstárlegri verzlun í ReykjaVÍk,
Jasmin, en hún opnaði í september
1966.
Og nú er Khushendra Desai
orðinn ágætur íslendingur, þrátt
fyrir að útlit hans minni stöðugt á
sólbakað föðurland hans í austri.
Hann talar ágæta íslenzku og héitir
þar að auki Ármann Jóhannsson!
Verzlun Ármanns hefur dafnað
vel í höndum hans og hefur nú
opnað í eigin húsnæði á Grettisgötu
64, á horni Barónsstígs og Grettis-
götu. Þar býður eigandinn og starfs-
fólk hans upp á austurlenzka undra-
veröld, alls konar listmuni og gjafa-
vöru frá veröld sem við íslendingár
þekkjum mest af afspurn. — JBP —
verri kjör"
Eitt af því sem fært hefur verið
fram gegn kjarasamningunum, sem
samninganefndir gengu frá í sjó-
mannadeilunni, er að við rýrnandi
afla þýði umsamin skiptaprósenta
verri kjör.
Sjómenn, sem andstæðir eru
samningunum, hafa bent á að auk-
inn hlutur, sem sjómenn áttu að fá
út úr kjarasamningum, mundi ekki
vega það upp, ef aflinn minnkaði um
þrjátíu prósent enn éitt árið.
Því hafa harðorðir andstæðingar
samninganna sagt sem svo, að samið
hafi verið um kjararýrnun.
Stuðningsmenn samninganna telja
þessa staðhæfingu mjög ósanngjarna.
Sjómenn hafa hins vegar yfirleitt
unað vel við samningana sem gerðir
voru að því er tekur til kauptrvgg-
ingar.
— HH
Khushendra Desai alias Ármann Jóhannsson sýnir viðskiptavini listmuni frá Austurlöndum.
Ferðaútvarp
og segulband
3 bylgjur
Verð: 28.980.-
Innbyggður, mjög næmur hljóðnemi.
Sjálfvirkt stopp á segulbandi. Sjálf-
virkupptaka. Rafhlöðumælir. Lang-
bvlgja, miðbylgja og FM bvlgja.
C’rown stcndur fvrir sínu.
BUÐIRNAR
/
Skipholti 19, við Nóatún
sími 23-800
Klapparstig 26
simi 19-800
Sólheimum 35
sími 33-550
Sendum hvert 6
land sem er
Verð: 38.950.-
W.TIMI ao
Tækið er hægt að stilla þannig að
það taki upp eftir ákv. tíma. Crown
CRC 502 vekur vður með útvarpinu
cða segulbandinu. Þér getið sofnað
út frá tækinu, því það getur slökkt á
sér, þegar þér óskið. Hægt er að taka
beint upp á segulbandið úr út-
varpinu án aukatenginga. Crown
CRC 502 er hægt að tengja við
plötuspilara og taka beint upp. Inn-
bvggður spcnnubr .tir f. 220 volt.
Gengur cinnig f. rafhlöðum.
Innbyggður hljóðnemi.