Dagblaðið - 03.03.1976, Page 12
12
Dagblaðið. Miðvikudagur 3. marz 1976.
Irina og Alexander 'þegar þau hlutu
Olympíutitilinn í Innsbruck á dögunum.
Efst hjó öllum
dómurunum!
Sovézku heimsmeistararnir í listhlaupi á
skautum — parakeppni — hjónin frægu Irena
Rodnina og Alexander Zaitsev hófu vörn titils
síns með miklum glæsibrag í heimsmeistara-
keppninni í Gautaborg í gærkvöld. Hið stutta
prógramm þeirra var hreint frábært og allir
níu dómararnir voru með þau í efsta sætinu.
Aðeins einn þeirra gaf þeim þó hámarksein-
kunnina sex — sá sovézki.
í öðru sæti voru Romy Kermer og Rolf
Oesterreich A-Þýzkalandi — en þau urðu í
öðru sæti í Innsbruck. í 3ja sæti voru Irina
Vovobjeva og Alexander Vlasov Sovétríkjun-
um, rétt á undan Manuela Gross og Uwe
Kagelmann, Austur-Þýzkalandi.
Unga, bandaríska parið, Tai Babilonia, 15
ára, og Randy Gardncr, 17 ára, frá Los
Angeles, var í fimmta sæti, en hefur mögu-
leika á að komast jafnvel í verðlaunasæti
þegar að frjálsu æfingunum kemur.
W
Armenningor
Reykjavíkur-
meistarar
Fjórði leikur Reykjavíkurmótsins í sund-
knattleik fór fram í Sundhöllinni 25. febrúar
og áttust þar við Ármann og KR. Þetta var
heldur tilþrifalítill leikur. Eftir fyrstu lotu
var staðan 0-0. Eftir aðra lotu 3-1 fyrir
Ármann og eftir þriðju 6-1. Leiknum lauk
með yfirburðasigri Ármanns 7-1.
Mörk Á gerðu: Stefán Ingólfsson 2, Sig-
urður Þorláksson 2, Pétur Pétursson 2, Ingvar
Sigfússon 1.
Mark Æ gerði Ólafur Stefánsson.
Dómari var Sigmar Björnsson.
Fimmti leikur Reykjavíkurmótsins var svo
háður í Höllinni 1. marz og þá áttust við KR
og Ægir. Þessi leikur var mjög jafn, en Ægir
hafði þó forustu allan leikinn fram í síðustu
lotu.
Staðan eftir fyrstu lotu var 2-1 og eftir aðra
3-2, og eftir að þriðju lauk var staðan 5-3. En í
síðustu lotunni voru gerð átta mörk og tókst
þá KR að jafna rétt fyrir leikslok.
Mörk KR gerðu: Ólafur Gunnlaugsson 6,
Hafþór B. Guðmundsson 1, Erlingur Jóhann-
esson 1.
Mörk Ægis gerðu: Guðjón Guðnason 6,
Þórður Valdimarsson 1, Árni Stefánsson 1.
Dómari var Gunnar Kjartansson.
Eftir þennan leik var það ljóst, að Ármenn-
ingar eru sigurvegarar í þessu Reykjavíkur-
móti, þó að einn leikur sé eftir. Staðan eftir
fimm leiki er sú, að Ármenningar hafa fengið
6 stig, KR hefur 3 stig og Ægir l stig.
Síðasti leikur mótsins verður þriðjudaginn
9.3. kl. 21.30 og þá leika Armaim og KR.
Verður erfitt, því allir
vilja sigra meistarana
— sagði Mike Ferguson, hinn nýi þjólfari Islandsmeistara Akurnesinga,
en honn skrífaði undir samning við þó í gœrkvöld
„Við bindum miklar
vonir við starf Mike
Ferguson í sumar,” sagði
Gunnar Sigurðsson, for-
maður knattspyrnuráðs
Akraness,en í gær gengu
Akurnesingar frá samn-
ingi við þjálfara fyrir
næsta keþpnistímabil.
,,Ferguson er mjög áhugasamur og sú
nýjung er í samningi okkar við hann að
hann mun koma mikið við sögu í þjálf-
un yngri flokka ÍA og við erum alveg
sérstaklega ánægðir með það.”
,Jú, ég hlakka til starfsins í sumar,”
sagði Ferguson, þegar við ræddum við
hann á Hótel Loftleiðum.
vona að mér takist að halda
áfram hinu góða starfi sem George
Kirby hefur unnið uppi á Skaga. Liðið
hefur nú tvö ár í röð unnið í deildinni
og tvisvar verið í úrslitum bikar-
keppninnar. Einnig hefur Akranes
staðið sig ágætlega í Evrópukeppni.
Auðvitað verður erfitt að halda þessu
uppi — allir vilja vinna meistarana. Ég
mun ekki breyta neinu —heldur reyna
að bæta við það sem strákarnir eru
góðir í að gera, það er spila góðan
fótbolta.
Ég fór upp á Skaga og sá aðstæður og
hitti strákana. Mér leizt vel á mig,
völlurinn virðist ágætur þó óneitanlega
verki furðulega hversu nálægt sjónum
hann er.
Ég fékk boð um störf í Englandi, en
aðeins við þjálfun. Ég vil líka fá að
stjórna, vera ábyrgur fyrir því sem ég
Mike Ferguson á Loftleiðahótelinu.
geri. Þetta er ástæðan fyrir því að ég
kem til Akraness. Maður öðlast mikla
reynslu.
DB-mynd h.halls.
Eins og er leik ég með 4. deildar liði
Rochdale. Við erum nú í 9. sæti og í
bikarnum þurfti Norwich að leika
þrisvar við okkur áður en úrslit fengust.
Við töpuðum. Ég hef að miklu leyti séð
um þjálfun liðins en ég byrjaði sem 18
ára strákur að leika með Blackburn
Rovers, sem þá var í 1. deildinni ensku.
Þá var ég sá eini í liðinu sem ekki var
landsliðsmaður, allir hinir 10 léku með
hinum ýmsu landsliðum Bretlandseyja.
En Blackburn seldi leikmenn sína og
féll í 2. deild. Þeirra á meðal var ég, var
seldur til Aston Villa. Þaðan fór ég
síðan til QPR og var í liðinu sem vann
sig upp í 1. deild. Síðan lá leiðin til
Gambridge og þá Rochdale Ég hef því
verið atvinnumaður í 16 ár, ekki lítill
tími.
Ég geri mér grein fyrir því að það er
dýrt fyrir áhugamannalið að ráða
þjálfara en áhuginn hjá forystumönn-
um ÍA er greinilega fyrir hendi og eins
hjá mér. Ég hlakka því mikið til
sumarsins, kem reyndar hingað milli
15. og 20. marz. Ég mun verða eins
mikið og ég get í unglingastarfinu en
auðvitað verður meistaraflokkur aðal-
verkefnið og hefur forganp.
En vissirðu að ég hafði aldrei heyrt
getið um þorskastríð áður en ég kom
hingað. Gunnar sagði mér frá því að
Bretland og ísland væru í stríði, þorska-
stríði. Þaðan sem ég kem hugsa menn
ekki mikið um þorsk, meira um fót-
bolta. Þú skilur, Rochdale er í útjaðri
Manchester og skammt frá Liverpool.”
h.halls.
Bréf til íþróttasíðunnar: r #
HUGLEIÐING UM D0MARAMAL
,,Því er ekki að neita að þjálfarar
handknattleiksliða, svo og leikmenn,
veita því oft athygli hver eigi að dæma
mikilvægan leik framundan. Á því er
engin furða. Ástæðan er nefnilega sú að
handknattleiksreglurnar eru rnjög oft
túlkaðar alrangt, og er það miður.
Þegar tveggja dómarakerfið var tekið
upp árið 1967 vonuðu menn að breyt-
ing yrði á, og að túlkun á reglunum færi
ekki eftir því hvaða dómarar dæmdu,
heldur yrði dæmt nákvæmlega í sam-
ræmi við það sem reglurnar kveða á
um. En því miður er svo hér á landi, að
túlkun reglna er mjög misjöfn, og sem
dæmi má nefna að sumir dómarar
kunna ekki einu sinni þá einföldu
verkaskiptingu sem á að gilda milli
markadómara og útidómara, enda sér
maður það oft, að útidómari er að
dæma línu á hornamann sem er að
,,fara inn” í horninu.
Ástæðan er einföld: Dómarar hér á
landi eru algjörlega eftirlitslausir,
enginn ábyrgur aðili fylgist með störf-
um þeirra til að gagnrýna þá eða hrósa
þeim.
Svo illa eru sumir dómarar að sér í
reglunum að þeir túlka þær nákvæm
lega eins og þeir gerðu fvrir 10-15 árum.
Sumir þeirra hafa jafnvel ekki líkamlegt
úthald til að hlaupa yfir salinn (20x40)
á fullri ferð nema einu sinni í leik, já
aðeins einu sinni. Annað mikilvægt
atriði er, að um 70% þeirra kunna alls
ekki að nota flautu, en það er einmitt
eitt mikilvægasta atriði dómara að nota
hana rétt, því hún er jú þeirra mál á
leikvelli. Hvenær hefur það ekki gerzt,
að leikmaður hefur haldið áfram í
hraðaupphlaupi vegna þess eins að
hann hefur ekki heyrt í flautu dómara?
Hvers vegna er þetta svona? Jú, þú
getur orðið handknattleiksdómari á
einni helgi (laugardag og sunnudag) og
svo er stundum nóg, að dæma æfinga-
leiki til að ljúka verklega prófinu.
Mín skoðun er sú, að hér verði að
gera bragarbót á. Þyngja ætti dómara-
prófið til muna og láta síðan dómara
endurtaka prófið á þriggja ára fresti.
Einnig ætti að koma því á, að viðkom-
andi verði að sýna ákveðið líkamlegt
þrek til þess að standast prófið. Menn
ættu ekki að öðlast dómarapróf undir
19 ára aldri, því fyrr hafa þeir einfald-
lega ekki öðlast þroska til að dæma
erfiða leiki jafnt í yngri sem eldri flokk-
um. Einnig verður að koma hér á
aganefnd fyrir dómara, sem gæfi þeim
stig fyrir hvern dæmdan leik. Fái þeir
ekki ákveðinn fjölda stiga eftir keppnis-
tímabilið, á hiklaust að svipta þá rétt-
indunum en ekki gefa þeim kost á að
éyðileggja heilu leikina fyrir liðum, sem
æfa 4 — 5 sinnum í viku og vilja ná
árangri.
ÞAÐ Á EKKI AÐ VELJA
DÓMARA í 1. DEILD EFTIR ÞVÍ
HVERSU LENGI ÞEIR HAFA
DÆMT, HELDUR EFTIR GETU
Með virðingu
Viggó Sigurðsson.”
d
SKIÐASKOLI INGEMARS STENMARK *
Góð fjöðrun í hnjám auðveldar brunið töluvert. Þegar beygt er er þunginn settur á neðra skíðið og kantarnir notaðir að því marki sem þörf krefur.