Dagblaðið - 03.03.1976, Side 14
14
RUNAR JUL.
SÓLÓPLÖTU
Dagblaðið. Miðvikudagur 3. marz 1976.
BYRJAÐUR A
í NEW YORK
„Ég fer núna á eftir til
New York og byrja í
Soundtek-stúdíóinu á
morgun,” sagði Rúnar
Júlíusson í viðtali við Dag-
blaðið, rétt áður en hann
hélt af stað i gær. „Hef
fengið til liðs við mig
nokkra góða stúdíómenn
þarlenda og mun ljúka við
sólóplötu.”
Rúnar sagði, að hann
vildi leggja á það áherzlu,
að fyrirtæki Hljóma myndi
að sjálfsögðu ekki verða
lagt niður, eins og margir
virtust halda. Hins vegar
væri enn óljóst hvort þeir
myndu taka upp fleiri
hljómplötur á vegum þess.
„Við ætlum að skoða það
mál svona undir vorið.
Sennilega verður úr, að við
stofnum hver sitt fyrirtæki
utan um hugmyndir hvers
og eins,” sagði Rúnar enn-
fremur.
Gunnar Þórðarson hélt
utan í gær með fjölskyldu
sína til London en þar
mun hann ætla að dvelja
fram á sumar a.m.k.
— HP.
Þeir Rúnar og Gunnar hafa nú að mestu slitið samstarfi, en þrátt fyrir
það er ekki ætlun þeirra að leysa upp Hljómafyrirtækið. Teikn.: JKG.
GALDRAKARLAR
GALDRAKARLAR: Frá vinstri eru Pétur Hjálmarsson, Hreiðar Sigurjónsson, Stefán Stefánsson, Sophus Björnsson,
Birgir Einarsson, Hlöðver Smári Haraldsson og Vilhjálmur Guðjónsson. DB-mynd: Ragnar Th.
- ný stórhljómsveit
Nýjasta og jafnframt sérstæðasta
hljómsveitin í dag nefnist Galdra-
karlar. Uppistaða hljómsveitarinnar
er gamla Bláberið, sem hætti að leika
saman í nóvembcr síðastliðnum, er
það var bannað á Kcflavíkurflug-
velli. Bláber fékk síðan til liðs við sig
þrjá blásara, og hafa þeir gjörbreytt
hljórrsveitinni til hins betra.
Galdrakarlar buðu blaðamönnum
og (jðrum völdum gestum að hlýða á
leik sinn í síðustu viku. Að loknu
snittuáti og kókþambi renndi hljóm-
sveitin í gegnum prógrammið. Að
sjálfsögðu ber mest á blásurunum
þremur, þar eð menn eru ekki vanir
slíkri lúðrasveit í íslenzkum popp-
hljómsveitum. Ltigin eru sitt úr
hverri áttinni, — aðallega þung
rokklijg, sem tæplega eiga eftir að
gera Galdrakarla að vinsælli dans-
hljómsveit. Vafalaust hafa þeir
félagar þó valið þessi lög vitandi vits
um að þeir væru að byggja upp
prógramm, sem er ætlað til hlust-
unar frekar en dansa eftir. Þrátt fyrir
þetta má segja að hljómsveitin hafi
hlotið mjög góðar viðtökur, því að
þegar hún lék fyrir almenning í
Klúbbnum á síðasta fimmtudag varð
hún að spila tvö aukalög við litlar
vinsældir dyravarða, en þess meiri
ánægju áhevrenda.
Rekstur stórhljómsveita eins og
Cíaldrakarla er svo sannarlega ekki
dans á rósum. Eflaust er mörgum í
fersku minni erfiðleikar hljómsveita á
borð við Acropolis, Islandiu og
anriárra þess háttar. Vegna meðlima-
fjölda gcngur oft á tíðum erfiðlega að
fá næga atvinnu, þar sem veitinga-
menn vilja af skiljanlegum ástæðum
heldur ráða til sín fámennar hljóm-
sveitir. En eigi að síð.ur kann svo að
fara, að Galdrakarlar eigi eftir að slá
í gegn þrátt fyrir stærð sína, —
viðtökurnar í Klúbbnum bentu
eindregið til þess.
Hljómsveitina Galdrakarla skipa
eftirtaldir: Vilhjálmur Guðjónsson
gítar- og saxófónleikari, sem einnig
þenur harmónikku í gamla Rolling
Stoneslaginu, Backstreet Girl.
Hlöðver Smári Haraldsson leikur á
hljómborð og flautu, Pétur
Hjálmarsson er bassaleikari og aðal-
söngvari hljómsveitarinnar og
Sophus Björnsson trommuleikari.
Þessir framantaldir léku allir í
Bláberi.- — Blásararnir eru Birgir
Einarsson trompetleikari. Stefán S.
Stefánsson og Hrciðar H. Sigurjóns-
son, sem leika báðir á saxófón. —ÁT
„Skýríst öðru
hvoru megin
við helgina
— hvort Hljóðriti h.f. fœr
24-rósa tœki, segir
Sigurjón Sighvatsson
,,Ég vonast til að málið skýrist
endanlega öðru hvoru megin við
helgina, en þá kemur hingað maður
frá Associated Processes, fyrirtækinu
sem við viljum kaupa 24-rása upp-
tökutæki af,” sagði Sigurjón Sig-
hvatsson, framkvæmdastjóri hljóð-
versins Hljóðrita í Hafnarfirði, í sam-
tali við DB í gær.
Eins og áður hefur verið greint frá
hér á síðunni þá hafa eigendur
Hljóðrita h.f. haft mikinn áhuga á
því að kaupa til landsins 24-rása
upptökutæki, segulbandstæki og
hljóðblendiborð, í stað þeirra átta
rása tækja, sem hljóðverið á nú.
Að sögn Sigurjóns hefur fátt eitt
gerzt undanfarna mánuði, sem orðið
hefur til að skýra málin en það hefur
þó ekki orðið til þess að eigendur
Hljóðrita hafi misst móðinn.
Ef verður af kaupunum, kemur
fyrst til landsins 24-rása segulbands-
tæki en sjálft borðið kemur eitthvað
síðar. Komist menn að- niðurstöðu,
nú, þá ætti að geta orðið af þessum
stórstígu framförum hér áður en
mánuðurinn er allur og þarf ekki að
fara í grafgötur um að með tilkomu
24-rása úpptökutækja hérlendis fengi
íslenzkur hljórhplötuiðnaður einstakt
tækifæri til að dafna. —ÓV
EIKIN ALDREI
BETRIEN NÚ
— hafa œft af fullum
krafti frá áramótum
Eftir að Ólafur Kolbeins gekk í
hljómsveitina Eik hefur verið fremur
hljótt um hljómsveitina. Hún hefur
komið fram á þremur dansleikjum,
— tveimur í Klúbbnum og einu
sinni í Tónabæ.
Meðlimir Eikar hafa þó ekki verið
aðgerðalausir að undanförnu. Svo til
1.1 K. Enn á ný komin í fremstu rtið
hérlendra hljóinsveita. I)B-mynd:
Björgvin Pálsson.
stanzlausar æfingar hafa verið á
hverjum degi, ,,og veitti ekki af,”
eins og söngvarinn Sigurður K. Sig-
urðsson komst að orði, er DB ræddi
við hann. Nú er árangur æfinganna
hins vegar að koma í ljós. Eftir að
hafa hlýtt á Eikina síðastliðið sunnu-
dagskvöld í Klúbbnum, komst undir-
ritaður að þeirri niðurstöðu, að
hljómsveitin hefurienná ný skipað sér
í sæti með fremstu hljómsveitum
okkar.
Meðlimir Eikar eru nú í fullum
blóma sem hljóðfæraleikarar, og Sig-
urður söngvari stcndur fvrir sínu.
Helzti ókostur hljómsyeitarinnar er
sá, að valin hafa vcrið nokkur lög til
flutnings, sem hæfa ekki rödd Sig-
urðar. Hann hcfur sérstæða rödd,
sem hæfir,ekki hverju sem er og
kemur því dálítið leiðinlega út á
öflum. En því sem hann nær, gerir
nn mjög vel. — ÁT —