Dagblaðið - 03.03.1976, Side 15
Dagblaðið. Miðvikudagur 3. marz 1976
r-“
15
Bergljót Árnadóttir,
nýtt andlit í kvik-
myndaheiminum
„Nýtt andlit í kvikmvndaiðnaðin-
um á þcssu ári: Bergljöt Árríadóttir,
26 ára.
Áður óþekkt íslenzk stúlka á að
leika hlutverk Lvdíu í kvikmvnd sem
gerð er eftir skáldsögu Hjalmar
Söderbergs „Den alvarsamma
lekcn.”
Elskhuga hennar, blaðamanninn
Arvid, leikur Stefan Ekman.
„Hlutverkið kemur á heppilegum
tíma.”, segir hún. „Ég er atvinnulaus
cftir 1. febrúar.”
\ þessa leið'hefst viðtal í sænska
blaðinu Éxpressen í lok janúar sl. við
Bergljótu Árnadóttur, íslenzku
stúlkuna sem getið hefur sér gott orð
í Svíþjóð fyrir leik.
Bergljót er dóttir Árna Ársæls-
sonar yfirlæknis og Ernu Sigurleifs-
dóttur á Húsavík. Erna var sjálf
þckkt leikkona bæði hjá Leikfélaginu
og Fjalakettinum á sínum vngri
árum.
Bergljót lék í kvikmvndinni Sjö
stelpur sem sýnd var á sænsku kvik-
myndavikunni hér. Sú kvikmvnd var
tekin árið 1973. Hlutverk Bergljótar
var lítið en hún var talin fara mjög
laglega með það. En margt hefur
drifið á daga hennar síðan þá.
Við skulum glugga aðcins nánar í
sænsku greinina:
Blaðamaðurinn hitti hana að máli
í Skövde þar sem hún var í leikför
mcð Riksteaterns Örebrocnsemblc
en leikritið hét Jösses flickor. Það
naut mikilla vinsælda og jafnan allir
aðgöngumiðar scldir löngu fvrirfram.
— Það er auðvelt að sjá Bcrgljótu
fyrir sér í hlutvcrki Lvdíu, segir í
grcininni. — Hún er lágvaxin en
reisuleg, með alvarleg augu og fín-
gert andlit. Það er aðeins hárið sem
ekki passar. Sögupersónan cr Ijós-
hærð en Bergljót er með þvkkt. dökkt
hár, fléttað í óstýrilátar fléttur, þegar
viðtalið átti sér stað.
Bergljót segist ekki vera búin að
mvnda sér ákveðna skoðun um
Lvdíu en hún sé í miðju kafi að lesa
bókina í annað sinn.
Ekki voru liðnar nema fáeinar
vikur frá því hún var í reynslu-
myndatöku í Stokkhólmi og aðeins
fáeinir dagar frá því hún frétti að
hún fengi hlutverkið.
— Ég veit ekki hver það var sem
benti á mig, sagði hún, — og heldur
ekki hve margar stúlkur voru
revnslumyndaðar en það skiptir
heldur ekki máli.
Bergljót horfir raunsæjum augum
til'töku myndarinnar og verður hálf-
feimin þegar minnzt er á að þetta sé
stórkostlegt tækifæri fvrir hana.
— Ég geri mér geri mér grein fyrir
að það er mikils virði að fá tækifæri
til þess að leika í kvikmvnd, maður
lendir í sviðsljósinu.
Tekið verður eftir manni og það
auðveldar að fá hlutverk í framtíð-
inni.
Bergljót cr samt ekki mikið fvrir að
tala um sjálfa sig og'segir að hennar
óskir og draumar séu ekkert meira
spennandi en venjulegrar vinnukonu
eða verkakonu. Það sé bara enginn
sem spyr þær.
Þá er sagt frá uppruna Bergljótar
og að fjölskylda hennar sé flutt til
íslands fyrir mörgum árum, og Berg-
Ijót sé enn íslenzkur ríkisborgari.
Hún notaði tækifærið til þess að lýsa
vanþóknun sinni á ofbeldi Breta í
þorskastríðinu.
í Iok greinarinnar segir að það hafi
næstum verið tilviljun að hún hafi
lagt út á leiklistarbrautina. Hún
valdi sér leiklist sem valgrein í
menntaskólanum. Að loknu
stúdentsprófi fór hún í Skara leik-
skólann og síðan í ríkisleiklistarskól-
ann í Stokkhólmi.
Eftir að hún lauk námi hefur hún
leikið hjá Skánska leikhúsinu í eitt ár
og með leikflokki í Landskrona og sl.
hálft ár hefur hún verið í leikflokki
Ríkisleikhússins, eins og segir í upp-
hafi greinarinnar.
— Samningur minn við Ríkisleik-
húsið rennur út um mánaðamótin
(-1. febr.) segir hún, — þannig að
þetta hlutverk kemur á heppilegum
tíma. Hvað síðar gerist skal ég ekkert
segja um. Það er dálítið erfitt að vera
lausráðin, segir hún ennfremur.
Loks er greint frá því að Bergljót
sé ekki algjör nýliði á sviði kvik-
myndaleiks en hafi leikið í Sjö
stelpum og viti því hvað hún sé að
fara út í.
— Það verður gaman að leika
aftur í kvikmynd, segir Bergljót. —
Það er dálítið erfitt að hafa ekki
áhorfendur þegar maður leikur og
vera algjörlega á valdi kvikmynda-
vélarinnar. En það gefureinnig mörg
og góð tækifæri.
Foreldrar Bergljótar voru búsettir í
Svíþjóð um 12 ára skeið en fluttust
til Húsavíkur fyrir fimm árum.
A.Bj.
n
ÉBOWTW BEKaHT*~
FILMENS NYA KARLEKSPAR!
3JÖRN VINBERG
Stetan Ekman och Bergljot
i "Den allvarsamma leken"
Bergljót hefur fengið annað aðalhlutverkið í myndinni Den
alvarsamma leken. Mótleikari hennar er Stefan Ekman og
eru þau kölluð „filmens nya kárlekspar!” í Svíþjóð. Taka
myndarinnar hófst í byrjun febrúar.
Þarna er Bergljót t.h. í
hlutverki sínu í Sj<> stelp-
um, þctla er lítið hlutverk
en hún fer mjög laglega
með það. Kvikmyndin var
tekin árið 1973 og eins og
segir í meðfylgjandi grein
um Bergljótu hefur margt
drifið á daga hennar síðan
t>á.
ýsZýX&
V