Dagblaðið - 03.03.1976, Qupperneq 23
Öskar Ingimarsson hefur unnið við
þýðingar hjá sjónvarpinu frá upp-
hafi, m.a.s. nokkru lengur, því hann
var byrjaður að þýða myndir áður en
útsendingar hófust. Hann vinnur í
leiklistardeild útvarpsins fyrir
hádegið. Ljósm. DB—Bjarnleifur.j
— Ef um er að ræða líkamlegar
pyntingar eða einhvern annan
óhugnað, sem börn geta ekki þreifað
á held ég ekki að þeim sé hollt að sjá
þættina,” sagði Óskar Ingimarsson
þýðandi þáttanna um þrælahaldið
sem eru á dagskránni kl. 21.55 í
kvöld.
Á ég þar við börn sem eru á fyrstu
skólaárum sínum. Staðreynd er að
sum ung börn, þ.e. börn sem ekki eru
komin á skólaaldur, horfa þó nokkuð
á sjónvarp og stundum jafnvel langt
fram á kvöld,” sagði óskar.
„Þýðendur sjónvarpsþátta fengu á
sínum tíma bréf frá Jóni Þórarins-
syni þar sem hann fór fram á að þeir
gerðu viðvart ef að þeirra dómi eitt-
hvert það efni kæmi fyrir í þáttum
sem ekki væri við hæfi barna. Mér
fannst fyrsti þáttur þrælahaldsins
vera þannig, að hann gæti verið
nefna þætti í sjónvarpinu eins og t.d.
Columbo.”
— Hvað finnst þér t.d. um
myndaflokkinn um heimsstyrjöldina?
Finnst þér að banna eigi skóla-
börnum að horfa á þann flokk?
„Ég hef satt að segja ekki hugsað
út í að ástæða væri til þess. Þetta eru
allt sögulegir atburðir sem hafa
gerzt. Sama má segja um þræla-
haldið. Allar þær persónur sem þar
koma við sögu hafa verið til og þeir
hlutir sem þar eru sýndir hafa allir
gerzt.”
Þetta sagði þýðandi Þrælahalds-
ins, óskar Ingimarsson. Vonandi
verða þættirnir fluttir fram fyrir ít-
alska skemmtiþáttinn sem er á dag-
skránni á undan. Það mætti að
skaðlausu sleppa honum alveg úr
dagskránni. Satt að segja skil ég ekki
til hvaða aldursflokks slíkur þáttur á
að höfða. Ég hef a.m.k. ekki talað við
neinn sem hefur haft gaman af þeim
þætti, hvorki úr hópi barna eða ung-
linga, fullorðinna eða gamalmenna.
—A.Bj.
Doran Godwin leikur lafði Nugent
landsstjórafrú á Jamaica. Hún olli
miklu hneyksli heima hjá plantekru-
eigandanum David Lisle þegar hún
dansaði við svartan þjón á dansleik
þjónustuliðsins.
Þátturinn sem er á dagskrá í kvöld
nefnist Þakklátir bændur og fjallar
um uppreisn þræla á plantekrunum
sem bæld var niður með harðri
hendi. Þeir, sem börðust fyrir afnámi
þrælahalds, fengu litlu áorkað. Pitt
forsætisráðherra átti við fleiri vanda-
mál að stríða þar sem var stríðið við
Frakka. Samt sem áður var afnám
þrælahaids og þrælasala samþykkt á
þinginu.
Sjónvarp í kvöld kl. 21,20:
Fjallað um jazz síðustu óra
— í lokaþœttinum um sögu jazzins i kvöld
Lcikendur í Glerdýrunum sem sýnd eru á ,\kureyri: Aðalsteinn Bergdal,
Sigurveig Jónsdóttir og Þórir Steingrímsson.
óhollur börnum og gerði viðvart um
það. Síðan hefur mér ekki fundizt
ástæáa til þess. Annars er mjög erfitt
að draga mörkin í þessum efnum, en
maður reynir eftir beztu getu að gera
það samvizkusamlega. Annars finnst
mér að nokkurs ósamræmis gæti í
um eru oft sýndar myndir sem ýmis-
legt gerist í sem er jafnvel miklu
óhugnanlegra en það sem kemur
fyrir í þrælahaldinu. Eins mætti
Þá er komið að lokum dönsku þátt-
anna um sögu jazzins. í kvöld verður
áttundi þátturinn á dagskrá og fjallar
aðallega um þróun jazztónlistarinnar
frá 1960 fram á þennan dag. Óumflýj-
anlega verður einnig komið lítillega inn
á rokktónlistina, — svokallað jazzrokk
sem bandaíska hljómsveitin Blood
Sweat end Tears átti stærstan þátt í að
rvðja braut.
,,Þessir átta þættir hafa að mínum
dómi gert sögu jazztónlistarinnar allgóð
skil,” sagði þýðandinn, Jón Skaftason,
er við ræddum við hann. „Flokkurinn
hófst í New Orjeans, þaðan var haldið
til Chicago, New York og síðan vítt og
breitt. Mest hefur verið fjallað um
bandarískan jazz en þó var örlítið
drepið á evrópska tónlistarmenn. Þeir
fengu hins vegar frekar lélega dóma.”
Nokkur bið verður nú á því að sjón-
varpið sýni jazzþætti. Þó verður
Sjónvarpið i kvöld kl. 20/40:
VAKA
Það er mikið ó sig lagt til að afla efnis
— Farið i agalegustu flugferð ó íslandi
„Ég vona að þess sjáist ekki merki
fram eftir prógrammi hversu flug-
veikur ég var. Við komum inn á
frumsýningu á Rauðhettu eftir að
hún var byrjuð. Höfðum farið með
einni af þessum litlu rellum á meðan
verkfallið stóð yfir, einmitt til þess að
geta náð þessari sýningu. Þetta er
áreiðanlega agalegasta flug sem farið
hefur verið í á íslandi.”
Já, það er stundum mikið á sig
lagt til þess að koma efni til flutnings
hjá þeim í sjónvarpinu. Sá sem þetta
mælti er Egill Eðvarðsson sem sér
um Vöku áð þessu sinni. Hann hefur
einu sinni áður séð um þennan þátt
og þá lá leiðin einnig norður í efnis-
leit.
„í stuttu máli er þetta örstutt
heimsókn í leikhús þeirra Akureyr-
inga og Húsvíkinga. Við reynum á
engan hátt að skilgreina þessa starf-
semi þeirra eða gefa neinar stórar
upplýsingar um neitt eitt sem lá
fyrir eða hafði verið gert. Það eina,
sem vakti fyrir okkur, var að reyna að
gefa rétfa mvnd um þessar leiksýn-
ingar og það sem gerist í kringum
þær,” sagði Egill.
Hann bætir svo við: „Við vorum
eins og rottur í kjöllurum og skúma-
skotum. Þvældumst fyrir allan tím-
ann frá því að leikararnir mættu til
þess að sminka sig, leiktjöld voru sett
upp og þangað til síðasti maður var
farinn.”
Þeir sem voru með í ferðinni voru
Haraldur Friðriksson kvikmynda-
tökumaður, Jón Arason hljóðupp-
tökumaður, Katrín Gísladóttir að-
stoðarstúlka að ógleymdum Agli
sjálfum.
Leikritin, sem við sjónvarpsáhorf-
endur fáum að fylgjast með, eru
barnaleikritið Rauðhetta og Glerdýr-|
in, sem bæði eru sýnd á Akureyri, og
svo „Pétur Gautur” sem frumsýndur
var á Húsavík þann dag sem Gunnar
Eyjólfsson, sem leikur Pétur Gaut,
varð fimmtugur og nákvæmlega voru
liðin 100 ár síðan fyrst var byrjað að
sýna þetta þckkta og fræga verk. Þess
má einnig geta að Leikfélag Húsa-:
víkur verður 75 ára á þessu ári. EVI
skemmtiþáttur með Sammy Davis
sunnudagskvöldið 7. marz þar sem ein-
hver keimur af jazzi kemur eflaust við
sögu. — ÁT —
Meðal jazzleikara sem koma fram í þættinum í kvöld eru trymbillinn Art
Blakey (sá svarti) og píanóleikarinn og hljómsveitarstjórinn Dave Brubeck.
Dagblaðið. Mið\ ikudagur 3. marz 1976.
MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
l'ilkynningar.
15.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.50 M iðdegissagan:
,,Hofstaðabræður” eftir Jónas
Jónasson frá Hrafnagili. Jón R.
Hjálmarsson les (5).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir)
16.00 Fréttir. Tilkvnningar. (16.15
Veðurfrcgnir).
16.20 Popphorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Njósnir að næturþcli” eftir
Guðjón Sveinsson. Höfundur les
sögulok (12).
17.50 Framburðarkennsla í dönsku
og frönsku.
17.50 Veðurfregnir.Dagskrá
kvíilílsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
nikynningar.
19.55 V'innumál. Þáttur um lög og
rétt á vinnúmarkaði.
Umsjónarmenn: Arnmundur Back-
man og Ctinnar Eydal lögfneðingar.
20.00 Kvöldvaka. a. Einsöngur.
Eiríkur Stefánsson syngur íslenzk
lög. Kristinn Gestsson leikur á
píanó. b. Á ferð fyrir tuttugu
árum. Ágúst Vigfússon flytur
ferðaþátt eftir Jóhannes Ásgeirs-
son. c. Tvö kvæði eftir Benedikt
Gíslason frá Hofteigi. Gunnar
Valdimarsson les. d. Lárus gamli.
Torfi Þorsteinsson bóndi í
Homafirði flytur frásögu. e. Þar
dali þrýtur. Óskar Halldórsson
lektor flytur síðari hluta frá-
sögunnar um skáldin á Arnar-
vatni eftir Jón Kr. Kristjánsson á
Víðivöllum í Fnjóskadal. f.
Kórsöngur. Karlakórinn Fóst-
bræður svngja lög við miðalda-
kvcðskap eftir Jón Nordal. Söng-
stjóri: Ragnar Björnsson.
21.50 Útvarpssagan: „Kristnihald
undir Jökli” eftir Halldór
Laxness. Höfundur les (16).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passíusálma (14)
22.25 Kvöldsagan: ,,í verum”,
sjálfsævisaga 'fheódórs Friðriks-
sonar. Gils Guömundsson les síð-
ara bindi (26).
22.45 Djassþáttur Jóns
Árnasonar.
25.50 IYéttir. Dagskrárlok.
Múla
^ Sjónvarp
MIÐVIKUDAGUR 3. marz
18.00 Björninn Jógi.
18.25 Robinson-fjölskyldan.
Brezkur myndaflokkur byggður á
sögu eftir Johann Wyss. 4. þáttur.
Árás kattarins. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.50 Ballett er fyrir alla.
1. þáttur endursýndur af sérstök-
um ástæðum. Þýðandi Hallveig
Thorlacius.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Vaka
Þátturinn fjallar að þessu sinni
um Ieikstarfsemi á Akureyri og
Húsavík. Umsjón Egill Eðvarðs-
son.
21.20 Ú r sögu jazzins.
Lokaþáttur. Rakin saga jazzins
síðasta aldarfjórðunginn. Meðal
þeirra sem koma fram eru: Art
Blakcy,' Dave Brubeck, Ornette
Coleman, Gil Evans, Milt Jack-
son, John Lewis og Gcrry Mulli-
gan. Þýðandi og þulur Jón
Skaptason. (Nordvision ;•—
Danska sjónvarpið)
21.55 Baráttan gegn þrælahaldi.
5. þáttur. Þakklátir bændur.
22.45 Dagskrárlok.
Sjónvarp kl. 21,55 í kvöld:
„LÍKAMLEGAR PYNTINGAR 0G
ÓÁÞREIFANLEGUR ÓHUGNAÐUR
Á EKKIERINDITIL BARNA"
— segir þýðandi Þrœlahaldsins, Óskar Ingimarsson