Dagblaðið - 06.04.1976, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 06.04.1976, Blaðsíða 2
2 DA(íBLAÐH) ÞHIÐJUDA(iUK 6. APKÍL 1976. Magnús Jónsson skólastjóri: Aprílfrétt um Ármúlaskólanemendur I Dagblaóinu birtisl frétt, laugardaginn 3. apríl þess efnis að búió væri aó reka úr Ármúlaskóla heilan bekk eins og hann leggur sig, og auk þess nokkra nemendur úr ýmsum bekkjum skólans. Atti þetta að vera vegna brotthlaups nem- enda úr skólanum 1. apríl og framferði þeirra við Alþingis- húsið. Þetta virðist vera aprílfrétt blaðsins því' sannleikurinn er sá, að enginn nemandi hefur verið rekinn úr skólanum. Fimmtudagurinn 1. apríl byrjaði í Armúlaskóla eins og hver annar dagur, nemendur gengu rólegir til sinna kennslu- stofa og stunduðu sitt nám, það var enginn órói eða fararsnið á þeim. En í byrjun 3. kennslu- stundar dreif að skólanum mjög fjölmennur hópur ung- Raddir lesenda linga. Þessi hópur æskufólks gerði harða atrennu að skólan- unt, sem stóð í liðugan hálftíma, og herjaði út 17 sálir, sem fóru með þeim í gönguna. 1 Armúlaskóla eru eingöngu nemendur sem hafa lokið skóla- skvldunni, þeir eru því sjálf- ráðir hvort þeir eru í skóla eða ekki, þeim er einnig heimilt að segja upp skólavistinni og hætta hvenær sem er. 1 upphafi skólaárs er nem- endum gerð grein f.vrir, að þessum auknu réttindum fylgir aukin ábyrgð. Skólinn gerir það að skilyrði fyrir skólavist, að nemendur sæki og séu í kennslustundum, nema leyfi eða aðrar eðlilegar ástæður séu fyrir hendi. Nemandinn hefur að sjálfsögðu rétt til að ganga úr skóla hvenær sem er, hvort sem er í miðri kennslustund eða miðjum kennsludegi. En með því að ganga úr skóla hefur viðkomandi nemandi sagt upp skólavistinni. Skóla- stjóri fer í alla bekki skólans við skólabyrjun og gerir nem- endunt grein fyrir þessu. Auk þess minna umsjónarkennarar nemendur á þessa auknu ábyrgð, sem f.vlgir auknum rétt- indum. Varðandi þá sautjánmenn- inga, sem fóru úr tímum og gengu frá skólanum 1. april, þá liggur það ljóst fyrir að þeir segja upp skólavistinni, eins og þeir hafa fulla heimild til, skólinn hefur ekkert við því að segja. það er mál unga fólksins sjálfs. Hversu áfjáður, sem skölinn er í að reka nemendur sína, verður hann í þetta sinn að missa af glæpnum, því hann getur ekki rekið þá, sem þegar hafa sagt sig úr skóla. Fiístudaginn 2. npril komu framangreind ungmenni í skól- ann og lögðu inn umsóknir um skólavist, þeim var heimilt að leggja inn umsóknir, þar sem þau höfðu ekki verið rekin, heldur höfðu þau sagt upp. Að sjálfsögðu var það svo á valdi skólans, hvort svarið var ját- andi eða neitandi. Að þessu sinni fór skólinn þá leið að leita álits nemenda skól- ans með leynilegri atkvæða- greiðslu og láta þá ráða hvernig umsóknunum yrði svarað. Álit nemendanna var, að eins og á stæði væri rétt að taka fyrrver- andi nemendur inn aftur, og var það gert. En athyglisvert er, að yfirgnæfandi meirihluti nemenda taldi að skólar ættu að hal'a aðgerðir gegn nemend- um, sem sýndu slíka hegðun, Ég vil taka undir þetta álit nemenda. Nemendur Ármúla- skóla hafa aldrei verið með óróa eða ófrið 1. apríl. En ár eftir ár hefur skólinn orðið fyrir árásum þann dag af fjöl- mennum hópi skólafólks ein- hvers staðar frá. Það er kominn tími til, að stjórnendur skól- anna hlýði á álit nemendanna sjálfra, taki saman höndum og stöðvi þennan ófögnuð. Magnús Jónsson skólastjóri Hvenær fá lífeyrisþegar mannsæmandi kjör? spyr lesandi. Kjör líf eyrisþega til skammar — Hver freystir sér til að lifa ó þvi sem þeim er úthlutað? Gunnar Jónsson skrifar: „1 tilefni fréttar þeirrar, að lífeyrisgreiðslur Almanna- trygginga hafi hækkað um 10%, þá langar mig að koma fyrirspurn til ráðamanna hér. Hvenær má vænta þess, að lífeyrisþegar fái raunhæfar kjarabætur? Núverandi kjör gamalmenna og sjúklinga eru til skammar. í>að verður að sjá til þess að þetta fólk geti lifað mannsæmandi lífi, eða er kann- ski ekki litið á lifeyrisþega sem venjulegt fólk. Þarf það ekki mannsæmandi kjör eins og aðrir þegnar þjóðfélagsins. Mér finnst ráðamenn í þessum mál- um heldur skilningslausir um málefni þeirra verst settu. Mig langar til að spyrja hvort þessir ráðamenn treysta sér til að lifa af þeirri upphæð sem þeir bjóða öðrum?” Hríngið í síma 83322 milli kl. 13 og 15 eða skrífíð YFIRLÝSING fró sveit Reyknesinga i spurningaþœtti sjónvarpsins: „Kjördœmin keppa" Tilefni þessarar yfirlýsingar eru blaðadeilur sem fram hafa farið i tilefni 1. þáttarins i spurningaþætti Sjónvarpsins, Kjördæmin keppa. Deilurnar hafa fyrst og fremst farið frarn í DAGBLAÐINU, en einnig i ÞJÓÐVILJANUM og AL- ÞÝÐUBLAÐINU og lítilsháttar í MORGUNBLAÐINU. I þess- um fyrsta þætti leiddu saman hesta sína Reykjanes og Suður- land. Var þættinum stjórnað af Jóni Ásgeirssyni, íþróttafrétta- ritara Hljóðvarpsins, dómari var Ingibjörg Guðmundsdóttir söngkona, en spurningameist- ari Helgi Skúli Kjartansson B.A. Samkvæmt ályktun Ingibjargar, sem nú er orðinn úrskurður Helga Skúla, með þegjandi samkomulagi aðstand- enda þáttarins og LSD (lista- og skemmtideildar Sjónvarps- ins), var Suðurlandi úrskurð- aður sigur 17:16. En ekki er allt sem sýnist. Yfirlýsing þessi er gefin fyrir áskoranir, ekki tuga, heldur hundraða manna víðs vegar um land, bæði munn- legar, en einkum símleiðis, um að gefa ekki hót eftir I þessu máli. Ef þjóðin hefir dæmt I þessu máli og ómerkt og snúið við úrskurði Helga Skúla, eins og mcr virðist af viðbrögðun- um, er það mér og meðkepp- endum mínum i raun og veru alveg nóg, en ég get þó ekki skorazt undan téðum áskorun- um um að láta til mín heyra. Vegna þess ao umræAumar og deilurnar um þáltihn hafa fram að þessu nær einskorðazt við aðeins eitt atriði: elztu vatnsaflsvirkjun á Vestf j örö- um, en gengið meir fram hjá þeirri staðreynd, að þátturinn var allur með endemum og raunar ein endileysa frá upp- hafi til enda, tel ég mér ennþá skyldara að leggja orð í belg. Ég þykist hér geta talað af nokkurri reynslu, þar eð ég hefi áður tekið þátt í 18 opin- berum spurningakeppnum í fjölmiðlum, og aldrei orðið vitni að öðrum eins vinnubrögðum, enda var spurningameistari og dómari í 14 þáttanna prófessor Ólafur Hansson, nkkar viðurkenndasta „autoritet’a sviði fjölfræðinnar, en í lunum 4 Birgir ísl. Gunn- arssun borgarstjóri, lærisveinn prófessors Ölafs og gilti það sama um hann og prófessor Ölaf, að við hann mátti ræða, báðir beygðu sig fyrir rökum án nokkurrar stífni, og báðir töldu sér skylt sem spurningameist- arar að vera viðstaddir keppn- ina sem dómarar. Það lágmarks kurteisisskilyrði telur Helgi Skúli sér hins vegar ekki þörf að uppfylla. Helgi Skúli lætur sér nægja að dæma eftir á, eftir einkaklíkusýningu hans og áðurnefndra aðstand- enda. Eg áfellist hins vegar ekki aðstandendur Sjónvarps- ins, þar eð mér er ljóst, aö það er sex stafa tala I íslenzkum krónum í veði fyrir Sjónvarpið, ef öll keppnin verður ógilt en hitt þótti mér lakara hjá deildarstjóra LSD að mæta ekki á útvarpsráðsfundi við endur- upptiiku vegna kriifu Olafs Einarssonar cand mag., sem þá áskildi sér rétt til þess aö halda málinu til streitu, ef formleg kæra bærist. — ()g athugið, kæru lesendur, að þetta var aðeins fyrsti þátturinn af sjö, sem allir voru teknir upp í Haustri á 2 diigum, ,>em er enn eitt dæmið um hin ólýsanlegu vinnubriigð i þessu máli. Eg ætla nú að sýna fram á, að 6 eða 7 af spurningum þáttarins voru óhæfar, eða 30—35%. Það er of mikið, Helgi Skúli. Ýmist voru spurningarnar óframbæri- legar í formi, svörin alröng eða út í hött. Sný ég mér þá að atriðunum hverju fyrir sig. 1) Vatnsaflsvirkjunin á Vest- fjörðum: Spurt mun hafa verið, hver eða hvar hafi verið elzta vatnsaflsvirkjun á Vestfjörð- um. Á þeim 10 sekúndum, sem sveitinni voru skammtaðar til að bera sig saman með tilheyr- andi spennu, tókum við Reyk- nesingar spurninguna þannig, að spurt hafi verið um hvar hafi verið fyrst virkjað vatnsafl til raforkuframleiðslu í téðum landshluta, Þvert ofan í orð Helga Skúla gruna ég vini mína, Einar Hauk, Jón og Jóhannes, um að hafa tekið spurninguna á sama hátt, enda heyrði alþjóð á hvísl þeirra, er þeir ræddu um, hvort ekki hefði verið fyrst virkjað í Fossá. — Þetta skiptir hins vegar engu máli. Fyrir liggur úrskuröur Orðabókar Háskóla íslands, dr. Jakobs Benedikts- sonar um, að tvær merkingar séu í orðinu elztur: elzti nú- verandi og f.vrsti, og sé síðar’i merkingin orðin algeng á síð- ustu tímum, en óþekkt áður, en vel að nterkja, við vorum að keppa í nútímanum. Ekki á 16. öld. — Þessi úrskurður mundi að öðru jöfnu leiða til þess. að sveitirnar væru orðnar jafnar (17:17), þar eð bæöi svörin teldust samkvæmt því jafnrétt. En málið er því miður bara ekki syona einfalt. Við svöruðum rétt um elztu. þ.e. fyrstu, virkjunina. en Sunn- lendingar svöruðu hvorki rétt um fyrstu, né elztu núverandi virkjun. Upplýst hefir nefni- lega verið óyggjandi, að elzta núverandi vatnsaflsvirkjun á Vestfjörðum sé í Ögri við ísa- fjarðardjúp. en ekki við Fossa- vatn eða annarsstaðar í Engi- dal. Enginn getur hins vegar vefengt, að sú fyrsta var á Pat- reksfirði. Þarna tapar þvi Suðurland stigi og staðan orðin 17:16, Reykjanesi í vil. — Samt ber Helgi Skúli höfðinu við steininn og stendur i ströngu með útúrsnúninga og hártogan- ir og það þvert ofan i úrskurð Orðabókar (vonandi birtingar- mistök) í stað þess að viður- kenna kinnroðalaust það, sem ég hefi eftir honum, þó óstaðfest af honum sjálfum að hann hafi „ekkert” vitað ,,um þetta þarna fyrir vestan”. Kannski heldur hann því ennþá fram, að Fossavatnsvirkjun sé sú elzta núverandi, kannski heldur hann því fram að Ögur við ísafjarðardjúp sé ekki á Vestfjörðum. Það er aldrei að vita, hverju svona menn taka upp á, sem ekki geta beðið ósigur í neinu máli. Sjálfum er mér ekkert að vanbúnaði að bíða ósigur i mínum 19. þætti, enda veit ég, hvað það er, þar eð ég stóó í þeirri röngu ímyndun fyrst eftir upptökuna, að Sunnlendingar hefðu fundið virkjun i Fossá í Engidal fyrir 1911, sem ég vissi ekki um. En Helgi Skúli grípur dauðahaldi í þá trú sína og von, að Fossa- vatnsvirkjun sé sú elzta núver- andi, og heldur því síðast fram i Dagblaðinu í dag, en er jafn- framt svo óheppinn, að í sjálfs- réttlætingar- og leiðréttingartil- raun sinni bætir hann enn einni vitle.vsunni ofan á allar hinar, þegar hann segir Fjall- foss vera elzta skip Eimskipa- •félags Islands, þótt allir, sem fylgjast með. viti að Fjallfoss var ekki b.vggður f.vrr en 1954. en að Lagarfoss er 5 árum eldri, b.vggður 1949. Svona mönnum er vart við bjargandi. — Þó er aðalatriðið, eins og dr. Jakob Benediktsson segir, að þegar spurt var, var ekki spurt nógu greiniiega. Eftir stendur þó 1) að svar Reyknesinga var rétt, sbr. Orðabókarúrskurðinn, en svar Sunnlendinga var rangt, sbr. upplýsingarnar um Ögur. 2) Skjaldarmerki Páfastóls: Sýnt var skjaldarmerki, Lyklar himnaríkis og þríkóróna páfans. Báðar sveitir svöruðu í þá átt, að hér væri um að ræða skjaldarmerki Vatíkansríkisins eða Páfastóls. Gefin voru stig með semingi, þar eð þetta væri skjaldarmerki páfans. Þetta var rétt meðan ekkert páfaríki var til, en eftir Lateransamn- inginn 1929 er þetta skjaldar- merki Vatíkansins, skv. óyggj- andi heimildum. Hver páfi hefir svo sitt ættarskjaldar- merki hangandi neðan í lyklum himnaríkis. — Hér átti enginn semingur við, Helgi Skúli, 3) Eldborg ,,á Mýrum”. Spurt var um í hvaða eldstöð á Vesturlandi hefði síðast verið eldvirkni. Sunnlendingar svör- uðu: Eldborg á Mýrum. Eldstöð þessi er þó alls ekki á Mýrum, sem lýkur norður við Hítará, heldur er hið rétta að hún er í Snæfellsnes og Hnappadals- sýslu. nánar tiltekið i hinni fornu Hnappadalssýslu. Svar okkar var þvi: Eldborg í Hnappadalssýslu. — Eg nenni þó ekki að heimta stig af Sunn- lendingum fyrir þessa villu. sem er útbreidd i kennslubók- um. en ófröðlegt var svarið. 4i Örnefni i Aðaldal: Spurt var uill 4 örnefni. þ.á.m. um Grenjaðarstað(i). i hvaða sveit þau væru. Þetta ruglaði báðar sveitir, en okkur þó lengur, þar sem við héldum að hér væri um fjórliðað svar að ræða. Þetta bjargaðist þó. en spurningin var sannarlega ótilhlýðileg.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.