Dagblaðið - 06.04.1976, Síða 6

Dagblaðið - 06.04.1976, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRIL 1976. Howard Hughes lézt í gœrkvöldi — í flugvél á leið til lœknis í Houston Bandaríski auðjöfurinn og einsetumaðurinn Howard Hughes Iézt af hjartaslagi í nótt í flugvél á leiðinni frá Acapulco í Mexikó til Houston í Texas, þar sem hann ætlaði að gangast undir læknisskoðun. Howard Hughes var sjötugur að aldri. Hann hefur ekki sézt opinberlega síðan 1948 en skildi eftir sig fjármálastór- veldi, sem metið er á tvo <] Howard Hughes 1948, skömmu áöur en hann dró sig algjörlega í hló. Myndin birtist ó nýjan leik 1972, þegar bandaríski rit- höfundurinn Clifford Irving skrifaöi „œvisögu" milljónarans ,eins og frœgt varö. milljarða dollara, eða rúmlega 350 milljarða íslenzkra króna. Að sögn lögfræðings Hughes verður mestum hluta þess fjár varið til framþróunar geimvísinda og læknisfræði. Lögfræðingurinn bætti því við, að erfðaskrá Hughes verði gerð opinber í smáatriðum eftir um það bil tíu daga. Flugmaður vélarinnar, er flutti Hughes í hinztu ferð hans, sagði að auðjöfurinn hefði verið náfölur á leiðinni og líkami hans mjög illa farinn. „Hann hreyfði varirnar einu sinni, en ég gat ekki heyrt hann segja neitt,” sagði flugmaðurinn á flugvellinum í Houston í nótt. Tollvörðurinn, sem hleypti aðstoðarmönnum Hughes með lík hans í gegnum tollinn, sagði lík hans hafa verið skelfilegt að sjá, horað og gamalt og slitið. Veikindi Hughes hafa ekki verið langvarandi, að sögn aðstoðarmanna hans og þeirra fáu kunningja, sem hann hélt sambandi við símleiðis. Hughes tók við olíuborunar- fyrirtæki föður síns og gerði að risaveldi í kvikmyndum, flug- vélum og spilavítum. 1948 dró hann sig í hlé og hefur ekki sézt síðan, en ferðast á milli vel varinna dvalarstaða sinna í Bahama-eyjum, Kanada, Englandi, Mexikó, og Nicaragua. Til Bandaríkjanna kom hann ekki eftir 1970. lestamnningjar stofna ótgáfu — svo leiða megi heiminn í allan sannleikann um „lestarránið mikla" í Bretlandi '63 Mennirnir sem sekir voru fundnir um eitt mesta rán sög- unnar telja að ennþá geti þeir látið glæpinn borga sig. Sjö hinna frægu lestarræn- ingja, sem sluppu með sem svarar rúmlega 900 milljónir íslenzkra króna eftir að hafa rænt póstlest skammt frá London, hafa nú ákveðið að stofna fyrirtæki ,,um allt það, sem fortíðin gæti fært þeim í skaut”. Bíða þeir nú til- boða útgáfufyrirtækja um rétt til þess að gefa út nákvæma frásögn af undirbúningi og framkvæmd ránsins. Ellefu ræningjanna náðust og voru dæmdir fyrir 13 árum í sam- anlagt 365 ára fangelsi. Sjö þeirra hafa verið látnir lausir, þrír sleppa síðar á þessu ári, en einn þeirra, Ronald Briggs, slapp úr fangelsinu og býr nú í Rio de Janeiro. Hafa hugmyndir ræningjanna mælzt misjafnlega fyrir og ætla nokkrir þingmenn íhaldsflokks- ins að beita sér fyrir lagafrum- varpi til þess að stöðva „þennan ósóma, sem stingur í stúf við vinnu venjulegs fólks, sem er undirstaða þessa þjóðfélags”. Frakkland: Gjaldþrot blasir við Lip-úraverksmiðjunum Franska Lip-úraverksmiðjan, sem verkamenn tóku við stjórn á fyrir þremur árum, greindi frá því í gær að gjaldþrot blasti enn á ný við fyrirtækinu. Framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins, Jean Sargueil, sagði frétta- mönnum að fyrirtækið gæti ekki lengur staðið við fjárhagsskuld- bindingar sínar og að hluthafar vildu ekki styðja starfsemina lengur. Starfsmenn verksmiðjunnar vöktu heimsathygli fyrir þremur árum þegar þeir tóku sjálfir við stjórn verksmiðjunnar og ráku hana í nokkra mánuði í stað þess að fara að fyrirmælum stjórnar hennar, sem hafði fyrirskipað lokun. Bráðabirgðalausn fannst á vandanum þegar fransk- svissneskt fjármálafyrirtæki tók við stjórninni. Sargueil sagði í gær, að nauð- synlegt væri að fækka starfs- mönnum um helming, en þeir eru nú 900 talsins. Jafnframt. væri bráðnauðsynlegt að afla sem svarar 475 milljóna króna í reiðu- fé til að bæta upp það tap, sem varð á rekstrinum í fyrra. Argentína: Blómstrandi viðskipti eftir byltingu hersins þykja sýna styrkleikamerki með argentísku þjóðinni og stjórn Videla, sem hér sver embættiseið sinn. FJ0RUG VIÐSKIPTI STYRKJA STJÓRN VIDELAS í SESSI Mikil viðskipti voru á verð- bréfamarkaðinum í Buenos Aires, er hann var opnaður á ný í fyrsta sinn eftir byltingu hers- höfðingjanna, sem komu Peron forseta frá völdum. Varð allt að 300% hækkun á hlutabréfum vegna mikillar eftirspurnar og segja kunnugir, að um 22 til 25 milljónir hluta- bréfa af öllum stærðargráðum hefðu gengið kaupum og sölum. Verða þessi fjörugu viðskipti á fyrsta degi að teljast trausts- ytirlýsing verzlunar og iónaðar á ríkjandi stjórn Videla hers- höfðingja, sem hefur lofað víð- tækum umbótum í efnahagslíf- inu. Þá hefur slegið verulega á svartamarkaðsbrask, þar eð gjaldeyrisviðskipti eru nú kom- in í eðlilegt horf á ný. HÆSTIRÉTTUR BANDARÍKJANNA STAÐFESTIR SEKT CALLEYS — það breytir þó iitlu... Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur neitað að náða fyrrum liðþjálfa í hernum, William Calley, sem farið hafði fram á að hann yrði fríaður við sekt sinni f.vrir að hal'a myrt 22 manns í víetnömsku þorpi. Er þetta lokaniðurstaða í löngum málaferlum, sem staðið hafa allt frá árinu 1968, er kunnugt varð um að herdeild Calleys hafði myrt flesta íbúa þorpsins My Lai í Víetnam. Sekt hans stendur því enn, en mun ekki hafa nein áhrif á frelsi hans. Calley hefur ekki setið í fangelsi síðan hann var dærndur í lífstíðarfangelsi f.vrir fimm árum. Hann var settur í stofúfangelsi í tvö ár og tíu mánuði, síðan Iátinn laus gegn tryggingu á rneðan beðið var úrskurðar venjulegs dómstóls. Endurskoðunardómstóll hers- ins breytti dómnum í 20 ára fangelsi og hermálaráðherr- ann i tíu ár. Síðan hefur Calley barizt gegn þeim úrskurði, á þeim forsendum að aldrei hafi farið fram óhlutdræg réttar- höld yfir honum vegna al- menningsálitsins á tímum Víetnam striðsins.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.