Dagblaðið - 06.04.1976, Side 10
MMBIABIÐ
frjálst, úháð dagblað
Utgefandi: Dagblaðið hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Heigason
Aðstoðarfréttastjóri: Atli Steinarsson
Iþróttir: Hallur Símonarson
Hönnun:Jóhannes Reykdal
Blaðamenn: Anna Bjarnason, Asgeir Tómasson, Bolli Héðinsson,
Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir, Gissur Sigurðsson, Ilallur
Ilallsson. Helgi Pétursson, Katrín Pálsdóttir, Ólafur Jónsson, Ómar
Valdimarsson.
Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnieifsson, Björgvin Pálsson, Ragnar Th.
STgurðsson.
Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson
Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson
Askriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. •
í lausasölu 50 kr. eintakið.
Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar, áskriftir og afgreiðsla
Þverholti 2, sími 27022.
Setning og umbrot: Dagblaðið hf. og Steindórsprent hf., Armúla 5.
Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Síðumúla 12. Prentun: Arvakur hf.,
Skeifunni 19.
Lógþrýstihópur
Iðnrekendur hafa hingað til
verið það, sem kalla mætti
lágþrýstihópur. Þeir hafa verið
prúðir miðað við hina reglulegu
þrýstihópa, gert fremur litlar og
hógværar kröfur og sætt sig
mótmælalítið við margt.
Þannig tóku iónrekendur því yfirleitt með
þögn og þolinmæði, að ísland gekk í frí-
verzlunarbandalagið EFTA og gerði viðskipta-
samning við Efnahagsbandalagið. í báðum
þeim samningum fólst, að tollmúrar voru
lækkaðir og til þess ætlazt, að íslenzkur iðnaður
stæði óverndaður í samkeppni við innfluttar
erlendar iðnaðarvörur. Iðnrekendur voru góðu
börnin og létu þetta yfir sig ganga.
Slíkt hefði enginn reglulegur þrýstihópur
gert, hvað þá þeir hópar, sem verðskulda nafn-
giftina háþrýstihópar. Nú bendir margt til
þess, að iðnrekendur hyggist breyta um stefnu.
Þaó kom fram á nýafstöðnu ársþingi Félags
íslenzkra iðnrekenda og einkum í ræðu for-
mannsins, Davíðs Scheving Thorsteinssonar.
Af þinginu má marka, að iðnaðurinn vill ganga
fram af hörku til að eyða því misrétti, sem hann
hefur verið beittur um langt árabil. Sann-
leikurinn er sá, að hver ríkisstjórnin á fætur
annarri hefur haft iðnaóinn í öskustó.
Davíð Scheving Thorsteinsson lagði fram
ítarlegar og gagnmerkar tillögur um gjörbylt-
ingu á stjórn efnahagsmála.
Hann benti á úrbætur á hinum fáránlegu
aðferðum, sem beitt hefur verið við gengis-
skráningu krónunnar. Davíð leggur til, að
skráning gengisins verði við það miðuð, að vel
rekin fyrirtæki í útflutningi verði rekin með
hagnaði og sem mest jafnvægi sé milli gjald-
eyristekna þjóðarinnar og gjaldeyriseyðslu.
Grundvöllur gengisskráningarinnar verður að
vera réttur, hún verði ekki skekkt með
tilfærslum, eins og jafnan hefur verið gert hér.
Starfsskilyrði þeirra, sem flytja út framleiðslu
sína eða selja hana innanlands í samkeppni við
erlenda framleiðendur verði sem líkust.
Iðnaðurinn hefur jafnan tapað á þeim skolla-
leik, sem hér tíðkast um gengisskráninguna.
Þaö er honum mikió hagsmunamál, að gengis-
skráningin veröi rétt.
Davíð mælir . með víðtækari beitingu
verðjöfnunarsjóða til að draga úr sveiflum í
efnahagskerfinu, sem orsakast af mismunandi
aflabrögðum og verði sjávarafurða. Sjóðirnir
verði varðveittir í erlendri mynt. Upphæð fjár-
laga verði ákveðin með tilliti til efnahags-
ástandsins hverju sinni en verði ekki til að
auka verðbólgu á þenslutímum, eins og yfirleitt
hefur gerzt hér.
Ilann vill afnema útflutningsbætur í
áföngum og hætta nióurgreiðslum.
Hér hefur verið getið nokkurra aðalatrióa í
hinuin merku tillögum formanns Félags ís-
lenzkra iðnrekenda. Svo vill til, að þaö eru ekki
aðeins hagsmunir iðnaðarins heldur þjóðarbús-
ins alls, að þær nái fram að ganga.
DAGBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1976.
Danska ríkisstjórnin er
helzti andstœðingur
Grœnlendinga innan
Efnahagsbandalagsins
Helzti andstæðingur
Grænlendinga í tilraunum
þeirra til þess að vernda eina
atvinnuveg sinn, fiskveiðar,
virðist eftir öllum sólar-
merkjum að dæma véra danska
ríkisstjórnin.
Fulltrúi Dana hjá Efnahags-
bandalaginu, Finn Gundelach,
hefur látið á sér skilja við
grænlenzka þingmanninn Lars
Emil Johansen; vara-
formanninn í sjómannasam-
tökum Grænlands, Ulrik
Rosing og ritara þeirra sam-
taka, Moses Olsen, að um
stuðning rikisstjórnarinnar við
kröfur Grænlendinga geti ekki
orðið að ræða.
Grænlendingarnir þrír báðu
um fund með bandalags-
fulltrúanum og þar fengu þeir
þennan grun sinn um afstöðu
ríkisstjórnarinnar staðfestan
og hafa þeir nú farið fram á að
eiga sæti í samninganefnd
ríkisstjórnarinnar um
fiskveiðimál á vegum Efna-
hagsbandalagsins.
Haustið 1975 bar grænlenzka
landsráðið fram kröfu um í
að minnsta lagi 100 mílna
fiskveiðilögsögu, þegar ljóst
varð að rækjustofnarnir við
Grænland væru ofveiddir.
Finn Gundelach sagði
Grænlendingum að þessi krafa
þeirra hefði aldrei komizt alla
leið, heldur hefði nefnd sú, sem
um þessi mál fjallar hjá banda-
laginu, hana til athugunar.
Sagði hann, að möguleikarnir á
því að krafa þessi næði fram að
ganga væru litlir. Hún gæti
skapað hættulegt fordæmi og
sem kunnugt er hefur Efna-
hagsbandalagið verið á móti
einkaafnotum aðildarríkja
'sinna af auðlindum sínum.
Hins vegar vildi Gundelach
leggja á það áherzlu að Græn-
land er eina landið innan Efna-
hagsbandalagsins, sem viður-
kennt hefur verið sem sér-
svæði, vegna þess að viður-
kennt er, að þeir verða algjör-
Ein af aðallöndunarhöfnum á
Grænlandi er Jakobshavn, þar
sem reist hefur verið nýtízku-
leg fiskiverksmiðja. En Danir
eru sjálfir með fingurinn í
öllu, sem þar fer fram í nafni
fyrirtækis þess, sem allir
kannast við — Kongunglegu
Grænlandsverzlunarinnar.
o
lega að treysta á fiskveiðar sér
til lífsbjargar.
Því taldi hann mögulegt, að
þeir fengju einhver sérréttindi
innan 200 mílna landhelgi, en
það væri þó með öllu óvíst og
bundið samþykki dönsku ríkis-
stjórnarinnar.
Skoðanir sínar byggði
Gundelach á því að Danir
óttast mjög útfærslu
Englendinga á sinni landhelgi
og að það kunni verulega að
skaða danska sjómenn. Því vill
ríkisstjórnin ekki hleypa
Grænlendingum of langt.
Talaði hann um ,,miklar
mótsagnir” í kröfum Dana
annars vegar og Grænlendinga
og hann játti því, að
grænlenzkur fulltrúi í
samninganefndinni gæti túlkað
sjónarmið þeirra mun betur,
en Danir m.vndu gera.
Eftir fundinn sagði Lars
Emil Johansen: ,,Eg fékk nteiri
upplýsingar um það, hvað er að
gerast, en ég hef nokkurn tíma
fengið frá dönsku ríkis-
stjórninni”.
Grænlendingar leggja því
mikla áherzlu á það, að þeirra
hagsmuna verði gætt og þá af
þeim sjálfum. „Jörgen Peder
Hansen, Grænlandsmála-
ráðherra, hefur margsinnis
sagt að það séum við sjálfir,
sem bezt getum gert fólki grein
fyrir vandamálum okkar,”
sagði Lars Emil ennfremur.
Moses Olsen bætir því við, að
það sé nauðungarvera
Grænlendinga í Efnahags-
bandalaginu, sem geri erfitt
fyrir að lausn finnist fljótlega.
Og hann segir: „Sjómanna-
sambandið mun standa fast á
kröfum sínum um eigin land-
helgi”.
Þeir hafa ennfremur lýst því
yfir, að þeir ætli sér að ná
beinu sambandi við Efnahags-
bandalagið, sem virðistmeira í
mun að leysa vandann en
dönsku ríkisstjórninni .
Ekku leikur minnsti vafi á
því, að lokasigur íslendinga í
landhelgisdeilunni við Breta er
skammt undan. Eftir 5 daga
veru í London nú f.vrir
nokkrum dögunt, sem eytt var í
athuganir á stöðunni í land-
helgismálinu í brezku þjóðlífi
er ljóst, að brczka ríkisstjórnin
er komin í sömu stöðu á sínum
heimavígstöðvum í deilunni við
íslendinga og ríkisstjórn
Bandaríkjanna var i gagnvart
sinni þjóð undir lok Viet-
Nam stríðsins. Brezka þjóðin er
komin í andstöðu við stefnu
ríkisstjórnarinnar, því að ekki
hefur lengur tekizt fyrir hina
litlu sérhagsmunahópa togara-
eigendanna i Hull og, Grimsby
að villa um fyrir þjóðinni um
eöli deilunnar og blátt áfram
koma í veg f.vrir að eðlilegar
upplýsingar bærust um deiluna
og stöðu Bretlands sjálfs og
raunverulega þjóðarhagsmuni
Breta í hafréttarmálum.
Eg var blátt áfram furðu lost-
inn hve vitneskja um deiluna
er orðin almenn í Bretlandi. Og
hver er ástæðan? Það má segja
að þessi þekkingarþróun bvrji
er brezku heimafiskimennirnir
lokuðu fiskihöfnunum i fyrra.
Þegar sú alvarlega aðgerð
upphófst. fór alntenningur og
ýmsir félagshópar og stofnanir
að kr.vfja málið. því það er
alvarlegt ntál. þegar höfnum
e.vlands, samgöngumiðstöðvum
landsins .við umheiminn og
aðselri mikiivægrar matvæla-
iiflunar er lokaö. Og við blasti
Lokasigur í I
undireins sú landfræðilega
staðreyrid, að Bretland er ey-
ríki þar af leiðandi stórt strand-
ríki, sem vegna þessarar land-
fræðilegu einföldu staðreyndar
hlaut að eiga sína þjóðar-
hagsmuni í stórri landhelgi en
ekki lítilli. Einnig kom sú stað-
reynd í dagsljósið, að brezku
heimafiskimennirnir, sem
stunda miðin við Bretland, hafa
yfirleitt undanfarin ár lagt á
land unt 60% af öllum lönd-
uðum fiski í Bretlandi, en út-
hafsflotinn, sem fiskar á ann-
arri þjóða miðum ekki nema
40%. Því sáu allir heilvita
menn. að brezka ríkisstjórnin
hefur haft í áratugi snar-
vitlausa stefnu í landhelgis-
málum. sem gengið hefur í mót
brezkum þjóðarhagsmunum en
þjónað sérhagsmunum þrýsti-
hóps. Þó hristi ekkert eins upp
i brezkri þjóðarvitund eins og
þegar brezka þjóðin fékk
vitneskju um að Bretlandsmið
gefa af sér ca. 1.5 milljónir
tonna af fiski. en Bretar
fiska aðeins af þessu magni
sjálfir en erlendir fiskimenn
hirða -:i; sem sé 1 fisk þegar
útlendingarnir taka 2 og í ofan-
álag. að koriimúnistarnir í
Austur-Evrópu eru stórir aðilar
hér að. Sem sé verið að gefa
kommúnistunum aðild að mat-
vælaauðlindum á sama tíma og
milljörðum sterlingspunda
brezkra skattborgara er varið
til að hamla á móti hernaðarógn
kommúnista í Evrópu. Ofaná
bættist svo olían sem fór að
renna upp úr Norðursjó, sú
fyrsta kom úr borholum sem
voru á Argyle svæðinu, sem var
212 rnílur undan Skotlands-
ströndum. Og Bretar að beita
herskipum til þess að komast
upp að 12 mílurn við Island til
veiða.
Vera mætti að hægt væri að
finna þessu einhverja stoð í
samþvkktum og lögum. En í
þessu væri blátt áfram enginn
„mórall." þetta væri algjörlega
siðlaust og væri algjörlega
óhæf framkoma af brezkri
ríkisstjórn að heimta sér til
handa 212 mílur vegna olíu en
nokkur hundruð rnílur norð-
vestar að neita tslendingum urn
allt nema 12 rnílur vegna síns
fisks. Loks i april i fyrra kom
svo formleg krafa til brezku
ríkisstjórnarinnar frá brezka
sjávarútveginum sem heild urn
að berjast fy.rir 200 ntílna efna-
hagslögsögu og innan hennar
100 milna eitikafiskveiðilög-