Dagblaðið - 06.04.1976, Qupperneq 23
UACíBLAÐlÐ ÞHIO.IUDAGUK 6. AI'HIL 197(i
23
safíl art fólk viti af því þefjar
illfært er um bæinn. Þaó eru
óskráð liifí hjá liiftref>lunni oft
h.já okkur í morftunútvarpinu
aó seftja fólki frá því aó þaó
skuli ekki fara út á bílnum sín-
um á sumardekkjum þejtar
hætta vofir yfir. Allt er ftlerhált
og skaflar í öllum ftötum. Þeftar
Skúlaftatan er alveg á bólakafi i
sjóroki tel éft þaó skyldu mína
aó segja frá því, þótt þetta knmi
ekki svo -mikið að sök, síóan
Ríkió flutti upp á Lindargötu. "
Enginn verður spámaður,
en auðvitað segi ég
fólki frá því þegar
ég fer í síðu
nœrbuxurnar
Fólk heldur að vorið sé skynsemisgædd vera, sem ekki megi tala
um. DB-myndir Bjarnleifur
Hef mitt
eigið kerfi í
leikfiminni"
— segir Jón Múli
,,Hvað, þið komið þrem
klukkutímum of seint. Hefði ég
verið vaknaður? Auðvitað, ég
fer alltaf á fætur klukkan
fimm,” þrumar Jón Múli yfir
okkur Bjarnleifi um leið og við
komum inn í þulaherbergið til
hans. Valdimar er einmitt að
byrja með seinni morgunleik-
fimina sína.
,,Nei, ég fer aldrei í morgun-
leikfimina hans Valdimars. Eg
hef allt annað kerfi. Það kerfi,
sem ég fer eftir er eftir annan
Valdimar, sá var Sveinbjörns-
son og kenndi við lærða skól-
ann í Reykjavík. Við það bætist
svo Möllerskerfið, Grettiskerf-
ið, Atlaskerfið, kerfi
Múhameðstrúarmanna og auð-
vitað kerfi Múhameðs Alis.
Þessu er ég öllu búinn að ljúka
þegar ég mæti hér klukkan 7.
Ha, hvort ég sé svona hress
þess vegna? Nei, ég væri senrji-
lega löngu dauður ef ég hefði
ekki tekið inn kínverskt
ginseng í mörg herrans ár. Eg
hitti hana Möggu Þorbergs
hérna á göngunum um daginn
og hún spurði mig hvort ég
væri eitthvað hvumpinn. Hvort
ég tæki ekki inn drottningar-
hunang og ginseng. Það var út
af kvefinu í mér, sem hún
spurði. Ég staðfesti auðvitað
það.sem ég hef sagt við ykkur,
að það hefði ég gert fram að
þessu, en nú væri ginsengið
bara búið. Nú, það er búið til úr
mold og vatni. Það er það sem
Þórbergur gekk á. Þegar Þór-
bergur var sjötugur varð hann
rauðbirkinn á ný vegna þessa
ginsengs. Vinstri stjórnin
ætlaði að leyfa innflutning á
því frá Kína og ætlaði að gera
þetta að einu allsherjar lyfi, þá
hefði Sjúkrasamlagið þurft að
greiða það. Þetta misheppnað-
ist eitthvað í meðförum hjá
henni. Það síðasta sem ég frétti
er að allra áköfustu aðdáendur
ginsengs hafi keypt allt upp.
Þeir áttu peninga. Ég? Ég er
bara opinber starfsmaður og
verð þess vegna að hafa kvefið
mitt.
Eg segi auðvitað fólki frá því
þega>ég fer i síðu nærbuxurn-
ar mínar. Og auðvitað er sjálf-
Nú var Valdimar búinn með
morgunleikfimina sína og
Magnús búinn að trilla sínar
síðustu nótur. Jón Múli skellir
Ink Spots á fóninn og þeir
kyrja Twilight Time.
,,Já, við vorum að tala um
veðrið.”
. „Auðvitað er vorið komið.
Það er bara móðursjúkt fólk
sem heldur fram hinu gagn-
stæða.” (Við Bjarnleifur horf-
um út i ofandrífuna.) ,,Það
heldur," segir Jón Múli, og
lætur ekki trufa sig, ,,að ef
maður tali um vorið hljóti það
að verða til þess að það komi
aldrei. Það heldur, að vorið sé
skynsemisgædd vera. Nei, vor-
jafndægri voru 20. marz. Nú
bíðum við bara eftir sumrinu
og það kemur upp úr páskum.”
„Keyrir þú enn hann Hrað-
fant,” læðist út úr okkur Bjarn-
leifi.
Nú keyri ég Volgu.
Hún er hönnuð eftir
hugmyndum Stalíns
til að nota í
vetrarhernaði
„Nei, ég hef átt tvö austur-
þýzk tryllitæki. Annað hét
Hraðbrandur hinn Hraðfantur.
Nú á ég rússneska Volgu. Hún
var hönnuð eftir hugmyndum
Stalíns til þess að nota í vetrar-
hernaði og hefur dugað mér
vel. Næst þegar ég þarf að
kaupa mér farartæki hugsa ég
kannski til Concorde. Mér er
sagt að það séu þegar til sölu
fjórar flugvélar af slíkri gerð.”
„Segðu okkur nú. Ertu ekki
oróinn eins og gangandi hand-
bók í sámbandi við plötur og
annað sem þú ert alltaf að segja
okkur hlustendum frá?”
spyrjum við Bjarnleifur.
„Það hefur auðvitað eitthvað
síazt inn í mann í 30 ár. En það
er líka annað. Til skamms tíma
hef ég aldrei þurft að leita út
fyrir stofnunina. Hér á útvarp-
inu hafa menn getað sagt mér
allt um stjörnufræði, heim-
speki, eðlisfræði og allt annað á
milli himins og jarðar. Suss, nú
verð ég að setja plötu á.” Og
hlustendur fá að heyra Louis
Jordan og Ellu Fitzgerald
syngja „Bab.v it’s cold outside”.
Það er auðvitað skylda mín að segja frá sjórokinu á Skúlagötunni,
þótt það komi minna að sök síðan Ríkið flutti upp á Lindargötu.
„Mér leiðist öll tónlist nema
góð jassmúsik,” segir hann.
,Eftir því sem ég þroskast meira
vil ég ekki hlusta á neitt annað.
Mér finnst að aðrir ættu að taka
mig sér til fyrirmyndar.”
Jón Múli biaðar í auglýsing-
um. ,,Nú, þarna fást kútmagar,
hrogn og lifur,” muldrar hann.
„Nú gráta allar konur á bezta
aldri hér við Faxaflóa,” bætir
hann við. Delta rythme Boys
Það eru þrír plötuspilarar í þul- syngja ásamt Ellu Fitzgerald,
arherberginu og Jón Múli notar The Papermoon. Vió Bjarnleif-
alltaf sinn hvorn. ur höldum út i ofandrífuna,
,.\u grála allar konur á be/.la aldri hér við Faxaflóa,”segir Jón Múli og smellir Papermoon á fóninn
með 1.11u Filzgerald og Della rylhme Boys.
Utvarp
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilk.vnningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilk.vnningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Spjall frá Noregi.
Ingólfur Margeirsson flytur.
15.00 Miðdegistónleikar.
Barokkhljómsveitin i
Lundúnum leikur Litla
sinfóníu fyrir blásara eftir
Gounod, Karl Haas stjórnar.
Irmgard Seefried og
Hátíðarhljómsveitin í
Luzern flytja „Sólsetrið",
tónaljóð fyrir sópran og
hljómsveit eftir Respighi,
Rudolf Baumgartner
stjórnar. Sinfóníuhljómsveit
ungverska útvarpsins leikur
tilbrigði eftir Kodály um
ungverka þjóðlagið
„Páfuglinn", György Lehel
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
Tónleikar.
16.40 Litli barnatíminn.
Sigrún Björnsdóttir sér um
tímann.
17.00 Lagið mitt. Anne-Marie
Markan sér um óskalagaþátt
fyrir börn yngri en tólf ára.
17.30 Framburðarkennsla í
spænsku og þýzku.
17.50 Tónleikar.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
^Sjónvarp
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Skólamál. Markmið og
leiðir. Umræðuþáttur.
Þátttakendur Andri ísaks-
son. prófessor, Kári
Arnórsson, skólastjóri.
Heimir Steinsson, rektor
lýðháskólans í Skálholti,
Páll V. Danílesson, hag-
deildarstjóri, og Helgi
Jónasson, fræðslustjóri, sem
stýrir umræðum. Stjórn
upptöku Sigurður Sverrir
Páísson.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Líkamsrækt skólabarna.
Jóhannes Sæmundsson
íþróttakennari flytur fyrra
erindi sitt.
20.00 Lög unga fólksins. Ragn-
heiður Drífa Steinþórs-
dóttir kynnir.
20.50 Frá ýmsum hliðum.
Guðmundur Árni
Stefánsson sér um þátt fyrir
unglinga.
21.30 „Dimmalimm kóngs-
dóttir”, ballettsvíta nr. 1
eftir Skúla Halldórsson.
Sinfóníuhljómsveit íslands
leikur, Páll P. Pálsson
stjórnar.
21.50 Kristinfræði Nýja
testamentisins. Dr. Jakob
Jónsson flytur tólfta erindi
sitt: Spámaðurinn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passíusálma (42)
22.25 Kvöldsagan: „Sá svarti
senuþjófur”, ævisaga
Haralds Björnssonar leikara
Höfundurinn, Njörður P.
Njarðvík, les (2).
22.40 Harmonikulög. Franski
harmonikuleikarinn
Aimable leikur ásamt
felögum sínum.
23.00 A hljóðbergi. „The
Homecoming" (Heim-
koman), leikrit eftir Harold
Pinter: f.vrri hluti. I aðal-
hlutverkum eru C.vril Cuis-
ack. Ian Holm Paul Rogers
og Vivien Merchant. Leik-
stjórí: Peter Hall.
23.55 Fréttir. Dagskrarlok.
21.20 Grannvaxni maðurinn.
(The Thin Man). Bandarísk
bíómynd frá árinu 1933.
Aðalhlutverk William
Powell og M.vrna Loy.
Kunnur vísindamaður
hverfur á ferðalagi. Dóttir
hans fær f.vrrverandi lög-
reglumann, Nick Charles, til
að leita hans. Þýðandi Krist
mann Eiðsson.
22.50 Á leið til lýðræðis?
Heimildamynd um stjórn-
mála- og efnahagsástand á
Spáni. Rætt við utanríkis-
ráðherrann, Jose Maria de
Areilza, og Jordi Pujol, leið-
toga Katalóníumanna, sem
berjast fyrir sjálfstæði.
Þýðandi og þulur Stefán
Jökulsson.
23.15 Dagskrárlok.