Dagblaðið - 15.05.1976, Side 24
Stóru mólin lótin eiga sig — nótt í rifrildi um zefuna
ZETAN FLAUG í GEGN
í NEDRI DEILD í GÆR
Magnús Torfi komst ekki upp með moðreyk
Neró keisari lék á fiölu, aó
sögn, meöan Róm brann, Meðan
flest er i kaldakoli í mikil-
vægustu málum þjóóarinnar
efnahagssamdráttur og mörg
mál ná ekki fram aó ganga á
Alþingi vegna tímahraks undir
lokin, tóku þingmenn sér heila
nótt í rifrildi um zetuna.
Zetan sigraói meö
yfirburðum í neðri deild í gær.
Frumvarpið um afturhvarf til
fyrri starfsetningar í mörgum
atriðum var samykkt í deildinni
með 23 atkvæðum gegn 14,
tveir greiddu ekki atkvæði og
einn var fjarstaddur. Já sögðu:
Ragnhildur Helgadóttir (S),
Benedikt Gröndal (A), Ellert
B. Schram (S), Eyjólfur K.
Jónsson (S), Friðjón Þórðarson
(S), Guðmundur H. Garðarsson
(S), Gunnar Thoroddsen (S),
Gunnlaugur Finnsssíi (F),
Gylfi Þ. Gíslason (A), Ingólfur
Jónsson (S), Jóhann Hafstein
(S), Lárus Jónsson (S),
Matthías Bjarnason (S),
Matthías Á. Mathiesen (S),
Ólafur G. Einarsson (S), Páll
Pétursson (F), Pálmi Jónsson
(S), Pétur Sigurðsson (S), Sig-
hvatur Björgvinss., (A), Sigur-
laug Bjarnadóttir (S), Sverrir
Hermannsson (S), Tómas
Árnason (F), Þórarinn
Þórarinsson (F).
Nei sögðu: Eðvarð
Sigurðsson (AB), Garðar Sig-
urðsson (AB), Gils Guðmunds-
son (AB), Ingvar Gíslason (F),
Jón Skaftason (F), Skúli
Alexandersson (AB), Lúðvík
Jósefsson (AB), Vilborg
Harðardóttir (AB), Magnús
Torfi Ólafsson (Samtök),
Ölafur Jóhannesson (F), Stef-
án Valgeirsson (F), Svava
Jakobsdóttir (AB), Vilhjálmur
Hjálmarsson (F), Þórarinn
Sigurjónsson (F).
Magnús Torfi Ólafsson
reyndi að koma fram
breytingartillögu, en í tíð hans
sem menntamálaráðherra var
zetan afnumin. Hann komst
ekki upp með moðreyk. Breyt-
ingartillagan var felld með 24
atkvæðum gegn 14, einn sat hjá
og einn var fjarstaddur.
Málið fer nú til efri deildar.
Deilur urðu urn þá ákvörðun
Ragnhildar Helgadóttur for-
seta deildarinnar að hætta
skyldi umræðum en láta at-
kvæðagreiðslu fara fram. Ragn-
hildur sagði í gær að „hún hefði
ekki sofió síðan í fyrrinótt”, en
umræður stóðu til hálfsex í
gærmorgun. Þá var þeim hætt.
Atkvæðagreiðslan fór fram
eftir hádegi í gær.
Flutningsmenn frum-
varpsins um stafsetningu
Gylfi Þ. Gílsason (A),
Sverrir Hermannsson (S), Þór-
arinn Þórarinsson (F), Jónas
Árnason (AB), Gunnlaugur
Finnsson (F) og Ellert B.
Schram (S). -HH.
frjálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1976
Líflegt í
vesturbœnum ídag:
Slysavarnamenn
sýna hvers þeir
eru megnugir
Það verður líflegt vestast i
vesturbænum í Reykjavík í
dag þegar slysavarnamenn og
konur halda þar mikinn fjöl-
skyldudag. Dagurinn hefst
með því að slysavarnakonur
opna dyrnar að húsi SVFÍ á
Grandagarði og bjóða upp á
sitt alkunna og vítamínauðuga
hlaðborð, krásir miklar sem
allir mega taka af meðan
magarúm endist.
I Gróubúð handan götunnai
verður sýndur útbúnaður og
aðstaða björgunarsveitarinnar
Ingólfs sem Reykvíkingar
hafa löngum stutt með ráðum
og dáð.
Klukkan 15.30 hefst svo
sýning á fluglínutækjum og
notkun þeirra við Gróubúð og
verður þá væntanlega ein-
hverjum „nauðstöddum”
bjargað í land. Gúmbátar og
notkun þeirra verður sýnd og
TF-GRÖ, nýja byrlan Land-
helgisgæzlunnai sýnir sig. Þá
koma klúbbfélagar í Snarfara
siglandi á flota sínum.
hraðbátum. Yngri kynslóðinni
verður gefinn kostur á að fara
i björgunarstól, en á þurru
landi.
-JBP-
Stórf ramkvœmdir að stöðvast:
ER REIKNINGURINN GREIDDUR EÐA EKKI?
Óafgreiddur reikningur upp á
28 milljónir króna frá i nóvember
sl. frá Breiðholti h/f á hendur
stjórn Verkamannabústaða í
Reykjavík og, að sögn Breiðholts-
manna, þrálátar ýfingar í formi
ítrekaðrar fyrirvaralausrar
greiðslutregðu stjórnarinnar,
hafa nú leitt til þess að alger
óvissa ríkir nú um áframhald
framkvæmda Breiðholts h/f vió
byggingu á fjórða hundrað íbúða
fyrir stjórnina.
Stjórnarmenn Breiðholts taka
væntanlega ákvörðun af eða á í
dag, en hætti þeir framkvæmd
missa á annað hundrað verka-
menn atvinnu sína við fram-
kvæmdirnar auk þess sem þær
stöðvast um ófyrirsjáanlegan
tíma og verðútreikningar allir
hrynja.
Stjórn Verkamannabústaða í
Reykjavík hélt fund í fyrradag
og var þar ákveðið að greiða
Breiðholti 10 milljón króna í gær,
en í gær stóð greiðslan til boða
með þeim skilyrðum, eða fyrir-
vara, að stjórn Breiðholts sá ekki
hina minnstu ástæðu til að
gangast inn á hana.
Þrátt fyrir það greiddi Breið-
holt starfsmönnum sínum laun í
gær. Stjórn Breiðholts ætlar í dag
að taka ákvörðun unt hvort fyrir-
tækið notar áskilinn rétt vegna
vanefnda verkkaupa til að losa sig
út úr verkinu.
Vegna fréttar blaðsins um
þetta mál sl. miðvikudag barst
blaðinu eftirfarandi yfirlýsing:
„Samkvæmt beiðni formanns
stjornar Verkamannabústaða í
Reykjavík, hr. Eyjólfs K. Sigur-
jónssonar, hef ég yfirfarið
reikning frá Breiðholti h/f dag-
settan 30. apríl sl. og borið saman
við yfirlit yfir verkstöðu frá fram-
kvæmdastjóra stjórnarinnar, hr.
Ríkarði Steinbergssyni. Sömu-
leiðis hef ég yfirfarið athuga-
semdir framkvæmdastjórans dag-
settar 5. þ.m. á áðurnefndum.
reikningi. Þar er niðurstaða harís
að búið sé að greiða að fullu
framleiðslu aðalverktaka,
Breiðholts h/f til aprílloka, og
auk. þess hefur verið greitt með
fyrirvai a um 50% af
framkomnum aukakröfum, sem
ennþá hafa ekki verið
samþykktar, en eru á
samningastigi.
Af þeim gögnum, sem ég hef
kannað, er ég sammála
niðurstöðu framkvæmdastjóra, og
get ekki séð að stjórn
Verkamannabústaða hafi á
nokkurn hátt brotið samninga á
aðalverktaka, Breiðholti h/f.
Reykjavik, 13. maí 1976.
Karl Ömar JónsSon.
FJarhitnnhf.
Heilbrigðisróð VILL RAÐA TVO MENNIEINA
borgorinnar: STÖÐU YFIRSKÓLATANNLÆKNIS
Heilbrigðisráð borgarinnar
auglýsti fyrir nokkru stöðu yfir-
skólatannlæknis lausa til
umsóknar og sóttu fimm tann-
læknar um starfið. Að athuguðum
umsóknum þykja tveir hæfastir
til starfsins, Magnús Gíslason og
Stefán Yngvi Finnbogason.
Hvort sem heilbrigðisráð getur
gert upp á milli þeirra eða
ekki, ritaði það borgarráði bréf,
sem tekið var fyrir á síðasta fundi
borgarráðs, og er þar lagt til að
tveir menn verði ráðnir í stöðu
yfirskólatannlæknis borgarinnar.
Tillaga þessi var felld með
þrem atkvæðum gegn einu og
gerðu borgarráðsfulltrúar Sjálf-
stœðisflokksins bókun þess efnis
að þar sem ein staða hefði verið
auglýst laus beri að veita eina
stöðu og óski þeir eftir að heil-
brigðisráð geri nýja tillögu um
veitinguna.
Markús Örn Antonsson borgar-
ráðsfulltrúi sagði í viðtali við DB í
gær að þar sem stjórnkerfi
þessara mála gerði ekki ráð fyrir
tveim yfirmönnum með jafna
ábyrgð hefðu þeir sjálfstæðis-
menn greitt atkvæði gegn tillög-
unni, enda væri það þeirra
skoðun að einn yfirmaður ætti að
vera í þessu til að hafa heildar-
yfirsýn og bera ábyrgðina.
G.S.
Geirfinnsmúlið:
SÆVAR HAFDI DREGIÐ ALLT TIL BAKA
— þegar blaðamannafundur Sakadóms var haldinn 26. marz
Þegar blaöamannafundur
rannsóknarlögreglunnar um
Geirfinnsmálið var haldinn 26.
marz sl„ — þar sem greint var
frá framburðinum er leiddi til
handtöku fjórmenninganna er
voru látnir lausir í vikubyrjun
— hafði Sævar Marinó
Ciesielski þegar dregið fram-
burð sinn þar að lútandi til
baka.
Kristján Viðar Viðarsson
hafði þá nokkru áður einnig
dregið allan framburð sinn og
játningu til baka en siðan
staðfest allt aftur, eins og
reyndar var sagt frá á þessum
blaðamannafundi.
Dagblaðið hefur fyrir þessu
heimildir sem það telur ekki
ástæðu til að draga í efa.
Þá hefur nýlega verið skýrt
frá því að Erla Bolladóttir hafi
fyrir dómi sagt það „hugsan-
legt” að tveir löggæzlumenn,
þeir Kristján Pétursson og
Haukur Guðmundsson úr
Keflavík hafi verið á athafna-
svæði Dráttarbrautar Kefla-
víkur að kvöldi 19. nóvember.
Aðdragandi þeirrar yf-
irlýsingar var sá, að fyrir
dómi spurði Hallvarður Ein-
varðsson vararíkissaksöknari
Erlu að því, hvort hugsanlegf
væri að tiltekinn maður hefði
verið viðstaddur þetta kvöld.
Erla kvað já við því að það
væri hugsanlegt.
Lögmaður eins gæzlu-
fanganna spurði þá Erlu
hvort hugsanlegt væri að
Kristján Pétursson hefði verið
þar einnig.
Erla kvað já við því. það væri
hugsanlegt.
Dómarinn spurði Erlu þá.
hvort hugsanlegt væri að
Haukur Guðmundsson hefði
verið þar þetta kvöld.
Enn sagði Erla Bolla-
dóttir já, það væri hugsanlegt.
Fleiri áræddu ekki að
spyrja hvort einhverjir
tilteknir menn hefðu verið I
fjörunni.
Heimildarmaður Dagblaðsins
telur ekki ólíklegt, að svar Erlu
varðandi einn þessara manna
hafi byggzt á ákveðnum hug-
myndum hennar um samband
Sævars sambýlismanns síns við
einhvern þessara manna, en
það samband mun hún hafa
talið einkennilegt. Rannsóknar-
lögreglan hefur síðar athugað
þetta samband" eitthvað nánar.
Kristján Pétursson sagði í
samtali við fréttamann blaðsins
í gær að fyrst Erla hefði verið
sput'ð á þennan hátt um hvort
þessi eða hinn hefði verið við-
staddur atburðina í Keflavík að
kvöldi 19. nóvember. þá þætti
sér svar hennar ekki óeðlilegt.
— í rauninni hefði hver sem er
getað „hugsanlega” verið
þarna.
Dagblaðið hefur einnig
öruggar heimildir fyrir því að
Sævar Ciesielski og Einar
Bollason hafi t.d. aldrei verið
samprófaðir fyrir dómi — enda
hafði Sævar allt frá 10. febrúar
borið að Einar hafi ekki verið
með í meintri bátsferð. né
heldur Valdimar Ölsen. Þá mun
Sigurbjörn Eiríksson hafa
verið yfirheyrður aðeins einu
sinni allan tímann sem hann sat
í gæzluvarðhaldi, heila þrjá
mánuði.
-ÖV.