Dagblaðið - 23.07.1976, Side 1
2. ARG. — FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1976. — 160.
RITSTJÖRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, ^.UGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022.
Fámennt þegar skattskráin var lögð f ram í morgun í Reykjavík:
##
Manni bregður ónotalega
##
rœtt við nokkra borgara, sem kynntu sér hvaða byrðar
þeir eiga að bera nœsta árið
,,Ég er ekki búinnað fá minn
skattseðil, svo nú bíð ég eftir
því að fá að vita, hvað þetta
verður," sagði Sævar Einars-
son, en hann hittum við á skatt-
stofunni í morgun. Þegar
Sævar hafði fengið seðilinn
sinn í hendurnar þá brosti
hann bara út í annað og sagði
að þetta væri ekki svo slæmt.
„Eg bjóst við að upphæðin yrði
eitthvað nálægt þessu,“ sagði
hann. Það fara ekki margir
svona glaðir út af Skattstofunni
í dag.
Björgvin Ölafsson var komirui
á fjórðu hæðina til þess að sja,
hvort þeir hefðu tekið allt til
greina við útreikninginn.
„Manni bregður ónotalega
þegar hækkunin verður mikil
og þá er sjálfsagt að athuga
málið,“ sagði Björgvin.
„Þetta er allt í lagi hjá mér,
sagði Sigurður Steinbjörnsson
Hann var kominn á Skattstofuna
j erindagjörðum fyrir aðra. „Éfe
ætla bara að vona að þessari
peningasummu verði eytt á
skynsamlegan hátt. Ef það er
gert, þá er allt annað að borga
upphæðina sem manni er gert
að greiða,“ sagði Sigurður.
„Hugsaðu þér bara ef við
fengjum góða vegi eftir allt og
gætum keyrt um landið þvert
og endilangt án þess að vera
hulin rykmekki."
■L
999
Hlauttvenn gull
og kemur til íslands
ef tir nokkra daga
— Sjd íþróttir
bls. 14,15,16 og 17
Svipbrigðin voru með ýmsu
móti 4 fjórðu hæðinni í Toll-
stöðvarhúsinu við Tryggvagötu.
Menn sökktu sér niður í
bækurnar, sem lágu frammi á
borðunum þar. Það voru ekki
ýkja margir sem gengu þaðan
út léttari í spori, og þó. KP.
Það er ákaflega mikill verð-
munur á hakki í verzlunum,
eins og komið hefur fram bæði
í könnun sem Dagblaðið stóð
fyrir og könnunum sem verð-
lagsstjóri hefur látið gera.
Þótt.verðmunur sé á hakki
segir það ekki alla söguna, því
að gæðin eru nefnilega afar
mismunandi líka. Dagblaðið
fór á stúfana og keypti kinda-
hakk í átta verzlunum víðs
Dagbloðið gerir ítarlega könnun ó kindahakki:
Mikill verðmunur,
og ekki síður ó gœðum
vegar um bæinn, og fékk í lið
með sér kokka og aðstoðar-
hótelstjórann á Hótel Sögu til
þess að smakka og matbúa.
henni. Á myndinni sjáum við
„spesíalistana" á Sögu athuga
sinn gang.
Ýmislegt kom í ljós. Það er
ekki alltaf víst, jafnvel þótt
hakkið líti vel út, að það sé
eins gott á bragðið. Líka er það
þannig að þótt 100 g hamborg-
ari sé settur á pönnuna, þá
verður hann heldur betur
rýrari, þegar hann kemur af
Sjó nánar á bls. 12—13
Matsveinarnir á Hótel Sögu
iögðu á sig mikla vinnu til að
aðstoða við könnunina á hakk-
inu. Hér eru þeir við vinnu
(DB-mynd Bjarnleifur)
mWBIAÐW
blaðið er
SKATT AKONG ARNIR
síður í dag
*
4