Dagblaðið - 23.07.1976, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 23.07.1976, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JULl 1976. * 34 gjaldhœstu einstaklingar í Reykjavik — greiða allir yf ir 4 milljónir Hér birtist skrá fyrir 34 hæstu greiðendur gjalda í Reykjavík árið 1976. Skattstofumenn sögðit í morgun aðgera mætti ráð fyrir að tilgreind útsvarsgjöld manna væru um 10% af tekjum þeirra. Meginhluti heildargjalda er í mörgum tilfellum aðstöðugjald o.fl. en gjöldin eru samtals 18. 1. Pálmi Jónsr.on lögfr. Ásendi 1 ....................15.488.272 (tsk. 1.399.466, útsvar 451.100) 2. Sveinbj. Sigurðsson, húsasmfðam., Safamýri 73 ......14.473.329 (tsk. 7.682.312, útsvar 2.185.000) 3. Sigfús Jonsson múrari, Hofteigur 54................14.283.556 (tsk. 5.662.312, útsvar 1.633.100) 4. Sigurður Olafsson Iyfsali (R.apótek), Teigagerði 17 ..9.763.324 (tsk. 5.062.170, útsvar 1.489.200) 5. Þorbjörn Jóhannesson kaupmaður.Flókagata 59 .........7.783.405 (tsk. 3.737.090, útsv. 1.114.700) 6. Emil Hjartarson, húsgagnasm., Bólstaðarhl. 11........7.329.528 (tsk. 0, útsvar 0) 7. Guðmundur Arason forstjóri, Fjólugata 19B............6.725.437 (tsk. 3.581.187, útsv. 1.067.600) 8. Gunnlaug Hannesd. Langholtsv. 92....................6.609.925 (tsk. 3.309.638, útsv. 939.100) 9. Árni Gíslason bifreiðasmiður, Kvistaland 3...........6.258.123 (tsk. 3.383.752, útsv. 1.020.600) 10. Rúnar Smárason verktaki, Akrasel 2 ..................5.750.352 (tsk. 3.604.255, útsv. 1.110.800) 11. Rolf Johansen stókaupm., Laugarásv. 56 .............5.595.961 (tsk. 1.964.581, útsv. 604.400) 12. Bragi Jónsson framkv.stj., Háteigsv. 10 ............5.519.931 (tsk. 3.220.132, útsv. 1.116.300) 13. Halldór Snorrason útgerðarm., Nökkvav. 2 ............5.512.710 (tsk. 3.277.177, útsv. 996.000) 14. Kristinn Sveinsson byggingameistari, Hólast. 5 ...:...5.265.479 (tsk. 834.835, útsv. 336.900) 15. Guðm. Þengilsson, múraram. Depluhólar 5 .............5.199.789 (tsk. 3.238.312, útsv. 975.000) 16. John Ernest Benedikz, læknir, Espigerði 2 ..........5.105.973 (tsk. 3.349.331, útsv. 1.176.000) 17. Bjarni L. Árnason, veitingam., Kvisthagi 25 .........4.982.525 (tsk. 812.373, útsv. 326.400) 18. Matthías Einarsson heildsali, Ægissíða 103 ..........4.920.949 (tsk. 2.430.312, útsv. 751.200) 19. Andrés Guðmundsson apótekari, Hlyngerði 11..........4.917.612 (tsk. 2.650.371, útsv. 837.600) 20. Guðjón Böðvarsson, verzlunarm., Ljósaland 17.........4.877.638 (tsk. 3.131.414, útsv. 974.200) ; 21. Pétur Kr. Árnason múrarameistari, Bugðulækur 7 ....4.808.323 (tsk. 1.792.598, útsv. 675.600) 22. Jóhann L. Jónasson læknir, Hofteigur 8...............4.776.849 (tsk. 2.681.156, útsv. 1.099.800) 23. Jón Þórðarson kaupmaður, Stigahlíð 67................4.690.033 (tsk. 1.840.674, útsv. 616.200) 24. Christian Zimsen apótekari, Kirkjuteigur 21..........4.685.810 (tsk. 2.677.863, útsv. 805.700) 25. Eiríkur Ketilsson heildsali, Skaftahlíð 15 ..........4.581.909 (tsk. 2.430.312, útsv. 755.000) 26. Ólafur Tryggvason verkfr., Sunnuvegur 25.............4.510.238 (tsk. 2.538.969, útsv. 796.000) 27. Stefán Ól. Gíslason siglingafr., Hátún 7 ............4.483.251 (tsk. 2.671.096, útsv. 896.400) 28. Þorvaldur Guðmundss. forstj. Háahlíð 12 .............4.473.521 (tsk. 242.127, útsv. 160.500) 29. Heiðar R. Astvaldsson, danskennari, Sólheimar 23 ....4.430.922 (tsk. 2.599.144, útsv. 850.200) 30. Guðni Ólafsson apótekari, Lynghagi 6 ................4.241.222 (tsk. 1.794.840, útsv. 658.000) 31. Björn Hermannsson tollstj., Áiftamýri 39 ............4.172.258 (tsk. 2.712.344, útsv. 862.500) 32. Einar G. Ásgeirsson, skrifstofum., Langagerði 118....4.134.820 (tsk. 938.037, útsv. 320.600) 33. Ólafur Höskuldsson, tannlæknir, Grettisg. 98 ........4.120.979 (tsk. 2.599.911, útsv. 901.600) 34. Gunnar Jónasson forstjóri, Langagerði 9 .. ..4.058.306 (tsk. 1.733.129, útsv. 525.700) ÁFENGI FYRIR 1 % MILLJARÐ Á ÞREM- UR MÁNUÐUM í nýútkominni skýrslu frá Áfengjsvarnarráði kemur fram, að söluaukning á áfengi fyrir tímabilið 1. april — 30. júní 1976 miðað við sama tima í fyrra, hefur orðið 43,85%. Fljótt á litiö virðist þetta ntikil aukning en við nánari at- hugun kemur i ljós að verð- hækkanir á þessu tímahili vega algjörlega upp á móti þessari söluaukningu. Hinn 19. júní 1975 varð 15% hækkun á áfengi og 22. marz í ár varð 30% hækkun, eða samtals 45% af hundraði. Þó að sú tala sé hærri söluaukningarhlutfall- inu, er þar ekki um samdrátt að ræða heldur ber að taka tillit til þess, að fyrri 'nækkunin hafði áhrif í lok samanhurðartima- bilsins frá 1975. Heildarsala ÁTVR á fyrrgreindu tímabili nam 1.142 185.891 kr. Islendingar hafa því hvorki minnkað né aukið við sig drykkjuna, enda mun hafa verið selt svipað magn bæði tímabilin, að sögn forráða- manna Afengis- og tóbaksverzl- unar ríkisins. Ríkið sér vel um sig: Skattarnir halda vel í við óðaverðbólguna Skattskrá einstaklinga hœkkar um 43,5% frá 1975 og heildarólögur um 50,32% þegar söluskattur er talinn með Af skattskránni sem lögð var fram i gær kemur í ljós að skattar og álögð gjöld hafa þegar á heild- ina er litið haldið í við verðbólg- una og kannski vel það. Það kemur sem sé á daginn að ríkið sér um sig. Heildarálagning gjalda er sam- kvæmt skattskránni 1976 31.064,9 milljónir króna. Hafa þau hækkað frá árinu 1975 um 50,32%. Er hér um að ræða samanlögð gjöld ein- staklinga og félaga. Einstaklingum er samkvæmt skattskránni nú gert að greiða 10.265.9 milljónir. Sú tala var 7.453.9 milljónir árið 1975. Vegna lækkunar á persónuafslætti til skuldajöfnunar um tæpar 100 milljónir kr. milli áranna og til- tölulega lítillar hækkunar barna- bóta er heildarhækkun skatt- skrárinnar nú miðuð við 1975 43,58%. Gjaldendur í Reykjavík eru í ár 44.464 en voru 44.040 árið 1975. Hefur þeim fjölgað um 1,37%. Hækkun tekjuskatts einstakl- inga milli ára nemur 31,97%. Gjaldendur tekjuskatts eru 23.947 af 44.464 nöfnum í skattskrá. Eignarskattur einstaklinga milli áranna 1975 og 1976 hækkar um 134,61%. Útsvör einstaklinga hækka milli ára um 27,04%. Útsvör greiða 37.698 af þeim 44.464 sem greiða einhver gjöld samkvæmt skattskrá Reykjavíkur. Sjúkratryggingagjöld einstakl- inga hækka úr 0 í 457,5 milljónir króna. Skyldusparnaður einstaklinga hækkar um 31,62%, aðstöðugjöld þeirra um 27,93% og trygginga- gjöld, launaskattur o.fl. hækkar um 23.9%. Félögin A skrá yfir skattskyld félög í Reykjavík eru 2879 félög. Þau greiða í 12 liði skatta og gjalda samtals 3.373,9 milljónir króna en það er um 11.700 krónur á hvert félag til jafnaðar. Af þeim 2879 félögum sem er að finna í skatt- skránni greiða ekki nema 177 út- vör. 1724 félaganna greiða hins vegar tekjuskatt. Ef litið er á hækkun milli ára á gjaldskrá félaganna kemur 1 ljós að tekjuskattur þeirra hækkar um 50,19%,eignarskatturinn um 123,61%, aðstöðugjöldin um 38,06% og tryggingagjöld o.fl. um 23,18%. Sölugjald, þ.e. söluskattur, söluskattsálag og fleiri gjöld sem bætt hefur verið á söluskatt.svo aó nafni Hans var breytt í safnheiti, hefur hækkað milli áranna um hvorki meira né minna en 56.98%. Haft skal í huga að sölu- gjaldið sem er áætlað 14.914,5 milljónir króna árið 1976 er ekki skattur á félögin, heldur inn- heimta þau þetta gjald af almenn- ingi er kaupir hjá þeim vörur og þjónustu. Þannig eru félögin inn- heimtuaðili fyrir ríkissjóð en gjaldendurnir allur almenningur. — ASt. „MULTI-MILUÓNER" í HÁLFAN DAG — En œtti nú að geta notið sumarleyf isins Einn af gjaldendum útsvars og skatta í Reykjavík er Bergmann Runólfsson verka- maður til heimilis að Brávalla- götu 10 í Reykjavík. Er fjölmiðlum var í gær afhentur listi yfir hæstu gjaldendur í Reykjavík 1976 kom í ljós að Bergmann Runólfsson var 7. í röð- inni yfir hæstu greiðendur f Reykjavík. Samkvæmt listanum var honum gert að greiða kr. 6.917.686 krónur, eða rétl tæpar 7 milljónir. Dagblaðið hringdi í símanúmer Bergmanns og kom í ljós að hann var í sumarfkíi upp í Borgarfirði. Við sögðum erindið vera að spyrja hann um álit á álögðum sköttum hans þetta árið. Sú er svaraði varð undrandi á skattupphæðinni og taldi Bergmann vinna eingöngu í hreinsunardeild Reykjavíkur- borgar og ekki eiga umtalsverðar eignir. Dagblaðið bað þá Skattstofuna um frekari upplýsingar um málið Svarið lá fyrir litlu síðar. „Þetta eru leið mistök. Nafn Bergmanns á alls ekki heima á þessum lista yfir hæstu gjaldendur. Það hafa orðið mistök í mötun tölvunnar og mun vera einu núlli of mikið í útkomunni." Það er ljúft að leiðrétta þetta og Bergmann Runólfsson getur sofið rólegri en áður og vonandi notið sumarleyfisins. Hann á ekki að greiða 6,9 milljónir í skatt og gjöld, heldur mun réttar vera að hann eigi að greiða 690 þús. Nóg er það kannski samt. En Bergmann Runólfsson, sem tekur þátt í að hreinsa bæinn okkar, var ,,múltimilli“ hálfan dag hjá Skattstofunni. —ASt. Skattskrár fyrir landsbyggðina vœntanlegar um mdnaðarmótin Reykvíkingar og Vestmann- eyingar geta nú kynnt sér hver opinber gjöld þeirra verða. íbúar á öðrum stöðum verða að bíða um sinn. Þeir sem fá seðilinn næst eru íbúar í Reykjanesumdæmi. Skatt- skrá verður væntanlega lögð fram þriðjudaginn 27. júlí. íbúar á Suðurlandi fá sennilega ekki að vita um.skatta sína fyrr en í byrjun ágústmánaðar. Sömu sögu er að segja með íbúa á Norðurlandi vestra. Skattskráin verður líklega ekki birt fyrr en í byrjun næsta mánaðar. Skattstofan á Vestfjörðum hefur sent sín gögn suður og fara þau í vinnslu f Skýrsluvélum. Mega íbúar Vestfjarða eiga von á því að fá fréttir af „glaðningi" sínum einhvern tímann rétt fyrir mánaðamótin. Gögnin frá Skattstofu Vestur- lands fóru til Reykjavíkur i gær. Skattstofumenn gera sér vonir um að unnt verði að birta skrána rétt fyrir mánaðamót. Stefnt er að því að birta skatt- skrána fyrir Norðurland eystra föstudaginn 30. júlí. Svæðið sem það skattumdæmi nær yfir er frá Ölafsfirði til Þórshafnar. Skattskrá Austurlands er væntanleg eftir um það bil viku. Fóru sfðustu gögn að austan til Skýrsluvéla í gærkveldi. —BA Menn eru jafn alvörugefnir hvort heldur þeir eru að skila skattframtali með drengskaparheiti ellegar að bíða eftir þvi að sjá úrskurðinn.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.