Dagblaðið - 23.07.1976, Page 2
DAGBI.AÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JULl 1976.
ÞAÐ ER STUn VIÐ BAKIÐ Á
MANNIHJÁ AA-SAMTÖKUNUM
Skorað á útvarpsráð að endursýna þœttina með Joseph Pirro
Kona nokkur hringdi og vildi
koma eftirfarandi á framfæri:
Ég vil eindregið skora á út-
varpsráð að láta endursýna
sjónvarpsþættina með Joseph
Pirro, því þeir voru alveg frá-
bærir.
Ég var sjálf komin dálítið í
vínið og farin að drekka einu
sinni ti! tvis' ar í viku. Ekki var
ég þó svo langt leidd að ég væri
farin að „rétta mig af“ daginn
eftir. Fyrsta erindi Pirros var
flutt 8. júní og það hafði þau
áhrif á mig að ég leitaði uppi
bækistöðvar AA samtakanna og
fór á minn fyrsta fund daginn
eftir, eða 9. júní. Eg hef ekki
smakkað áfengi síðan.
Eg held að það sé miklu
auðveldara fyrir fólk að hætta
að drekka áður en það er komið
alveg í skítinn. Margur þarf
aðeins þennan góða stuðning,
sem Pirro ræddi um og hann
fær maður í AA-samtökunum.
Margir halda að þar séu einung-
is samankomnir einhverjir al-
gjörir alkóhólistar, en það er
mest misskilningur. Þarna eru
margir sem ekki voru komnir
alveg niður á botninn í þjóð-
félaginu.
Það var eitthvað í þessum
þáttum Pirros sem greip mig
svo sterkum tökum að ég vil
endilega, að sem allra flestir fái
tækifæri til þess að hlusta á
hann.
Væri ekki tilvalið að þætt irnir
yrðu endurteknir í haust þegar
skólafólkið verður komið heim
úr sumarvinnu og fólk almennt
úr sumarfríi?
Þá langar mig einnig til þess
að minnast á grein sem var í
Dagblaðinu á laugardaginn 17.
júlí um Joan Kennedy. Þar
segir frá þvi að hún hafi sjálf
farið á drykkjumannahæli,
fannst mér það mjög athyglis-
vert. É g vil hvetja fólk til þess
að lesa greinina.
Eg vil einnig benda á í sam-
bandi við frú Kennedy að ekki
hefur hún átt við fjárhagsleg
vandmnál að stríða eins og allur
almenningur, sem drekkur
áfengi hömlulaust, það er vana-
lega ekki fyrr en buddan fer að
síga alliskyggilega, að fólk fer
að hugsa um bindindissemi af
alvöru. Því miður.
En ég vil leyfa mér að efast
um að það sé satt sem í um-
ræddri grein stóð, að frú
Kennedy hefði verið farin að
drekka flösku á dag. Þá hefði
hún ábyggilega verið orðin
»
Joseph Pirro, læknirinn frá
Freeport sjúkrahúsinu á Long
Island, hafði geysilega mikil
áhrif á fólk með fyrirlestrum
sínum og fullkomin ástæða til
að endursýna þá með haustinu.
Kennedy hefur ekki í orðsins
fyllstu merkingu drukkið eina
flösku af sterku víni á dag, þótt
svona væri tekið til orða. Það er
trúlega átt við að hún hafi verið
farin að smakka vín að ein-
hverju leyti á hverjum einasta
degi og það þótti henni nóg um.
Eg vil einnig eindregið taka
undir ósk bréfritara um að
þættirnir með Pirro verði
endurteknir og þá á þeim tíma
sem flestir horfa á sjónvarpið.
A.Bj.
„sjúskuð" og heilsulaus og ekki
getað sinnt þeim opinberu
störfum sem hún verður að
gera.“
Athugasemd DB:
Það er ugglaust rétt að Joan
Allir sem komast þurfa leiðar sinnar í umferð höfuðborgarinnar vita að nánast ríkir þar öngþveiti
ákveðna tíma dagsins. DB-mynd Ragnar Th.
Tíl hvers eru
tvœr akrelnar?
Á Miklubrautinni eru tvær
akreinar í hvora átt eins og aPir
vita. Sá sannleikur að bílar éigi
yfirleitt að halda sig á hægri
akrein, og þá sérstaklega ef um
er að ræða vinnuvélar eða hæg-
gengari ökutæki, virðist ekki
vera eins kunnur.
Um daginn þurfti ég að aka
vestur Miklubraut á leið minni
í vesturbæ. Tveir vörubílar
með fullfermi af grjóti óku sem
næst hlið við hlið eftir götunni
og fvrir framan þann, sem var á
vinstri akrein , var einhvers
konar vinnuvél, sem ég kann
ekki að nafngreina. Ekki var
nokkur leið að komast fram úr
þessum bílum, sem óku alls
ekki með þeim hraða sem þarna
er levfilegur, eða 60 km/klst.
Af l.verju skyldu menn
ekki geta ekið eins og lög og
reglur segja fvrir um? Það
gefur auga leið að öll umferðin
verður miklu greiðari ef það er
gert. Nei, þessi bílstjórar halda
að það séu þeir einir sem
komast þurfi leiðar sinnar.
Hinir geti bara beðið!
Bíistjóri.
Rykið alveg óþolandi
Mikið óskaplega er rykið á
þjóðvegunum leiðinlegt. Það er
leiðinlegt fyrir ökumenn, en þó
hlýtur það að vera enn hvim-
leiðara fyrir bændur og búalið
sem þurfa að búa meðfram
þessum vegum. Varla er hægt
að ímynda sér annað en mikill
hluti landsmanna sé með
öndunarfærasjúkdóma af völd-
um ryksins.
Hefur virkilega ekki verið
hægt að finna eitthvert efni til
þess að bera ofaní vegina til
þess að hefta rykið? Á ferð nú
nýlega. um Borgarfjörð voru
tveir vegakaflar þar sem ekki
bar neitt á ryki. Fróðlegt væri
að fá upplýsingar um hvað ofan
í þá var sett. Vegfarandi.
Vísa um hjartabílinn
Í tilefni af frétt í DB 19. júlí
var biaðinu send eftirfarandi
vísa:
Sérhverjum nýjum sjúkra-
liðsvagni
sjálfsagt þykir að allir fagni.
En oftast tekst svo til, því
miður.
Þeir taki upp einn — og keyra
tvo niður,
Birgir Bragason
V
Hermóður