Dagblaðið - 23.07.1976, Page 9
DAC5BLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1976.
-
Skattar og
þúsundfalt
stjórans "
gjöld hafa hœkkað 10
á embœttisferli skatt-
Þó hef ur skattstofan ekki getað kannað allt sem hún vildi kanna
„Ég er nú ekki búinn aö vera
í skattamálunum nema í 46 ár,“
sagði Halldór Sigfússon skatt-
stjóri á blaðamannafundi í gær,
„en ég er ekki farinn að skilja
þau almennilega ennþá, sízt nú
orðið. Að fást við framtölin og
leggja skattana á fer að verða
álíká flókið útreikningsfyrir-
brigði eins og að lenda á Mars.“
Fyrsta skattskráin undir yfir-
stjórn Halldórs Sigfússonar
kom út 1934. Þá voru heildar-
skattar og útsvör í Reykjavík
um 3 milljónir kr. Nú nema
heildargjöldin — sem eru 18 að
tölu að meðtöldum söluskatti —
þrjátíu og einum milljarði
króna. Svarar það til meira en
hálfra fjárlaga ríkisins. Það er
meira en tiuþúsundfalt frá því
sem var 1934 eða tölulega
hækkun yfir eina milljón
prósent.
„Skattstofan í Reykjavík
hefur verið olnbogabarn í
kerfinu. Hér hófust miklar
rannsóknir á bókhaldi manna
og fyrirtækja og hafa oft verið
öflugar. Nú starfa 11 menn
í bókhaldsrannsóknadeild
Skattstofunnar. Við höfum þó
oft ekki getað kannað allt sem.
við vildum.
Hér vantar fólk og það fólk,
sem hér er, hefur of lágt kaup.
Þess eru dæmi að fólk sem hér
hefur fengið starfsþjálfun hafi
hækkað um 7 launaflokka við
það að fara í vinnu til skatt-
rannsóknastjóra.“
Nú eru allir sem að skatta-
málum vinna að vfkja fyrir tölv-
unum. Og þegar Halldór var að
þvf spurður, hvort næsti skatt-
stjóri yrði tölva, svaraði hann
um hæl.
„Ég vona þá að hún verði
eins mikill húmoristi eins og
við hér á Skattstofunni erum.“
Skattakóngar í Reykjavík:
HVAÐ ERU MENN AÐ KIPPA
SÉR UPP VIÐ SKATTSEÐILINN?
„Nú þetta hefur bara lítið sem
ekkert hækkað,“ sagði Emil
Hjartarson húsgagnasmiður og
eigandi trésmiðjunnar Meiðs og
TM-húsgagnaverzlunarinnar,
er DB varð fyrst til að færa
honum fréttir af þeim opinberu
gjöldum sem hann þarf að
greiða í ár. Emil er 6. maður á
lista í Reykjavík og er með eitt
stórt 0 í tekjuskatt og útsvar en
7.329.528 krónur f önnur gjöld.
„Ég er ekkert undrandi og
þykir þetta afar sennileg tala.
Ég skil ekki hvað menn eru að
kippa sér upp við það að fá
skattseðilinn, hann lýgur
sjaldnast og er því engin
ástæða til að æsa sig út af því.
Annars hafa eflaust margir
hækkað sfðan f fyrra þó þetta sé
svipuð upphæð hjá mér núna
og var þá,“ sagði Emil að
lokum.
Svipaða sögu höfðu flestir
þeirra skattakónga að segja sem
DB hafði samband við f gærdag.
„Er ég bara orðinn númer
þrettán," sagði Bragi Jónsson
framkvæmdastjóri Orku hf., er
DB hringdi í hann í gær og
spurði um viðbrögð hans við
þeim heiðri að vera kominn í
13. efsta sæti skattskrárinnar i
Reykjavík.
„Ég var nú reyndar ekki'
búinn að frétta þetta, en þetta
er ósköp svipað og ég bjóst við,
Maður getur nú alltaf áætlað
eitthvað fyrirfram. En þetta er
veruleg hækkun frá því f fyrra
og það er margt sem veldur þvf,
sem ekki er vert að ræða nánar
hér,“ sagði Bragi f lokin.
Bragi Jónsson, er eins og fyrr
segir í 13. sæti f Reykjavík og er
með samtals 5.519.931 krónu í
opinber gjöld. Þar af eru
3.220.132 krónur f tekjuskatt og
1.113.300 krónur í útsvar.
Reyndar gátum við flutt
Braga góðar fréttir skömmu
eftir símtalið að hann hefði
hækkað upp i 12. sætið og var
það eftir útstrikun á verka-
manni hjá Reykjavíkurborg,
sem hafði fengið einu núlii um
of í gjöld og sagt er frá annars
staðar í blaðinu
—JB—
»
Emil Hjartarson rekur mikla
húsgagnaframleiðslu og sölu á
húsgögnum. Þegar menn fá
mikið fé í aðra hönd, verða þeir
víst að gjalda gjaldheimtunni
það sem gjaidheimtunnar er.
DB-mynd Bjarnleifur.
Lyfsölum er fleira til lista lagt en að gefa réttu
meðulin við meinum alls konar. Sigurður Ólafs-
son i Reykjavíkurapóteki var kominn upp í
stiga og farinn að skrapa máiningu af glugga-
póstunum áður en þeir verða málaðir að nýju.
DB-mynd Bjarnleifur.
h
Rolf Johansen stórkaupmaður, umboðsmaður
fyrir ekki óvinsæili vindlingategundir en
Winston og Camel, var að dútla úti við bílskúr
þegar Arni Páll DB-ljósmyndari festi þetta góða
bros á filmu.
Halldór Snorrason hittum við heima hjá honum
en hann var nýkominn úr sinni vinnu þar sem
hann rekur fiskverkun á Gelgjutanga. Það var
ekki á honum að sjá að skattarnir færu verulega
í taugarnar á honum.
DB-mynd Arni Páll.