Dagblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 10.08.1976, Blaðsíða 6
DACHLAÐIÐ. ÞKIO.JUIMCUK 10. ACUST 1976. HJÓLBARÐAR Dl'Nl.Oi' i'.vkur slödiií'ltOka hil’rciöarinnar i akslri DllNI.OI’ h.jólharöarnir cru serslaklena virkir í hlcvlu I)l'N'I.OI, cr cndinuaruoö uauVav ara. Verð Stœrðir aðeins 145x 10 sporl U’K 5.250.- 155x12 sporl li*K 5.12(1. 145x1.! sporl 4PR 6.100. 560x13 1)75 4PR 6.400.- 750x16 RK:i6PR 11.400.- Gerið verðsamanburð M /1USTURBAKKI HF SKEIFAN 3A - SÍMAR 38944 - 30107 Grásleppuhrogn Óska eftir tillioói í allt að 40 tunnur af grásleppuhrognum. Tilboð sondist DB merkt ..HRO(íN '7H“ fvrir 12. áfíúst. Lyfsöluleyfi, sem f orseti íslands veitir Lyfsöluleyfió í Neskaupstaó er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 3. september 1976. Umsóknir sendist landlækni. Samkvæmt heimild í 32. gr. lyfsölu- laga nr. 30 29. apríl 1963 er viðtakanda gert sk.vlt aó kaupa vörubirgóir og áhöld l.vfjabúóarinnar. Einnig skal viótakandi kaupa húseignina Egils- braut 7, þar sem lyfjabúóin og íbúó lyfsala er. Leyfió veitist frá 1. október 1976. Heilbrigðis- og tryggingamólaróðuneytið 6. áuúsl 1976. Gegn samábyrgð flokkanna það lifi Hœtta á ferðum: „Eyjahafið er ekki grískt stöðuvatrí' — segja Tyrkir og halda áfram olíuleitinni Crikkir hafa nu sakaó Tyrki um alvarlef>t brot á umferö um efnahaKsIögsögu sína og sagöi talsmaður srískra yfirvalda, að þegar hefði verið farið fram á það við Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, að það fjallaði um málið á sérstökum fundi. Korsadisráðherra Crikkja, Konstantín Karamanlis, sagði í Kærkvöldi, að hann hefði farið fram á það við Öryggisráðið og Alþjóðadómstólinn í Haag, að fjallað yrði um það, sem hann nefndi gróft hrot Tyrkja á lögum um siglingar um efna- hag.slögsögu Grikkja i Eyjahafi, eftir að þeir hófu olíuleit þar með olíuleitarskipinu Sismik I. Sagði hann, að þrjú hrot hefðu átt sér stað siðan á föstudag. Þá hafa Grikkir sent Tyrkjum ný mótmæli bréfleiðis, en ríkisstjórnin 1 Ankara hefur ekki tekið neina afstöðu til þess, segir, að haldið verði áfram olíuleit á Austur- Eyjahafi a.m.k. næstu tíu daga. Eða eins og forsætisráðherra Tyrkja, Suleyman Demirel, sagði i gær,: „Eyjahafið er ekki grískt stöðuvatn.“ Suleyman Demirel, forsætisráðherra Tyrklands. Af mistökum birtist í gær mynd af fyrrverandi forsætisráðhcrra Tyrkja, Bulent Ecevit. Kúbanska skáldið Lezama látinn Kúbanski smásagna- höfundurinn og ljóðskáldið Jose Lezama Lima, sem m.a. reit „Paradís", lézt í Havana í gærdag. Hann var 65 ára að aldri. Að meðtöldum þeim Nicolsd Gullen og Alejo Carpentier, var Lezama hvað þekktastur kúbanskra rithöfunda utan heimalands síns. Lezama hafði þjáðst af asma og öndunarfærasjúkdómum og hafði lítið skrifað undanfarin ár. Lezama var fæddur i Havana, lauk þar lög- fræðinámi og hóf ritstörf upp úr 1940. Eftir byltingu Fidel Castros árið 1959 var hann skipaður formaður bókinenntadeildar Menningarráðsins á Kúbu. Ein frægasta bók hans, „Paradís". fjallaði um kynvillu og næturlif á Kúbu fyrir b.vltinguna og vakti mikla hneykslan víða um heim á sínum tíma. Drepsóttin íPennsylvaníu: Er hún af mannavöldum? Heilbrigðisyfirvöld í Penrisyl- vaniu, sem enn reyna að komast að því um hvers konar veiki hafi verið að ræða, er 27 manns létu lífið. yfirheyra nú alla, sem þátt tóku í þingi fyrrum hermanna í Harrisburg i síðasta mánuði. Allir þeir sem létu lífið — 128 aðrir tóku veikina, en eru nú á batavegi, — höfðu eitthvað haft með þing hermannanna að gera, en fulltrúar þar voru um tíu þús- und talsins. Þingfulltrúarnir eru núspurðii að því, hvað þeir hafi drukkið og borðað, hvaða hótelogveitingahús þeir hafi komið á og með hverjum þeir hafi verið í hvert skipti. Heilbrigðisyfirvöld í fylkinu höfðu engar nýjar upplýsingar um málið í gær. Hafa sér- fræðingar útilokað möguleikann ásýkingu af völdum einhverrar bakleriu eða vírus og hallast helzt að því, að um einhvers konar eitrun eða gasmyndun hafi verið að ræða, jafnvel af mannavöldum. Einum hinna sýktu hjúkrað. Þessi er bílstjóri, sem flutti dósa- mat á fund hermannasam- takanna. Félagar Patty Hearst á flóttanum: HARRIS-HJÓNIN SEK — en Patty gerð ábyrg fyrir skothríðinni á verzlunina Tveir ' félagar milljóna- erfingjans Patriciu Hearst úr Symbíónesíska frelsishernum (SLA) og samferöafólk hennar á flóttanum undan lögreglunni, hjónin William og Emily Harris, hafa verið sek fundin um fimm brot. sem öll voru framin á meðan Patty var viðstödd. Ákærurnar á hendur hjónunum voru alls ellefu. Patty mun síðar sjálf koma fyrir rétt ákærð um sömu brot. Kviðdómunnn sal a rökstólum í 51 klukkustund áður en hann komst að þeirri niðurstöðu, að Harris-hjónin væru saklaus af sex ákærum um beitingu banvænna vopna. Það þýðir i raun, að Patty cr Kcrö ábyrg fyrir því aö skothríð hófsi þegar starfsmenn í verzlun reyndu að handsama þau hjónin við búðarþjöfnað 16. maí 1974. Ilarris-hjónin voru sek fundin um liinm önnur ákærualriði. þar á mcðál vopnað rán. mannrán.og bilþjólnað. Þau ciga vfir höfði scr lils’liðar fangclsisdóm. Patty Hearst hóf vélb.vssuskothrið á verzlunar1 gluggann til að bjarga Harris- hjónunum, þegar upp um þau komst. Þau þrjú rændu síðan nokkrum bílum — tvisvar ásamt bílstjórum — til að komast undan lögreglunni. Ekki hefur verið ákveðið hvenær dómur verður kveðinn upp yfir Harris-hjónunum, en þau eiga enn eftir að koma fyrir rétt í Oakland ákærð um að hafa — ásamt fleiri SLA-mönnum — rænt Patty Hearst frá heimili hennar í febrúar 1974. Harris-hjónin og verzlunin, sem Patty hóf skothriðina á til að bjarga þeim.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.