Dagblaðið - 10.08.1976, Side 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGUST 1976._'__9
STIGINN ÓTÍMABÆR VIÐ
NÚVERANDIAÐSTÆÐUR
— Telur rétt að fara hœgar af stað miðað við verð stigans
Knútur
Otterstedt,
framkvœmda
stjóri Laxór-
virkjunar:
Miðaö við núverandi
aðstæður og miðað við það fé,
sem talið er að þessi laxastigi
muni kosta, tel ég ótímabært að
ráðast í byggingu hans strax,
sagði Knútur Otterstedt Iram-
kvæmdastjón Laxárvirkjunar í
viðtali við DB.
Hann sagðist telja réttara á
þessu stigi að fanga lax neðan
virkjunar og flytja uppfyrir.
Það væri vel framkvæmanlegt
og þyrfti ekki að kosta mikið fé.
Síðan ætti að fylgjast með
hvernig honum reiddi af, eða
öðrum fiski í sambýlinu við
hann, og taka ákvörðun um
stigann í ljósi reynslunnar af
því.
Hann sagðist fyrir sitt leyti
ekkert hafa á móti smíði
stigans ef nægilegar forsendur
og öruggar væru fyrir því að
hann virkaði og öruggt væri að
laxinn dafnaði ofan virkjunar.
-G.S.
Mikið annríki
framundan að
Kjarvalsstöðum
— aðsóknin hef ur verið góð það sem
af er drinu
— Við erum ánægðir með starf-
semina síðan Listráð tók við, en
húsið er nú rekið með nýju sniði
og því hafið nýtt skeið í sögu þess,
sagði Aðalsteinn Ingólfsson,
framkvæmdastjóiú Listráðs, er
DB ræddi við hann fyrir skömmu
um rekstur Kjarvalsstaða.
— Aðsóknin verður að teljast
góð, meðaltalið á hverja sýningu
er um 5000 manns. Það eru alltaf
ákveðnir Islenzkir listamenn sem
eiga tryggan vissan fjölda sýn-
ingargesta og eru þeirra sýningar
yfirleitt þær bezt sóttu. íslend-
inga eru ekki eins opnir fyrir að
skoða það sem þeir kannast ekki
vel við og því ganga erlendar sýn-
ingar yfirleitt mun verr. Af þeim
sýningum sem haldnar hafa verið
i sumar ber hæst minningarsýn-
ingu Barböru Árnason og sýn-
ingu Eiríks Smith, en þær voru
báðar mjög vel sóttar.
— Nú framundan eru margar
sýningar og er þegar búið að
skipuleggja starfsemina fram í
apríl á næsta ári. Er þar mikið um
erlendar sýningar, svo sem
kynning á enskri málaralist og
pólskri grafík, kóreönsk Ijós-
myndasýning, samnorræn textil-
eðavefjarlistarsýning, sem er sú
stærsta sinnar tegundar á Norður-
löndum. Þá má einnig nefna
skipulagssýningu Reykjavikur-
borgar, Brúðuleikhús Jóns E.
Guðmundssonar, minningarsýn-
ingu Gunnars Hannessonar ljós-
myndara og afmælissýningu Hall-
dórs Péturssonar. Haustsýningin
verður dálítið óvenjuleg því í
tengslum við hana verða haldnir
fyrirlestrar, flutt tónlist og
sýndar kvikmyndir um enska,
franska og e.t.v. ameríska list. Svo
eru alltaf fastir þættir í fræðslu-
starfseminni, þar munu koma
fram leikarar og tónlistarmenn,
Aðalsteinn Ingólfsson
rithöfundavökur haldnar, og í
október verða fyrirlestrar ásamt
skuggamyndum um erlenda og
innlenda list, sem ég mun sjálfur
annast. Nokkrir íslenzkir lista-
menn hafa sótt um afnot af hús-
næðinu og man ég þar helzt eftir
Baltazar, Hring Jóhannessym,
Þorbjörgu Höskuldsdóttur og
Hauki Dór.
Næsta ár verður sem sagt mikið
annríkisár að Kjarvalsstöðum og
erum við mjög bjartsýnir á kom-
andi ár, sagi Aðalsteinn Ingólfs-
son að lokum.
— JB
Bœjarstjóramólið í Eyjum:
„Rannsókn lýkur
eflir helgina"
— segir setudómarinn
,,Það hefur aðallega veuð
tímaskortur minn sem hefur
tafið dómsrannsóknina,"
svaraði Jón Öskarsson, setu-
dómari í bæjarstjóramálinu í
Vestmannaeyjum, spurningu
DB um hvað ylli þeim drætti
sem orðið hefur á
rannsoKninm. jon var skipaður
setudómari í málinu í janúar.
„Ég kemst vonandi í þetta
um helgina, yfirheyrslum er
ekki að fullu lokið,“ sagði Jón.
„Þessu lýkur alla vega á næstu
dögum.“
-ÓV.
BLAÐAÐ í SKAl I7SK RÁNI Nl
Nafn tsk. eignask. útsvar barnab'. samtais
Hreinn Sumarliðason kaupmáður 0 21.603 10.700 37.500 -í-5197
Frank Michelsen úrsmiður 0 36.885 121.100 93.750 185.335
Sverrir Hermannsson þingmaður, frkv.stjóri 752.177 0 393.800 150.000 995.977
Eðvarð Sigurðsson þingmaður 463.175 0 198.500 0 661.675
Þórarinn Þörarinsson þingmaöur. ritstj. 778.598 14.533 329.400 0 1.212.531
Magnús Torfi Ölafsson þingmáður 293.637 12.938 174.200 0 570.775
Guðmundur H. Garðarson þingmaður 651.783 73.921 365.000 37.500 1.053.204
Gils Guðmundsson þingmaður 369.043 0 176.500 0 545.543
Gylfi Þ. Gíslason þingm. prófessor 620.554 51.712 285.200 0 672.666
Jón Hnefill Aðalsteinsson og Svava Jakobsdóttir 524.604 5.969 447.800 0 978.373
Þór Vilh.jálmsson og Ragnhildur Helgadóttir 604.757 77.143 407.400 93.750 995.550
Þorsteinn Thorarensen og Sigurlaug Bjarnadóttii' 582.335 99.636 266.900 0 948.871
Magnús K.jartansson þingmaður 208.312 733 204.200 0 413.245
Sighvatur Björgvinsson þingmaður 494.627 31.703 263.100 206.250 583.180
Eyjólfur Konráð Jónsson þingmaður 864.166 101.333 400.300 37.500 1.328.299
Pétur Sigurðsson þingmaður 548.076 0 240.600 93.750 788.676
Björn Guðbrandsson læknir 209.888 60.236 228.000 0 498.124
, Guðmundur Jörundsson útgerðarmaður 0 0 145.700 0 145.700
Einar Sigurðsson útgerðarmaður 313.918 807.181 193.900 93.750 1.217.249