Dagblaðið - 20.08.1976, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 20.08.1976, Blaðsíða 3
I > \i ;BI.AtJIÐ. I-'O.s ri DACl'K 20. ACt'ST 1976. 3 N Hverjir vildu ó slysi við Gullfoss? Stórhœttuleg slysagildra liggur niður að f ossinum Ö. Á. skrifar: Margir sem leið hafa átt aó Gullfoss og nágrenni hafa eflaust furðað sig á þeirri slysa- gildru sem þar er. Á ég þar við troðninginn sem liggur út að fossinum. Algengt er að fólk leggi leið sína eftir honum út að Gullfossi og blöskrar mörgum að sjá lítil börn hiaupa þarna um eftirlitslaus, eins og stundum hefur verið. Mikil slysagildra er falin í þessum troðningi, þar sem úði frá fossinum leggst yfir grasið og verður þarna því flughált. Er ekki að sökum að spyrja — ef einhver rennur þarna niður eða verður fótaskortur, að sá liinn sami mun líklega ekki eiga afturkvæmt. Hvernig væri nú að setja þarna upp öryggishandrið og annan útbúnað sem gerði fólki auðveldaraað ganga niður að þessu merka náttúrufyrirbæri og vinsæla ferðamannastað. Þeir væru sjálfsagt fáir sem vildu svara til saka ef slys yrði á sta'ðnum, svo bezt væri að byrgja brunninn áður en barn- ið dettur ofan í. bera óbyrgð Gullfoss er mjög eftirsóttur og vinsæll ferðamannastaður bæði meðal innlendra og erlendra, og væri sorglegt ef þar yrði dauðaslys vegna skorts á öryggisbúnaði. FORUGAR VATNSGUSUR — gosbrunnurinn í Tjðrninni á slœmum stað í roki ganga gusurnar yfir Tjarnarbrúna. Rannveig Þórðardóttir skrifar: Nýlega var settur gos- brunnur í minni Tjörnina í Reykjavík eins og flestir hafa annað hvort orðið varir við eða lesið um. Ég átti leið yfir Tjarnarbrúna nýlega. Hvasst var og þegar ég fór að nálgast gosbrunninn og var næstum komin yfir brúna, varð ég vör við að yfir mig gengu fúlar brúnleitar vatnsgusur. Alla leiðina inn undir Bjarkargötu skvettist forarleðjan upp úr Tjörninni yfir mig og óhreinkaði fötin mín. Það er auðvitað gaman að hafa gosbrunn, en þessi er heldur nálægt götunni og gagnstígun- um í kring. Einnig var hann heldur ófrýnilegur i rokinu og ég arkaði áfram renn- blaut, þó að þurrt væri í veðri. Það var skemmtilegt að ganga þessa leið yfir Tjarnarbrúna, en það er öðru nær að það sé það lertgur ef hvasst er. Tjörnin er^ óhrein og* gruggug og það er ekki gaman að fá for yfir födn sín. Gosbrunnurinn eí því óþarfur að mínu áliti a.m.k. á þessum stað. Sofandi þjóð — mál að fara að vakna af deyfðar- FÍB ætti að vera i furarbroddi í baráttunni fyrir hagsmunum bíleigenda. DB-mynd Ragnar Th. svefninum Bíleigandi hringdi: Ein bensínhækkunin enn að skella yfir, eða hvað? Það er eins og ráöamenn hérlendis séu að stefna að þvi að ganga af okkur dauðuin! Ætli þeir séu að stefna að því að fækka einkabílum hér á landi? Þeir stefna áreiðanlega að sama kerfi og er í Sovétríkjunum! Hvernig er þetta annars með þann félagsskap sem nefnir sig Félag íslenzkra bifreiða- eigenda, hefur hann lognazt alveg útaf? Ekki er að sjá að félagið sé dautt þegar haldnar eru rally-keppnir alls konar. Þá er uppi fótur og fit og þetta félag er þá ekki sofandi. Mér finnst nú að þessi félagsskapur ætti að berjast fyrir hagsmun- um bifreiðaeigenda og láta sportið koma næst. Annars er þetta alveg stórmerkilegt með okkur Islendinga hvað við látum vel að stjórn. Við erum eins og þæg lömb. Tökum öllu með jafnaðargeði, verðhækkunum jafnt og öðru. Það er ráðskazt með okkur eins og hver önnur ^smábörn. Við skulum nú reyna að taka okkur á og vera ekki þessir aumingjar. Annars höfum við engin áhrif á gang mála í þessu landi okkar. Tökum höndum saman og gerum -eitthvað gegn þessum hækkunum. Þar ætti FÍB að vera í fararbroddi, þetta er jú hagsmunafélag bíleigenda. Spurning Ætlarðu á útsölu? Pétur Sörlason: — Nei, það er mjög sjaldan sem ég hef gert það. Þegar ég hef litið á þær hef ég aldrei fengið neitt. Það er venju- lega bú ð að selja það bezta úr. Indriði Þorkelsson, vinnur í bygg- ingavinnu: — Nei, ég fer aldrei á útsölur vegna þess að ég er alltaf svo blankur. BjÖrk Sigurðardóttir kennari: — Já, ég kaupi oft á krakkana á útsölunum, það er ýmislegt hægt að finna sem góð kaup eru í. tnga Valdemarsdóttir hjúkr- unarnemi: — Nei, það geri ég mjög sjaldan. Eg veit ekki hvort það borgar sig nokkuð, það eru oft verri vörur á útsölunum. Guðríður Baldursdóttir nemi: — Já, ég fer einstöku sinnum á út- sölurnar í tízkuverzlunum, þar er hægt að gera ágætis kaup ef maður kemur nógu snemma. Björn Sigurbjörnsson loftskeyta- maður: — Nei. ég held ég sleppi því alveg.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.